Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
ÞÓ ÞEIM sem séu skráðir í þjóð-
kirkjuna hafi fjölgað á árabilinu
2007 til 2008 um rúmlega þúsund
manns hafa hlutfallslega aldrei
færri tilheyrt kirkjunni. Þetta
kemur fram í samantekt Hagstofu
Íslands.
Hlutfall landsmanna í þjóðkirkj-
unni er nú 78,1% og er það í
fyrsta sinn sem þetta hlutfall fer
niður fyrir 80%, en 1. desember sl.
var fólk í þjóðkirkjunni 16 ára og
eldra 195.576 talsins. Telur Hag-
stofan þessa lækkun mega að
hluta til skýra með miklum að-
flutningi erlendra ríkisborgara
2008, en þeir flokkast með óskráð-
um trúfélögum nema þeir skrái
sig sérstaklega. Í óskráðum og
ótilgreindum trúfélögum teljast nú
19.323 en voru 16.713 í fyrra. 4,7%
tilheyra þá fríkirkjusöfnuðum en
5,9% hinum 25 trúfélögunum sem
skráð eru á landinu. Einungis þrjú
þeirra eru þó með fleiri 1.000
meðlimi og eru það kaþólska
kirkjan, hvítasunnukirkjan og ása-
trúarfélagið.
Undir 80% í
þjóðkirkjunni
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HÆGARI útflutningur sjávarafurða
hefur leitt til söfnunar birgða hjá
framleiðendum og flutningafyrir-
tækjum. Þannig eru frystigeymsl-
urnar hjá Samskipum stútfullar. Þá
hefur það aukist að afurðir séu
geymdar í frystigeymslum erlendis.
Birgðir sjávarafurða hafa yfirleitt
verið litlar á þessum árstíma. Arnar
Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva, telur að birgðir
hafi oft samsvarað eins til tveggja
mánaða sölu. Svavar Svavarsson,
markaðsstjóri hjá Granda, segir að
oft hafi vantað fisk á þessum árstíma,
vegna undirbúnings sölunnar fyrir
páskana.
Vegna hægari sölu frá því í haust á
dýrari tegundum, eins og þorski og
ýsu, og erfiðleika á mörkuðum í aust-
urhluta Evrópu, hafa birgðirnar auk-
ist. Framleiðendur vilja þó lítið gefa
upp um birgðastöðuna, vegna hugs-
anlegra áhrifa slíkra frétta á mark-
aðinn. Birgðirnar eru líka mismun-
andi eftir tegundum afurða.
Birgðirnar eru geymdar á mis-
munandi stöðum, hjá framleiðendum,
flutningafyrirtækjum og í geymslum
í erlendum höfnum. Gunnar Ólafur
Kvaran, forstöðumaður útflutnings
hjá Samskipum, segir að fullt sé út úr
dyrum í Ísheimum. Frystigeymsl-
urnar taka um 6.000 tonn og auk þess
er fiskur geymdur í frystigámum.
Áætlar hann að fyrirtækið sé með um
8.000 tonn af sjávarafurðum til-
búnum til útskipunar.
Það hefur aukist að framleiðendur
geymi afurðir erlendis, nær mark-
aðnum. Svavar segir að matvæli séu
að fylla geymslur víða um heim, ekki
aðeins fiskafurðir. Hann nefnir að til
vandræða horfi í Japan af þessum
ástæðum. Framleiðendur segja að
það komi í ljós á næstu vikum og
mánuðum hvort dregið hafi verulega
úr fiskneyslu vegna efnahags-
ástandsins í Bretlandi og fleiri lönd-
um, eða hvort aukning birgða er
tímabundin vegna þess að birgða-
haldið er að flytjast til framleiðend-
anna.
Frystigeymslur stútfullar
Hægari útflutningur sjávarafurða kem-
ur fram í aukningu birgða framleiðenda
Morgunblaðið/RAX
Komið að landi Vel hefur aflast að undanförnu, sjómenn segja þorsk um
allan sjó. Verr hefur gengið að selja afurðirnar og birgðir safnast upp.
SALA á efnum til léttvínsgerðar
hefur aukist eftir að kreppan skall
á, að sögn Magnúsar Axelssonar,
rekstrarstjóra og eins eigenda
Ámunnar sem selur áhöld og efni til
heimavíngerðar.
„Við finnum fyrir auknum áhuga
núna. Það er alltaf þannig með fyr-
irtæki í þessum geira. Þau ganga
betur þegar þrengir að í samfélag-
inu en svo er talsvert minna að gera
hjá þeim þegar þensla er,“ greinir
Magnús frá.
