Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 29
27
í eftirfarandi verða notaðar nokkrar styttingar, og fara hér
a eftir skýringar á skammstöfununum:
CL: „Cleft Lip“: Skarð í vör (eingöngu).
CL(P): „Cleft Lip with or without Cleft Palate“: Skarð í
vör með eða án holgóms.
CP: „Cleft Palate“: Holgómur (eingöngu).
CL+CP: „Cleft Lip with Cleft Palate“: Skarð í vör og hol-
gómur í einum og sama sjúklingi.
CL/CP: „Cleft Lip and/or Cleft Palate“: Sameignartákn
allra mynda skarðs í vör og holgóma.
PATHOGENESIS
Hin svo kallaða „klassíska teoría" um myndun skarðs í vör
°g holgóma byggist á þeirri skoðun, að einstakir andlits-pró-
cessar nái ekki að sameinast í fóstrinu. Þessi teóría styðst við
rannsóknir vísindamanna, sem uppi voru á seinni hluta nítj-
andu aldarinnar, og hefur verið viðurkennd af fjölda sjúk-
dómafræðikennara fram á þennan dag. Nýlegar rannsóknir
virðast staðfesta þessa skoðun um myndun holgóma. Það er
almennt álitið, að holgómur myndist, þegar palatine prócess-
ar ná ekki saman i fóstrinu.
Undanfarin ár hefur „klassíska teórían“ orðið fyrir tölu-
verðum efasemdum, hvað viðvíkur myndun skarðs í vör. I
nýju kenningunni er því haldið fram, að fyrsti visir að vör
°g premaxilla sé ectodermal |>oki, sem innihaldi þrjá meso-
dermal hnoðra. Þessir hnoðrar vaxa og sameinast og mynda
efri vörina og premaxilla. Ef þessir mesodermal hnoðrar ná
ekki að vaxa og fylla ectodermal pokann, rifnar þessi þunna
himna, og afleiðingin er skarð í efri vör. Þessi nýja kenning
hvggist að miklu leyti á niðurstöðum rannsókna R. B. Stark0)
a fóstrum, sem báru fyrstu merki af skarði í vör og holgóm.
ETIOLOGY
Orsakir CL/CP eru enn að miklu leyti ókunnar. Margra
aratuga rannsóknir mikilhæfra vísindamanna um heim allan
hafa svipt burtu dulu hjátrúar og dulspeki, sem hvildi yfir