Morgunblaðið - 13.12.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.12.2008, Qupperneq 25
Fréttir 25ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is LEIÐTOGAR ríkja Evrópusam- bandsins náðu í gær samkomulagi um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að stemma stigu við loftslagsbreyt- ingum í heiminum. Samkvæmt samkomulaginu eiga ESB-löndin að minnka losunina um 20% að meðaltali fyrir árið 2020 mið- að við það sem hún var árið 1990. Ennfremur er stefnt að því að 20% af orkunotkuninni komi frá end- urnýjanlegum orkugjöfum og orku- notkunin minnki um 20% fyrir 2020. Samkomulagið mæltist misjafn- lega fyrir. Sumir fögnuðu því en aðr- ir sögðu að ekki hefði verið gengið nógu langt og gagnrýndu tilslakanir sem gerðar voru til að koma til móts við Austur-Evrópulönd sem óttast að aðgerðirnar dragi úr hagvexti. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði að sambandið kæmi nú fram með „metnarfyllstu tillögur sem lagðar hafa verið fram“ og skoraði á Barack Obama, verðandi forseta Bandaríkj- anna, að fara að dæmi Evrópuland- anna. Obama stefnir að því að los- unin árið 2020 verði jafnmikil og hún var árið 1990, en hún hefur aukist um tæp 17% frá því ári. Bandaríski öldungadeild- arþingmaðurinn John Kerry sat þing um loftslagsmál í Poznan fyrir hönd Obama og sagði að stjórn hans myndi halda þeirri kröfu Bush- stjórnarinnar að Kínverjar drægju einnig úr losuninni. Fulltrúi Kín- verja á fundinum gagnrýndi stefnu Obama. „Við teljum að hún sé ekki nógu metnaðarfull,“ sagði hann. Obama fari að dæmi ESB Hvattur til að leggja fram metnaðar- fyllri áætlun í loftslagsmálum AP Loftslagsfundur Angela Merkel og Nicolas Sarkozy á fundi ESB.ÞÝSKI tréskurðarmeistarinn Jür- gen Weinrich vinnur að píramída- verki sínu í vinnustofunni í Glas- hütte, skammt sunnan við Dresden í austanverðu landinu, í gær. Tré- skurður af þessu tagi, þar sem jólin eru þemað, byggist á gamalli hefð á Erzgebirge-svæðinu og eru verkin seld um allan heim. AP Jólin mótuð í tré PÁFAGARÐUR sendi í gær frá sér 32 síðna yfirlýsingu þar sem m.a. er fjallað um helgi alls mannlegs lífs, stofnfrumurannsóknir, glasafrjóvg- un og fóstureyðingar. Lýst er algerri andstöðu við að notaðir séu fóstur- vísar við rannsóknir en stuðningi við notkun á stofnfrumum úr fullvöxnu fólki og sumar tegundir genalækn- inga. Sagt er að mannlegt líf eigi skilið fulla virðingu „alveg frá fyrstu stig- um tilveru þess og aldrei má gera svo lítið úr því að aðeins sé um að ræða þyrpingu af frumum“. Yfirlýsingin mun hafa mikil áhrif á afstöðu kaþólskra manna um allan heim en hart hefur verið deilt um stofnfrumurannsóknir. Afstaða Páfagarðs er að líf manna hefjist við getnað og er það grund- völlurinn að því að kaþólska kirkjan bannar fóstureyðingar nema líf móð- urinnar sé í hættu. Tveir áratugir eru síðan gefin var síðast út formleg yfirlýsing um siðferðisleg álitamál í tengslum við líffræði en sérstakt ráð er sinnir kenningum kirkjunnar og túlkun þeirra hefur rætt þessi mál. Ítrekuð er andstaða Páfagarðs við svokallaða daginn-eftir-pillu jafnvel þótt hún valdi ekki fóstureyðingu en „markmið“ hennar sé fóstureyðing. kjon@mbl.is Páfi segir mann- legt líf vera heilagt Tilraunir með stofnfrumur fullorðinna í lagi ÚTILOKAÐ er að mannréttindi séu ávallt helsta við- miðið þegar utanríkisstefna ríkis er mótuð, segir utan- ríkisráðherra Frakklands, Bernard Kouchner. Hann segist nú telja það hafa verið mistök hjá sér að fá Nicolas Sarkozy forseta til að skipa sérstakan aðstoðarutanrík- isráðherra mannréttinda. Tilhögunin varpi stöðugt ljósi á þversögnina milli veruleikans og réttindanna. Ummælin féllu á miðvikudag þegar minnst var 60 ára afmælis mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hinn 69 ára gamli Kouchner hefur áratugum saman ver- ið þekktur baráttumaður fyrir mannréttindum. kjon@mbl.is Réttindi í baráttu við ríkið Bernard