Morgunblaðið - 13.12.2008, Page 46

Morgunblaðið - 13.12.2008, Page 46
46 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008 Yoshihiko Tsuchiya var einstakur vinur okkar Íslendinga. Hann kom til Íslands í fyrsta sinn árið 1984, en hann var þá forseti öldungadeildar jap- anska þjóðþingsins. Markmið þeirr- ar heimsóknar var að þakka Íslend- ingum fyrir viðbrögð og umhyggju sem þeir sýndu þegar þrír ungir jap- anskir jarðfræðingar fórust við rannsóknarstörf á Íslandi það sama ár. Það var hörmulegt slys og Íslend- ingar vottuðu fjölskyldum ungu vís- indamannanna dýpstu samúð. Yoshihiko Tsuchiya, þá orðinn fylkisstjóri í Saitama-fylki, kom síð- an nokkrum sinnum aftur til lands- ins, m.a. þegar haldin var viðamikil japönsk listsýning í Reykjavík, en síðast heimsótti hann Ísland í sept- Yoshihiko Tsuchiya ✝ Yoshihiko Tsuc-hiya, fyrrverandi fylkisstjóri í Saitama- fylki í Japan, er látinn og fór minning- arathöfn um hann fram í Saitama í gær, 12. desember. ember 2006. Tilefni heimsóknarinnar þá var 50 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japans. Jafnframt var haldið upp á 25 ára afmæli Japansk-íslenska fé- lagsins með minnis- verðri hátíð, tónlistar- viðburði og sýningu á japönskum menning- arhefðum, þar sem Yoshihiko Tsuchiya var í heiðurssæti, hlý- legur, spaugsamur og hláturmildur að vanda. Yoshihiko Tsuchiya var brautryðj- andi vinatengsla milli Japana og Ís- lendinga, umfram að styðja jafnan opinber tengsl. Hann var formaður vináttufélags japanskra þingmanna, sem rækta vilja tengsl við Ísland. Hann tók á móti fjölda Íslendinga í Japan og greiddi götu þeirra eins og honum var einum lagið. Þegar hann kom fyrst til Íslands hreifst hann af mörgu í fari eyþjóðarinnar, sem hvoru tveggja í senn var lík og fram- andi hans eigin þjóð. Hann efndi til glæsilegrar alþjóðlegrar ráðstefnu um jafnréttismál í Saitama árið 1994 og leitaði eftir liðsinni kvenleiðtoga víða um heim. Ég gleymi seint áköf- um vilja fylkisstjórans á þeirri ráð- stefnu til að hafa áhrif í jafnréttis- málum. Það voru forréttindi að fá að njóta persónulegrar vináttu hans, konu hans og fjölskyldu í Japan, þar sem gestrisni var með þeim glæsi- brag sem einkennir frændur okkar í landi hinnar rísandi sólar. Vinátta í garð Íslands og Íslendinga náði einnig til Shinako dóttur hans, en Shinako Tsuchiya, sem síðastliðinn áratug hefur verið öflugur þingmað- ur í japanska þjóðþinginu, hefur margsinnis heimsótt Ísland, nú síð- ast fyrir rúmum tveim árum, þegar hún kom hér og hélt eitt lykilerinda um japanska menningu á alþjóðlegri ráðstefnu sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur við Háskóla Íslands stóð fyrir. Mér þótti vænt um að fjölskyldan bauð mér að koma til Japans og vera viðstödd minningarathöfnina um Yoshihiko Tsuchiya. Því miður hafði ég ekki tök á að þiggja það boð. Við vinir Yoshihiko Tsuchiya söknum vinar í stað, þökkum örlæti hans og áhuga á að rækta vináttu Ís- lands og Japans. Við vottum minn- ingu hans virðingu. Orðstír hans mun lifa með þjóðum okkar. Vigdís Finnbogadóttir. Á barnaskólaárum mínum (1958-1965) dvaldi ég oft á sumrin hjá afa mínum og ömmu á Akureyri, þeim Stefáni Ágústi Kristjánssyni og Sigríði Frið- riksdóttur. Stefán Ágúst, afi minn, var fæddur á kirkjujörðinni Glæsibæ, sem er næsti bær sunnan við Dagverðareyri, og móðir hans, Guðrún Oddsdóttir, var frá Dag- verðareyri. Þannig var náinn skyld- leiki milli Gunnars Kristjánssonar, bónda á Dagverðareyri, og Stefáns afa míns, en Gunnar og kona hans, Fjóla Pálsdóttir, voru að auki bestu vinahjón afa míns og ömmu. Leið afa og ömmu lá því oft um kortérs ferð út með firðinum að vestanverðu til Dagverðareyrar og slóst ég þá í för með þeim. Heimasætan á bænum, hún Silla Maja, tók yfirleitt á móti