Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009
✝ Sigurveig fæddistí Naustahvammi
Norðfirði 14. febrúar
1933. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 13. janúar
síðastliðinn.For-
eldrar hennar voru
Þorleifur Ásmunds-
son útvegsbóndi, f.
11.8. 1889 á Karls-
stöðum Vöðlavík, d.
10.10. 1956, og María
Jóna Aradóttir hús-
freyja, f. 4.5. 1895 í
Naustahvammi, d. 15.12. 1973.
Sigurveig var 13. í röðinni af 14
systkinum. Þau eru: Aðalheiður
Þóra, f. 18.10. 1912, d. 12.7. 2006.
Ari Ásmundur, f. 3.11. 1913, d.
24.1. 2005; Guðni, f. 3.10. 1914, d.
10.10. 2002; Stefán Guðmundur, f.
18.8. 1916; Ingvar, f.
8.10. 1917, d. 24.2.1963;
Gyða Fanney, f. 20.7.
1919; Ingibjörg Lukka,
f. 8.8. 1921; Lilja Sum-
arrós, f. 30.10. 1923;
Guðbjörg, f. 1.12. 1924;
Ásta Kristín, f. 7.10.
1926; Friðjón, f. 13.8.
1928, d. 26.1. 2004; Guð-
rún María, f. 27.10.
1930; Vilhjálmur Norð-
fjörð, f. 18.1. 1936.
Sigurveig giftist hinn
31.12. 1955 Óla Þór
Hjaltasyni, d. 6.2. 1996. Foreldrar
hans voru Hjalti Jónsson og Ingi-
björg Eyþórsdóttir. Börn Sig-
urveigar og Óla Þórs eru: 1) Hjalti
Örn Ólason, f. 4.8. 1956, maki Ólöf
Sigurrós Gestsdóttir, f. 6.6. 1957.
Börn Hjalta og Ólafar eru: A) Þóra
Sigrún Hjaltadóttir, f. 12.2. 1977 ,
maki Árni Rúnar, f. 21.4. 1979.
Börn Þóru og Árna eru: a) Hjalti
Örn, f. 2.8. 2001; b) Arna Rún, f. 1.2.
2003. B) Hólmfríður María Hjalta-
dóttir, f. 8.12. 1978. Barn Hólm-
fríðar: a) Ólöf Björg, f. 18.8. 1999.
C) Óli Þór, f. 5.5. 1984. 2) Ólafur Ey-
þór Ólason, f. 20.4. 1960, maki Jó-
hanna Reynisdóttir, f. 26.1. 1958.
Barn Ólafs og Jóhönnu: A) Eyþór, f.
8.7. 1997. 3) Ingibjörg Óladóttir, f.
24.5.1963, maki Steingrímur Pét-
ursson, f. 28.10. 1959. Börn Ingi-
bjargar og Steingríms eru: A)
Sveinn Þór, f. 1.12. 1984, sambýlis-
kona Telma Ýr, f. 6.10. 1986. Barn
þeirra: a) Kara Mjöll, f. 20.8. 2008.
B) Stella, f. 8.12. 1989. C) Hulda Sif,
f. 19.7. 1995.
Útför Sigurveigar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.
Elsku mamma, nú ertu komin til
himna að hitta pabba, foreldra þína
og fimm systkini og afana og ömm-
urnar. Trú þín á Guð almáttugan var
alltaf mikil enda alin upp í miklum
kærleik. Það var grunnurinn sem þú
byggðir uppeldi barna þinna á.
Heilsan var að stríða þér á stund-
um en þrjóskan efldi þig og barátta
þín við krabbamein í þrettán ár ein-
kenndist af viljanum til að lifa því
það eitt skipti máli, þú kveiðst dauð-
anum ekki. Eftir á að hyggja þá var
hún við þessu búin og hélt okkur
veislu 11. janúar.
Ég kom til hennar að kvöldi 8. jan-
úar að athuga með hana, en hún
hafði verið slöpp daginn áður. Nú var
hún hin hressasta, búin að vera á
fullu allan daginn að þrífa íbúðina og
taka niður jólaskraut og undirbúa
veisluna. Meira að segja fór hún upp
á vaskinn í eldhúsinu að setja upp
nýjar gardínur og bauðst ég til að
gera þetta en hún hélt nú að hún
gæti þetta sjálf enda aðeins að verða
76 ára. Svo kom sunnudagurinn og
allir mættu til veislu og á borðum var
kaffi, heitt súkkulaði, öl og kökur,
pönnukökur og vöfflur. Spilum og
kvörnum var komið fyrir á borðinu
og spilað púkk(stopp) eins og hefur
verið gert í hennar fjölskyldu óslitið
síðan á nítjándu öld á jólahátíðinni
og þarna spilar fólk frá 10 ára aldri
og uppúr.
Það var glatt á hjalla og mamma
var afar ánægð með daginn. Þetta
var svo sannarlega góð kveðjuveisla.
Mamma er fædd og uppalin í
Naustahvammi á Norðfirði hjá kær-
leiksríkum foreldrum. Hún var 13. í
systkinaröðinni og það var hennar
happatala og himnavistin hófst hinn
13. janúar. Mamma hafði alla tíð
mjög mikið samband við systkini sín
og kærleikur mikill þar á milli. Í
æsku var hún hjá Gyðu systur sinni
og Jóni manni hennar á sumrin frá
níu til sextán ára aldurs við að hjálpa
til við barnahópinn þeirra, einnig var
hún hjá Ara bróður sínum og Guð-
nýju konu hans, sem kenndi henni að
lesa og gera sína fyrstu handavinnu.
