Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 49
Morgunblaðið/Kristinn Jeff Who? Fær hiklaus meðmæli. ÞAÐ er þekkt í tónlistarbransanum að listamenn sem tekst bærilega upp með byrjendaverk sitt lenda á stundum í brasi með að fylgja því eftir. Það er kallað „sophomore slump“ og gæti útlagst sem „fóta- skortur í annarri atrennu“. Svo eru aftur á móti þeir sem vex fiskur um hrygg milli byrjendaverka og vel það, og Jeff Who? eru sannarlega í þeim flokki. Þeir mæta til leiks fót- vissari en þorandi var að gera ráð fyrir og skila hér af sér aldeilis dúndurgóðri plötu númer tvö, sam- nefndri sveit- inni. Við hlustun á nýju plöt- unni kemur fljótlega í ljós að talsvert meira er hér í lagt en á frum- burðinum, Death Before Disco, sem kom út fyrir réttum þremur árum. Hljómur er allur flottari og fag- mannlegri; sándið er einfaldlega hörkufínt þar sem allt fær að njóta sín; söngur Bjarna Lárusar Hall, sem er virkilega góður á þessari plötu, og hljóðfæraleikurinn sem er tipp topp hvert sem litið er. Bassinn er þéttur mjög og gefur lögunum fína vigt, hljómborðin eru smekk- lega notuð, gítar- og trommuleikur allur hinn smartasti. Bandið hljómar einfaldlega frábærlega. Þegar Jeff Who? Kom fyrst fram á sjónarsviðið var þeim oft líkt við Franz Ferdinand; galsafengið gít- arpopp með rokkkryddi o.s.frv. Það er útaf fyrir sig ekki leiðum að líkj- ast en pensillinn sem þeir mála með að þessu sinni er miklu breiðari en svo að hægt sé að afgreiða músíkina með svo einfaldri samlíkingu. Reyndar kemur téð öndvegissveit frá Glasgow aðeins upp í hugann þegar hlýtt er á lagið „The Great Escape“, en það er hins vegar slíkur úrvalsslagari (viðlagið er algerlega frábært) að Alex Kapranos og fé- lagar yrðu fullsæmdir af því. En þegar hlýtt er á upphafslagið „Congratulations“ með snörpum fiðlustefum og bakröddum í falsettu virðist sem svarið við spurningunni sem felst í nafni sveitarinnar sé ein- faldlega „Lynne“ því melódían minnir svolítið á E.L.O. Þá fá nokkur lögin hugann til að reika aftur til gullaldarára Ultravox, þar sem bassalínan er eins og krepptur hnefi, hljómborðið hefur laglínuna upp um nokkrar tröppur og söngur Bjarna Lárusar er hreint ekki svo fjarri meistara Midge Ure. Má í þessu sambandi nefna „Eve- ryday Is Always The Same“, hið frá- bæra lag „Alain“ (með ánægjulega óvæntri innkomu hjá Ester Talíu Casey – flott útspil, strákar) og svo „Last Chance To Dance“, sem er kraftmikið og flott. En það er engin ástæða til að lýsa þeim fimmenningum alfarið með samlíkingum við erlenda stórlaxa – þó svo þeir standi vel undir því – því Jeff Who? hafa skapað sér eigin hljóm á þessari stórfínu plötu og hljómurinn sá er ekkert slor, kraft- mikill