Morgunblaðið - 13.12.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 13.12.2008, Síða 26
26 Daglegt lífVIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Þ að er ein ástæða fyrir því að ég hætti í stjórn- málum mjög snögglega. Á miðstjórnarfundinum í nóvember síðast- liðnum sá ég að ég myndi ekki ná þeim árangri sem ég taldi mik- ilvægan fyrir Framsóknarflokkinn, sem var að sundurlyndið hyrfi og sátt og eindrægni tæki við,“ segir Guðni Ágústsson um óvænt brott- hvarf sitt úr íslenskum stjórn- málum. Guðni sagði af sér for- mennsku í Framsóknarflokknum og þingmennsku eftir átakamikinn miðstjórnarfund Framsókn- arflokksins þar sem mjög var sótt að honum. „Ég varð formaður Framsókn- arflokksins við sérstakar aðstæður. Eftir tap Framsóknarflokksins í síðustu þingkosningum sagði Jón Sigurðsson af sér sem formaður. Ég var varaformaður flokksins og tveimur árum áður, þegar Halldór Ásgrímsson ákvað að láta af for- mennsku, urðu óvænt og óvægin átök um persónu mína þar sem átti að stúta mínum pólitíska ferli í leiðinni. Ég hafði í sjálfu sér gert mér grein fyrir því að formanns- sætið væri ekki mitt, enda ekki verið upptekinn af þeirri hugsun, en þegar Jón hætti féllst ég á þau sjónarmið margra vísra manna að við Valgerður Sverrisdóttir ættum möguleika á því að leiða flokkinn. Ég lagði í þessa ferð með Valgerði og trúði á Framsóknarflokkinn og gildi hans. En á þessum miðstjórnarfundi var greinilega markmið ákveðins hóps að sýna mér að einhverju leyti í tvo heimana. Þarna var mér ljóst að ég væri ekki að ná þeim árangri sem ég vildi ná í pólitík. Vinur minn Steingrímur Her- mannsson sagði reyndar við mig að ég ætti ekki að taka þessa hörðu andstöðu of nærri mér. Þessar óvægnu árásir væru spegilmynd af andrúmsloftinu í þjóðfélaginu í skelfilegu efnahagsástandi.“ Ég reiddist Var það ekki áfall fyrir þig að skynja þessa miklu andstöðu við þig? „Vissulega var þetta áfall en ég hafði skynjað í nokkurn tíma að eitthvað væri í aðsigi. Fyrir mið- stjórnarfund í apríl var mér sagt að ákveðnir menn ætluðu að beita sér gegn mér og forystu flokksins. Það fór á allt annan veg en þessir menn ætluðu. Ég held að það hafi komið þeim á óvart á þeim fundi hversu mikla áherslu ég lagði á samstöðu og sömuleiðis að ég skyldi leggja fram lausnir í Evr- ópusambandsumræðunni sem féllu í góðan jarðveg. Þar með voru vopnin slegin úr höndum þessara stríðandi manna. Mér sýndist eftir þann fund að samstaða innan flokksins væri orðin nokkuð góð. Ég sá svo síðla sumars og í haust að vegferðin var hafin á nýjan leik. Ég ætla ekki leyna því að mið- stjórnarfundurinn olli mér gríð- arlegum vonbrigðum og var visst áfall sem gerði að verkum að ég sá að ég myndi ekki ná því að binda flokkinn saman og skapa samstöðu innan hans.“ Er það satt að þú hafir reiðst mjög gagnrýni ungliða á þig á þessum miðstjórnarfundi? „Ungliðarnir og ýmsir aðrir komu mér á óvart og mér sárnaði mjög, já ég reiddist. Mér fannst hvorki að ég né kjörnir miðstjórn- arfulltrúar ættum að upplifa þessar aðstæður. Ég sá að þetta var skipulagður vopnabúnaður. Daginn áður sögðu ungliðarnir mér að þeir myndu leggja mikla áherslu á sátt og samstöðu flokksins og framtíð hans. Annað kom á daginn og öðruvísi andrúmsloft einkenndi fundinn. Það er rétt að mér hitnaði í hamsi. Ég veit ekki hvort ég varð bálreiður en ég hef gríðarlega sterka rödd og mönnum finnst oft að rómsterkir menn séu ævareiðir þegar þeim hitnar í hamsi.“ Afsögn þín kom mjög snögglega og þú veittir fjölmiðlum ekki við- töl. Af hverju? „Ég tók þessa ákvörðun bratt og snöggt sem mér fannst að mörgu leyti heiðarlegt. Ég tók þessa ákvörðun í samráði við fjölskyldu mína strax eftir miðstjórnarfund- inn. Við Margrét hlustuðum á ró- andi tónlist og í einum textanum sungu þeir Björgvin Halldórsson og Sverrir Bergmann: Ég þarf enga sálfræði til, engin sálfræðiráð til að hemja minn æðandi hug, engar afsakanir, engar útskýringar til að sætta mig við orðinn hlut. Við Margrét vorum sammála um þessa niðurstöðu. Ég var jafnframt að segja við flokksmenn: Það þolir enga bið að skapa þá samstöðu sem er flokknum lífsnauðsynleg. Með því að segja af mér for- mennsku og þingmennsku var ég að reyna að flýta fyrir því að menn gætu samhentir fundið nýja for- ystu til að bjarga flokknum. Hvað fjölmiðla varðaði fannst mér líka heiðarlegt að þjóta ekki beint í viðtöl. Flokkurinn minn var sár og ég var sár. Ég hafði gott af því við þessar aðstæður að jafna mig á niðurstöðu minni. Flokk- urinn hafði líka gott af því að jafna sig á því að ég væri farinn. Mér fannst ég verða að gefa mönnum andrými. Fjölmiðlarnir höfðu í sjálfu sér engan heilagan rétt á því að tala við mig. Ég gaf út yfirlýsingu þar sem ég sagði allt sem mér fannst ég þurfa að segja við þessar að- stæður.