Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 42
42 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Laugardagsfundur
í Kópavogi
Laugardaginn 28. nóvember
verður Ármann Kr. Ólafsson,
alþingismaður, gestur á laug-
ardagsfundi hjá Sjálfstæðis-
félagi Kópavogs. Fundurinn
hefst kl. 10.00 í félagsheimili
sjálfstæðisfélagsins að Hlíða-
smára 19. Boðið verður upp
á kaffi og meðlæti.
Ármann mun meðal annars fara yfir breyttar
forsendur fjárlagafrumvarpsins og stöðuna
sem komin er upp í samfélaginu.
Fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hafnarbraut 15, kælig. lager 08-0101 (215-4892) Dalvíkurbyggð, þingl.
eig. þ.b. Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf,
fimmtudaginn 4. desember 2008 kl. 11:00.
Aðalstræti 64, einb. 02-0101 (229-5686) Akureyri, þingl. eig. Baldur
Ólafur Baldursson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður,
Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Reykjavíkur og nágr, miðvikudaginn
3. desember 2008 kl. 09:30.
Hafnarbraut 11, fiskverkun 01-0101 (226-1795) Dalvíkurbyggð, þingl.
eig. þ.b. Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf,
fimmtudaginn 4. desember 2008 kl. 10:00.
Hafnarbraut 11, iðn. 01-0201 (230-5328) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. þ.b.
Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, fimmtu-
daginn 4. desember 2008 kl. 10:15.
Hafnarbraut 15, iðn. 04-0201 (230-5330) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. þ.b.
Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, fimmtu-
daginn 4. desember 2008 kl. 10:30.
Hafnarbraut 15, iðnaðarh. 04-0101 (215-4891) Dalvíkurbyggð, þingl.
eig. þ.b. Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf,
fimmtudaginn 4. desember 2008 kl. 10:45.
Hafnarbraut 7, iðn. 07-0101 (215-4882) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. þ.b.
Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, fimmtu-
daginn 4. desember 2008 kl. 11:15.
Hafnarbraut 7, iðn. 07-0204 (230-5327) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. þ.b.
Krækir-fiskverkun ehf, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, fimmtu-
daginn 4. desember 2008 kl. 11:30.
Hafnarstræti 81 íb. 01-0101 (214-6930) Akureyri, þingl. eig. Sveinn
Þórðarson, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, miðvikudaginn 3. desem-
ber 2008 kl. 10:00.
Jódísarstaðir eignarhl. land 187935 (215-9019) Eyjafjarðarsveit, þingl.
eig. Valgerður Lilja Daníelsdóttir, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf,
miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 15:00.
Kjalarsíða 14-16-18 íb. 16F 01-0206 (214-8281) Akureyri, þingl. eig.
Enikö Reynisson og Pétur Ingimar Reynisson, gerðarbeiðendur BYR
sparisjóður, útibú 1145 og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 3. desem-
ber 2008 kl. 10:30.
Langamýri 18, íb. 01-0101 (214-8614) Akureyri, þingl. eig. Inga Lára Si-
gurjónsdóttir og Gunnar Ingi Árnason, gerðarbeiðandi Glitnir banki
hf, miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 09:00.
Melasíða 2F íb. 01-0204 (214-9054) Akureyri, þingl. eig. Árni Þórhallur
Leósson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Ríkisútvarpið ohf og Spa-
risjóður Skagafjarðar, miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 11:00.
Sognstún 4, einb. (215-5236) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Guðbjörg Lára
Ingimarsdóttir og Kristján Rúnar Kristjánsson, gerðarbeiðendur
Dalvíkurbyggð, Íbúðalánasjóður og Saltkaup hf, fimmtudaginn 4. de-
sember 2008 kl. 12:00.
Torfufell, eignarhl. lnr. 152819, jörð (215-9752) íb. (215-9756), Eyja-
fjarðarsveit, þingl. eig. Víðir Ágústsson, gerðarbeiðandi Byko hf,
miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 13:30.
Ytra-Holt, Hringsholt-hesthús, 01-0124 (215-4602) Dalvíkurbyggð,
þingl. eig. SS eignarhaldsfélag ehf, gerðarbeiðandiTrygginga-
miðstöðin hf, fimmtudaginn 4. desember 2008 kl. 12:30.
Öldugata 21, íb. 02-0101 (215-6662) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Þór
Heiðarsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, fimmtudaginn 4.
desember 2008 kl. 13:15.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
27. nóvember 2008.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Funafold 54, 204-2408, Reykjavík, þingl. eig. Sigurjón H. Valdimars-
son, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur, Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. ogTollstjóraembættið, þriðjudaginn 2. desember 2008 kl.
