Morgunblaðið - 13.12.2008, Síða 39
Minningar 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
✝ Hallur Ólafsson,fyrrverandi sjó-
maður og múrari,
Dynskógum 22 í
Hveragerði, fæddist á
Þverá í Hallárdal í A-
Hún. 3. október 1931.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suður-
lands á Selfossi 5.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Ólafur Ólafsson
bóndi, f. 24. maí 1905,
d. 4. ág. 2001 og Hall-
bera Guðbjörg Guð-
jónsdóttir frá Furufirði á Ströndum,
f. 23. sept. 1891, d. 3. júlí 1981. Tví-
burasystir Halls er Þórey Margrét,
f. 3. október 1931. Systkini Halls
samfeðra eru: Stúlka, f. 12. mars
1931, d. 12. mars 1931, Fríða, f. 11.
janúar 1933, Jónmundur Friðrik, f.
3. maí 1934, Olga Ingibjörg, f. 29.
maí 1935, Eiðný Hilma, f. 5. júlí
1936, Ólafur, f. 3. nóvember 1939 og
Guðríður Fjóla, f. 19. janúar 1941.
Bróðir Halls, sammæðra er Sig-
urbjörn Guðjón Björnsson, f. 3.
október 1928, d. 31. mars 2002.
Hallur kvæntist 21. feb. 1963
Guðlaugu Berglindi Björnsdóttur,
kaupkonu og húsmóður, f. á Sjón-
arhóli í Hafnarfirði 21. feb. 1937.
Foreldrar hennar voru Björn Ei-
ríksson, skipstjóri og síðar bifreið-
arstjóri, f. 9. september 1894, d. 7.
maí 1983 og Guðbjörg Jónsdóttir,
kaupkona að Sjónarhóli í Hafn-
arfirði, f. 20. okt. 1894, d. 21. nóv.
1993. Dóttir Halls og Guðlaugar er
kvæntur Kristrúnu Steinunni Jóns-
dóttur, f. 14. mars 1972, börn
þeirra eru: Fanney Þóra, f. 1. ág.
1998 og Matthías Ragnar, f. 8. jan.
2002. 2) Anna Linda, f. 28. nóv.
1958, var í sambúð með Ragnari
Guðna Þórssyni, f. 3. júlí 1964.
Börn þeirra eru: a) Bjarni Helgi, f.
21. ág. 1984. b) Egill Yngvi, f. 17.
nóv. 1987. c) Alma Björk, f. 30.
mars 1989 og d) Þórhallur Örn, f.
13. ág. 1997. Dóttir Önnu Lindu og
Sigurgeirs Hrólfs Jónssonar, f. 31.
maí 1955 er Sigrún Sigurgeirs-
dóttir, f. 21. júlí 1977. Börn hennar
og Stig Lauridsen, f. 6. okt. 1973
[sambúð slitið] eru: Indíana Rán B.
Lauridsen, f. 27. mars 1999 og Sig-
ríður Anna B. Lauridsen, f. 16. feb.
2001. 3) Stúlka, f. 1. mars 1960, d.
28. janúar 1961. 4) Hallfríður Jó-
hanna, f. 31. maí 1961, gift Ægi
Bergssyni, f. 13. júlí 1965. Sonur
þeirra er Kormákur Ægisson, f. 1.
júlí 1996.
Hallur fór ungur til sjós. Hann
stundaði sjóinn í tuttugu ár eða allt
frá fermingu og þangað til hann
hóf nám í múrverki í lok sjöunda
áratugarins við Iðnskólann í Hafn-
arfirði. Þaðan útskrifaðist hann
árið 1971 og var iðnmeistari hans
Sveinn Pálsson. Hallur var farsæll
í starfi og vann við iðn sína í tæp-
lega fjörutíu ár. Hann hafði yndi af
því að ferðast um landið og var
virkur meðlimur í Útivist frá stofn-
un þess og á meðan heilsan leyfði.
Hann var ástríðufullur steinasafn-
ari, starfaði í Félagi áhugamanna
um steinafræði og bjó yfir mikilli
þekkingu á jarðsögu Íslands.
