Morgunblaðið - 28.11.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.11.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 J ó l a s ö f n u n Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Oft var þörf en nú er nauðsyn Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is TÆPLEGA 50 starfsmenn hafa í þessari viku verið við störf á vegum Ístaks á svæði Hraunaveitna, en flestir voru starfsmennirnir um 350 síðsumars. Flestir hætta störfum á þessu svæði um mánaðamótin, en innan við tíu manns verða þá eftir við lokafrágang. Miðað er við að búið verði að ganga frá búðunum og flytja búnað og tæki af svæðinu um miðja næstu viku. Þá verða ljósin slökkt og vinnu- búðum lokað að sinni, en verkinu verður síðan lokið næsta sumar. Auk þess að ganga frá fyrir vet- urinn hefur efni verið flutt í Keldu- árstíflu og Grjótárstíflu. Þá hefur verið unnið við rafmagnsbúnað við Jökulsárgöng. Flytja 80 þúsund rúmmetra af efni í Hafrahvammagljúfri Frá mánaðamótum og fram undir jól munu hátt í 30 manns vinna á vegum Ístaks við undirbúning stíflu- gerðar í Hafrahvammagljúfri. „Þessi stífla verður í gljúfrinu fram- an við stóru stífluna,“ segir Reynir Viðarsson, yfirverkfræðingur hjá Ís- taki. „Stór fylla í bergveggnum féll nið- ur í gljúfrið og einnig var efni sprengt í berginu. Verkefni okkar manna fram að jólum er að flytja efnið, alls um 80 þúsund rúmmetra, niður fyrir væntanlega stíflu, sem á að byggja næsta sumar,“ segir Reynir. Farið er með tæki niður vinnuveg í stóru stíflunni og svo eftir þjón- ustugöngum í berginu og út í gljúfr- ið. Þegar vatn kemur á yfirfalli yfir stóru stífluna er mikið afl á því og á minni stíflan í gljúfrinu að taka við þessu vatni. Þannig myndast pollur neðan stóru stíflu, sem virkar eins og höggdeyfir þegar vatnið fellur af miklum krafti í botn gljúfursins, að sögn Reynis. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti, sem nefnd er eftir Guðríði Þor- bjarnadóttur, verður vígð 7. desem- ber næstkomandi. Iðnaðarmenn eru nú að leggja lokahönd á frágang kirkjunnar fyrir vígsluna. Tveir garðar ramma inn kirkju- skipið og munu þeir heita Geisli og Lilja eftir fornum helgikvæðum frá 12. og 14. öld. Altarið kemur fyrir framan gluggann sem sést á mynd- inni. Fyrir utan hann verður alt- arisgarðurinn Geisli og verður hann einn sinnar tegundar hér á landi. Garðurinn verður til áhorfs en ekki til að ganga um, þrívíð og síbreytileg altaristafla, eins og segir á heima- síðu kirkjunnar. Þá verður innigarð- urinn Lilja tengdur safnaðarsölum. Garðar í Guðríðar- kirkju Morgunblaðið/Valdís Thor VONSKUVEÐUR var á vinnusvæði starfsmanna Ístaks við Hraunaveitur í gær. Sigurður Sverrir Gunnarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að veg- urinn úr búðunum við Ufsarveitur að vinnusvæðinu hefði lokast í gærmorg- un og þá hefði verið sjálfhætt fyrir hádegið. „Þetta var alveg orðið glóru- laust, jafnvel hættulegt,“ sagði Sigurður Sverrir. Þá var bæði ofankoma og snjókoma. Hann sagði að sumir gætu unnið í frágangi á ýmiss konar papp- írum, aðrir gripu í spil og horfðu á sjónvarpið. Starfsmenn við Hraunaveitur eru flestir Íslendingar og Pólverjar. Vel viðraði í nóvember til starfa uppi á reginöræfum, þar til að hann brast á með harða vetur í gær. „Hér hefur ekki verið snjóþungt undanfarið,“ sagði Sig- urður Sverrir í gær. „Þetta var eiginlega þannig að sömu snjókornin fuku fram og til baka, en þó hafði safnast snjór að vinnubúðunum.