Morgunblaðið - 28.11.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 28.11.2008, Síða 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 Sudoku Frumstig 6 9 1 7 3 5 6 3 5 6 8 9 2 8 6 5 7 2 7 5 4 8 6 4 8 9 3 1 5 9 6 8 3 5 8 3 1 2 3 5 9 2 1 7 6 7 5 2 3 4 7 8 9 6 8 7 9 1 4 8 4 7 9 5 7 1 4 5 9 4 2 7 8 4 6 1 8 6 7 2 3 8 9 6 7 2 1 3 3 5 4 7 7 5 8 1 4 2 6 9 3 6 3 1 8 9 7 4 2 5 4 9 2 3 5 6 8 1 7 8 7 9 4 6 3 2 5 1 5 2 6 9 8 1 3 7 4 1 4 3 2 7 5 9 8 6 2 6 4 5 1 8 7 3 9 3 1 7 6 2 9 5 4 8 9 8 5 7 3 4 1 6 2 5 3 9 2 7 1 4 8 6 1 6 7 8 4 5 2 9 3 8 2 4 3 6 9 5 1 7 2 1 3 4 8 6 7 5 9 9 7 6 1 5 3 8 2 4 4 5 8 7 9 2 3 6 1 3 9 1 5 2 7 6 4 8 6 4 5 9 3 8 1 7 2 7 8 2 6 1 4 9 3 5 6 3 2 4 9 8 1 7 5 1 8 7 2 5 6 3 9 4 5 9 4 3 7 1 8 6 2 4 2 6 7 8 9 5 3 1 7 1 9 5 3 4 2 8 6 8 5 3 6 1 2 7 4 9 3 7 1 9 4 5 6 2 8 2 4 5 8 6 3 9 1 7 9 6 8 1 2 7 4 5 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Í dag er föstudagur 28. nóvember, 333. dagur ársins 2008 Orð dagsins: En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. (Lúk. 15, 21) Víkverji tekur eftir því að nýjaeftirlaunafrumvarpinu er ekki ætlað að jafna eftirlaunarétt lands- manna heldur einungis minnka mis- réttið, þannig að þingmenn og ráð- herrar séu eftir sem áður betur settir en aðrir. Þetta veldur miklum vonbrigðum og er ekki gæfulegt spor Alþingis til þess að vísa veginn til hins nýja Íslands, sem menn vilja kenna við jafnrétti og gegnsæi. Eft- irlaunalögin voru á sínum tíma sam- þykkt af öllum flokkum og verður forvitnilegt að sjá hvernig alþing- ismenn bregðast við „leiðréttingar“- frumvarpinu, kannski hefur einhver þann kjark að koma með breyting- artillögu um að færa eftirlaunarétt þingmanna og ráðherra til jafns við aðra. Valgerður Bjarnadóttir, vara- þingmaður Samfylkingarinnar, flutti slíkt frumvarp þegar hún kom inn á þing, en enginn tók upp merkið þeg- ar hún hvarf af þingi aftur. Nú er að sjá hvað menn meina á Alþingi þeg- ar þeir tala um jafnrétti; hvort við erum öll jöfn eða sumir jafnari en aðrir. Þingmenn hafa í orði talað illa um græðgi sjálftökuliðsins í bönk- unum. Það skyldi ekki vera að á borði séu þeir ekkert betri. Víkverji bíður þess spenntur að sjá hvernig eftirlaunamálið æxlast á Alþingi Ís- lands hins nýja. x x x Þegar Víkverji sér spúsu sínataka fram moppuna og vígbúast til hreingerningastríðs, flýtir hann sér í lesstólinn sinn, opnar bók og verður svo niðursokkinn að hann heyrir ekki hvatningarköll konunnar um að leggja henni lið. En Víkverji verður að viðurkenna að frúin sá heldur betur við honum um daginn og verður að segja þá sögu einsog hún gerðist. Víkverji var kominn á kaf í Ofsa Einars Kárasonar og hafði hummað fram af sér köll konunnar. Allt í einu heyrði Víkverji hana segja: Viltu annars ekki koníaks- dreitil með bókinni, væni? Og áður en Víkverji gat séð við því að konan hafði hvíslað þessi orð var hann stokkinn upp úr stólnum með fram- rétta hönd eftir – moppunni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 norðanátt, 4 vísa frá, 7 skreyta, 8 ósætti, 9 lengdareining, 11 pest, 13 hæðir, 14 út- gjöld, 15 hnýfill, 17 tré- ílát, 20 bókstafur, 22 vilj- ugum, 23 gjafmild, 24 stækja, 25 hávaði. Lóðrétt | 1 hárs, 2 morg- unverð, 3 kögur, 4 karl- dýr, 5 bjálfa, 6 fjármunir, 10 styrkir, 12 ræktað land, 13 stefna, 15 net- poki, 16 blómum, 18 daufinginn, 19 hljóðfæri, 20 kveina, 21 rómur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 