Útför Halls fer fram frá Kot-
strandarkirkju í Ölfusi í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Anna Halla, f. 15.
ágúst 1964, giftist
Reyni Harðarsyni, f.
2. okt. 1961. Þau
skildu. Þeirra börn
eru Freyja, f. 7. nóv.
1989 og Hallur, f. 2.
júlí 1991. Sambýlis-
maður Önnu Höllu er
Stefán Karl Lúðvíks-
son, f. 23. mars 1971.
Sammæðra Önnu
Höllu og fósturdóttir
Halls er Alda Sigurð-
ardóttir, f. 3. jan.
1960, gift Jóni Özuri
Snorrasyni, f. 24. sept. 1961. Börn
þeirra eru Nökkvi, f. 3. des. 1997
og Vala Guðlaug, f. 25. júlí 2001.
Sonur Jóns og fóstursonur Öldu er
Völundur Jónsson, f. 6. apríl 1984.
Faðir Öldu var Sigurður Jón Ólafs-
son, bæjarverkfræðingur í Hafn-
arfirði, f. 7. feb. 1919, d. 5. okt.
1960.
Dætur Halls og Sigurbjargar
Jónsdóttur, húsfreyju frá Siglu-
firði, f. 16. sept. 1928, d. 9. jan.
2001 eru: 1) Sigríður Þóra, f. 28.
mars 1956, gift Ragnari Ágústi
Kristinssyni, f. 21. apríl 1956. Börn
þeirra eru: a) Jón Kristinn, f. 10.
apríl 1981. b) Karen, f. 5. okt. 1983,
í sambúð með Friðriki Böðvari
Guðmundssyni, f. 2. júlí 1977 og eru
börn þeirra: Ragnar Kristinn, f. 20.
júlí 2005 og Guðmundur Leó, f. 18.
apríl 2007. c) Halla Björg, f. 28.
ágúst 1988. Sonur Sigríðar og Vig-
gós Pálma Jónssonar, f. 20. ágúst
1957 er Rúnar, f. 24. sept. 1973,
Pabbi er dáinn. Hann mætti örlög-
um sínum eins og við var að búast af
honum, gafst ekki upp fyrr en orrust-
unni lauk. Verk sem þurfti að klára
og leggja allt sitt í. Heljarmenni allt
til loka. En pabbi var meira en það.
Þegar ég var tveggja ára varð
hann pabbi minn og ég dóttir hans.
Þannig hefur það alltaf verið. Nú er
komið að tímamótum og ég get ekki
annað en þakkað þá góðu samfylgd.
Pabbi hafði marga góða eiginleika.
Hann var heiðarlegur og góður mað-
ur, barngóður, samviskusamur og
ósérhlífinn, greiðvikinn og sérlega
fróðleiksfús. Ég held að pabbi hafi
verið sannur eðalgrúskari í öllu sem
hann fékk áhuga á. Hann var sólginn
í bækur um alls kyns fróðleik. Lá í
jarðfræði og sögu, alfræðibókum og
sagnfræði, listasögu, ferðasögum og
átthagafræði og síðast en ekki síst
ættfræði. Pabbi var líka safnari,
hann safnaði gömlum bókum, frí-
merkjum og steinum en þar samein-
aðist söfnunaráráttan áhuga hans á
jarðfræði. Pabbi var líka flinkur í
höndunum og vandvirkur og því vin-
sæll verkmaður. Bækurnar sem
hann batt inn eru hrein völundar-
smíð, hann lærði útskurð, sótti nám-
skeið í listmálun og var laginn að
teikna. Hann hafði næmt auga fyrir
hinu smáa og eins hinu stórbrotna og
hafði gaman af að taka ljósmyndir.
Hann unni náttúrunni og landinu,
sögunni og Sögunum. Pabbi og
mamma ferðuðust mikið um landið,
bæði með okkur systurnar og líka
með ferðafélögum. Hornstranda-
ferðirnar voru ófáar og ekki allar
auðveldar.