okkur úti á hlaði, glaðbeitt með hundinn Snata sér við hlið, en hestarnir Jarpur og Rauður fylgdust með úr nærstaddri girðingu. Oddur, bróðir hennar, var oftast niðri á engjunum við sláttinn, en mætti um síðir í kaffið með gest- unum. Hann var hnarreistur og lið- legur unglingsstrákur, dökkur yfir- litum og með stríðnisglampa í augum, enda gerði hann oft að gamni sínu við okkur. Þau Gunnar og Fjóla voru höfðingjar heim að sækja og borðin svignuðu undan kræsingun- um hennar Fjólu. Það sem einkenndi þó fólkið á Dagverðareyri fyrst og fremst og raunar einnig frændfólk þess á Glæsibæ var áhugi þess á garðrækt og skógrækt. Árangurinn er sá að Dagverðareyri og Glæsibær eru meðal mestu skógræktarjarða í Eyjafirði. Ég átti því láni að fagna að geta styrkt og endurnýjað kynni mín við frændfólk mitt á Dagverðareyri sumarið 1980, þegar ég gegndi lækn- isstörfum á Dalvík. Afi og amma, sem þá voru flutt suður fyrir tíu ár- um, ætluðu að heimsækja mig og fjölskyldu mína norður en amma veiktist skyndilega þegar þau afi voru að leggja af stað og lést hún daginn eftir. Þá kynntist ég því vel hve sterk og einlæg vinátta fólksins á Dagverðareyri var í okkar garð. Það gleymist ekki. Oddur Gunnarsson ✝ Oddur Gunn-arsson fæddist á Dagverðareyri við Eyjafjörð 4. janúar 1943. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu 30. nóvember síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Ak- ureyrarkirkju 9. des- ember. En ég fylgdist líka stoltur með því á þess- um árum hve ötullega þeir feðgar, Gunnar og Oddur, börðust gegn þáverandi fyrirætlun- um um álver við Eyja- fjörð. Þeir sýndu það og sönnuðu að áhugi þeirra á ræktun lands- ins, fegurð náttúrunn- ar, hreinleika um- hverfisins og umhyggjan fyrir vel- sæld og hamingju komandi kynslóða við Eyjafjörð var greypt í erfðavísa þeirra. Ég átti síðar samskipti við dætur Odds, þegar uppi voru áform um að urða sorp í landi þess fræga sögustaðar, Gáseyrar við Eyjafjörð, sem er raunar næsti bær fyrir norð- an Dagverðareyri. Þar sýndu þær svo sannarlega að þeim er ekki úr ætt skotið. Ég votta Gígju, eiginkonu Odds, dætrum þeirra og fjölskyldum, Sillu Maju og fjölskyldu hennar, samúð mína við fráfall þess mæta drengs, sem Oddur var. Ég kveð Odd með fyrsta erindinu úr ljóði, sem Stefán Ágúst, afi minn, orti við fráfall Egg- erts Kristjánssonar, föðubróður Odds, í desembermánuði árið 1974. Ljóðið lýsir vel þeim hugsunum sem við hér fyrir sunnan sendum frænd- fólki okkar á Dagverðareyri, á sorg- arstundu í lífi þeirra. Harmur er kveðinn hópi frænda og vina hrokkinn er fagur ættarmeiðsins strengur. Skammdegið yfir ættarlandi liggur lokið er ævi, hniginn góður drengur. Ólafur F. Magnússon. Við fráfall Odds Gunnarssonar er mikill harmur að mér kveðinn og sár söknuður að auki. Hann kom inn í fjölskyldu mína, þegar hann giftist Gígju systur, fyrir tæpum fjörutíu árum. Það var strax eins og við systkinin hefðum eignast nýjan bróður og foreldrar okkar nýjan son. Jafnvel uppáhaldsson. Oddur var sá eini, sem faðir okkar vann með (í byggingarvinnu auðvitað) og fékk þá á honum afar miklar mætur, bjó líka inni á heimilinu meðan á byggingu íbúðarhússins stóð. Móður okkar hefur hann líka frá fyrstu tíð reynst betri en enginn og nú hefur hún í hárri elli átt heimili hans og dóttur sinnar sem annað heimili og dvalið þar um helgar og hátíðir. Eitt af helstu einkennum Odds var forvitni. Hann vissi á flestu skil og hafði áhuga á næstum öllum hlutum. Hann gerði við traktora, þvottavélar, bíla, mjaltavélar og haugsugur. Hafði brennandi áhuga á búskap og landbúnaði með skógrækt og öllu. Hann hafði ódrepandi áhuga á póli- tík, heims og lands og sveita. Hann hafði áhuga á fólki. Ekki bara ná- grönnunum, heldur öllu fólki. Eng- inn var svo aumur, að Oddur