Bankablaðið - 01.12.1986, Side 23

Bankablaðið - 01.12.1986, Side 23
imm V'*E««*8V Nugetumvlðöll fengið hámarksávöxtun. Hafðu mm 'a hendi SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS DK3RATŒSVEQ1 10 - EMQIHJALLA 8 - StMl 41900 börnum sínum. Hvað dagvistun varð- ar, þá eru flest hinna yngri barna á dagheimili eða leikskóla. Mjög stórir hópar eru hjá dagmömmum og í hópi þeirra eldri, þ.e. milli 7 og 12 ára eru mjög margir með stopula dagvistun eða alls enga. MikiII kostnaður. Kostnaður á barn er að meðaltali á milli kr. 4800 og 6800. Um 16% svar- enda töldu líkur á að þurfa að segja upp starfi vegna óviðunandi ástands í dag- vistunarmálum. Mest þörf á dagheimili. Könnunin sýnir, að mest þörf er á dagheimilisrými, en þar næst á skóla- dagheimilum. Mikill áhugi. Þegar spurt var, hvort fólk hefði áhuga á að vista barn á stofnun sem yrði rekin af foreldrum innan SÍB, þá svöruðu um 70% því jákvætt, sérstak- lega sá hópur sem vistar börn sín hjá dagmömmum. Þá var einnig spurt, hvort fólk væri tilbúið að leggja eitthvað af mörkum til að koma dagvistunarheimilum á stofn. Þessu svöruðu um 80% með jái. Eðli málsins samkvæmt voru sumir fundar mannanna á unga aldri. Félagið stofnað. Þann 17. september 1986 var síðan boðað til almenns félagsfundar að Hótel Hof. Á dagskrá fundarins var að stofna félag, ef nægilegur áhugi væri enn fyrir hendi. Einnig var boðið til fundarins aðstandendum barnaheimil- isins Óss, en það er rekið af foreldrum þeirra barna sem þar dvelja. Á fundinn mættu um 100 eldhressir félagsmenn og er skemmst frá því að segja, að samþykkt var að stofna félag og var á fundinum kosin undirbúnings- nefnd. í hana voru kosnir eftirtaldir: Margrét Kaaber, Landsbanka, Guðrún Ásta Karlsdóttir, Verzlunarbanka, Gerður Bjarnadóttir, Búnaðarbanka, Inga Dís Guðmundsóttir, Landsbanka, Kristín Guðmundsdóttir, Landsbanka. Einnig var samþykkt að skora á stjórn SÍB að tilnefna einn fulltrúa til að vinna með undirbúningsnefndinni. Stjórnin skipaði síðan Guðrúnu Hans- dóttur í það starf. Ekki er ólíklegt, að þegar þessi frá- sögn berst fyrir augu bankafólks, að búið sé að stofna þetta félag formlega. En nú, í byrjun nóvember, er undir- búningur í fullum gangi og meira um það síðar.

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.