Bankablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 9
ER JAFNRETTIIÞINUM BANKA?
Ef svo er ekki hvað er þá til úrbóta
auglýst er. En karlarnir sækja um og
hreppa þar með launahæstu störfin. En
af hverju sækja konur ekki um þessar
stöður? Jú, í flestum tilfellum er það
vegna þess að á þeim hvíla mestöll
heimilisstörfin og það eru þær sem
þurfa að sækja börnin úr gæslu og
annast þau þegar heim er komið. Þær
treysta sér því hreinlega ekki til að
axla meiri ábyrgð né meiri vinnu. Þær
þurfa yfirleitt að velja á milli
starfsframa annars vegar og heimilis
og barna hins vegar, en karlmennirnir
ekki.
Úrbóta í jafnréttismálum er því
vissulega þörf, og hvað varðar launa-
mismuninn milli kynjanna í sambæri-
legum störfum, þá ættu yfirmenn
bankans að taka á því máli strax, því
þar er misréttið hróplegt og má bara
ekki viðgangast lengur.
Hvað varðar stöðuveitingar, verða
úrbæturnar kannski flóknari og taka
lengri tíma. Það þarf að leggja áherslu
á að fá konur til „að herða sig upp” í að
sækja um þær stöður sem auglýstar
eru og þær eru gjaldgengar í. En þá
þarf líka að gera þessum konum kleift
að gegna þessum störfum svo vel fari.
Á konu sem vinnur fullan vinnudag
utan heimilis, má ekki hvíla mestöll
ábyrgð á uppeldi barna og heimilis-
haldi, heldur verður þar að koma til
skipting á milli hjóna.
Ef ekki, verður ástandið óbreytt, og
sá mikli launamismunur sem við-
gengst milli kynja í dag, verður áfram.
Takmarkið hlýtur því að vera, að
allir hafi sömu möguleika á að sinna
því starfi sem þeir kjósa og umfram
allt að konur og karlar hafi sömu laun
fyrir sömu vinnu.
Óttar Rúnar
Emu og Svavarsson:
Já, eða allavega virðist mér að svo sé.
Nú nýlega kannaði jafnréttisnefnd
hvernig staðið væri að nýráðningum
og stöðuveitingum innan SPRON. Upp-
lýsingar starfsmannastjóra gáfu ekki
til kynna að um mismunun kynjanna
væri að ræða.
Þessi niðurstaða (þ. e. í jafnréttis-
nefnd) kom okkur, engan veginn á
óvart því við höfum ekki tekið eftir
neinu misrétti milli kynja hér í
stofnuninni.
Sendum öllum
bankastarfsmönmm
okkarbestu
iSfÉMjr jóla- og nýjársóskir
/'S
íÆ
■'V.ASO"’
SEÐLABANKI ISLANDS