Heimilið okkar var alltaf notalegt
og þar ríkti jafnræði og kyrrð. Þau
unnu í garðinum sínum sem var eins
og skrúðgarður með ógrynni blóm-
tegunda í fallegu hraungjótunni sem
húsið kúrði í. Síðustu ár ræktuðu þau
garðinn sinn í Hveragerði og sóttu
þangað í kyrrðina og fyrir ári síðan
fluttu þau þangað.
Við höfum misst góðan vin og
ferðafélaga í lífinu og enginn getur
fyllt það skarð, en í hjarta mínu
geymi ég minninguna um stóra hlýja
faðminn hans og allt það sem hann
gaf mér.
Alda.
Fyrsta orðabókarmerking manns-
nafnsins Hallur er steinn og í tilfelli
tengdaföður míns Halls Ólafssonar á
hún vel við því hann var í senn þögull
maður og harður af sér til allra verka
ásamt því að vera ástríðufullur
steinasafnari. Á ferðalögum hans um
landið í leit að steinum uppgötvaðist
tvennt sem var svo sterkt í fari hans:
næmi og áhugi á náttúru Íslands og
glöggskyggni til rannsókna. Þannig
fetaði hann í fótspor hinna þekktu
vísindamanna sem skráðu ferðir sín-
ar og uppgötvanir á bók og voru
ferðalýsingar Eggerts og Bjarna,
Þorvaldar Thoroddsen og Sveins
Pálssonar í sérstöku uppáhaldi hjá
honum og alltaf innan seilingar í
bókaskápnum.
Hallur Ólafsson fæddist í Hallár-
dal á Skaga á fjórða áratug 20. aldar.
Stuttu síðar er hann tekinn í fóstur
og um níu ára aldur er hann kominn
á Sauðárkrók með kjörforeldrum
sínum. Fljótlega liggur leiðin áfram
til Siglufjarðar og meira sjálfstæðis.
Þar elur hann manninn í tvo áratugi,
eignast börn, stundar sjóinn og
slarkar. Í einu af hinum siglfirsku
síldarævintýrum kynnist hann
tengdamóður minni, Guðlaugu Berg-
lindi Björnsdóttur, ljóshærðri, ein-
stæðri móður, snaggaralegri,
heillandi ungri hafnfirskri stúlku
sem vann á netaverkstæði í bænum.
Aðeins nokkrum dögum áður hafa
orðið hvörf í lífi Halls þegar hann
ásamt 25 öðrum í áhöfn Elliða frá
Siglufirði bjargast frá drukknun, en
skipið ferst ásamt tveimur mönnum í
aftakaveðri í febrúar 1962. Eftir það
beinist hugur hans frá sjómennsku
og endirinn verður sá að hann heldur
á brott úr heimkynnum sínum fyrir
norðan. Leiðin liggur til Hafnar-
fjarðar þar sem sjópokanum er lagt
og hann lærir múrverk í lok sjöunda
áratugarins. Þá hafa hin nýgiftu hjón
fest kaup á litlu húsi á skjólgóðum
stað í vesturbæ Hafnarfjarðar sem
stendur eins og hús organistans í At-
ómstöðinni á bak við stóru húsin og
„sést ekki frá neinni götu og aungv-
um dettur í hug að sé til.“ Þar búa
þau í fjóra áratugi eða allt þangað til
þau flytja í Hveragerði fyrir rúmlega
ári.
Hallur var stór og myndarlegur
maður, rómsterkur, herðabreiður
með voldugar axlir og hendur sem
nægja til að halda minningu hans á
lofti. Stundum var yfirborð hans
hrjúft en undir niðri bjó næm tilfinn-
ing fyrir öllu sem lífsanda dró. Hann
var þeirrar gerðar að hann kveinkaði
sér aldrei og vann oftast sleitulaust,
þrautseigur, úrræðagóður og vand-
virkur í öllu handverki. „Aldrei að
uppgefast“ var oftast viðkvæði hans
þegar hann sá þolinmæði mína
bresta í sameiginlegu húsaviðhaldi
okkar hin síðari ár á Selfossi og í
Hveragerði.