Vinna vín úr eigin berjum
Hann segir hins vegar alltaf
ákveðinn hóp hafa áhuga á víngerð
og vínmenningu.
„Það eru þeir sem búa til sitt
rauðvín sjálfir. Svo eru það einnig
þeir sem tína ber og rækta rabar-
bara til þess að vinna sín vín frá
grunni. Það er alltaf mikil sala í
kringum það á haustin.“
Bernhard Svendsen, eigandi Vín-
kjallarans, segir að bruggun á Ís-
landi sé minni nú heldur en fyrir
nokkrum árum. Hins vegar telur
hann að víngerð sé að glæðast á ný
nú þegar efnahagsástandið hefur
versnað.
Meiri tími og minna fé
„Víngerð á Íslandi hefur ekki
verið mjög mikil síðustu árin en svo
virðist sem áhugi fólks sé að vakna
á ný. Það er bæði vegna þess að fólk
hefur meiri tíma til víngerðar og
vegna þess að það hefur minna fé á
milli handanna.“
Bernhard tekur það fram að er-
lendis búi fólk ekki endilega til vín í
sparnaðarskyni.
„Það gerir það vegna þess að það
fær oft betra vín á þann hátt auk
þess sem það hefur gaman af því.“
ingibjorg@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimagert vín Mörgum þykir gam-
an og ljúffengt að brugga úr berjum.
Fleiri gera
vín heima
MELKORKA litla naut leiðsagnar Bergþórs
Pálssonar söngvara í gönguferð um Laugardal-
inn í gær þar sem sjá mátti náttúruna í vetrar-
búningi sínum. Gæsirnar létu sér fátt um finn-
ast þótt þær hefðu fengið áhorfendur og héldu
áfram að spígspora um snævi þakið túnið í leit
að æti. Kannski báru þær í brjósti sér von um
að áhorfendurnir gaukuðu að þeim smá brauð-
bita.
Náttúruskoðun í vetrarríkinu í Laugardalnum
Morgunblaðið/Ómar
Gæsir gleðja ungt auga
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi fyrir
helgi tæplega sjötugan þýskan karlmann, Dieter
Samson, í fimm ára fangelsi fyrir innflutning
fíkniefna. Hann flutti inn til landsins tæp 20 kg af
kannabisefnum og 1,7 kg af amfetamíni. Efnin
fundust í bifreið mannsins þegar hann kom til
landsins með ferjunni Norrænu í september sl.
Átti að fá fimm þúsund evrur fyrir ferðina
Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn
fór með Norrænu frá Danmörku. Þegar ferjan
kom við í Færeyjum létu tollayfirvöld leita í henni
með fíkniefnahundi og veitti hundurinn bíl
mannsins sérstaka athygli. Voru tollayfirvöld á
Íslandi látin vita. Maðurinn var handtekinn við
komuna og ítarlega leitað í bílnum. Efnin voru
m.a. falin á bak við klæðningu í farangursrými og í
varahjólbarða.
Maðurinn viðurkenndi að hafa flutt inn efnin en
tók fram að það hefði ekki verið gert í ágóðaskyni
heldur hafi hlutverk hans aðeins verið að aka bíln-
um. Síðar sagðist hann ekki hafa vitað að efnin
væru í bílnum. Við aðalmeðferð sagði hann rúss-
neska kunningja sína búsetta í Þýskalandi hafa
fengið hann til þess. Bíllinn hafi verið keyptur sér-
staklega fyrir ferðina og átti að falla í hans skaut
eftir ferðina. Auk þess, sagði hann, greiddu Rúss-
arnir ferðakostnað og átti hann að fá fimm þúsund
evrur fyrir ferðina. Dómurinn sagði framburð
ákærða um að hafa ekki vitað um efnin fráleitan.
Þjóðverji dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir fíkniefnasmygl
Sakaferillinn hófst 1965 Hefur samanlagt verið dæmdur til 45 ára refsivistar
Í HNOTSKURN
»Litið var til þess að maðurinn á aðbaki gríðarlegan afbrotaferil í
Þýskalandi og ekki eru nema tvö ár liðin
frá því hann tók út síðustu refsingu sína.
»Maðurinn er með sakaferil frá árinu1965, þ.á m. tvo dóma fyrir mann-
drápstilraun.
»Samanlögð refsivist, sem maðurinnhefur verið dæmdur til, er rúm 45
ár.