11:00.
Kleppsvegur 126, 201-8207, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Giedrius
Navickas, gerðarbeiðendur Borgun hf., Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda ogTollstjóraembættið, þriðjudaginn 2. desember 2008 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
27. nóvember 2008.
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun
Skipulagsstofnunar um matsskyldu
framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Djúpadalsvegur – frá Vestfjarðavegi á
Hallsteinsnesi til Djúpadals,
Reykhólahreppi
Endurnýjun starfsleyfis Sementsverk-
smiðjunnar á Akranesi
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
29. desember 2008.
Skipulagsstofnun.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Ólafsvegur 20, Ólafsfirði, fastanr. 215-4253, þingl. eig. Jóhann Þór
Elísson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn
2. desember 2008 kl. 12:00.
Norðurgata 4a, Siglufirði, fastanr. 213-0774, þingl. eig. Eylendur ehf.,
gerðarbeiðandi AFL-sparisjóður, miðvikudaginn 3. desember 2008
kl. 13:00.
Túngata 25, Siglufirði, fastanr. 228-3527, þingl. eig. Aðalbjörg Sigur-
rós Vigfúsdóttir, gerðarbeiðandi Akraneskaupstaður, miðvikudaginn
3. desember 2008 kl. 13:30.
Aðalgata 30, Siglufirði, fastanr. 213-0092, þingl. eig. EBÍ ehf., gerðar-
beiðendur Ingólfur Sigurðsson, (Spútnik) og Söfnunarsjóður lífeyris-
réttinda, miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 13:45.
Eyrargata 24, Siglufirði, fastanr. 229-8953, þingl. eig. Siglósport ehf.
gerðarbeiðendur Icetransport ehf. og Sýslumaðurinn á Siglufirði,
miðvikudaginn 3. desember kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
27. nóvember 2008.
Ásdís Ármannsdóttir.
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Elsku Kristinn. Nú þegar við
kveðjumst hinsta sinni, koma fram
minningar um fæðingu drengs sem
varð allra hugljúfi strax við fyrstu
kynni.
Þú varst hláturmildur grallari og
duglegur. Minningin um ykkur bræð-
ur úti í leik, nánast alltaf saman við
hverskyns uppgötvanir og bardús.
Sársaukafull minning um slys er
varð þess valdandi að möguleikar þín-
ir til að njóta lífsgæða á við aðra
skertust verulega.
Gleðitilfinning er gagntók okkur er
fullvíst var að þú myndir lifa af. Minn-
ing um langar setur á Barnaspítala
Hringsins fyrstu mánuðina eftir slys-
ið þar sem nærveran við þig veitti
huggun og styrk ásamt mörgum
gleðistundum er okkur fannst við
Kristinn Kolbeinsson
✝ Kristinn Kol-beinson fæddist
í Reykjavík 27. maí
1987. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 19. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Kolbeinn Sigmunds-
son vélstjóri og
Hólmfríður Hall-
dórsdóttir mat-
artæknir. Systkini
Kristins eru Þor-
grímur, f. 8. maí
1985, og Hulda, f. 9.
maí 1995.
Útför Kristins fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
uppgötva lítillega
breytingu til bata.
Heimsóknir til þín
heim í Grundarfjörð og
síðar á heimili þitt í
Álftarimanum á Sel-
fossi með vinum þín-
um, Ragnari Bjarka og
Jóa, sem síðar fluttu
með þér í sambýlið við
Birkimörk í Hvera-
gerði þar sem þér var
búið yndislegt heimili.
Að fá að fylgjast með
þér gegnum gleði og
sorgir lífsins eru okkur
forréttindi ásamt því að fá að kynnast
því hve yndisleg og samhent föður-
fjölskylda þín var og reyndist þér
sterk stoð alla tíð. Systkini þín hafa
líka verið óþreytandi við að sýna þér
áhuga og ástúð í ríkum mæli.
Þá er ekki síður gott að hafa fengið
að kynnast öllu því fjölmarga starfs-
fólki sem komið hefur að hjúkrun
þinni, umönnun og stuðningi gegnum
tíðina sem þakka ber fyrir.
Þar hefur mest borið á kvenfólki
enda heilluðust allar stúlkur – á öllum
aldri af þér og öfunduðu þig margar
af fallegu augunum þínum og löngu
dökku augnhárunum.
Þú varst með góða nærveru og
naust félagsskapar og snertingar alla
tíð.