Aldrei sá ég tengdaföður minn
liggja í sófa. Það var bara ekki hans
háttur. Þegar hann slakaði á þótti
honum notalegra að sitja og grúska í
bókum. Hann sótti alla tíð í lestur,
var fróðleiksfús og minnisgóður um
náttúruvísindi, sagnfræði, fornsögur
og ættfræði. Hann var fræðimaður á
líkan hátt og þeir sem unna viðfangs-
efni sínu en hafa ekki fengið tækifæri
til að mennta sig. Steinasafnið hans
er óræk sönnun þess og vitnar um
hversu margfróður og nákvæmur al-
þýðuvísindamaður hann var.
Jón Özur Snorrason.
Ég kynnist Halli Ólafssyni árið
1985 þegar hann gerðist meðlimur í
Félagi áhugamanna um steinda-
fræði. Hann féll strax vel inn í hópinn
enda mjög opinn fyrir öllu er viðkom
fræðunum. Við tengdumst fljótt góð-
um böndum þótt að hann væri eilítið
eldri en ég og fórum við, innan
skamms, að ferðast saman til að
sinna sameiginlegu áhugamáli okk-
ar, steinasöfnuninni. Hallur var mik-
ill göngugarpur og víðförull og naut
ég ómældrar leiðsagnar hans í meira
en áratug eða þar til að fætur hans
gáfu sig.
Við ferðuðumst víða, þó einkum
um Vesturlandið. Margs er að minn-
ast, en mér eru þó einkum hugstæð-
ar ferðir okkar um Austurlandið, en
þær ferðir vöruðu frá viku upp í tíu
daga. Var oftast tjaldað í Lóninu við
gömlu vegamótin upp á Lónsheiði,
þaðan fórum við árla morguns og ók-
um að rótum þess svæðis sem við
ætluðum að ganga um og skoða, síð-
an var gengið daglangt, með býsna
misjöfnum árangri, því við vorum
ólatir við að skoða áður ókönnuð gil,
kletta og skriður. Það sem vakti helst
fyrir okkur var að fylla upp í teg-
undasöfn okkar. Lögðum við stund-
um mikið á okkur við að leita uppi
ákveðnar steindir, í það gátu farið
margar ferðir og drjúgur tími áður
en árangur næðist.
Ég minnist einnar tegundar zeó-
líta (geislasteina) sem heitir cowlesít,
hún er mjög smágerð og afar fágæt.
Við fórum margar ferðir í uppsveitir
Borgarfjarðar að leita hennar, þar
hafði hún fundist í gili einu, en leit
okkar bar ekki árangur, það var svo
einhverjum árum síðar að við upp-
götvuðum tegundina, nánast við
borgarmörkin, þ.e. í Hvalfirði á stað
sem við höfðum heimsótt oft á hverju
ári, án þess þó að rekast á hana fyrr
en þá og reyndust Hvalfjarðarein-
tökin mun betri en þau sem áður
höfðu fundist hér á landi.
Hallur var kraftmikill og ósérhlíf-
inn, hann dró aldrei af sér á ferðum
okkar, hvort sem var í göngu, kletta-
príli eða við að brjóta berg til að ná
góðu sýni. Mér þótti öruggast að
hafa ávallt sjúkrakassa í bílnum því
oft var ákafinn svo mikill hjá honum.
Það kom stundum fyrir að í stað
meitilsins urðu fingur eða hönd fyrir
þungum höggum hamarsins, enda
ekkert gefið eftir og kom sjúkrakass-
inn þá að góðum notum.
Náttúrustofnun Íslands naut góðs
af ferðum okkar, við létum henni í té
sýni og ýmsar upplýsingar um nýja
fundarstaði, ný afbrigði og nýjar teg-
undir, á móti leiðbeindi forstöðumað-
ur jarðfræðideildarinnar, Sveinn J.
Jakobsson, okkur á margvíslegan
hátt. Samstarf sem reyndist okkur
öllum mjög farsælt. Þetta voru svo
sannarlega góðir tímar sem við Hall-
ur nutum svo innilega og ég verð æv-
inlega þakklátur fyrir.