“ Október var hins vegar erfiðari og þá komu tíu dagar sem tæpast var vinnuveður. Skrifað er um veðrið á karahnjukar.is og þar segir m.a. í lok október: „Veturinn kemur því grimmur til leiks núna strax í októbermánuði með tilheyrandi „messufalli“ … Starfsmenn í vinnubúðum þurftu bæði að moka sig út og inn úr húsum.“ Ýmis dýr sjást á ferli eystra eins og sjá má á heimasíðunni: „Of mikið er að segja að hvunndagskostur sé að sjá refi á ferli á virkjunarslóðum austan Snæfells. Slíka gesti hefur samt borið oft þar fyrir augu í vetur … Dýrið var með blóð á framfótum, hugsanlega eftir rjúpnaveislu. Nóg er nefnilega af rjúpunni eystra um þessar mundir.“ Daginn eftir varð vart við hreindýrskálf á þessum slóðum, krafsandi í snjóinn til að ná sér í eitthvað ætilegt. Glórulaust við Ufsarveitu KIRKJUÞING 2008 kemur saman í dag eftir fjögurra vikna þinghlé. Þinghlé var gert til að gefa færi á umræðum um frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga. Frumvarpið var samið af kirkjulaganefnd, skipaðri af kirkjuráði árið 2007. Frumvarpið var rætt í fyrri umræðu Kirkjuþings 2008 og samþykkt að vísa málinu til löggjafarnefndar þingsins. Ákveðið var að fresta síðari umræðu á kirkjuþingi svo að frumvarpsdrögin ásamt greinargerð geti fengið um- fjöllun heima í héraði samkvæmt nánari ákvörðun prófasta og héraðs- nefnda í hverju prófastsdæmi, svo og hjá Prestafélagi Íslands, Djákna- félagi Íslands og Leikmannaráði. Frumvarpið ásamt meðfylgjandi athugasemdum er aðgengilegt á vef kirkjunnar á slóðinni http://www.kirkjan.is/stjornsysla Frumvarp um ný þjóð- kirkjulög Ljósmynd/Sigurður Sverrir Gunnarsson Frágangur Kappklæddir undir vinnugallanum hafa starfsmenn Ístaks tekið saman á vinnusvæðunum síðustu daga og undirbúið að yfirgefa Ufsarbúðir. Þar verður ekki líf aftur fyrr en næsta sumar er framkvæmdir hefjast á ný. Lokað við Hrauna- veitur fram á vor Hópur starfsmanna Ístaks vinnur við undirbúning að gerð minni stíflu í Hafrahvammagljúfri fram undir jól Í GÆR undirrituðu Kristín Ingólfs- dóttir, rektor Háskóla Íslands, og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, samstarfssamning til þriggja ára. Hann felur í sér um- fangsmikið samstarf, m.a. á sviði rannsókna og nýsköpunar. Samning- urinn er afrakstur viðræðna sem byggðust á ákveðinni aðferðafræði þar sem kortlagðir voru snertifletir í starfsemi þessara aðila, með ávinn- ing beggja að leiðarljósi. Síminn er fyrsta íslenska fyrirtækið sem Há- skólinn gerir samning við undir merkjum þessarar aðferðafræði, segir í tilkynningu. Alls eru skilgreind 12 verkefni í samningnum sem aðilar hyggjast koma til framkvæmda á næstu þremur árum, m.a. verður rannsókn- arsamstarf aukið. Þá hefur Síminn ákveðið að styðja Afreks- og hvatningarsjóð stúdenta Háskóla Íslands en sá sjóður styrkir nemendur sem sýnt hafa afburðaár- angur í námi. Skapandi samstarf um rannsóknir og nýsköpun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.