Morgunblaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 53
Velvakandi 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ SLÆMA VIÐ AÐ ÉG SÉ
AÐ ELDAST ER MINNISLEYSI,
HÁRLOS, AUKINN HÁRVÖXTUR
Í NEFINU OG EYRUNUM,
HRUKKUR OG GIGT...
ÞAÐ GÓÐA ER
AÐ ÉG FÆ KÖKU
ENGIN
SAMKEPPNI
TIL HAMINGJU
MEÐ AFMÆLIÐ!
ÉG PRÓFAÐI ÞAÐ EINU SINNI.
ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGT!
AÐ ÞÚ
SKULIR
SJÚGA Á ÞÉR
ÞUMALINN!
KANNSKI
ER ÉG
BETRI Á
BRAGÐIÐ
EN ÞÚ!
ÉG SKIL ÞETTA EKKI HVAÐ MEÐ
AÐ GERA
SJÁLFUM ÞÉR
TIL GEÐS?
MAMMA
LEYFIR MÉR
EKKI AÐ
FLYTJA TIL
AFRÍKU
KRAKKARNIR STRÍDDU MÉR
ÞEGAR ÉG VILDI EKKI SPILA
HAFNABOLTA. SÍÐAN
ÖSKRUÐU ÞEIR Á MIG ÞEGAR
ÉG SPILAÐI HAFNABOLTA.
SÍÐAN SAGÐI ÞJÁLFARINN
AÐ ÉG VÆRI AUMINGI
ÞEGAR ÉG HÆTTI
MAÐUR VERÐUR AÐ
VERA STJARNA TIL AÐ
GERA FÓLKI TIL GEÐS
ÞÚ ERT NÚ
MEIRI SÓÐINN!
HVAR VÆRIR
ÞÚ EIGINLEGA
ÁN MÍN?!?
HMM... GÓÐ
SPURNING...
ÉG ÞYRFTI AÐ TALA
VIÐ FERÐASKRIFSTOFU
ÁÐUR EN ÉG TÆKI
ENDANLEGA ÁKVÖRÐUN
MÉR TÓKST AÐ SETJA
LAMPASKERMINN Á HÖFUÐIÐ
Á GRÍMI ÁN ÞESS AÐ HONUM
TÆKIST AÐ BÍTA MIG
ÞÚ VERÐUR AÐ SNÚA
HONUM VIÐ ÞEGAR
ÞÚ KEMUR HEIM
ÉG ER VISS UM
AÐ KIDDA BRAUT
LAMPANN
AUÐVITAÐ GERÐI
HÚN ÞAÐ! ÉG SÉ
ENGA AÐRA
SKÝRINGU
EN ÉG SÁ
HANA SAMT
EKKI GERA
ÞAÐ
HVAÐ MEÐ
ÞAÐ? HÚN
ER AÐ
LJÚGA!
REGLAN, „SAKLAUS UNS
SEKT ER SÖNNUГ GILDIR
EKKI Í ÞESSU HÚSI
MARÍA LOPEZ JÁTAR ÁST SÍNA
Á KÓNGULÓARMANNINUM
Í BEINNI ÚTSENDINGU...
ÉG RÆÐ
EKKI VIÐ
MIG...
ÉG ER ÁSTFANGIN
AF KÓNGULÓAR-
MANNINUM!
ÉG VERÐ AÐ FÁ
AÐ VITA... ERTU
NOKKUÐ GIFTUR?
HVAÐ GET
ÉG SAGT
HENNI?
ÞAÐ SKIPTIR
EKKI MÁLI HVAÐ
HANN SEGIR...
ÞAÐ ER
EKKERT RÉTT
SVAR
ÞESSI skemmtilega mynd var tekin í Ártúnsbrekkunni þar sem krakkar
fögnuðu snjónum með fjölda salíbuna niður brekkuna og ánægjan yfir ný-
föllnum snjónum leyndi sér ekki.
Morgunblaðið/Golli
Snjónum fagnað í Ártúnsbrekkunni
Þakkir
KÆRAR þakkir og
jólakveðjur til vegfar-
andans sem fann vesk-
ið mitt fyrir utan
Tryggingastofnun,
fimmtudaginn 4. des.
rétt fyrir kl. 11. Veg-
farandi kom því strax í
afgreiðslu Trygg-
ingastofnunar, þar
sem ég gat nálgast
það. Svona lagað gleð-
ur mann innilega, mitt
í öllu skammdeginu.
Gréta.
Týndur högni
FYRIR tveimur vikum kom til mín
kolsvartur högni, hann er ómerkt-
ur, með svarta leðuról sem á eru
silfurdoppur og bjalla. Hann er
heldur loðinn, eða aðeins meira loð-
inn en venjulegur heimilisköttur.
Þessi köttur hafði verið á vappi fyr-
ir utan heimili mitt lengi áður en ég
tók hann inn, því ég taldi hann eiga
heima í hverfinu, en ég á heima á
Öldugötu í Hafnarfirði. Hann er
geltur, en hvorki eyrnamerktur né
örmerktur. Eigandi getur vitjað
hans hjá Grétu í síma 891-9869.
