Morgunblaðið - 28.11.2008, Qupperneq 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008
FORMENN allra
þingflokka á Alþingi
hafa lagt fram frum-
varp til laga um
rannsókn á aðdrag-
anda og orsökum
bankahrunsins.
Ágætis framtak hjá
annars duglitlu þingi.
Ekki verður fjallað um efni þessa
frumvarps í heild sinni hér heldur
aðeins vikið að fyrirhugaðri þátt-
töku hæstaréttardómara í rann-
sóknarnefndinni. Telja verður þá
skipan afar hæpna í ljósi þrí-
greiningar ríkisvaldsins í lög-
gjafar- framkvæmda- og dóms-
vald samkvæmt 2. gr.
stjórnarskrá lýðveldisins frá
1944.
Með 61. gr. stjórnarskrárinnar
er slegin skjaldborg um sjálfstæði
og óhæði dómenda gagnvart öðr-
um handhöfum ríkisvaldsins. Ger-
ir ákvæði þetta ráð fyrir því að
dómendur gegni aðeins dóm-
störfum en ekki öðrum störfum
fyrir ríkið. Þeim dómurum sem
aðeins gegna dómsstörfum verður
ekki vikið úr starfi nema með
dómi. Fram til gildistöku laga nr.
92/1989 um aðskilnað dóms- og
umboðsvalds í héraði var það svo
að héraðsdómarar en ekki hæsta-
réttardómarar fóru með ýmis um-
boðsstörf, m.a. rannsókn saka-
mála, skipti dánar- og þrotabúa.
Lög 92/1989 komu nýrri dóm-
stólaskipan á; meðferð dóms- og
umboðsvalds í héraði var skilin
að. Lög nr. 92/1989 voru sett
vegna þess að þáverandi Mann-
réttindanefnd Evrópu komst að
þeirri niðurstöðu í kærumáli, er
varðaði íslenskt dómsmál, að það
væri ósamrýmanlegt ákvæðum
Mannréttindasáttmála Evrópu um
sjálfstæði dómstóla að einn og
sami aðili færi bæði með dóms-
og umboðsvald.
Samkvæmt frum-
varpinu um rann-
sóknarnefndina er
gert ráð fyrir því að
einum dómara
Hæstaréttar verði
falið að rannsaka
hrun fjármálakerf-
isins ásamt umboðs-
manni Alþingis og
einum fulltrúa Al-
þingis með víðtæka
þekkingu á efnahags-
málum. Þessir þrír
aðilar skipa rann-
sóknarnefnd. Rannsóknarnefndin
hefur víðtækar valdheimildir; hún
getur kallað menn til skýrslugjaf-
ar, krafist gagna, látið fara fram
húsleit að undangengnum dóms-
úrskurði. Fyrir nefndinni geta
einstaklingar ekki borið fyrir sig
lögboðna þagnarskyldu. Öllu
þessu rannsóknarverki á hæsta-
réttardómarinn að stýra. Komist
nefndin að þeirri niðurstöðu að
afbrot hafi verið framin skal hún
tilkynna það til ríkissaksóknara,
sem væntanlega á þá að hefja
rannsókn með það fyrir augum að
rannsaka málið frekar.
Það er skoðun mín að þessi
skipan nefndarinnar fái ekki stað-
ist. Hæstaréttardómurum er og
hefur verið óheimilt að taka að
sér umboðsstörf fyrir aðra hand-
hafa ríkisvaldsins. Sá Hæstiréttur
sem formaður rannsóknarnefnd-
arinnar kemur úr mun með störf-
um sínum gera alla dómendur
réttarins vanhæfa til dómsstarfa í
málum, sem kunna að eiga rót
sína að rekja til stafar rannsókn-
arnefndarinnar og líklega í öllum
öðrum málum, sem falli bankanna
kunna að tengjast, þar sem það
er rétturinn sjálfur sem velur
rannsóknardómarann. Með vali
sínu á rannsóknardómaranum
tekur Hæstiréttur ábyrgð á störf-
um hans í þágu löggjafar- og
framkvæmdavaldsins. Hæstirétt-
ur verður með öðrum orðum að
verja eigin gerðir um ókomin ár
verði skipan rannsóknarnefnd-
arinnar með þeim hætti sem
frumvarpið gerir ráð fyrir.
