Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 32

Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 32
32 Trúnaðarmannanámskeið NBU Vinnuaðstaða trúnaðarmannsins, bankamenntun og breytingar í banka- kerfinu voru aðalumræðuefni á trún- aðarmannanámskeiði NBU, sem haldin var í Bergendal I Svíþjóð dagana 1.-5. september 1986. Mér finnst ómetanlegt að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í slíku námskeiði og fá að kynnast viðhorfum hinna þátttakendanna, sem komu frá miklu fjölmennari samböndum en við, íslensku þátttakendurnir, og reynsla þeirra, að starfa sem trúnaðarmenn, er töluvert lengri. Til fróðleiks má geta þess að í NBU eru meðlimir 153.500 (31/12’85) og þar af eru í SÍB 3500. Eftir 9 klst ferðalag að heiman, til Bergendal, komum við okkur fyrir í vistlegum húsakynnum TCO-skólans, Guðrún Ástdís Ólafsdóttir frá SÍB, Soffía Axelsdóttir, Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis, Gunnar Atlason, Búnaðarbanka íslands, Stykkishólmi, og ég, Eva Örnólfsdóttir, Samvinnu- banka íslands hf. Skólinn hefur verið námskeiðamiðstöð fyrir félagslega menntun í 3 áratugi, enda aðbúnaður allur mjög góður. Elsta byggingin er frá 1910 (gamall herragarður) og við- byggingar sem gerðar eru allt til 1976, mjög nútískulegar og fallegar. Um- hverfið er einnig afar fallegt. Því fengum við að kynnast í morgunskokk- inu, sem hófst strax fyrsta morguninn kl. 6.30. Námskeiðið var sett að kvöldi 31. ágúst og var þá kynntur bakgrunnur og tilgangur slíkra námskeiða, sem er m.a. sá: - að auka þekkingu þátttakenda á starfsemi NBU - að gefa þátttakendum kost á að skiptast á skoðunum um starf og starfsaðstöðu trúnaðarmanna í bönkum og sparisjóðum á Norður- löndum Slík námskeið hafa verið haldin ár- lega síðan árið 1980. Þátttakendurnir, 40 talsins ásamt 6 leiðbeinendum og fr.kv.stj. NBU, Jan Erik Lidström, kynntu sig og sýndu á landakorti hvaðan þeir komu. Kvöldin voru síðan notuð til þess að kynnast hvert öðru betur, þá sungum við saman, dönsuðum og skemmtum okkur eftir bestu getu. Fyrsta verkefnið daginn eftir var að setja niður á blað hvers við væntum af námskeiðinu. Þetta var að vísu orðað á mismunandi vegu, en var í meginat- riðum sama meiningin: Að skiptast á reynslu, fá persónuleg sambönd, fá styrk og trú í eigin starfi, kynnast viðhorfum til félagsstarfa, hugmyndir um framtíðina o.fl. Námskeiðið byggðist að mest upp á hópvinnu þátttakenda. Okkurvar skipt niður í 6 hópa og vann hver og einn að fyrirfram völdu umræðuefni: Bankamenntun: Menntunin reyndist að mínu mati best í Noregi og hin Norðurlöndin fylgdu síðan í kjölfarið. Þá fannst mér við hér á íslandi eiga langt í land með að mennta okkar eigið bankafólk. Eftir miklar umræður urðu menn sammála um að þekking á sem flestum sviðum bankastarfsemi væri besti grundvöllurinn. Eftir að hafa öðlast slíka undirstöðu væri allt í lagi að sérhæfa starfsmenn. Einnig voru menn sammála, að þekking og reynsla eldri starfsmanna væri mjög mikil- væg. Það kom einnig fram að á hinum Norðurlöndunum hafa ekki allir jafna möguleika til menntunar. Breytingar í bankakerfinu: Tæknin og framtíðin voru aðalumræðuefnið og þá komst heldur betur hiti í umræð- urnar. Mönnum var svo mikið niðri fyrir að kaffi- og matartímar voru styttir eins og mögulegt var til þess að fá meiri tíma til umræðnanna. Niður- staðan varð sú helst, að við getum ekki verið án neinnar þeirrar tækni, sem við höfum yfir að ráða í dag. Tæknin tekur framförum hvort sem við viljum eða ekki og þá er bara að fylgjast vel með og notfæra okkur tæknina okkur í hag. Síðan gátum við valið okkur efni: Jafnrétti, launakjör, vinnutíma, með ákvörðunarrétt og hlutverk sambands- ins. Jafnréttið var sett á oddinn hjá NBU þetta árið og valdi ég það um- ræðuefni. í þessum hópi voru eingöngu konur. Síðar, þegar niðurstöður voru kynntar, kom mjög skýrt fram, að jafn- Guðrún Ástdís útskýrir tillögu vinnuhóps til NBU, um launamal bankamanna fyrir þátt- takendum námskeiðsins.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.