Herrafrakki í óskilum
BUGATTI herrafrakki var skilinn
eftir hér í Grafarvogskirkju fyrir
um tveimur árum. Í vasa hans er
fallegt rautt hjarta og á því stendur
„Hjarta mannsins treystir vænni
konu“ Við viljum endilega að eig-
andinn fái frakkann sinn aftur.
Eigandinn getur fengið frekari
upplýsingar í kirkjunni, sími 587-
9070.
Áfengisauglýsingar
HINN 7. des. sl. hældiVíkverji
Gestgjafanum sem góðu riti. Ég
sem er áskrifandi Morgunblaðsins
og núna nýverið Gestgjafans er líka
dyggur lesandi Víkverja. Ég varð
fyrir nokkrum vonbrigðum með ný-
útkomið jólablað Gestgjafans, en
það má alveg vekja athygli á því að
enn er ekki leyfilegt að auglýsa
áfengi á Íslandi. Samt sem áður eru
28 heilsíður í blaðinu teknar undir
auglýsingar á áfengi, dulbúnar sem
vínkynningar, umfjöllun um einhver
nýkomin vín og uppskriftir, auk
innskota hér og þar í blaðinu sem
tengjastýmsum uppskriftum o.þ.h.,
þá gjarnan höfð mynd með af flösk-
unni. Að öðru leyti fannst mér blað-
ið gott en hefði gjarnan viljað sjá
meira matar-, heimilis- og jólatengt
á þessum 28 síðum.
Tek það fram að ég hef ekkert á
móti víni og sumum finnst það mjög
nauðsynlegt í mörgu samhengi,
verst hvað það er stórt hlutfall fólks
sem verður hált á því svellinu, ekki
síst yfir hátíðarnar. Malt og appels-
ín er það sem á að
vera á borðum á jól-
unum, barnanna
vegna.
Lesandi.
Borgarafundur
hvergi í beinni í
fjölmiðlum
ÞAÐ vekur furðu
mína og minna nán-
ustu að ekki skuli
jafnmikilvægum um-
ræðugrundvelli og
borgarafundunum
vera útvarpað eða
sjónvarpað beint. Það
eiga ekki allir kost á að mæta á
svona fundi og þetta er svo sann-
arlega mikilvægt áheyrnar enda
eru meðal frummælenda sérfræð-
ingar í efnahagsmálum og ræður
þeirra sem og annarra málefna-
legar. Þá kom mér einnig á óvart
spurningaval og viðmót frétta-
manna Ríkisútvarpsins í kvöld-
fréttum 8. des. en þar var bersýni-
lega verið að gera lítið úr
málefninu (efnahagskreppunni) og
fyrirhöfninni með því að spyrja út í
allt aðra sálma eins og hve margir
mættu á fundinn. Nú tjá sem betur
fer margir borgarar sínar pólitísku
skoðanir á hinum ýmsa vettvangi
og er það áberandi hve stór hluti
almennings er vel upplýstur og
óhræddur við að mynda sér skoð-
un. Þess vegna bið ég um að af-
þreyingarefni séu færð til hliðar í
ríkisfjölmiðlum svo að almenningur
fái að fylgjast með fundum um
efnahagskreppuna. Hana má ekki
þagga niður.
María Ásmundsdóttir Shanko.
Auglýst eftir nýjum
stjórnmálaflokki
SEM andstæðingur ESB-aðildar
og kjósandi Sjálfstæðisflokksins
taldi ég mig svikna þegar forsætis-
ráðherra gekk á bak orða sinna og
setti málefni ESB-aðildar á dag-
skrá. Mér datt þá í hug að ég gæti
næst kosið Vinstri græna en eftir
yfirlýsingu formannsins í Morg-
unblaðinu 8. desember sl. kemur
það ekki til greina. Nú vantar nýj-
an flokk sem andstæðingar ESB
geta kosið. Flokk sem hefur á
stefnuskrá sinni að berjast gegn
ESB-aðild, og um leið gegn því að
við afsölum okkur sjálfstæði okkar.
Við misstum sjálfstæði okkar end-
ur fyrir löngu og það tók okkur 700
ár að ná því aftur. Sjálfstæðið er
fjöregg þjóðarinnar og okkur ber
að varðveita það.
Kjósandi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félagsstarf eldri borgara
Bólstaðarhlíð 43 | Mánudaginn 22. des.
kl. 14 verður jólatrésskemmtun. Jóla-
sveinar koma í heimsókn. Heitt súkku-
laði og kökur. Frítt fyrir börn yngri en
sextán ára. Skráning fyrir 18. des. í s.
535-2760.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9 og Hana nú-ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9-16.30 vinnustofur opnar,
spilasalur o.fl. Mánud. 15. des. kl. 14 les
Auður Jónsd. úr bók sinni ,,Vetrarsól“.
Þriðjud. 16. des. er Stefán Sigurkarlsson,
lyfjafræðingur og lífskúnstner, gestur í
Pottakaffi í Breiðholtslaug og les úr óút-
kominni bók sinni ,,Bréf frá Hólmanesi“.