Morgunblaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 5
Fréttir 5INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008 800 7000 • siminn.is Verslanir Símans eru fullar af glæsilegum símum á jólatilboði. Með öllum 3G símunum fylgir M, vefur Símans í farsímanum, sem þú getur notað þegar þú átt lausa stund og vantar afþreyingu. Farðu á netið í símanum og sláðu inn m.siminn.is til að opna fésbókina þína, spjalla á MSN, skoða tölvupóstinn eða kíkja á nýjasta nýtt á YouTube. Jólatilboðum fylgir 12.000 kr. inneign Sími Netið SjónvarpÞað er BJÖRG Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir að verði mikil fjölgun nem- enda í Háskólanum um áramótin þurfi að huga að aðstöðu þeirra. „Í stærstu kúrsunum er setið í tröpp- unum í Háskólabíói,“ segir hún. Þrátt fyrir að nýjar byggingar hafi verið teknar í notkun fyrir rúmu ári sé enn húsnæðisskortur í skól- anum. „Til dæmis hafa ekki öll nemendafélög við skólann að- stöðu,“ segir hún. Mögulega verði þó hægt að finna leiðir til þess að nemendur komist sem best fyrir. Á fundi á fimmtudag þar sem ríkisstjórnin kynnti niðurskurð í endurskoðuðum fjárlögum var Geir H. Haarde forsætisráðherra spurður um framlög til háskóla, þar sem margir sæktu nú í skólana. „Það getur vel verið að það þurfi að þjappa fólki eitthvað saman, endurskipuleggja eitthvert nám og svo framvegis,“ sagði hann. Jafnframt kom fram á fundinum að skera ætti niður framlög til LÍN. Með því ætti að nást millj- arður í sparnað. Árið 2007 fékk LÍN 4,8 milljarða framlag úr rík- issjóði og tæpa sex milljarða í ár. Ekki hefur komið fram hvar eigi að skera niður hjá LÍN. Björg segir niðurskurðinn áhyggjuefni og varla geti farið öðruvísi en svo að hann bitni á stúdentum á námslánum. „En það verður forvitnilegt að sjá þessa út- reikninga,“ segir hún. elva@mbl.is Skoða þarf aðstöðu Áhyggjur af nið- urskurði hjá LÍN Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is HÁTT í 2.000 umsóknir um að hefja nám um áramót hafa borist fjórum háskólum en umsókn- arfrestur er víðast nýrunninn út eða rennur út á næstu dögum. Flestir hafa sótt um í Háskóla Íslands en í gær hafði skólinn feng- ið um 1.200 umsóknir, að sögn Jóns Arnar Guðbjartssonar, markaðs- og samskiptastjóra HÍ Þar af eru um 570 umsóknir um framhaldsnám en 620 um grunn- nám við skólann. Umsóknarfrestur rennur út á mánudag. „Venjulega kemur skriða umsókna síðustu dag- ana,“ segir Jón Örn. Því megi vænta þess að umsóknum fjölgi um helgina og fram á mánudag. Í fyrra afgreiddi skólinn 94 umsóknir um framhaldsnám um áramót en í ár eru umsóknirnar þegar orðnar um sexfalt fleiri. Í Háskólanum í Reykjavík hafa borist um 530 umsóknir um nám, þar af um 130 um framhaldsnám. Að sögn Jóhanns Hlíðars Harð- arsonar, markaðsstjóra HR, er opið fyrir umsóknir um framhaldsnám til mánudags. Hann segir tölvunar- og lögfræði vinsælar greinar Á þriðja hundrað nemenda út- skrifast frá HR um áramótin „Það verða ekki teknir inn fleiri en sem því nemur. Ekki stendur til að hlaða hér inn og ganga á rými þeirra sem fyrir eru og þá þjón- ustu sem þeir fá.“ Um 250 umsóknir hafa borist Háskólanum á Bifröst vegna náms á vorönn, segir Kristín Ólafsdóttir, markaðsstjóri skólans. Enn er hægt að sækja um nám þar. Kristín segir allt nám hafa verið auglýst með fyrirvara um næga þátttöku en opnað hafi verið fyrir umsóknir um allt nám í skólanum. Meirihluti nemenda við skólann sé í fjarnámi og því sé nægt húsnæði fyrir þá sem sækja námið á Bif- röst. Alls sóttu um 100 manns um að hefja nám við Háskólann á Ak- ureyri áður en umsóknarfrestur þar rann út á dögunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bygging Háskólinn í Reykjavík útskrifar á þriðja hundrað nemenda um áramótin en hann reisir um þessar mundir nýja byggingu í Vatnsmýrinni. Um 2.000 vilja í skóla  Um 1.200 hafa sótt um í Háskóla Íslands en umsóknarfrestur er enn ekki liðinn  Margir huga að framhaldsnámi og tölvunarfræði og lögfræði eru vinsælar TUGIR umsókna um nám í Evr- ópufræðum hafa borist Háskól- anum á Bifröst, að sögn Eiríks Bergmanns Einarssonar, dósents og forstöðumanns Evrópufræða- seturs á Bifröst. Áhugi á náminu hafi aldrei verið meiri en það stunda nú um 20 manns. „Þegar Sjálfstæðisflokkurinn opnaði á málið var eins og lok hefði verið tekið af potti og margt fólk fékk áhuga á náminu. Það sá fram á að Ísland væri á þessari leið og að við yrðum að vita meira um ESB.“ Evrópufræði vinsæl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.