Hallur fór með mér í nokkra leið-
angra eftir að hnén gáfu sig, hann
studdist við langan staf, líkt og Gilja-
gaur, en komst aldrei langt frá bíln-
um, sem voru honum mikil vonbrigði
því hann taldi sig geta gert svo miklu
meira í upphafi ferða. Fyrir nokkr-
um árum gaf Hallur Flensborgar-
skóla góðan hluta af sínu einstaka
steinasafni. Blessuð sé minning
Halls.
Ég votta Guðlaugu, börnum,
barnabörnum og barnabarnabörnum
og öðrum ástvinum mína dýpstu
samúð.
Hermann Tönsberg.
„Blessaður og sæll, Gísli! Blessað-
ur, Hallur minn!“ Það var mikil hlýja
í þessu svari Gísla Jónassonar, skip-
stjóra á b/v Elliða sem var hrjúfur að
eðlisfari og segir líka mikið um þann
hug sem Gísli bar til Halls sem há-
seta. Um borð vorum við Hallur hvor
á sinni vakt og höfðum því lítil sam-
skipti meðan á veiðum stóð en þegar
skipið var í landi lágu leiðir saman.
Það sýna myndir sem teknar voru á
Ljósmyndastofu Kristfinns á Siglu-
firði en venja togarasjómanna var að
fara á ljósmyndastofuna eftir að Æg-
ir rakari var búinn að snyrta okkur
til. Hallur var náttúrlega stærstur og
myndarlegastur, þannig að við hurf-
um í skuggann af honum.
Á sumrin var Siglufjarðartogurun-
um lagt vegna þess að skipverjar
fóru að vinna í síld. Við Hallur réðum
okkur á síldarbátinn Sæfinn EA 9
sem gerður var út frá Akureyri. Við
ákváðum að fara með leigubíl frá
Siglufirði til Akureyrar en þegar
komið var í Skagafjörð rigndi eins og
hellt væri úr fötu. Hafði áin flætt yfir
veginn rétt hjá brúnni yfir Héraðs-
vötn og komumst við ekki lengra. Við
fórum að næsta bæ, Völlum en þar
voru margir strandaglópar. Síðar
vorum við ferjaðir á hestum yfir á
brúna og ekið að Varmahlíð þar sem
við gistum. Daginn eftir vorum við
fluttir yfir á Sauðárkrók ásamt öðru
fólki. Þaðan fórum við með flugvél til
Akureyrar. Í hópnum var fatlaður
maður í hjólastól sem bað um aðstoð
til að komast um borð. Hallur tók
hann í fangið og bar hann inn í vélina
og þá sagði maðurinn: „Ekki svíkja
þau, skagfirsku handtökin.“ Skip-
stjóri á Sæfinni var Páll Gestsson og
voru flestir um borð frá Siglufirði og
Sauðárkróki, ungir og lífsglaðir pilt-
ar. Minnast margir vatnsslags sem
hófst með því að skipstjórinn, sem
staddur var í bassaskýlinu, tók að
henda í mannskapinn rúgbrauðs-
kögglum sem snerist síðan upp í
vatnsslag og voru allar tiltækar fötur
notaðar. Urðu þar flestir rennblautir
nema Hallur. Hann var frammi í lúk-
ar að lesa bækur. Gamlir Siglfirðing-
ar bera Halli söguna þannig að hann
hafi verið góður félagi en aldrei tekið
þátt í prakkarastrikum.