vildi ekki vita á honum deili. Hann átti af- ar auðvelt með að umgangast fólk, ræða málin og karpa og þannig leysa vandamál og ná ásættanlegri mála- miðlunum um ágreiningsmál. Þess vegna var hann náttúrulega í sókn- arnefnd sveitarinnar og í hrepps- nefndinni, þangað til hreppurinn var gerður að Hörgárbyggð. Hann sat líka mörg búnaðarþing og virkur var hann í skógræktarfélaginu og sam- tökum kúabænda. Hann var sívinnandi. Alla daga upp klukkan sjö og líka flesta sunnu- daga. Þau eru fjölbreytt störf bónd- ans og í öll verk gekk Oddur, oftast í góðu skapi, því hann hafði mikið jafnaðargeð. Hann hafði áhuga á að vinna og aðgerðarleysi var böl í hans augum. Ekki vanrækti hann heldur fjölskylduna. Þau hjónin eignuðust fjórar fallegar og góðar dætur og Oddur skipti sér af uppeldinu eins mikið og hann fékk leyfi til. Á Dag- verðareyri er mikið rausnarheimili og dágóður gestagangur á sumrin. Svo réðst hann í það á efri árum að byggja nýtt fjós. Sagði of dýrt að lappa upp á það gamla. Þetta varð náttúrlega fjós eins og þau eru byggð í dag og eru ekkert lík þeim gömlu að öðru leyti en því, að það eru í þeim kýr,sem eru mjólkaðar. Húsið rúmar meira en hundrað hausa og fjögur hundruð spena. Harla gott. En eftir að kreppan skall á, kostaði það stjarnfræðilegar upphæðir fyrir bónda sem bjó við látlausar hækk- anir á áburði og fóðurbæti. Og þar með fékk hann það sem hann hafði einmitt engan áhuga á. Stórar skuld- ir og áhyggjur. Um leið og við hjónin þökkum Oddi samfylgdina biðjum við Guð að styrkja fjölskylduna á erfiðum tíma- mótum. Húnn Snædal. Fráfall Odds Gunnarssonar, fyrsta oddvita Hörgárbyggðar, er mikið áfall fyrir byggðarlagið. Hann var alla tíð mjög virkur þátttakandi í félagsstörfum sveitarinnar, auk þes að vera með umfangsmikinn bú- rekstur. Hann var snemma kosinn í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps, varð síðan oddviti hreppsins árið 1994 og gegndi því embætti til loka, þ.e. þangað til hreppurinn samein- aðist Skriðuhreppi og Öxnadals- hreppi 1. janúar 2001, þegar sveitar- félagið Hörgárbyggð varð til. Oddur var lykilmaður í sameiningarferlinu, m.a. sem formaður sameiningar- nefndarinnar. Hann var svo kosinn fyrsti oddvitinn í Hörgárbyggð og var það fram að kosningunum 2002. Hann gegndi þó áfram trúnaðar- störfum fyrir sveitarfélagið og var m.a. formaður skipulags- og um- hverfisnefndar þess frá síðustu kosningum. Með störfum sínum í nefndinni átti hann mjög stóran þátt í að móta fyrsta aðalskipulag Hörg- árbyggðar. Oddvitastörfum sínum sinnti Odd- ur alla tíð frá heimili sínu á Dagverð- areyri. Það hefur valdið miklu álagi á heimilið og þar með á eiginkonu Odds, Gígju Snædal, sem studdi mann sinn dyggilega í öllum störfum hans. Í fundargerð sveitarstjórnar Hörgárbyggðar frá 4. júní 2002 segir að Gígja, ásamt Oddi, bjóði fundar- mönnum til veislu á heimili þeirra að loknum fundi. Það er gott dæmi um rausnarskap þeirra hjóna. Sveitarstjórn Hörgárbyggðar þakkar Oddi Gunnarssyni fyrir mik- ið og fórnfúst starf í þágu sveitarfé- lagsins og héraðsins alls. Gígju og fjölskyldunni allri er vottuð hin dýpsta samúð. Fyrir hönd sveitarstjórnar Hörg- árbyggðar, Guðmundur Sigvaldason. Það var haustið 1973 sem við hjón- in hófum búskap á næsta bæ við Dagverðareyri. Við vorum ung, ókunnug og á byrjunarreit hvað varðaði búrekstur. Mikið var gott að hafa þaulvanan búhöld að leita til, á næsta bæ. Á Dagverðareyri hefur sama ætt- in búið framúrskarandi í marga ætt- liði. Oddur ásamt Gígju sinni, hefur svo sannarlega haldið heiðri og sóma þessarar jarðar hátt á lofti, með óbil- andi elju og dugnaði fram á síðasta dag. Við nutum þess í ríkum mæli í 31 ár að eiga góða granna á Dagverð- areyri og er það ekki sjálfgefið en dásamleg uppbót á lífið. Oddur var