Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 29
Hvemig er staðið að þjálfun starfs-
mannafyrirtœkisins?
Starfsmenn okkar fara í gegnum sér-
stakt þjálfunarprógram. Þar fá þeir
þjálfun í meðferð allra þeirra tækja
sem notuð eru. Fulltrúar framleiðenda
og erlendir sérfræðingar heimsækja
okkur reglulega, kynna nýjungar og
veita tilsögn. Öryggisverðir okkar
læra hjálp í viðlögum, meðferð
slökkvitækja og svo auðvitað meðferð
þeirra tækja sem þeir nota við starfið.
Að auki eru þeir í stöðugu sambandi
við öryggismiðstöð okkar.
Þú nefnir tœki. Hvaða tœki eru helst
notuð?
Þau tæki sem notuð eru mynda
ákveðin öryggiskerfi. Nefna má t.d.: 1)
Innbrotsvarnarkerfi. 2) Brunavarna-
kerfi. 3) Vatnsaðvörunarkerfi. 4) Að-
gangskerfi. Með öllum þessum kerfum
er fyrst og fremst verið að koma í veg
fyrir skaða, eða draga sem mest úr
skaða sem skeður. Mörg fyrirtæki og
bankar tengja kerfi sín við öryggis-
miðstöð okkar til að tryggja skjót
viðbrögð.
Þegar hér var komið sögu, þá beind-
ist talið að öryggismálum í bönkum.
Sagði Baldur þá frá því að einn þátt-
urinn í starfi VARA væri að vera
stöðugt í sambandi við erlend fyrir-
tæki sem væru einmitt framarlega á
þessu sviði. VARI hefði því aðgang að
upplýsingum og sérfræðiþjónustu
varðandi þetta atriði. Við báðum
Baldur að fjalla eilítið um öryggi í
bönkum.
Aðalatriðið er að vernda líkamlegt
öryggi starfsmanna. Reynsla erlendis
frá, þar sem þankaránum fer fjölgandi
(og nú hafa slíkir atburðir skeð hér hjá
okkur) sýna svo ekki verður um villst,
að ýmsir starfsmenn banka eru í
miklum áhættustörfum. Ég vil t.d.
nefna þá sem eru í peningaflutningum,
gjaldkera og gæslumenn. Öryggi fjár-
muna er einnig tryggt og að svo miklu
leyti sem hægt er með tækjum. Eitt
dæmið um það eru öryggiskerfi í
hvelfingum. Með tilkomu tölvubank-
anna kemur öryggi viðskiptavina
bankanna einnig inn í myndina meira
en áður var. Þetta allt gera stjórnendur
bankanna sér að sjálfsögðu ljóst og við
höfum m.a. veitt ráðgjöf og þjónustu í
þessu sambandi.
Öryggismálum þarf að gefa meiri
gaum. Um það er að velja, að bankarnir
ráði til sín fólk til að gegna öryggis-
störfum, eða þá að fyrirtæki eins og
VARI er ráðið til þess. Ekki skiptir í
sjálfu sér máli, hvor leiðin er farin,
heldur hitt, að þessi mál séu í góðu lagi.
Að lokum sagði Baldur, að hann liti á
öryggisgæslu eins og björgunarbát um
borð í skipi. Það er lífsnauðsynlegt að
hann sé til staðar þegar þarf á honum
að halda. H.H.
Tæknimenn VARA vinna að uppsetningu öryggiskerfis í banka ásamt sérfræðingi fró fram-
leiðanda kerfisins.
Sendum bestujóla- og nýársóskir
til bankamanna á eftirlaunum
ogfjölskyldna þeirra.
Stjórn og starfsmenn SÍB