Morgunblaðið - 20.01.2009, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
40% afsláttur
af öllum vörum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mánud.-föstud. 10-18
Opið í Bæjarlind laugard. 10-16
Opið í Eddufelli laugard. 10-14
Enn er hægt að gera
góð kaup á útsölunni
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Enn meiri
verðlækkun
á útsölunni
ÚTSALA
30-70%
afsláttur
M
bl
.is
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Samkvæmt könnun MMR um
traust fólks á aldrinum 18–67
ára til fjölmiðla, dagana
19.–23. des.
Íslendingar
treysta Mbl.is og
Morgunblaðinu
64,3%
mikið traust lítið traust
11,4%
64,0%
8,9%
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 - www.friendtex.is
Enn meiri verðlækkun
ÚTSALA
Opið mán.-fös. 11.00-18.00
og lau. 11.00-16.00
Mikið úrval af eldri
fatnaði á kr. 1.000
Eftir Birnu G. Konráðsdóttur
Vesturland | Veiðiréttareigendur og veiðileyfasalar lax-
veiðiáa á Vesturlandi hafa verið nokkuð uggandi yfir
því að sala veiðileyfa yrði dræm fyrir komandi sumar,
vegna ástandsins í þjóðfélaginu, þrátt fyrir metár síð-
asta sumar. Nú streyma hins vegar veiðileyfaumsóknir
inn til Stangaveiðifélags Reykjavíkur og því má ætla að
þær aðgerðir sem aðilar gripu til skili sér í meiri um-
sóknarþunga en menn gerðu ráð fyrir.
Á Vesturlandi eru margar af frægustu laxveiðiám
landsins. Flestir þeir sem einhvern áhuga hafa á lax-
veiði muna að aflatölur í sumar slógu víða öll fyrri met.
Í þeim þrengingum sem gengið hafa yfir þjóðfélagið
hafa bæði veiðiréttareigendur og veiðileyfasalar haft af
því áhyggjur að ekki myndi ganga eins vel að selja
veiðileyfi í laxveiðiárnar, sérstaklega þær dýrari eins
og Norðurá, Þverá og Grímsá í Borgarfirði, Hítará og
Langá á Mýrum svo einhverjar ár séu nefndar. Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur er með veiðileyfasölu í margar
ár á Vesturlandi. Þar er þegar hafin forsala á veiðileyf-
um og umsóknirnar streyma inn. Páll Þór Ármann er
framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Hann segir að sannarlega hafi menn haft af því áhyggj-
ur að ekki myndi ganga vel að selja veiðileyfi sem séu
eins og ferðalög, kannski eitthvað sem fólk sleppi þegar
harðnar í ári. „Okkur hefur hins vegar tekist að hafa
óbreytta krónutölu á verði veiðileyfa milli ára í góðri
samvinnu við veiðiréttareigendur. Töldum við það afar
mikilvægt fyrir komandi veiðisumar. Við höfum fengið
mjög góð viðbrögð við söluskrá okkar og má segja að
það veki hjá okkur væntingar um að þetta geti gengið
þokkalega eftir allt saman. Nú er umsóknarferlið hjá
okkur farið í gang og umsóknir félagsmanna farnar að
streyma inn. En maður þarf að spyrja að leikslokum í
þessu eins og í öðru.“
Erlendi markaðurinn líka breyttur
Sala veiðileyfa á erlenda markaði hefur gengið ágæt-
lega en aðspurður segir Páll Þór að sú sala gangi hæg-
ar og taki sinn tíma. Hann bætir jafnframt við að að-
stæður á erlendum mörkuðum séu talsvert erfiðar líka.
„Fyrirspurnir erlendis frá hafa komið inn á borð til
okkar en þar finnum við fyrir aukinni ásókn í ódýrari
veiði og þá sérstaklega silungsveiði. Það er nokkuð sem
ekki hefur verið áberandi áður,“ segir Páll Þór Ár-
mann.
