Morgunblaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 20
20 Viðskipti tengdra aðila
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
Klapparstíg 44, sími 562 3614
Ómissandi með jólamatnum
Piparrótarsósa
Góð með Roast Beef og reyktum laxi
Cranberry sósa
góð með Kalkún, Villibráð og Paté
Myntuhlaup
Gott með lambakjöti
Jarðaberjasulta
Góð í jólabaksturinn
Enskt Seville marmelaði
Fyrir jólamorgunmatinn
Sítrónu-Lime marmelaði
Gott á ristað brauð og kex
Mincemeat tarts
Walkers jólakaka
Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur sína
árlegu aðventugleði laugardaginn 13. desember
kl. 17-19 í húsnæði Samfylkingarinnar að
Hallveigarstíg 1.
Hörður Torfason les úr bók sinni „TABÚ“
og Margrét Pála Ólafsdóttir úr bók sinni
„Ég skal vera Grýla“
Ljúfar jólaveitingar
Allir velkomnir
Fjölskylduhjálp Íslands
Jólasöfnun
Fjölskylduhjálpar Íslands er hafin
Þúsundir fjölskyldna eiga um sárt að
binda fyrir jólin. Þeir sem eru
aflögufærir fyrir þessi jól geta lagt inn
á reikning Fjölskylduhjálpar Íslands
101-26-66090
kt. 660903-2590
Tökum á móti matvælum og fatnaði
alla miðvikudaga að
Eskihlíð 2-4 frá kl. 12.00 til 18.00.
Símar 551 3360 og 892 9603
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
FÁ MÁL sem varða viðskipti
tengdra aðila hafa vakið jafnmikla
athygli á síðustu mánuðum og end-
urtekin viðskipti FL Group og Fons
með danska flugfélagið Sterling.
Tugir þúsunda hafa séð myndbönd,
sem birt hafa verið á vefsíðunni you-
tube.com, og þá hefur töluvert verið
fjallað um málin í fjölmiðlum.
Margt hefur verið gagnrýnt í
rekstri FL Group, en í þessari grein
verður einungis fjallað um viðskiptin
með Sterling, en ekki rekstr-
arkostnað FL Group, leigu á einka-
þotum eða hundruð milljóna króna
rannsóknarkostnað vegna hugs-
anlegrar yfirtöku á bresku leikjafyr-
irtæki.
Tengsl Fons og FL Group
Félögin sem í hlut áttu voru al-
menningshlutafélagið FL Group,
sem í upphafi tímabilsins var undir
stjórn Hannesar Smárasonar og
fjárfestingarfélagið Fons, sem var í
eigu Pálma Haraldssonar auk ann-
arra. Ólíkt Kaldbaks- og Vöruvelt-
umálunum, sem fjallað hefur verið
um í þessum greinaflokki, sat því
ekki sami einstaklingur beggja
vegna borðsins. Hins vegar er óhætt
að kalla þá Hannes og Pálma tengda
aðila, enda hafa þeir um árabil átt í
viðskiptum og hafa fjárfest í sömu
fyrirtækjum. T.d. átti Fons lengi hlut
í FL Group og um mitt þetta ár var
eignarhlutur Fons kominn í rúm
12%. Þá sat Pálmi sjálfur í stjórn FL
Group frá desember 2007 til júní
2008. Hafði hann áður setið í stjórn
Flugleiða.
Upphaf Sterling-fléttunnar, eins
og viðskiptin hafa stundum verið
kölluð, má rekja til þess er Fons
kaupir Sterling í mars 2005. Kaup-
verðið var um fjórir milljarðar króna
og sagði Pálmi að markmiðið væri að
Sterling yrði rekið með hagnaði árið
2005.
Í ljós kom hins vegar að fyrsta
fjórðung ársins var 460 milljóna
króna tap á rekstri Sterling. Í júlí er
Sterling sameinað öðru dönsku flug-
félagi, Maersk Air, en kaupverð Ma-
ersk er ekki gefið upp.
Í október 2005, sjö mánuðum eftir
að Fons kaupir Sterling á fjóra millj-
arða króna, kaupir FL Group flug-
félagið á 15 milljarða. Fons fær 11
milljarða í peningum, en afganginn í
hlutabréfum í FL Group. Almenn-
ingshlutafélagið FL Group keypti
því Sterling á 11 milljörðum hærra
verði en Fons greiddi fyrir félagið
nokkrum mánuðum fyrr.