Kouchner Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MIKILL ótti ríkir nú í Bandaríkj- unum um að milljónir manna muni missa vinnuna ef bílarisarnir Gene- ral Motors og Chrysler fara á haus- inn. Þriðja bílafyrirtækið, Ford, mun standa heldur betur en hin tvö en er samt í miklum vanda. Öldungadeild- in hafnaði aðfaranótt föstudags frumvarpi um að fyrirtækjunum yrðu lagðir til 14 milljarðar dollara sem neyðarlán en áður hafði full- trúadeildin samþykkt hugmyndina. Var frumvarpið fellt með 52 at- kvæðum með en 35 á móti og vantaði því nokkuð upp á þau 60 atkvæði sem þarf til að frumvörp verði afgreidd sem lög. Talsmenn stjórnvalda í Washington gáfu í gær í skyn að til greina kæmi að nota hluta af 700 milljarða dollara pakkanum handa fjármálafyrirtækjunum til að að- stoða bílarisana. Auk mörg hundruð þúsunda manna sem starfa í sjálfum verk- smiðjunum vinna fjölmargir í fyrir- tækjum sem eru háð bílaframleiðsl- unni með einum eða öðrum hætti. Bæði General Motors og Chrysler segja að handbært fé fyrirtækjanna verði á þrotum eftir fáeinar vikur. Stéttarfélög starfsmanna í bílaverk- smiðjunum höfnuðu kröfu repúblik- ana um verulega launalækkun. Bílarisarnir GM og Chrysler riða til falls Öldungadeildin hafnaði tillögu um að veita þeim neyðarlán Í HNOTSKURN »Lífeyrisréttindi starfs-manna eru þungur baggi á fyrirtækjunum og samningar þeirra við bílasala um landið eru einnig dýrir fyrir fram- leiðendurna. »Gagnrýnendur bílarisannasegja að þeir hafi staðnað, hafi t.d. ekki lagt áherslu á umhverfisvæna bíla. Bent er á að japönskum fyrirtækjum eins og Toyota og Honda gangi vel vestra. ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, sem sat þing aðildarríkja Loftslags- samnings Sameinuðu þjóðanna í Poznan, sagði að markmiðið með þinginu hefði verið að undirbúa vinnuáætl- un fyrir samninga- viðræður um nýtt samkomulag á næsta ári. Ekki hefðu því kom- ið fram neinar efnislegar nið- urstöður. Hinar eiginlegu samn- ingaviðræður gætu nú hafist og gert væri ráð fyrir fjölda samn- ingafunda sem hæfust um mán- aðamótin mars/apríl og tækju margar vikur. Ljóst væri að að- ildarlöndin þyrftu að leggja sig fram til að samkomulag gæti náðst fyrir leiðtogafund í Kaup- mannahöfn í lok næsta árs. Vinnuáætlun samin Þórunn Sveinbjarnardóttir Kaupþing banki hf. Fundur með lánardrottnum Þann 24. nóvember 2008 veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Kaupþingi banka hf., kt. 560882-0419, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, heimild til greiðslustöðvunar. Ólafi Garðarssyni hrl. var falið að gegna starfi aðstoðarmanns á greiðslustöðvunartímabili. Af þessum sökum og með vísan til 13. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. er boðað til fundar með lánardrottnum bankans. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 5. febrúar 2009 kl. 10:00 árdegis á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Þar verða lagðar fram upplýsingar um eignir Kaupþings banka hf. og áætlað andvirði þeirra. Einnig verða lagðar fram upplýsingar um skuldir bankans og skuldbindingar. Þá verður greint frá því hvort sótt verði um áframhaldandi greiðslustöðvun. Rétt til fundarsóknar eiga þeir sem eiga kröfu á hendur Kaupþingi banka hf. Farið er fram á að kröfuhafar tilkynni um mætingu og geri grein fyrir kröfu sinni í síðasta lagi þann 15. janúar 2009. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum kaupthing.com. Jafnframt tilkynnist það hér með að þinghald um heimild Kaupþings banka hf. til greiðslustöðv- unar verður háð í Dómhúsinu við Lækjartorg, Reykjavík, föstudaginn 13. febrúar 2009 kl. 14:00, en samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur stendur heimild bankans til greiðslustöðvunar fram til þess tíma. Ólafur Garðarsson hrl., aðstoðarmaður Kaupþings banka hf. við greiðslustöðvun. Lögfræðistofa Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.