Morgunblaðið - 13.12.2008, Síða 16
16 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
12
/0
6
í jólapakkann
Esprit sportfatnaður
1.990
6.990
6.990
Bolir frá
Peysur frá
Buxur frá
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ALÞINGI samþykkti í gær lög um
sérstaka þriggja manna rannsókn-
arnefnd sem á að fara yfir aðdrag-
anda og orsakir falls íslensku bank-
anna. Allsherjarnefnd gerði
nokkrar breytingar á frumvarpinu í
samræmi við athugasemdir sem
komu fram.
Þannig mun forsætisnefnd Al-
þingis velja hæstaréttardómara til
að sitja í rannsóknarnefndinni en
upphaflega var gert ráð fyrir að
Hæstiréttur gerði það. Sætti sú til-
högun nokkurri gagnrýni og óttast
var að ekki yrði sátt um þann
nefndarmann.
Ekki sakamálarannsókn
Eitt af því sem var gagnrýnt var
að starf nefndarinnar gæti á ein-
hvern hátt skarast við rannsókn
sérstaks saksóknara sem verður
skipaður. Væri ekki passað upp á
réttindi mögulegra sakborninga
gætu gögn sem nefndin aflaði
ónýst. Allsherjarnefnd leggur því
áherslu á að rannsóknarnefndinni
sé aðeins ætlað að skoða ástæður
bankahrunsins og hvort mistök hafi
verið gerð við stjórn efnahagsmála
eða eftirlit með bönkum. Hinn sér-
staki saksóknari á hins vegar að
annast alla sakamálarannsókn og
ekki verður heimilt að nota upplýs-
ingar sem einstaklingur veitir fyrir
nefndinni sem sönnunargagn í
sakamáli gegn honum. Rannsókn-
arnefndinni ber þó að tilkynna til
ríkissaksóknara möguleg refsiverð
brot. Komist hún hins vegar að því
að ráðherra hafi gert mistök eða
sýnt vanræskslu í starfi á að gera
grein fyrir því í skýrslu til Alþingis,
sem fer með ákæruvald gagnvart
ráðherrum og metur hvort tilefni sé
til að þeir sæti ábyrgð.
Dómari úrskurði
Lögmannafélag Íslands lýsti yfir
miklum áhyggjum af því að ákvæði
frumvarpsins gætu brotið í bága við
mannréttindi, s.s. friðhelgi einka-
lífsins. Var m.a. vísað til þess að
rannsóknarnefndin átti að fá heim-
ildir til að birta upplýsingar, sem
annars væru háðar þagnarskyldu,
teldi hún það nauðsynlegt til að
styðja niðurstöðu sína. Allsherjar-
nefnd áréttar að einungis eigi að
birta slíkar upplýsingar vegi al-
mannahagsmunir þyngra en hags-
munir viðkomandi einstaklings.
Þá lagði nefndin einnig til breyt-
ingar þess efnis að lögmönnum,
endurskoðendum og öðrum starfs-
stéttum sem hafa trúnaðarskyldur
gagnvart skjólstæðingum sínum
verði ekki gert að greina frá upp-
lýsingum um einkahagi manna
nema dómari úrskurði svo.
Morgunblaðið/Kristinn
Samþykkt Nefndin má birta persónulegar upplýsingar ef almannahagsmunir vega þyngra en einstaklingsins.
Hrunið rannsakað
Forsætisnefnd velur hæstaréttardómara í nefndina
Dómari úrskurði um upplýsingaskyldu lögmanna o.fl.
Í HNOTSKURN
» Frumvarpið fluttu forsetiAlþingis og allir formenn
stjórnmálaflokkanna.
» Rannsókn sem þessi hefuraldrei verið gerð á Íslandi.
ÞINGBRÉF
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Þ
ingvikan fór af stað með
miklum látum þegar
hópur fólks ruddist inn í
þinghúsið og vildi á þing-
palla. Þingverðir reyndu
að varna þeim inngöngu og uppskáru
marbletti og bólgnar hendur. Tveir
mótmælendur komust inn og gerðu
hróp að þingmönnum en aðrir voru í
stigaganginum og þaðan heyrðust
mikil læti. Mótmælendur fyrir utan
þinghúsið sögðu að þeir hefðu bara
viljað komast inn en verið stöðvaðir.
Lýðræðið virkaði ekki og lögreglan
væri fasísk. Reiðin var mikil, mætti
jafnvel tala um heift.
Nú hef ég orðið vitni að því að ein-
staka lögreglumaður bregðist hrana-
lega við, fremur en vinalega, í
skyldustörfum og það getur fengið
blóðið til að þjóta í reiðum mótmæl-
endum. En þegar kemur að þing-
vörðum þá þykist ég vel geta fullyrt
að þeir eru seinþreyttir til vandræða
og fara sannarlega ekki fram með
látum.
Það verður líka að segjast að árás
á Alþingishúsið mun seint bæta lýð-
ræðið. Hingað til hefur fólk getað
komið á þingpalla hvenær sem þing-
fundur er í gangi án þess að þurfa að
fara í gegnum stranga öryggisgæslu.
Og þannig viljum við hafa það.
Óðagot í áfengismáli
Á fimmtudag stefndi í að ég kæm-
ist úr vinnu á kristilegum tíma og ég
hugsaði mér gott til glóðarinnar að
ná að lyfta mér aðeins upp á jólagleði
rithöfunda. En þegar ég hélt að slíta
ætti þingfundi var honum frestað og
litlar upplýsingar fengust um hvað
stæði til. Ég skrapp glorhungruð nið-
ur í mötuneyti þar sem unnið var
hörðum höndum að því að setja snarl
á borð og súpu í pott. Starfskonurnar
þar voru hins vegar í sömu sporum
og ég og höfðu ekki haft hugmynd
um að til stæði að funda fram á kvöld.
