Bankablaðið - 01.12.1986, Page 6

Bankablaðið - 01.12.1986, Page 6
6 Anna ívarsdóttir: HU GLEIÐIN G AR UM JAFNRÉTTISMÁL Mig langar í þessari grein að hug- leiða misræmi í launum milli kynja, atvinnuþátttöku og félagslegar að- stæður kvenna, sérstaklega með konur í bankastétt í huga. Hvers vegna launamunur? Hvaða atriði eru það sem hafa áhrif á launamun í þjóðfélaginu? Oft eru nefnd eftirfarandi atriði: menntun, starfsaldur, aldur og starfshlutfall. Gengið er út frá því að þessir þættir fái visst vægi í launum. Þegar tekið hefur verið tillit til þessara þátta eiga allir sem tilheyra sama hópnum og vinna svipuð störf að hafa sömu laun. Gott og vel. En í könnun sem var gerð nýlega á vegum Norræna bankamannasam- bandsins kom í ljós að þegar tekið hafði verið tillit til þessara þátta var launa- munur milli kynja í íslenska banka- kerfinu 13,7%. Könnun sem gerð var fyrir 3 árum og unnin á sama hátt gaf til kynna að launamunur væri 12,4%. Samkvæmt þessu hefur bilið heldur breikkað. Miðað við óbreyttar aðstæður er mikilvægt að hvetja konur til að not- færa sér þá framamöguleika sem bjóðast innan bankakerfisins. Þá mun launamunur milli kynja minnka. Það má orða það þannig að við búum við 13,7% launamun og hann minnkum við aðeins með því að koma okkur á fram- færi á sama hátt og karlar. Stærstur hluti bankamanna hefur góða grunnmenntun en aðeins lítill hluti hefur háskólamenntun. Lítill munur er á menntun karla og kvenna. Þegar ráðið hefur verið í stöður innan bankakerfisins hefur fagleg reynsla oft ráðið meiru en prófskírteini. Sennilega er þetta þó að breytast eftir því sem þjóðfélagið verður sérhæfð- ara og því mikilvægt fyrir konur jafnt sem karla að afla sér góðrar mennt- unar. Ef horft er á mun á starfsaldri/aldri milli karla og kvenna sést að karlar hafa vinninginn. Ef hinsvegar er horft á þá sem hafa hafið störf seinustu 15 árin er lítill munur milli kynja. Ég held því að þennan mun megi rekja til þess tíma þegar bankastörf voru unnin svo til eingöngu af körlum. Atvinnuþátttaka. Því er oft haldið fram að konur líti á vinnuna meira sem hobbý en alvöru og er þá bent á konur í hlutastörfum því til sönnunar. Ef við lítum á bankakerfið sést að stór hluti kvenna sem gegnir hlutastörfum vinnur á álagstímum t.d. fyrstu daga mánaðar. Þessi rök eru því heldur haldlítil. Þvert á móti má halda því fram að þessi starfskraftur sé bankanum dýrmætari en annar, þar sem aðeins koma til launagreiðslur fyrir það tímabil þegar hámarksnýting er á starfsfólki. Eins og fram hefur komið er tiltölu- lega lítill munur á bankamönnum hvað varðar menntun og starfsreynslu og því ættu konur að hafa svipaða mögu- leika og karlar. Hinsvegar búa flestar konur við tvöfalt vinnuálag þar sem konur sjá að mestu um heimilisstörf og eru þá um leið að keppa úti á vinnu- markaðnum. Flestir eru sammála um að tvo þurfi til að sjá fyrir heimili. Því ætti það að vera hagur beggja aðila að skipta með sér heimilisstörfum þannig að konan hafi möguleika á að hasla sér völl úti á vinnumarkaðinum. (Hér geri ég ráð fyrir því að makar keppi ekki um sömu stöðu!). Félagsleg atriði. Það eru til mörg dæmi um að konur hafi hætt störfum vegna þess að þær hafi ekki fengið örugga dagvistun fyrir börn sín. Núna er unnið að því hjá SÍB að stofna foreldrafélag sem hefur á stefnuskrá sinni að stofna og reka dag- vistarheimili fyrir börn bankastarfs- manna. í seinustu kjarasamningum kom fram krafa hjá SÍB um fæðingarorlof fyrir feður. Sú krafa náði ekki fram að ganga, en vonandi verður þessi krafa sett fram aftur núna í þeim samningum sem framundan eru, Oft er sagt að konur séu ekki eins duglegar í að trana sér fram og karlar, þ.e. að konur skortir það sjálftraust sem þarf til þess að komast í góðar stöður. Hér á landi hafa verið haldin á vegum einkaskóla námskeið sem stuðla að því að efla sjálftraust kvenna og hvetja þær um leið til að keppa um sömu störf og karlar. í Noregi hefur norska bankamannasambandið staðið fyrir slíkum námskeiðum og hefur verið mikill áhugi á þeim. Það ætti því að vera tilvalið fyrir SÍB að kanna möguleika á slíkum námskeiðum og verða fyrst íslenskra stéttarfélaga til að bjóða upp á „hvatninganámskeið” fyrir konur. Að lokum vil ég leggja áherslu á að konur hafi sama lagalegan rétt til starfa og karlar. Ábyrgð samstarfs- kvenna okkar er stór. Við verðum að standa saman og hvetja hæfar konur til að sækja upp framabrautina. Því þessa baráttu vinnur enginn fyrir okkur. Það er okkar að sækja á brattann og komast alla leið.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.