Sigurjón Valdimarsson á Glitstöðum í Borgarfirði,
formaður veiðifélags Norðurár, segir það gleðileg tíð-
indi ef umsóknir um veiðileyfi streymi inn. „Ég fagna
sannarlega þessum tíðindum og vona staðan verði á
þann veginn að hægt verði að kaupa og selja veiðileyfi
hér innanlands. Það er mikið skynsamlegra að kaupa
veiðileyfi á Íslandi en erlendis, sérstaklega eins og
staðan hefur verið. Það styrkir þjóðarbúið að versla
hér heima,“ segir Sigurjón Valdimarsson.
Umsóknir um
leyfi streyma inn
Bjartara útlit í veiðileyfasölu
en talið var í haust
Morgunblaðið/Birna
Veiði Laxveiði var víða góð síðasta sumar. Þessir veiði-
menn fóru kampakátir úr Gljúfurá í Borgarfirði þar
sem þeir toppuðu árangur fyrri ára, í ánni.
Í HNOTSKURN
»Það er skynsamlegt að versla innanlands þeg-ar harðnar í ári, hvort sem um er að ræða
veiðileyfi eða eitthvað annað.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ICELANDAIR og Iceland Express
hafa dregið verulega úr framboði á
sætum í vetur. Utanferðum Íslend-
inga hefur fækkað mjög og má nán-
ast segja að aðeins þeir sem eigi
brýnt erindi til útlanda, s.s. vegna
vinnu, náms eða í heimsóknir til ætt-
ingja hafi leyft sér þann munað að
kaupa utanlandsferð. Sala á utan-
landsferðum er þó sögð vera að lifna
við á nýjan leik.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir að sæta-
framboðið sé um 20-25% minna en
síðasta vetur. Byrjað hafi verið að
draga saman um mitt árið síðan enn
frekar í kjölfar hruns bankanna.
Hann gerir ráð fyrir að næsta sumar
verði 10% minna sætaframboð en í
fyrra.
Íslendingar hafa verið um þriðj-
ungur af farþegum Icelandair. Í vet-
ur hefur hlutfall Íslendinganna hins
vegar verið töluvert lægra og Guðjón
gerir ráð fyrir að svo verði áfram. Á
hinn bóginn er hann ágætlega bjart-
sýnn á fjölda erlendra ferðamanna.
Þá séu merki um að markaðurinn
innanlands sé að lifna við.
Bókanir ná sér á strik
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express, segir að fyrirtækið
hafi dregið úr sætaframboði um
30%. Mikil breyting hafi orðið á sam-
setningu farþega og ætla megi að Ís-
lendingum hafi fækkað um 40%.
Ferðir í sumar hafi selst mun minna
en í fyrra en Matthías segir að und-
anfarnar tvær vikur hafi bókunum
fjölgað mikið.
Drógu úr framboði
Um 20-30% færri ferðir Færri Íslendingar í vélunum
Árið 2008 byrjaði vel á Keflavík-
urflugvelli og engin merki sáust
um að kreppa, hvort sem var á Ís-
landi eða á heimsvísu væri yfirvof-
andi. Þvert á móti var útlit fyrir að
nýtt met yrði slegið í fjölda far-
þega sem áttu leið um völlinn.
Farþegar í janúar (komu- og
brottfararfarþegar) voru um
12.000 fleiri en í sama mánuði árið
2007 og um 20.000 fleiri fóru um
flugvöllinn í janúar 2008 heldur en
í janúar 2006. Það var líka nóg að
gera í febrúar og mars og allt
stefndi í metfjölda. Síðan tók held-
ur betur að halla undan fæti og í
október varð sannkallað hrun en
þann mánuð fóru um 40.000 færri
um Keflavíkurflugvöll en á sama
tíma árið 2007. Samdrátturinn í
nóvember og desember var sömu-
leiðis verulegur.
Þegar upp var staðið vantaði um
8.700 farþega upp á að heildar-
farþegafjöldi árið 2008 yrði tvær
milljónir. Þetta eru töluvert færri
en fóru þar um árin 2006 og 2007
en nokkuð fleiri en fóru um völlinn
árið 2005. Það var hins vegar
langt frá því að metið frá 2007
væri slegið – og sjálfsagt verður
þess langt að bíða enn.
Engin merki sáust um yfirvofandi kreppu