og melódískur í senn. Lögin tíu eru í stuttu máli öll góð, þó þau rísi mishátt. Þá kemst sveitin einkar vel frá því að flytja lög sín á ensku, söngurinn er dúndurgóður sem fyrr segir og þegar svona glimrandi laga- smíðar bætast við er ekki við öðru að búast en að Jeff Who? muni fiska prýðilega í jólavertíðinni með þess- ari fínu plötu í desembervertíðinni. Hiklaus meðmæli. TÓNLIST Jeff Who? – Jeff Who? bbbbn Jón Agnar Ólason Jeff? Ójú! MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins 551 1200 | midasala@leikhusid.is Miðasalan er opin alla daga frá kl. 12:30 til 18:00 og öll sýningarkvöld til kl. 20. Miðapantanir teknar í síma alla virka daga frá kl. 10:00. Leikhúsloftið Leitin að jólunum Lau 29/11 kl. 13:00 U Lau 29/11 kl. 14:30 U Sun 30/11 kl. 11:00 U Lau 6/12 kl. 13:00 U Lau 6/12 kl. 14:30 Ö Lau 6/12 kl. 16:00 Ö Sun 7/12 kl. 11:00 Ö Sun 7/12 kl. 13:00 Ö Sun 7/12 kl. 14:30 U Lau 13/12 kl. 13:00 Ö Lau 13/12 kl. 14:30 U Lau 13/12 kl. 16:00 Ö Sun 14/12 kl. 11:00 Ö Sun 14/12 kl. 13:00 U Sun 14/12 kl. 14:30 U Lau 20/12 kl. 11:00 Ö Lau 20/12 kl. 13:00 Ö Lau 20/12 kl. 14:30 Ö Sun 21/12 kl. 13:00 U Sun 21/12 kl. 14:30 U Aðventusýning Þjóðleikhússins Stóra sviðið Skilaboðaskjóðan Sun 30/11 kl. 14:00 Ö Allra síðustu sýningar Hart í bak Fös 28/11 kl. 20:00 U Lau 29/11 kl. 20:00 U Fös 5/12 kl. 20:00 Ö Lau 6/12 kl. 20:00 Ö Fös 12/12 aukas.kl. 20:00 Ö Lau 13/12 kl. 20:00 Ö Fös 2/1 kl. 20:00 Fös 9/1 kl. 20:00 Sun 18/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Sun 25/1 kl. 20:00 Ath. aukasýningar í sölu Sumarljós Fös 26/12 frums. kl. 20:00 U Lau 27/12 kl. 20:00 Ö Sun 28/12 kl. 20:00 Ö Lau 3/1 kl. 20:00 Sun 4/1 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Sun 11/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Jólasýning Þjóðleikhússins Kassinn Utan gátta Fös 28/11 kl. 20:00 U Lau 29/11 kl. 20:00 Ö Fös 5/12 kl. 20:00 Ö Lau 6/12 kl. 20:00 Ö Fös 12/12 kl. 20:00 Lau 13/12 lokasýn. kl. 20:00 Lokasýning 13. desember Kúlan Klókur ertu - Einar Áskell Sun 4/1 kl. 13:30 Sun 4/1 kl. 15:00 Sun 11/1 kl. 13:30 Sun 11/1 kl. 15:00 Borgarleikhúsið 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl. 10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00 Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Lau 29/11 14kort kl. 19:00 U Lau 29/11 kl. 22:00 U Sun 30/11 15kort kl. 16:00 U Lau 6/12 kl. 16:00 U Lau 6/12 16kort kl. 19:00 U Sun 7/12 kl. 16:00 U Sun 7/12 17kort kl. 20:00 U Fim 11/12 18kort kl. 20:00 U Fös 12/12 19kort kl. 19:00 U Fös 12/12 aukas kl. 22:00 U Sun 14/12 aukas kl. 16:00 U Sun 14/12 20kort kl. 20:00 U Fim 18/12 kl. 20:00 U Fös 19/12 23kort kl. 19:00 U Lau 20/12 kl. 19:00 U Sun 21/12 aukas kl. 16:00 