Lögðust stjórnendur Icelandair,
sem þá var í eigu FL Group, gegn
kaupum FL Group á Sterling, enda
töldu þeir að með þeim væri sam-
vinnu Icelandair og SAS stefnt í
voða. Þremur dögum áður en gengið
var frá kaupum FL Group á Sterling
hætti þáverandi forstjóri FL Group,
Ragnhildur Geirsdóttir, störfum hjá
félaginu. Sagði hún að áherslubreyt-
ingar hjá félaginu réðu því að hún
segði upp. Síðan þá hefur Ragnhildur
ekki viljað tjá sig um málefni félags-
ins eða forsendur þess að hún lét af
störfum þar.
Þrátt fyrir fagrar fyrirætlanir hélt
taprekstur Sterling áfram og kom í
dönskum fjölmiðlum fram að tap fé-
lagsins árið 2005 hefði numið 3,2
milljörðum íslenskra króna.
Sterling selt á ný
Hélt taprekstur Sterling áfram ár-
ið 2006, en í desember það ár selur
FL Group flugfélagið til nýstofnaðs
félags, Northern Travel Holding,
fyrir 20 milljarða króna. NTH
greiddi sex milljarða króna í reiðufé
fyrir félagið, en seljandinn, FL Gro-
up, lánaði kaupandanum, NTH, 14
milljarða króna fyrir afganginum.
Stærsti eigandi NTH var Fons, með
um 43%, en FL Group átti sjálft 35%.
Má því segja að FL Group hafi sjálft
greitt 7 milljarða af 20 milljörðum til
sjálfs sín fyrir Sterling.
Athyglisvert er að í óendurskoð-
uðum ársreikningum NTH fyrir árið
2006 kemur í ljós að langtímaskuldir
félagsins voru sléttir 20 milljarðar.
NTH virðist því hafa fengið allt
kaupverð Sterling að láni, en ekki er
vitað hver lánaði félaginu þá sex
milljarða sem upp á vantaði.
Líður svo og bíður þar til í ágúst á
þessu ári þegar FL Group, sem þá
hét Stoðir, var komið í alvarleg fjár-
hagsleg vandræði. Stoðir kaupa
hluta af eign Fons í Iceland versl-
anakeðjunni, en láta í skiptum hlut
sinn í NTH. Stoðir vildu á sínum
tíma hvorki gefa upp söluverðið á
hlutnum í NTH, en fullyrt var að hið
fjórtán milljarða króna lán hefði ver-
ið greitt til baka.
Rúmum tveimur mánuðum síðar, í
lok október 2008, varð Sterling gjald-
þrota.
Erfitt að slá tölu á tapið
Ólíkt öðrum dæmum, sem farið
hefur verið yfir í þessum greinaflokki
er ekki auðvelt að slá tölu á tap FL
Group á þessum viðskiptum. Fer það
allt eftir því hvert kaupverð Fons var
á hlut FL Group í NTH. Ljóst er
hins vegar að FL Group greiddi 11
milljörðum króna meira fyrir Sterl-
ing í október 2005 en Fons greiddi
fyrir félagið sjö mánuðum fyrr.
Vissulega rann Maersk Air saman
við Sterling í millitíðinni, en ekkert
hefur komið fram sem bendir til þess
að það félag hafi eitt og sér verið ell-
efu milljarða króna virði.
FL Group fékk sex milljarða
greidda í reiðufé þegar Sterling var
selt NTH í desember 2006. Þar sem
FL Group var sjálft með 35% hlut í
NTH er hins vegar ekki hægt að
draga þá sex milljarða einfaldlega
frá áðurnefndum ellefu milljörðum
og fá þannig út tap hluthafa FL Gro-
up. Þar til upplýsingar um kaup-
verðið á NTH liggja fyrir er því
ómögulegt að reikna út raunverulegt
tap FL Group á viðskiptunum.
Í árslok 2005 voru fjórir lífeyr-
issjóðir meðal 20 stærstu hluthafa
FL Group og áttu þeir samtals 2,84%
í félaginu. Voru það Gildi lífeyr-
issjóður, Lífeyrissjóðir Bankastræti
7, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og
Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Á morgun verður fjallað um hóp-
málsóknir og hlutverk lífeyrissjóð-
anna í hagsmunavörslu hluthafa.
Sterling-flétta FL
Group og Fons
+("
,(-.
)$ *(/(
0
12"
34,-
(-.
)
$ *(/(
5 2"#
67(-
.
)$
*(/(
8)9
"!
,(-%
34,- 67
*
-& .
--
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórn Í stjórn Flugleiða árið 2004 voru ásamt öðrum Pálmi Haraldsson,
Hreggviður Jónsson, Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson
Flugfélagið snarhækkaði í verði á nokkrum mánuðum