Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 26

Bankablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 26
26 Öryggismál Þorsteinn Magnússon, skólastjóri: Oryggismálaráðstefna Bankama Á síðari árum hefur öryggismálum á vinnustöðum sífellt verið meiri gaumur gefinn. Sem betur fer, þá hafa bankastofnanir verið hér á landi nokkuð öruggir vinnustaðir og vonandi verður svo áfram. Samt er það svo, að störf í banka verða stöðugt fjölbreytt- ari og tæknin sem notuð er stöðugt flóknari, þannig að hættan á hvers kyns mistökum og óhöppum er meiri en áður. Bankablaðið mun að þessu sinni f jalla nokkuð um þessi mál. Við birtum m.a. viðamikla grein eftir Þorstein Magnússon, skólastjóra Bankamanna- skólans, en skólinn gekkst einmitt fyrir Öryggisráðstefnu nú í haust. Við tókum einnig örstutt viðtöl við tvo ráð- stefnugesti. Þá birtum við einnig viðtal við Baldur Ágústsson, forstjóra ör- yggisþjónustunnar Vara. Við vonumst til, að þessi umfjöllun blaðsins um þessi mál opni augu les- enda fyrir mikilvægi þessa máls. Aðdragandi: Það hefur lengi verið liður í starfi skólans að halda ráðstefnur fyrir yfir- menn í bankakerfinu, og hafa haust- Þorsteinn Magnússon, skólastjóri ráðstefnur skólans með útibússtjórum eða skrifstofustjórum dreifbýlisins verið mjög vel sóttar og heppnast ágætlega, þó öryggismál hafi þar sjaldnast verið tekin til meðferðar. Fyrir nokkrum árum hélt skólinn sér- námskeið fyrir umsjónarmenn og öku- menn bankanna um ýmis öryggisatriði í störfum þeirra, sem þótti takast svo vel, að stöðugt hefur verið þrýstingur á skólann um frekari aðgerðir á því sviði. Fyrir áeggjan SÍB-manna var ákveðið að halda nú sérstaka öryggis- málaráðstefnu með þeim yfirmönnum bankanna hér, sem hafa sérstaklega með öryggismál að gera, s.s. aðal- gjaldkerum, starfsmannastjórum, skipulagsstjórum og öryggisvörðum eða öryggisnefndum. Kveikjan að þessu var sú umræða sem okkar menn í norrænu samstarfi bankamanna hafa blandast inn í um öryggismál á Norð- urlöndum, aðallega um bankarán og ofbeldi, sem þar fer mjög í vöxt. Alls tóku um 60 bankamenn þátt í ráðstefnunni, sem stóð í tvo daga og var haldin í Félagsheimilinu á Seltjarn- arnesi. Efni: Ráðstefnan byggðist annars vegar á fyrirlestrum 6 framsögumanna og hins vegar á fyrirspurnum og athugasemd- um þátttakenda. Sýndar voru sjónvarpsmyndir og bæklingar og gögn afhent. Hér fer á eftir úrdráttur úr fyrir- lestrunum. Þátttakendur á ráðstefnu Bankamannaskólans um öryggismál.

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.