einstaklega hjálpsamur maður. Man ég t.d. eftir því þegar við vorum að byggja íbúðarhúsið okkar, kominn 20. október, allra veðra von og gamla húsið ekki íbúð- arhæft vegna kulda og rottugangs. Þá birtist Oddur á vörubílnum sínum með mannskap og hjálpaði okkur að flytja í hálfklárað húsið okkar. Ann- að dæmi ætla ég að nefna. Gylfi fór í fermingu dóttur sinnar í Borgarnesi og tók eldri strákana með sér. Ég lá heima með hettusótt en taldi mig geta haft hjá mér litlu börnin sem voru 3 og 4 ára. Mér elnaði sóttin er á daginn leið. Um kvöldið gat ég varla lyft höfðinu frá koddanum, og Gylfi ókominn. Litlu börnin mín fengu nú að leika lausum hala. Þá er bankað hraustlega og gengið inn. Þetta var Oddur, það þekkti ég. Ég get aldrei gleymt því, hann háttaði börnin, þvoði, burstaði tennurnar og kom þeim í rúmið af ótrúlegri natni. Þeir sem lítið þekktu Odd vissu ekki af þessum miklu mannkostum hans. En við á Gásum nutum þeirra oft. Hafi hann þökk fyrir allt. Gígju, dætrum, barnabörnum, tengdasonum, Sillu systur og öllum þeim sem eiga um sárt að binda, sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi ykkur og styrki nú og ævinlega. Björk og Gylfi frá Gásum. Látinn er um aldur fram Oddur Gunnarson bóndi og skógræktar- maður á Dagverðareyri. Ég minnist Odds sem aflvaka ýmissa góðra mála. Ávallt og alltaf þegar á reyndi var hann tilbúinn að leggja framfara- málum lið, ósérhlífinn, áræðinn og beinskeyttur. Fjölbreytt reynsla bóndans af félagsmálum og ræktun nýttist stjórn Skógræktarfélags Ey- firðinga sérstaklega vel á þeim árum þegar svigrúm var að skapast fyrir virkri þátttöku bænda í skógrækt. Þegar uppbygging Gróðrarstöðv- arinnar í Kjarna hófst árið 1976 var Oddur í senn ráðgjafi og hvatamað- ur. Hann sat í stjórn félagsins í mörg ár og var formaður á árunum 1980- 1983. Á 70 ára afmæli Skógræktar- félags Eyfirðinga sem haldið var á Akureyri árið 2000 var Oddur gerð- ur að heiðursfélaga. Vísast var áhugi Odds á málefnum skógræktar honum í blóð borinn. Afi hans Kristján Sigurðsson og amma Sesselía Eggertsdóttir hófu trjá- rækt við bæinn Dagverðareyri árið 1919. Foreldrarnir Gunnar Krist- jánsson og Fjóla Pálsdóttir héldu áfram ræktunarstarfinu og Oddur og Gígja bættu um betur. Á Dag- verðareyri er núna einn af glæsileg- ustu bændaskógum Íslands og skjól- beltarækt á túnum þar til mikillar fyrirmyndar. Skógræktin á Dagverðareyri er öðrum bændum hvatning og merki um hvernig hægt er að nýta jarðir til búskapar með fjölbreyttri ræktun. Fyrir utan reynslu og þekkingu í ræktun var Oddur ávallt feti framar í umhirðu og grisjun skógarins. Fyrir mörgum árum kom hann sér af framsýni upp eigin tækjum og bún- aði til þess að nýta þær afurðir sem til féllu í skóginum. Odds nýtur ekki lengur við en verkin tala skýru máli um fram- kvæmdamann sem eygði möguleika í ræktun jarðar sinnar og kom þeim áformum í framkvæmd með stuðn- ingi eiginkonu sinnar Gígju Snædal. Fyrir hönd Skógræktarfélags Ey- firðinga, Skógræktar ríkisins og gamalla og nýrra samherja sendi ég Gígju og fjölskyldu innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Odds á Dag- verðareyri. Hallgrímur Indriðason. Okkur systkinin langar að minn- ast Odds með nokkrum orðum. Við Elsku frændi. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól Sigurður Heiðar Þorsteinsson ✝ Sigurður HeiðarÞorsteinsson fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 2. mars 1988. Hann lést 14. nóvember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík 26. nóvember. lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorg- mæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harma- bál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þín frænka Elva Hlín og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.