U Lau 27/12 kl. 16:00 Ö Lau 27/12 kl. 19:00 U Sun 28/12 kl. 16:00 U Sun 28/12 kl. 19:00 Ö Sun 28/12 kl. 19:00 Ö Lau 3/1 kl. 19:00 Ö Sun 4/1 kl. 19:00 Lau 10/1 kl. 19:00 Ö Sun 11/1 kl. 19:00 Lau 17/1 kl. 19:00 Lau 24/1 kl. 19:00 Sun 25/1 kl. 16:00 Yfir 50 uppseldar sýningar! Tryggið ykkur nú miða í janúar! Fló á skinni (Stóra sviðið) Fös 28/11 26kort kl. 19:00 U Fös 28/11 aukas. kl. 22:00 U Fim 4/12 aukas. kl. 20:00 Ö Fös 5/12 aukas. kl. 19:00 Ö Fös 5/12 aukas.kl. 22:00 Ö Þri 30/12 aukas.kl. 19:00 U Þri 30/12 kl. 22:00 Ö Fös 2/1 kl. 19:00 Fös 9/1 kl. 19:00 Fös 16/1 kl. 19:00 Yfir 110 Uppseldar sýningar. Nýjar aukasýningar í sölu núna! Vestrið eina (Nýja sviðið) Fös 28/11 13. kortkl. 20:00 Ö Lau 29/11 14. kort kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00 Fös 5/12 kl. 20:00 Lau 13/12 kl. 20:00 Munið: Snarpur sýningartími. Sýningum lýkur í desember. Laddi (Stóra svið) Sun 30/11 kl. 20:00 U Mið 3/12 aukas kl. 20:00 U Lau 13/12 aukas kl. 20:00 U Dauðasyndirnar (Litla sviðið og Stóra sviðið) Mið 10/12 aukas kl. 20:00 Ath! Dauðasyndirnar XXL á Stóra sviði 26/11! Lápur og Skrápur (Þriðja hæðin) Fös 28/11 fors kl. 14:00 U Lau 29/11 frums kl. 14:00 U Sun 30/11 kl. 14:00 Mið 3/12 kl. 18:00 Fim 4/12 kl. 18:00 Lau 6/12 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 14:00 Uppsetning Kraðaks. Kirsuberjagarðurinn (Litla svið) Fim 4/12 frums kl. 20:00 U Fös 5/12 kl. 20:00 U Sun 7/12 kl. 20:00 Fim 11/12 kl. 20:00 Fös 12/12 kl. 20:00 Lau 13/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00 Mið 17/12 kl. 20:00 Fim 18/12 kl. 20:00 Fös 19/12 kl. 20:00 Uppsetning Nemendaleikhúss LHÍ Leikfélag Akureyrar 460 0200 | midasala@leikfelag.is Músagildran (Samkomuhúsið) Fös 28/11 kl. 19:00 Lau 29/11 kl. 19:00 Ö Lau 6/12 kl. 19:00 Síðustu sýningar Lápur, Skrápur og jólaskapið (Rýmið) Lau 29/11 3. sýn kl. 13:00 U Sun 30/11 aukas kl. 13:00 Sun 30/11 4. sýn kl. 15:00 U Lau 6/12 aukas kl. 13:00 Ö Lau 6/12 5. sýn kl. 15:00 Ö Sun 7/12 6. sýn kl. 15:00 U Sun 7/12 aukas kl. 16:30 U Lau 13/12 7. sýn kl. 15:00 Sun 14/12 8. sýn kl. 15:00 Sýnt fram að jólum Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Lau 29/11 kl. 15:00 Ö Lau 29/11 kl. 20:00 Ö jólaveisla Fös 5/12 kl. 20:00 jólaveizla á boðstólum Lau 13/12 kl. 17:00 Ö jólaveisla eftir sýn.una Mán29/12 kl. 20:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið) Fös 28/11 kl. 20:00 U Lau 6/12 kl. 20:00 Ö jólahlaðborð í boði Fös 12/12 kl. 20:00 U Þri 30/12 kl. 20:00 Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Uppáhald jólasveinanna (Búðarkletti og skála) Sun 7/12 kl. 12:00 fjölskylduskemmtun Sun 14/12 kl. 12:00 fjölskylduskemmtun Pönnukakan hennar Grýlu eftir Bernd Ogrodnik (Söguloftið) Sun 7/12 kl. 14:00 brúðuleiksýn. Sun 14/12 kl. 14:00 brúðuleiksýn. Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Steinar í djúpinu (Hafnarfjarðarleikhúsið) Fös 28/11 3. sýn. kl. 20:00 Lau 29/11 4. sýn. kl. 20:00 Fim 4/12 5. sýn. kl. 20:00 Lau 6/12 6. sýn. kl. 20:00 Takmarkaður sýningarfjöldi Ævintýriðum Augastein (Hafnarfjarðarleikhúsið) Sun 7/12 1. sýn. kl. 14:00 Sun 14/12 2. sýn. kl. 14:00 Sun 21/12 3. sýn. kl. 14:00 Eingöngu í desember STOPP-leikhópurinn 8987205 | eggert@centrum.is Jólin hennar Jóru (Ferðasýning) Fim 4/12 kl. 08:30 F kópavogsskóli Fim 4/12 kl. 10:00 F laufásborg Mið 10/12 kl. 10:30 F völvuborg Fim 11/12 kl. 10:00 F hveragerðiskirkja Fim 11/12 kl. 11:00 F hveragerðiskikrkja Mán15/12 rauðhóllkl. 10:00 F Þri 16/12 kl. 13:30 F hjallaland Þri 16/12 kl. 17:30 F fossvogsskóli Fös 19/12 kjarrið kl. 10:00 F Ósýnilegi vinurinn (Ferðasýning.) Sun 30/11 kl. 16:00 F hjallakirkja Mið 3/12 áskirkjakl. 10:00 F Sun 7/12 kl. 11:00 F lindasókn Sigga og skessan í fjallinu (Ferðasýning.) Mið 17/12 kl. 10:00 F snælandsskóli Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Janis 27 Fös 28/11 kl. 20:00 Ö síðasta sýn. fyrir jól! Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Dansaðu við mig Fös 28/11 kl. 20:00 Ö síðustu sýn.ar Rétta leiðin Jólaleikrit Sun 30/11 kl. 16:00 U Sun 30/11 kl. 18:00 U Mán 1/12 kl. 09:00 Mið 3/12 kl. 09:00 Mið 3/12 kl. 10:30 Fös 5/12 kl. 09:00 Fös 5/12 kl. 10:30 Lau 6/12 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 16:00 U Mán 8/12 kl. 09:00 Mán 8/12 kl. 10:30 Þri 9/12 kl. 09:00 Þri 9/12 kl. 10:30 Mið 10/12 kl. 09:00 Mið 10/12 kl. 10:30 Fim 11/12 kl. 09:00 Fös 12/12 kl. 09:00 Fös 12/12 kl. 10:30 Lau 13/12 kl. 14:00 Mán15/12 kl. 09:00 Mán15/12 kl. 10:30 Mið 17/12 kl. 09:00 Mið 17/12 kl. 10:30 Fim 18/12 kl. 09:00 U Fim 18/12 kl. 10:30 U Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson Fim 4/12 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00 Kómedíuleikhúsið Ísafirði 8917025 | komedia@komedia.is Dimmalimm (Þjóðmenningarhúsið) Sun 7/12 frítt inn kl. 14:00 Gísli Súrsson (Tjöruhúsið/ferðasýning) Mán 1/12 kl. 19:30 Jólasveinar Grýlusynir(Tjöruhúsið Ísafirði/Ferðasýning) Mán 1/12 flóaskólikl. 10:00 F Þri 2/12 kl. 09:00 F leiksk. bakki Mið 3/12 kl. 08:15 F hólabrekkuskóli Mið 3/12 kl. 09:45 F hólabrekkuskóli Fim 4/12 kl. 09:30 F húsaskóli Fös 5/12 kl. 09:00 F mýrarhúsaskóli Sun 7/12 kl. 16:00 F þjóðmenningarhúsið - frítt inn Þri 9/12 kl. 09:00 F breiðholtsskóli Þri 9/12 kl. 10:20 F breiðholtsskóli Mið 10/12 kl. 10:00 F leiksk. grænatún Lau 13/12 kl. 14:00 Sun 14/12 kl. 14:00 Mán15/12 kl. 10:30 U Lau 20/12 kl. 14:00 Sun 21/12 kl. 14:00 Lau 27/12 kl. 14:00 Sun 28/12 