“ Af vettvangi stjórnmálanna Á Framsóknarflokkurinn ein- hverja framtíð? „Já, ef hann nær að hreinsa sig frá þessum eilífu átökum sem við- gengist hafa innan flokksins í mörg ár. Ég get nefnt dæmi. Þegar ég hef hitt þingmenn frá Norð- urlöndum hafa þeir oft sagt við mig að það hljóti að vera styrkur fyrir Framsóknarflokkinn að eiga jafn glæsilegan þingmann og Siv Friðleifsdóttur. Ég hef tekið undir það. En hér heima hefur staðið yfir eilíft stríð úr einhverjum her- búðum til að veikja hana og helst að koma henni frá. Innanflokksátök hafa staðið allt- of lengi í Framsóknarflokknum. Áður fyrr var flokkurinn eins og systkinahópur. En þarna eru kom- in ný vinnubrögð sem er ekki hægt að viðhafa í neinu samfélagi eða nokkrum flokki. Og það endist enginn almennilegur maður til að standa í þvílíku.“ Sérðu formannsefni í Fram- sóknarflokknum? „Hvað formannsefni varðar er það svo að nú sjá flokksmenn beint í sárið. Á miðstjórnarfundinum sögðu margir við mig að þeir væru að gefast upp á þessu innanflokks- stríði. Þess vegna er spurning hvernig til tekst við val á næsta formanni. Framsóknarflokkurinn á glæsilegt fólk og ég hef fulla trú á því að flokkurinn geti end- urskipulagt sig og fundið sig. Mér fannst ég vera með flokkinn á réttri leið, hann var byrjaður að rísa, kominn í 11 prósent í Gallup- könnunum sem var hærri tala en sérfræðingar sögðu mér að mætti vænta svo skjótt. En þeir töldu þrjár ástæður mjög erfiðar gagn- vart upprisu flokksins: Tapari í kosningum tapar áfram, meint spillingarumræða tengd flokknum og innanflokksátökin.“ Sumir hafa talað um að þú munir taka þátt í að stofna nýjan þjóðlegan stjórnmálaflokk. „Nei, ég er á engri slíkri leið. Ég álít að Framsóknarflokkurinn sé hið þjóðlega afl sem þjóðin þarf á að halda. Ég er framsóknarmaður og á mér aðeins einn draum, þann að minn ágæti Framsóknarflokkur rísi og verði sterkt afl í íslensku þjóðfélagi.“ Ertu alveg horfinn úr stjórn- málum? „Já, ég er genginn af vettvangi stjórnmálanna.“ Ekki til frambúðar? „Jú, ég sækist ekki eftir pólitísk- um frama á ný.“ Hvað ætlarðu að fara að gera? „Ég get ekki sagt til um það. Ég er í engum vafa um að bjartsýnum og lífsglöðum manni opnast þannig dyr að hann uni glaður við sitt. Ég hlakka til morgundagsins“ Sérðu eftir einhverju? „Nei, þingmannsstarfið er stríð- andi starf. Ég hafði gaman af því. Ég er sáttur við stjórnmála- tímabilið í lífi mínu og á mínar góðu minningar. Ráðherraárin voru einstaklega skemmtilegur tími og gefandi og ég vil segja ár- angursrík. Núna sé ég að ég hefði átt að vera langtum grimmari í ganrýni minni á sitjandi rík- isstjórn. Ég gagnrýndi oft og var- aði við þessari ofurlaunatöku og undrast í rauninni hvað mikill frið- ur var um þessa hringavitleysu. Stundum fannst mér ég vera hróp- andinn í eyðimörkinni, en ég reyndi hvað ég gat sem formaður flokksins að vara við öllum þeim hættum sem vofðu yfir síðustu misseri í aðsteðjandi fjár- málakreppu. Jú, ef ég sé eftir einhverju þá eru það allar þær klukkustundir sem ég eyddi í að hlusta á sömu fréttirnar í öllum fjölmiðlum. Blessuð litlu barnabörnin mín voru farin að ávarpa mig með nöfnum eins og „afi fréttir “ og „afi sími“. Þeim þótti alveg nóg um að ég þurfti að hlusta á hvern einasta fréttatíma og furðuðu sig á því að síminn glumdi sífellt. Stjórnmála- starf er gríðarlegur tímaþjófur frá fjölskyldu. Nú fæ ég loksins tíma.“ Lokaður Evrópuklúbbur Heldurðu að þú verðir alltaf jafn harður andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu? „Ég reyndi að leiða til sátta þessa deilu í Framsóknarflokknum. Halldór Ásgrímsson stofnaði þrisv- ar til ríkisstjórnarsamstarfs og í samræðum hans og Davíðs Odds- sonar kom aldrei til umræðu að markmiðið væri að sækja um aðild að Evrópusambandinu. En innan Framsóknarflokksins var þetta hin eilífa harða umræða sem reyndi mjög mikið á flokkinn. Sem for- maður vildi ég finna leið til að sætta ólík sjónarmið. Mér finnst sérstakt hvað menn eru harðir á því að okkur muni líða afskaplega vel í Evrópusamband- inu. Kannski þurfa Íslendingar að ganga til viðræðna við sambandið til að átta sig á tilverunni. Hvað með þær auðlindir sem við eigum dýrmætastar og munu gefa þessari þjóð gull í lófa í framtíðinni? Skyldi ekki vera að við yrðum að fórna þeim? Skyldi ekki líka vera Genginn af vett- vangi Hættur „Ég sækist ekki eftir pólitískum frama á ný.“ Guðni Ágústsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.