Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 12

Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 12
Trúnaðarmannafræðslan 1986 Þátttakendur í Trúnaðarmannanámskeiði I í Munaðarnesi í maí 1986. Fræðsla sú er í boði var í námskeiðs- formi fyrir trúnaðarmenn árið 1986 var eftirfarandi: Kynningardagur nýkjörinna trúnaðarmanna. Allir trúnaðarmenn á Stór-Reykja- víkursvæðinu voru boðaðir, og var markmiðið það að trúnaðarmenn kynntust starfi SÍB og fengju innsýn í hvernig þeir ættu að leysa störf þau af hendi sem til var ætlast af þeim sem talsmenn samstarfsmanna sinna. Kynningardagurinn var vel sóttur og tókst með ágætum. Leiðbeinendur voru: Guðrún Ástdís Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi SÍB og Helgi Hólm, framkvæmdastjóri SÍB. Vandamálin leyst í Munðarnesi. Þórdís Skaptadóttir úr Reiknistofu bankanna og Halldór B. Halldórsson úr Landsbankanum takast á við verkefni. Trúnaðarmannanámskeið I Námskeiðið var að þessu sinni haldið í Munaðarnesi dagana 12.-15. maí. Varð sá staður fyrir valinu vegna góðrar reynslu á sl. ári, því námskeið var þá haldið þar í fyrsta sinn. Náms- efni sem farið var yfir á því námskeiði er æði yfirgripsmikið, þannig að tím- inn er nýttur til fulls, og óhætt að segja að ekki fari mínúta til spillis. Veigamestu þættirnir sem farið var ítarlega í eru: 1) Kjarasamningur SÍB og bankanna. 2) Réttindi og skyldur trúnaðar- manna. 3) Leiðbeiningar í félagsstörfum. 4) Starfsemi og markmið SÍB. 5) Kynning á Norrænni samvinnu sem KAI ÖHMAN fyrrverandi forseti NBU flutti og svaraði fyrirspurnum um. Kaj Öhman forseti NBU.

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.