Að lokum þetta. Það er svo
sjálfstætt umhugsunarefni fyrir
löggjafann, hvort takmörkuðum
fjármunum gjaldþrota ríkissjóðs
sé best varið með þeim hætti sem
frumvarpið boðar þegar fyrir
liggur að refsivarslan telur sig í
fjársvelti, ef marka má yfirlýs-
ingar starfsmanns embættis rík-
islögreglustjóra í norska rík-
issjónvarpinu síðast liðinn
þriðjudag.
Hæstiréttur úr leik!
Sigurður Guð-
jónsson skrifar um
nefnd sem á að
rannsaka hrun
efnahagskerfisins
» Það er skoðun mín
að þessi skipan
nefndarinnar fái ekki
staðist.
Sigurður Guðjónsson
Höfundur er sjálfstætt starfandi
hæstaréttarlögmaður.
með mjög fróðlegan pistil um blind-
götu byggingarbransans á Spáni þar
sem nú standa heilu draugahverfin
með splunkunýjum húsum og hót-
ellengjum auð. Ekki þarf að taka
fram að stórfelld gjaldþrot blasa við
bæði hér heima og á Spáni og spár
um hríðfallandi fasteignaverð. Tema
þáttarins var: Afhverju eru bygging-
aröflin svona blind? Af hverju slaka
þau ekkert á fyrr en allt er komið í
þrot? Ég fékk þakkir frá hlust-
endum fyrir upplýsandi og vönduð
vinnubrögð eftir þennan þátt.
Það þarf varla að taka fram að
ábyrgð sveitarstjórnarmanna á höf-
uðborgarsvæðinu er mikil. Þeir
verða að þola gagnrýna umfjöllun og
þeir verða að vera tilbúnir í hrein-
skiptnar opinberar umræður. Dylgj-
ur og aðdróttanir eru ekki góður
pólitískur stíll til langframa. Íslensk-
ir valdsmenn þurfa að fara að læra
að það er ekki þeirra hlutverk að
stjórna umræðunni, eða setja
ákveðna fjölmiðlamenn út í kuldann.
Hristu þennan gamla stíl af þér,
Gunnar, og drífðu þig til mín í
Krossgötuþáttinn. Það er eiginlega
skylda þín sem bæjarstjóri. Ég mun
sýna þér fulla kurteisi en ég mun
ekki hlífa þér, frekar en öðrum, við
gagnrýnum spurningum.
» Íslenskir valdsmenn
þurfa að fara að læra
að það er ekki þeirra
hlutverk að stjórna um-
ræðunni, eða setja
ákveðna fjölmiðlamenn
út í kuldann.
Höfundur er umsjónarmaður
þáttarins Krossgötur á rás eitt
Til hamingju
með vinninginn
– meira fyrir áskrifendur
GJAFABRÉF FRÁ
er heppinn vinningshafi á
Moggaklúbbnum í nóvem
ber 2008
og vann þessa ferð fyrir t
vo með Úrval Útsýn:
Gegn framvísun þessa gja
fabréfs færðu farmiðana
afhenta á næstu skrifstof
u Úrvals Útsýnar.
Moggaklúbburinn óskar þ
ér til hamingju með vinni
nginn.
Góða ferðI
Skemmtisigling í Karíbaha
finu
með Freedom of the Seas
Alma Sigríður Guðmundsd
óttir
mbl.is/moggaklubburinn
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
Með Moggaklúbbnum
til Karíbahafsins
Áskrifandi
síðan 2002
1. vinningshafi Moggaklúbbsins hlýtur vikuferð með
„Freedom of the Seas“ um Karíbahafið