Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 63
61
ferðar, en þær liggja þá ýmist lingvalt eða labialt tannbog-
ans, svo þá er aðeins þörf á að færa þær á sinn stað í tann-
bogann og rétta þær þar. Stundum ber það líka við, að tönn
in skilar sér á sinn stað í tannboganum, en þá þarf stundum
að snúa henni eða breyta stefnu rótarinnar, en það verður
ekki gert nema með einhverskonar föstum tækjum. Yfirleitt
er ekki þörf langvarandi stuðnings (retention) eftir meðferð
staðnaðra augntanna.
Er augntönn lendir lingvalt, er oft hægt að notast við lausa
plötu til að koma henni út i tannbogann, og oft er þörf á að
nota bitplötur með föstum tækjum til þess að opna bitið, með-
an verið er að færa tönnina úr krossbitinu.
VARNARAÐGERÐIR
Helztu aðgerðir, er komið geta í veg fyrir stöðnun augn-
tanna, eru að hindra of snemmt tap barnatanna vegna skemmda
eða slysa, fjarlægja cystur, æxli eða aðra þá hluti, er hindrað
gætu eruption tannanna, setja spacemaintainers í þeim til-
fellum, sem ekki verður komizt hjá ótímabærum úrdrætti
barnajaxla eða barnaaugntanna efri góms.