Morgunblaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
METSÖLUBÓKIN TWILIGHT
SEM HEFUR FARIÐ SIGURFÖR UM
HEIMINN ER KOMINN ÚT Á ÍSLANDI
SVALASTA MYND ÁRSINS
EIN STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÞESSU ÁRI Í USA
MYNDIN SEM GERÐI ALLT BRJÁLAÐ Í USA
EMPIRE
TWILIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 síð. sýn. LEYFÐ
SÝND Í KRINGLUNNI
- ROGER EBERT
- SÆBJÖRN, MBL
ÁSGEIR - SMUGAN
- GUÐRÚN HELGA, RÚV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
FRÁ RIDLEY SCOTT, LEIKSTJÓRA
AMERICAN GANGSTER OG GLADIATOR.
SÝND Í ÁLFABAKKA
NEW YORK TIMES
- ROGER EBERT - POPPLAND
S.V. – MBL.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HEIMSFRUMSÝNG Á MAGNAÐRI STÓRMYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY
BYGGÐ Á EINUM BESTA VÍSINDATRYLLI ALLRA TÍMA!
KLUKKAN TIFAR
OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI
LOKIÐ!
EKKERT
GETUR
UNDIRBÚIÐ ÞIG
FYRIR
WWW.AINTITCOOLNEWS.COM
“A STRANGE THING HAPPENED ON MY WAY TO
RIDICULE MY WIFE’S LOVE FOR TWILIGHT…
I KINDA SORTA FELL A LITTLE IN LOVE TOO.”
- HARRY KNOWLES
á allar 3D sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 850 krr
THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 6D - 8D - 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL
CITY OF EMBER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 1:30 - 2D - 3:30 - 4D - 6 LEYFÐ DIGITAL
MADAGASCAR 2 m/ensku tali kl. 2 - 4 - 8 - 10:20 LEYFÐ
BODY OF LIES kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
BODY OF LIES kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
TWILIGHT kl. 6D - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
CITY OF EMBER kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 2D - 4D - 6D LEYFÐ DIGITAL
MADAGASCAR 2 m/ensku tali kl. 8:30D LEYFÐ DIGITAL
W. kl. 10:10 B.i. 12 ára
FERÐIN TIL TUNGLSINS kl. 43D - DIGITAL LEYFÐ 3D - DIGITAL
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 2 ( engin sýning laugardag ) LEYFÐ
Í VIKUNNI bárust mér þærhughreystandi fréttir aðspjallþáttastjórnandinn dáði,
geðþekki en umfram allt hökustóri
Jay Leno væri alls ekki á leiðinni út
af sjónvarpsstöðinni NBC, þó hann
væri að hætta með hinn geypi-
vinsæla þátt The Tonight Show
næsta vor (hann tók við keflinu af
hinum gríðarlega vinsæla Johnny
Carson árið 1992). Klausa í samn-
ingum hans er að bjarga okkur
aðdáendum frá vonleysi og eymd,
því karlanganum er forboðið að
ráða sig til starfa hjá annarri stöð.
Leno mun því ekki setjast í helgan
stein, eða bílapússningar, heldur
mun hann stýra nýjum þætti sem
mun einfaldlega heita The Jay
Leno Show. Þátturinn verður, til
allrar hamingju, fimm sinnum í
viku á besta tíma eftir kvöldmat.
Þátturinn mun hefja göngu sína
næsta haust.
Já, þið heyrðuð rétt. Ég er mikillaðdáandi Jay Leno.
Ástæðan fyrir því að ég er að
árétta þetta, standa með mínum
manni, er að mér finnst ég sífellt
vera að heyra raddir sem hallmæla
Leno. Segja hann ófyndinn, hallær-
islegan og hann hafi ekki roð við
helstu keppinautunum, þeim Conan
O’Brien (sem mun taka við af hon-
um) og David Letterman. Þeir séu
meinhæðnari, glúrnari, beittari og
bara miklu betri á allan hátt. Mér
finnst eins og ég heyri þetta að-
allega frá svokölluðum hippsterum
og kúlistum, menningarvitum með
puttann á púlsinum. Salt jarðar
dreifir sér frekar í kringum hinn al-
þýðlega Leno sem veit upp á hár
hvað hann er að gera. Bjálfaleg
grafíkin, aulalegu brandararnir –
já venjulegheitin, jafnvel hallær-
islegheitin eru, eins einkennilega
og það hljómar, það sem heillar við
Leno. Þetta er eitthvað svo … niðri
á jörðinni.
Ástæða þess að ég dróst að Lenoá sínum tíma er eiginlega
fremur einföld og þeir eru ábyggi-
lega margir sem geta samsamað sig
því sem á eftir fer. Ég er meira en
nokkuð annað háður Leno og sæki
ekki í þættina vegna einhverrar
snilldarlegrar, djúpspakrar og
framsækinnar útfærslu. Þátturinn
hefur þannig alltaf verið sýndur
seint á kvöldin, 22.50, og tímasetn-
ingin hefur mikið að segja. Um
þetta leyti er athyglin farin að
dofna, ef henni var ætlað eitthvað
annað en gláp, og hættan á að mað-
ur „detti“ inn í einhvern sjónvarps-
þáttinn er í hámarki um þetta leyti.
Þá er þátturinn í opinni dagskrá á
Skjá einum, annað atriði sem skipt-
ir máli.
Form þáttanna er reyndar snilld-
arlegt, þátturinn rúllar áfram án
þess að hiksta og virkar sem hið
besta heiladeyfilyf. Því að á þessum
tíma vill maður slökkva – fremur en
kveikja, búinn að vera á lífsins fart
frá því snemma um morguninn.
Og einmitt vegna þessa er Lenomeð þetta spjallþáttaform á
tæru, fremur en hinir sem ég
nefndi. Þetta snýst ekki um að
kveikja í fólki, æsa það eða storka
því með útspekúleraðri hnyttni.
Miklu heldur á þetta að vera sefjun.
Græskulaust gaman. Dásamleg
dempun. Með öðrum orðum: Af-
þreying. Þetta skilur Leno … mað-
ur fólksins. Hann lifi!
Lengi lifi Leno!
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Form þáttanna erreyndar snilldarlegt,
þátturinn rúllar áfram
án þess að hiksta og
virkar sem hið besta
heiladeyfilyf.
Ódauðlegur Leno er með „töttsið“, hvað sem hippsterar og kúlistar segja …