Í febrúar 1962 var Hallur báts-
maður á b/v Elliða þegar hann sökk
undan Snæfellsnesi. Tveir af skip-
verjunum fórust en tuttugu og sex
var bjargað um borð í Júpíter. Ég vil
vitna í orð Birgis Óskarssonar loft-
skeytamanns: „Það var með ólíkind-
um, eftir allt sem á undan var gengið,
að línan sem Júpítersmenn ætluðu að
nota til að draga gúmbátinn til sín,
festist í skrúfu Elliða. Þá var til lítils
barist ef Elliði hefði dregið gúmbát-
inn með öllum mannskapnum niður í
djúpin. Snarræði Halls Ólafssonar
kom í veg fyrir það. Yfir okkur gapti
skrúfan á Elliða þegar skipið lyfti sér
að aftan en Hallur náði að ýta gúm-
bátnum með handhafli frá togaran-
um“ og skar á línuna sem varð skip-
verjum til bjargar. Þetta minnir mig
á ljóðið um Jón tröll sem Guðmundur
Jónsson söng svo fallega.
Ég hef reynt að lýsa persónuleika
Halls sem tók gjarnan upp hanskann
fyrir lítilmagnann. Að lokum vil ég
votta Guðlaugu, dætrum, barnabörn-
um, barnabarnabörnum og öðrum
ástvinum mína dýpstu samúð.
Guðmundur Arason.
Hár maður og vörpulegur, sístarf-
andi og allt lék í höndunum á honum.
Þannig sé ég Hall Ólafsson fyrir mér
þegar hann og Gulla gerðust næstu
nágrannar foreldra minna fyrir
meira en fjörutíu árum. Þau settust
að á Vörðustíg 9 eða í Valhöll, eins og
húsið var jafnan kallað þá. Gulla, ið-
andi af fjöri og Hallur, stilltur, ekki
orðmargur en kíminn og einstaklega
hlýr, urðu umsvifalaust sjálfsagður
hluti af lífinu í hrauninu upp af höfn-
inni. Löngu seinna þegar ég kom aft-
ur á bernskuslóðirnar naut ég þess
að eiga þau sem granna á ný – þar til
skipulagsyfirvöld tóku upp á því að
fela gömlu byggðina okkar svo ræki-
lega að hluti hennar hvarf bókstaf-
lega í skugga nýbygginga og Hallur
og Gulla hurfu burt úr Firðinum.
Síðasta hluta ævinnar átti Hallur
við mikil veikindi að stríða. Það var
erfitt fyrir mann sem hafði unun af
ferðum um landið og var vanur því að
stilla saman af öryggi hönd og hug.
En samferðamönnum sínum veitti
hann sömu hlýjuna og fyrr. Ég og
mitt fólk þökkum honum nærveru
hans góða öll ár og sendum Gullu,
Öldu, Höllu og öðrum aðstandendum
samúðarkveðjur.
Bergljót S. Kristjánsdóttir
Hallur Ólafsson
Brynja mín.
Þú varst og verður
alltaf besta frænka
mín. Ég mun sakna
þess að þú ert ekki
lengur hér, þegar ég kem í heimsókn
til Íslands. Þú varst meginástæða
þess að ég vildi alltaf koma. Mér þykir
vænt um allar góðu minningarnar um
þig, nú síðast þegar ég, fyrir þremur
árum, kom og var hjá þér. Það var
yndislegt. Ég er þakklát fyrir allt sem
þú gerðir með mér og fyrir mig.
Brynja Ragnarsdóttir
✝ Brynja Ragn-arsdóttir fæddist
á Akureyri 14. apríl
1952. Hún lést á líkn-
ardeild LSH miðviku-
daginn 22. október
síðastliðinn og fór út-
för hennar fram frá
Grafarvogskirkju 31.
október.
Þú sagðir alltaf að ég
ætti að vera glöð og já-
kvæð og það mun ég
vilja vera. Ég mun allt-
af varðveita þín góðu
ráð. Þú varst svo skyn-
söm og lifðir lífinu á svo
heilbrigðan hátt. Þess
vegna skil ég ekki
hvernig stendur á því
að skyldir verða svona
veik og að lokum deyja.
Ég dáist að því hversu
dugleg þú varst síðustu
tvö árin í veikindum
þínum. Ég mun sakna
þín alla tíð.
Ég elska þig ótrúlega mikið, ynd-
islega frænka, ég mun aldrei gleyma
þér.
Ástarkveðja frá Bjarka Þór bróður
mínum.
Þín
Bryndís Emilía Qvarfot.