Bankablaðið - 01.12.1986, Page 15

Bankablaðið - 01.12.1986, Page 15
T rúnaðarmannafrceðsla 15 MINNISBLAÐ FRÁ NÁMSKEIÐI Það var sannarlega ánægjulegt að hitta aftur krakkana frá trúnaðar- mannanámskeiðinu í vor að Tjarnar- götu 14 í Reykjavík þann 20. okt. sl. Flestir mættu og allir voru hressir og kátir og auðvitað fullir áhuga fyrir námskeiðinu sem framundan var. Guðrún Ástdís setti námskeiðið og bauð okkur velkomin og svo tók Diðrik Haraldsson við og fræddi okkur um fundarsköp og stjórn. Diðrik kenndi okkur allt um hinar ýmsu tillögur og eftir góðan fyrirlestur hófst verkleg kennsla þar sem settur var á svið aðalfundur í starfsmannafélagi Mun- aðarbankans. Fundurinn tókst með ágætum enda vanir menn sem lögðu fram fjölmargar tillögur, breytingar- tillögur og viðaukatillögur og ættu þær því ekki að vefjast fyrir neinum í fram- tíðinni. Voru allir sammála um að Diðrik væri snillingur í að virkja hæfileika okkar í mælskulist og hefur nú losnað um málbeinið svo um munar. Næsta dag lærðum við allt um vísi- tölu hjá Birni Arnórssyni hagfræðingi. Hann byrjaði á að spyrja okkur ein- faldrar spurningar um, hvað vísitala er því nú á tímum þegar aðeins er rætt um veðurfar og vísitölu þá getur auðvitað enginn verið þekktur fyrir að viður- kenna vankunnáttu sína. Það varð heldur fátt um svör en Björn sagði að vísitala væri raunverulega ekkert annað en mælieining á hækkun eða lækkun frá einu tímabili til annars miðað við grunntímabil. Létti öllum mikið við þessa uppljóstrun. Þá varð ekki haldið aftur af Birni og sýndi hann okkur ótal dæmi um hvernig hægt er að blekkja almúgann með mismunandi kvörðum og línuritum. Það verður erfitt að blekkja okkur framvegis. Helgi og Hinrik fóru svo í gegnum kjarasamninginn með okkur og vitum við nú það sem allir voru ekki vissir um áður að SÍB hefur fyrir okkar hönd gert eina þá bestu kjarasamninga sem gerðir hafa verið á vesturhveli jarðar í Bankastjórn Munaðarbankans tilkynnir nýjustu vaxtahækkanir. Talið frá vinstri: Guðjón Ólafur, Sveinn og Rafn. Á myndina vantar Halldór B. Björn Arnórsson, hagfræðingur, veltir fyrir sér spurningunni: Hvað er vísitala? Helgi Baldursson notaði sér myndbanda- tæknina og lét þatttakendur æfa framsögn ogframkomu. alvöru. Nú er það okkar hlutverk að sjá til þess, að samningar séu haldnir og túlkaðir rétt og helst ríflega það. Mesta umræðu fengu greinar um staðgengla, fæðingarorlof og veikindafrí og því nauðsynlegt að við trúnaðarmenn fylgjum þessum greinum sem öðrum fast eftir. Þá var komið að hápunkti námskeið- isins. Konurnar fóru í lagningu og mættu stífmálaðar í sjónvarpsupptöku sem Helgi Baldursson sá um. Allir voru stjörnur í Hollywood og fengu að koma fram og stjórna starfsmanna- fundi. Það skal tekið fram að Helgi

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.