Þetta tímabil gerðist að mestu í
Hellisfirði og mótaði hana mikið því
hún var mikið úti í náttúrunni að leik
í umhverfi steina, fjalla, lækja, fossa
og blóma og hlustaði á álfasögur.
Þarna held ég að listakonan og um-
hverfissinninn Lilla hafi mótast.
Mikill samgangur hefur alltaf ver-
ið milli systkinanna mömmu, Guð-
rúnar, Villa og Friðjóns heitins en
þau hafa búið í Keflavík. Vilhjálmur
hefur reynst systur sinni einstaklega
vel alla tíð og snúist með hana út og
austur. Mamma var afar ánægð með
ferð þeirra á æskuslóðir á Norðfjörð
í haust. Listakonan Lilla var hún
mamma síðustu ár sín og átti hún af-
ar fallegt heimili á Suðurgötu 15 í
Keflavík. Hún hefur unnið leður,
gler, fatasnið og saum, ort ljóð, en
mest hefur hún málað og myndlistin
birst helst í kærleika eins og Drott-
inn blessi heimilið myndum og svo
myndum sem eiga sér uppruna í
huga barns í Hellisfirði, myndum af
fjöllum, lækjum, fossum, gróðri,
blómum, steinum og álfum sem í
þeim búa. Mamma hefur haldið
nokkrar myndlistarsýningar og
hennar kveðjusýning verður í erfis-
drykkjunni. Ég þakka þér mamma
fyrir allt sem varst mér og verður og
Guð blessi þig.
Hjalti Örn.
Sigurveig Þorleifsdóttir
Fleiri minningargreinar um Sig-
urveig Þorleifsdóttir bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
KRISTBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Karlsstöðum,
búsett í Boðahlein 22,
andaðist föstudaginn 16. janúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
23. janúar kl. 13.00.
Sigurður Þorleifsson,
Stefanía Mekkín Sigurðardóttir, Sveinn Elísson,
Sigríður Arnleif Sigurðardóttir, Kári Húnfjörð Bessason,
Sólveig Þórhildur Sigurðardóttir,
Sigrún Guðleif Sigurðardóttir, Ólafur Ásgeirsson,
Siggerður Ólöf Sigurðardóttir,
Jóna Kristín Sigurðardóttir, Þór Jónsson
og ömmubörnin.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HJÁLMAR JÓNSSON,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi, sunnudaginn
18. janúar.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju, föstudaginn
23. janúar kl. 15.00.
Stefanía G. Guðnadóttir,
Herbert Hjálmarsson, Guðrún Skarphéðinsdóttir,
Jón Ingi Hjálmarsson, Svanhvít J. Jónsdóttir,
Elva Hjálmarsdóttir,
Þráinn Hjálmarsson, Málfríður Vilbergsdóttir,
Stefán Ragnar Hjálmarsson, Hansína Ásta Jóhannsdóttir,
Guðný Hjálmarsdóttir, Ellert Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
HALLA SIGURÐARDÓTTIR,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar fimmtudaginn
15. janúar.
Útför hennar fer fram frá Safnaðarheimili
Norðfjarðar fimmtudaginn 22. janúar kl. 14.00.
Vandamenn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA GEORGSDÓTTIR,
Bauganesi 27,
Skerjafirði,
lést á Landspítala, Landakoti laugardaginn
17. janúar.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
22. janúar kl. 13.00.
Gunnar Már Pétursson,
Lára Gunnarsdóttir, Ólafur Kristófer Ólafsson,
Kjartan Georg Gunnarsson, Ólína Ágústa Jóhannesdóttir,
Gunnar Már Gunnarsson, Aldís Bára Einarsdóttir,
Pétur Gunnarsson, Dóra Eydís Pálsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Eyjólfur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Eyrarkoti,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
16. janúar.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 15.00.
Gestur Ó. Karlsson, Áshildur Emilsdóttir,
Sigurjón Karlsson, Valgerður Jónsdóttir,
Gróa Karlsdóttir, Lárus E. Eiríksson,
Andrés Karlsson, Mínerva Jónsdóttir,
Sólveig Karlsdóttir Lynge, Henrik Lynge,
Ævar Karlsson, Inga Dís Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar,
KRISTÍN BERNHÖFT PÉTURSSON,
Droplaugarstöðum,
áður Efstaleiti 12,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 17. janúar.
Fyrir hönd fjölskyldna okkar og annarra vanda-
manna,
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
Pétur Gunnlaugsson,
Ólafur Gunnlaugsson.
✝
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
LÁRUS ELLERT KRISTMUNDSSON
bóndi,
Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysuströnd,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
18. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gísli Scheving,
Eggert Kristmundsson,
Elín Kristmundsdóttir,
Anna Scheving,
Hallgrímur Kristmundsson,
Skarphéðinn Scheving Einarsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar ástkæra móðir og tengdamóðir,
HILDUR SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
er látin.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ólöf Lilja Stefánsdóttir, Sævar Gunnarsson,
Sigþrúður B. Stefánsdóttir, Óskar Baldursson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær systir okkar og frænka,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Höll Haukadal,
Dalbraut 20,
lést þriðjudaginn 13. janúar á Landspítalanum í
Fossvogi.
Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
22. janúar kl. 15.00.
Magnús Þ. Jónsson,
Hákon H. Jónsson
og systkinabörn.