Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 50
48
5. mynd. Eruptionsröð fullorðinstanna
samkvæmt rannsóknum Hurme.
fullorðinstönn kemur ekki niður á réttum tíma. Þó skeður
það líka oft, að sjúklingur leitar tannlæknis, vegna þess að
barnaaugntönn er enn til staðar eða er farin og engin tönn
kemur í staðinn. Ellegar vegna þess, að los er komið á hliðar-
eða miðframtennur vegna eyðinga á rótum þeirra.
Eins getur sjúklingur leitað tannlæknis vegna fyrirferðar-
aukningarinnar labialt eða lingvalt við tannbogann, eða
vegna þess að hliðarframtennur efri góms verða skástæðar
(„ugly duckling“). Venjulega er ekki um nein hugræn (sub-
jectiv) einkenni að ræða vegna staðnaðra augntanna, en getur
6. mynd sýnir módel af sjúklingi nr. 525, V. B. 13 ára dreng með bit
eftir II. klassa Angles 2. deild, með mikil þrengsli í báðum gómum og
3 + 3 staðnaðar labialt vegna þrengsla, samanber a, b, c, d. Hér getur
verið, að erfðir eigi þátt i stöðnuninni, samanber 7. mynd, sem er af systur
V. B. Dregnar voru úr 4 + 4 og 4 — 5 og sett föst tæki (edgewise) í báða
góma. Meðferðin tók 17 mánuði, auk ]/2 árs stuðnings (retentionar), sem
fór fram með bitplötu með skáplani. Model e, f, g, h, voru tekin (4 ári
eftir lok aktivrar meðferðar.