Í ljós kom að keyra átti frumvarp
um áfengishækkun í gegn og í leið-
inni hækka ýmiss konar gjöld sem
snúa að bifreiðum. Mér skildist að til-
gangurinn með leyndinni hefði verið
að koma í veg fyrir örtröð í vínbúð-
um. Síðan kom í ljós að hækkanir
taka ekki gildi fyrr en nýjar vörur
koma í vínbúðirnar. Og þá má spyrja:
Hvers vegna þetta óðagot?
Helstirnið varð dauðastirni
Sjaldan finnst mér eins gaman á
Alþingi og þegar íslenskt mál er til
umfjöllunar. Þá víkja stóryrði um
efnhagsvandann fyrir umræðum um
tilvísunarsetningar og góðar þýð-
ingar. Þannig var það í vikunni þegar
menntamálaráðherra mælti fyrir
þingsályktunartillögu um íslenska
málstefnu. Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir viðraði áhyggjur sínar af er-
lendum áhrifum þegar kemur að of-
notkun nafnorða og rangri meðferð
tilvísunarsetninga. Tók hún eftirfar-
andi dæmi úr fjölmiðlum: „Fundur
var haldinn hjá óþekktum stjórn-
málamanni, sem stóð í sex klukku-
stundir.“
Katrín Jakobsdóttir gerði þýð-
ingar að umtalsefni og rifjaði upp sín
fyrstu kynni af Stjörnustríðsmynd-
unum þar sem aðalpersónurnar voru
Logi, Lilja og Hans Óli. Eftir að
myndirnar voru endurhljóðbland-
aðar fór hins vegar metnaðurinn úr
þýðingunni. Helstirnið varð Dauða-
stjarna, Væringjarnir urðu Jedi-
riddarar og til sögunnar komu Luke,
Han Solo og Leia. Ekki gaf Katrín
mikið fyrir þessar nýju þýðingar, eða
öllu heldur þýðingarleysi.
Þetta minnir á samtal sem ég varð
vitni að þar sem 5 ára snáði var að
skrifa bréf til jólasveinsins og kallaði
á föður sinn og sagði: „En pabbi, það
stendur starvars hérna en ekki star-
vors, mig langar í starvors-kall.“
Faðirinn útskýrði að Starwars væri
enskt orð og þ.a.l. skrifað svona.
Auðvitað hefði ég átt að grípa inn í
og útskýra fyrir feðgunum að ís-
lensku jólasveinarnir tala íslensku og
vita að líkindum ekkert hvað Star-
wars er.
Íslenskt mál, áfengi
og Stjörnustríð
Hik gagnvart Bretum
Of mikið hik hefur verið á stjórnvöld-
um hvað varðar mögulega málsókn
gegn Bretum
vegna beitingar
hryðjuverkalaga
gegn íslenskum
fyrirtækjum, að
mati Bjarna Bene-
diktssonar, for-
manns utanrík-
ismálanefndar.
Valgerður Sverr-
isdóttir og fleiri
stjórnarand-
stöðuþingmenn kölluðu eftir skýrum
svörum í gær um hvort leita ætti til
dómstóla. Kærufrestur rynni út 7.
janúar nk. og fyrirvarinn því stuttur.
Bjarni sagði stjórnvöld þó meðvituð
um tímafrestinn en að ákveðin rétt-
aróvissa ríkti um hvort bankarnir
ættu að höfða mál eða íslenska rík-
ið.
1,7 milljónir á mánuði
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins fær 1,7
milljónir króna í mánaðarlaun og að-
stoðarforstjóri rúmlega 1,25 millj-
ónir. Þetta kemur fram í svari við-
skiptaráðherra við fyrirsuprn Atla
Gíslasonar. Þá eru föst mánaðarlaun
sviðsstjóra innan Fjármálaeftirlitsins
milli 850 og 970 þúsund krónur á
mánuði.
Lægri dráttarvextir
Dráttarvextir verða 7% í stað 11%
samkvæmt frumvarpi sem fjár-
málaráðherra mælti fyrir á Alþingi í
gær. Er þetta liður í aðgerðaáætlun
stjórnvalda í þágu heimilanna og gert
er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki
um tæpar 700 milljónir vegna breyt-
ingarinnar.
Betra fyrir blinda
Félagsmálaráðherra mælti í gær fyrir
frumvarpi um stofnun sérstakrar
þjónustu- og
þekking-
armiðstöðvar fyrir
sjónskerta, blinda
og daufblinda.
Með því verða
verkefni þriggja
ráðuneyta færð
undir eina stofn-
un og mun hún
m.a. veita þjón-
ustu á sviði ráð-
gjafar og endurhæfingar og stuðla að
bættri þjónustu og framförum.
Fylgst með tekjum
Fjármálaráðherra mælti í gær fyrir
frumvarpi um tekjuskatt en sam-
kvæmt því verður bönkum og spari-
sjóðum gert að senda skatt-
yfirvöldum árlega upplýsingar um
bankainnstæður og vexti. Mark-
miðið er að fylgjast betur með fjár-
magnstekjum en úrræði til þess
hafa verið takmörkuð. Í greinargerð
segir að árið 2008 hafi 92 þúsund
einstaklingar verið með tekjur yfir
skattleysismörkum en ekki gert
grein fyrir innstæðum sínum í fjár-
málastofnunum.
Bjarni
Benediktsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
ÞETTA HELST …