inflúensa, 8 ergja, 9 dapur, 10 níu, 11 grunn, 13 rengi, 15 hroll, 18 snakk, 21 inn, 22 fátíð, 23 úrgur, 24 barnaskap. Lóðrétt: 2 neglu, 3 lúann, 4 endur, 5 sápan, 6 belg, 7 þrái, 12 nál, 14 enn, 15 haft, 16 ostra, 17 liðin, 18 snúss, 19 angra, 20 korn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c6 4. e4 Bb4 5. Bd2 Bxc3 6. Bxc3 dxe4 7. Dg4 Kf8 8. Dxe4 f6 9. Re2 Kf7 10. Rf4 Re7 11. Be2 a5 12. O-O-O Db6 13. Hhe1 Ra6 Staðan kom upp í A-flokki haust- móts Taflfélags Reykjavíkur sem lauk fyrir skömmu. Sverrir Örn Björnsson (2150) hafði hvítt gegn Jóhanni H. Ragnarssyni (2159). 14. Rxe6! Bd7, svartur hefði einnig orð- ið illa beygður eftir 14… Bxe6 15. Bh5+. 15. c5 Da7 16. Rg5+! fxg5 17. Bh5+ Rg6 18. De7+ Kg8 19. Dxd7 Db8 20. d5 Df8 21. dxc6 bxc6 22. Be2 h5 23. Bxa6 Hxa6 24. He8 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Engin vörn. Norður ♠ÁK ♥G9863 ♦ÁG6 ♣1062 Vestur Austur ♠5 ♠D84 ♥D72 ♥K1054 ♦742 ♦D1098 ♣ÁKG873 ♣95 Suður ♠G1097632 ♥Á ♦K53 ♣D4 Suður spilar 4♠. Sagnhafi gefur greinilega tvo slagi á lauf og einn á tromp, en hvað með tíg- ulinn – þarf að taka misheppnaða svín- ingu þar? Vestur spilar þrisvar laufi í upphafi. Svíningunni má sleppa með því að fría fimmta hjartað. Suður trompar ♣G, leggur niður ♥Á og notar innkom- una á ♠Á-K til að stinga hjarta tvíveg- is. Sendir loks austur inn á ♠D og neyðir hann til að spila tígli upp í gaffal eða ♥K og fría þannig slag á litinn. Það er betri vörn en að skipta yfir í tromp í þriðja slag, en sagnhafi á svar við því. Hann spilar á svipuðum nótum, trompar hjarta og lætur austur spila hjarta einu sinni, en síðan klárar hann trompin og nær fram tvöfaldri þving- un. Vestur þarf að valda laufið, austur hjartað, og hvorugur getur þá haldið eftir meira en tveimur tíglum. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú gefur gjafir, gerir rausn- arlega samninga eða gefur með þér. Veldu verkefni til þess að fylgja eftir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Viðskiptin ganga vel. Kannski af því að þig langar til að vera innan um fólk. Ekki láta sjá þig með hverjum sem er. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú er rétti tíminn fyrir þig til þess að söðla alveg um. Varastu bara að gera ekki of mikið úr hlutunum eða ganga of langt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er svo sem allt í lagi að end- urtaka sig tvisvar, þrisvar. Þú ferð létt með að klára verkefni tengd dán- arbúum, erfðamálum og sameiginlegum eigum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Furðulegar tilviljanir ýta undir of- sóknarkennd – er eitthvert samsæri í gangi? Nei, reyndar ekki. Best er að ganga frá mikilvægum samningum eða kaupum seinnipartinn. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Er einhver samkeppni í gangi? Ógnar skynsemi þín yfirmanninum? Það gæti verið. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vogin er mælskan uppmáluð þegar sá gállinn er á henni. En stundum er allt í lagi að sleppa örlítið fram af sér beisl- inu, ef menn bara muna að ganga hægt um gleðinnar dyr. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Láttu það eftir þér að sletta svolítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. Gættu þess þó að taka tillit til þinna nánustu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nýtt samband stendur og fellur með viðhorfi bogmannsins. Ekki hika við að sýna þeim væntumþykju, sem þú umgengst reglulega. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú gætir haft gaman af góðri rökræðu í dag. Spyrðu krefjandi spurn- inga svo hægt sé að varpa ljósi á málið. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess að festast ekki í einhverju óheillafari sem skemmir allt fyrir þér. En þú þarft bara að takast á við vand- ann með hetjulund. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er næsta víst að þú átt eftir að rekast á gamla sénsa eða maka. Reyndu að halda þig fjarri honum svo engin leiðindi komi upp á. Stjörnuspá 28. nóvember 1921 Rússneskur drengur, sem Ólafur Friðriksson ritstjóri hafði haft með sér til landsins mánuði áður, var sendur utan. Drengurinn var haldinn sjald- gæfum augnsjúkdómi og kom til harðra átaka þegar lög- regla sótti hann til Ólafs. 28. nóvember 1942 Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis opnaði svonefnda sjálfskiptibúð á Vesturgötu 15 í Reykjavík. Þetta mun hafa verið fyrsta kjörbúðin hér- lendis. „Viðskiptavinirnir af- greiða sig sjálfir,“ sagði Morg- unblaðið og gat þess að þetta fyrirkomulag væri mikið not- að í Ameríku en lítið í Evrópu. 28. nóvember 1971 Bústaðakirkja í Reykjavík var vígð. Þar með eignaðist stærsti söfnuður landsins eig- in kirkju. Mikið fjölmenni var við vígsluathöfnina og fjöldi gjafa barst kirkjunni. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Kristín Á. Jóhannesdóttir síma- mær og Pétur Þorláksson bifvéla- virki eiga sextíu ára brúðkaups- afmæli í dag, 28. nóvember. Dídí og Pétur, eins og þau hjónin eru köll- uð, hafa öll sín hjúskaparár búið á Blönduósi. Brúðkaupsafmæli „Ég ætla að halda tónleika, hitta fólkið mitt og reyna að láta eitthvað gott af mér leiða með því að styrkja SÁÁ,“ sagði Sigrún Ósk Ingadóttir, fyrr- verandi stjórnarformaður og eigandi Vogabæjar ehf. sem er sextug í dag. Hún heldur upp á afmæl- ið sitt með tónleikum fyrir vini og vandamenn í Von, húsi SÁÁ, að Efstaleiti 7 í Reykjavík, í kvöld. „Þetta verða léttir tónleikar og veitingar í hléinu. Ég ætla að syngja íslensk alþýðulög og er- lend lög sem fólk þekkir,“ sagði Sigrún. Hún hefur sungið frá 14 ára aldri, aðallega í kórum og einnig lært söng. Nú syngur hún með Óperukór Hafn- arfjarðar. Undirleikari Sigrúnar verður Ágota Joó en þær kynntust í Kvennakór Suðurnesja. Sigrún var einnig nemandi Ágotu. Sigrún sagðist yfirleitt hafa haldið upp á afmæli sín. Þegar hún varð fertug hélt hún kaffiveislu heima og fimmtugsafmælinu fagnaði hún í hópi íslenskra vina í Los Angeles. Nú biðst hún undan gjöfum sér til handa en vonar að þeir sem koma í afmælið styrki starf SÁÁ. Sigrún segir að hún og maður hennar hafi stutt þessi mannrækt- arsamtök frá því þau voru stofnuð. „Ég veit að starf SÁÁ hefur sýnt og sannað að böl getur breyst í gleði,“ sagði Sigrún. gudni@mbl.is Sigrún Ósk Ingadóttir er 60 ára í dag Syngur fyrir afmælisgestina Nýirborgarar Reykjavík Matthildur Eva fæddist 12. nóvember kl. 9.21. Hún vó 3.710 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Svala Hjör- leifsdóttir og Hörður Ágústsson. Reykjavík Birta Maren fæddist 16. september kl. 19.58. Hún vó 3.050 g og var 49,5 cm löng. For- eldrar hennar eru Heiða Viðarsdóttir og Kristján Kristjánsson. Reykjavík Hörpu Hrund Hinriksdóttur og Gunnari Frey Róbertssyni fæddist sonur 24. nóvember kl. 18.38. Hann vó 2.900 g og var 48,5 cm langur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.