Oft sýndir þú ótrúlegan styrk og
kraft í miklum veikindum og varst
ekki á því að gefa neitt eftir. Þó kom
að því að lokum að við ofurefli var að
etja og við sáum að nú styttist í þess-
ari jarðvist þinni. Þú kvaddir hljóð-
lega og æðrulaust í faðmi foreldra og
systkina þinna sem alla tíð hafa sýnt
þér einstaka elsku og vinsemd. Þau
hafa sýnt ótrúlegan styrk í þessum
veikindum þínum og brottför.
Við amma og afi á Leiðarenda
kveðjum þig, elsku drengur, í þeirri
vissu að þú sért á betri stað og hvílir í
Guðs friði.
Halldór Sigurðsson,
Hulda Sigurvinsdóttir.
Elsku Kristinn, við söknum þín all-
ar sem höfum þekkt þig bæði lengi og
stutt. Aldrei gleymum við fallega
brosinu þínu og ljúfa faðmlaginu, þó
stundum færum við ekki varhluta af
því að þú nýttir þér oft tækifærið og
togaðir í hár okkar, þá ljómuðu fal-
legu augun þín. Þú varst staðfastur
og viss á skoðunum þínum og dugleg-
ur að láta þær í ljós. Var það áberandi
þegar kom að tónlistarvali að þú lést
alls ekki bjóða þér að hlusta á hvað
sem var. Reyndum við eftir fremsta
megni að tileinka okkur hvað þér lík-
aði en stundum þurftir þú, eins og við
hin, að láta þér líka annað en þér gott
þótti og mátti þá vel sjá hversu miklu
æðruleysi þú bjóst samt yfir.
Kristinn, nú ert þú kominn á betri
stað þar sem við vitum að vel verður
tekið á móti þér. Kæri vinur, hvíl í
friði.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
(Tómas Guðmundsson.)
Elsku Hólmfríður, Kolbeinn, Þor-
grímur, Hulda og aðrir aðstandend-
ur. Við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð, megi Guð veita ykkur styrk í
sorginni.
Hjartans kveðjur,
Allir í Birkimörk.
Elsku vinur okkar og barnabarn.
Nú ert þú farinn í æðri heima og hug-
ur okkar fylgir þér þangað. Við vitum
að þar hefur verið tekið vel á móti þér.
Minningarnar streyma fram í hug-
skotið. Bæði erfiðar og gleðilegar.
Ein okkar fyrsta minning um þig er
hvað þú varst stór og kraftmikill,
ungur drengur. Á fyrstu árum ævi
þinnar bjuggum við ekki í sama
byggðarlagi, nema að litlu leyti, svo
að samverustundir okkar urðu frem-
ur strjálar.
Þegar við hugsum um þig þá er
sterkasta tilfinningin hvað þú gafst
mikið frá þér þegar þú varst með okk-
ur. Þá kemur einnig upp í hugann
ferð okkar til Ísafjarðar. Lína frænka
þín og fjölskylda hennar, buðu okkur
að koma og tóku vel á móti okkur. Við
fórum saman í flugvél vestur og þú
naust ferðarinnar í botn í góðu veðri.
Þú fékkst að gista í stofunni hjá Línu
og það var greinilegt að þér fannst
gaman að vera í hringiðu fjölskyldu-
lífsins allan sólarhringinn. Heyra
raddirnar og finna kærleikann. Okk-
ur fannst gott að vera saman. Við fór-
um í gönguferðir, kúrðum í gamla
hornsófanum og slökuðum á. Þú varst
nú ekki allt of ánægður þegar við
skiptum um sófa. Að sofa undir trénu,
bakvið hús, var yndislegt og að hlusta
á þytinn í laufinu. Baðferðirnar voru
ánægjuaukandi. Þú skríktir og busl-
aðir og við skemmtum okkur konung-
lega.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku vinur, takk fyrir allt og allt.
Guð blessi þig. Við munum þig.
Amma og afi í Grindavík,
Ingibjörg og Sigmundur.
Ég man eftir því þegar Krist-
inn kom og ég fékk að fara
upp í sjúkrarúmið hjá honum.
Það var á Ísafirði þegar hann,
amma og afi komu í heim-
sókn. Ég skemmti mér vel
með honum. Kristinn fór í
klippingu hjá Villa rakara
sem rakaði mig oft.
Ég fór í göngutúra með
honum frænda mínum og það
var gaman.
Stefán frændi.
Í dag kveðjum við vinnu-
félaga okkar Kristin Kol-
beinsson. Við söknum þín og
minnumst allra góðu stund-
anna sem við áttum saman.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Guð blessi þig og veri með
þínum nánustu.
Kveðja,
vinnufélagar á Viss,
vinnu- og hæfingarstöð.
HINSTA KVEÐJA