kl. 14:00 Lukkuleikhúsið 5881800 | bjarni@lukkuleikhusid.is Lísa og jólasveinninn Þri 2/12 kl. 10:00 F eyrarbakki Þri 2/12 kl. 14:00 F leiksk. á flúðum Þri 9/12 kl. 08:30 F vogaskóli Fös 12/12 kl. 10:00 F leiksk. núpur Sun 14/12 kl. 14:00 F grindavík Mið 17/12 kl. 08:50 F víkurskóli Mið 17/12 kl. 10:00 F víkurskóli Mið 17/12 kl. 14:00 F leiksk. undraland Mán22/12 kl. 14:00 F melaskóli Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið) Fim 5/2 frums. kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Sun 8/3 kl. 20:00 Möguleikhúsið 5622669 / 8971813 | moguleikhusid@moguleikhusid.is Aðventa (ferðasýning) Mán 1/12 kl. 09:50 F víkurskóli Mán 1/12 seljahlíðkl. 15:00 F Fim 4/12 í iðnó kl. 14:00 F Fim 4/12 kl. 17:30 F jónshús garðabæ Sun 7/12 í iðnó kl. 20:00 F Mán 8/12 kl. 15:30 F hrafnista reykjavík Þri 9/12 kl. 15:00 F breiðholtsskóli Fim 11/12 kl. 13:30 F múlabær Fim 11/12 kl. 20:00 F kirkjulundur keflavík Sun 14/12 í iðnó kl. 20:00 F Ath. sýningar á Aðventu í Iðnó 4., 7. og 14. desember Hvar er Stekkjarstaur? (ferðasýning) Fös 28/11 kl. 09:00 F pálmholt akureyri Fös 28/11 kl. 10:45 F krógaból akureyri Sun 30/11 ársafn kl. 14:00 F Mið 3/12 kl. 10:00 F kópahvoll Fim 4/12 kl. 10:00 F bókasafn mosfellsbæjar Lau 6/12 kl. 13:30 F bókasafn garðabæjar Sun 7/12 kl. 11:00 F keflavíkurkirkja Mið 10/12 kl. 09:30 F hálsaborg Íslensku jólasveinarnir í Þjóðminjasafninu (Þjóðminjasafnið) Sun 7/12 kl. 14:00 grýla og leppalúði Fös 12/12 kl. 11:00 stekkjarstaur Lau 13/12 giljagaur kl. 11:00 Sun 14/12 stúfur kl. 11:00 Mán15/12 kl. 11:00 þvörusleikir Þri 16/12 kl. 11:00 pottaskefill Mið 17/12 askasleikir kl. 11:00 Fim 18/12 kl. 11:00 hurðaskellir Fös 19/12 kl. 11:00 skyrgámur Lau 20/12 kl. 11:00 bjúgnakrækir Sun 21/12 kl. 11:00 gluggagægir Mán22/12 kl. 11:00 gáttaþefur Þri 23/12 ketkrókur kl. 11:00 Mið 24/12 kertasníkir kl. 11:00 Aðgangur að jólasveinadagskrá er ókeypis meðan húsrúm leyfir! Landið vifra (ferðasýning) Lau 29/11 kl. 15:00 F íþóttahúsið álftanesi Langafi prakkari (ferðasýning) Mán15/12 kl. 14:00 F lindaskóli Draumasmiðjan 8242525 | elsa@draumasmidjan.is Ég á mig sjálf (farandsýning) Lau 17/1 kl. 15:00 F Hvar er (K)Lárus (Kópavogsleikhúsið) Lau 6/12 kl. 20:00 Sun 28/12 kl. 20:00 döff leikhús, íslensk talsetning GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið 4201190 | grindviska.gral@gmail.com 21 MANNS SAKNAÐ (Grindavík) Lau 29/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00 umræður eftir sýn.u Fös 5/12 kl. 20:00 síðustu sýn.ar fyrir jól!! Lau 6/12 kl. 20:00 síðustu sýn.ar fyrir jól!! 2 FYRIR 1 TILBOÐ Í BLÁA LÓNIÐ FYRIR ÁHORFENDUR - GEGN FRAMVÍSUN MIÐA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.