Morgunblaðið - 04.03.2009, Side 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
STURLA GK 12 seldi í gær og
fyrradag 113 tonn af blönduðum
afla í Grimsby. Aflinn samanstóð af
þorski, ýsu, keilu og karfa. Sölu-
verðmæti aflans var 28 milljónir
króna og meðalverðið 248 kr á kg,
samkvæmt heimasíðu Þorbjörns hf.
í Grindavík sem gerir skipið út.
Sturla GK er nú á heimleið. Stefnt
er að því að Ágúst GK-95 selji í
Grimsby á mánudaginn kemur.
Sala Sturlu GK þótti tíðindum
sæta í Grimsby því tæp níu ár voru
þá liðin frá því að íslenskt fiskiskip
landaði síðast afla í Grimsby, að því
er sagði á vef LÍÚ. Siglingar fiski-
skipa þangað lögðust að mestu af
með gámaflutningunum.
Fjallað var um söluna í Bretlandi,
m.a. á sjávarútvegsvefnum FISH-
update.com. gudni@mbl.is
Sturla seldi
í Grimsby
REYKJAVÍKURBORG mun ráða
yfir 4.100 manns til ýmiss konar
starfa í sumar. Flestir eða um 2.900
verða ráðnir til tímabundinna
starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur
en ríflega 840 verða ráðnir í afleys-
ingar á fagsviðum borgarinnar.
Stefnt er að því að skapa að
minnsta kosti 400 sumarstörf með
96 milljón króna sértækri fjárveit-
ingu. Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri kynnti áformin á fundi
borgarstjórnar í gær. Þar sagði
hún einnig að við skipulagningu
Vinnuskólans hefði verið haft að
leiðarljósi að veita sem flestum um-
sækjendum vinnu þó takmarka
þyrfti vinnutíma. Umhverfis- og
samgöngusvið borgarinnar ræður
flesta til vinnu eða 414 og af þeim
verða um 200 leiðbeinendur í
Vinnuskóla Reykjavíkur.
Borgin ræður
4.100 í sumar
ALLT AÐ tíu aðilar óskuðu eftir
upplýsingum um rekstur verslunar-
innar Habitat í Reykjavík. Spari-
sjóðabankinn auglýsti allar eignir og
rekstur húsgagnafyrirtækisins til
sölu á sunnudaginn. Hægt var að
óska upplýsinga til kl. þrjú í gær.
Tilboðsfrestur er til fimmtudagsins
5. mars.
Einar Gunnar Guðmundsson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar
Sparisjóðabankans, segir áhugann á
rekstrinum í samræmi við vænt-
ingar. Hann vill ekki gefa upp hver
velta fyrirtækisins var eða hvort
kröfuhafar séu fleiri. Upplýsingar
um slíkt séu aðeins afhentar gegn
trúnaðaryfirlýsingu.
„Við áskiljum okkur að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna þeim öll-
um,“ segir Einar Gunnar.
Verslunin Habitat var rekin í
Holtagörðum og segir Einar ekki í
höndum bankans hvort sá sem kaupi
reksturinn geti rekið verslunina þar
áfram. Um það verði að semja við
leigusalann.
Sparisjóðabankinn er í einkaeigu
og honum því ekki skylt að auglýsa
fyrirtæki með þessum hætti. „Ekki
hefur verið tekin afstaða til þess
hvort þessi leið verði aftur farin
komi til þess. Hins vegar finnst mér
persónulega rétt að vera ekki í nein-
um feluleik.“
Penninn ehf. átti verslunina Habi-
tat. gag@mbl.is
Um tíu vildu
gögn um Habitat
Sparisjóðabankinn leitar að kaupendum
að rekstri húsgagnaverslunarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Habitat í Holtagörðum Rekstur og
eignir Habitats eru til sölu.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
EKKI er útilokað að í kosningunum í
vor verði mesta vinstri sveifla sem
orðið hefur í alþingiskosningum hér
á landi frá upphafi. Þá kæmi ekki á
óvart að ríkisstjórnarflokkarnir,
Samfylking og Vinstri græn, lýsti því
yfir fyrir kosningar að ef þeir næðu
meirihluta, mundu þessir tveir flokk-
ar mynda ríkisstjórn eftir kosningar.
Þetta kom fram í erindi Ólafs Þ.
Harðarsonar prófessors á hádegis-
fundi með nemendum og kennurum í
stjórnmálafræði við HÍ í gær.
„Nú veit ég ekki hvað þeir ætla að
gera, en það kæmi mér ekki á óvart,
þó að þeir mundu gera eitthvað af
þessu tagi,“ sagði Ólafur. „Ef þeir
gera það, þá yrðu það merkileg tíð-
indi, að binda sig fyrirfram um
stjórnarsamstarf.“ Forystumenn
flokka lýsa því nær alltaf yfir að þeir
gangi óbundnir til kosninga um
stjórnarsamstarf að þeim loknum. Á
því eru þó undantekningar og rifjaði
Ólafur upp að árið 1995 þegar Jó-
hanna Sigurðardóttir, núverandi for-
sætisráðherra, stofnaði Þjóðvaka,
lýsti hún því yfir að hún vildi að
menn segðu fyrir kosningar með
hverjum þeir vildu starfa í ríkis-
stjórn.
Hann vék einnig að því að um
þessar mundir mælast Samfylking
og Vinstri græn með um 55% fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn með um 40%. „Auðvit-
að getur þetta breyst verulega fram
að kosningum,“ sagði Ólafur. „En ef
úrslitin yrðu á þessa leið, þá væru
það vissulega gríðarleg tímamót í ís-
lenskri stjórnmálasögu. Það yrði
meiriháttar breyting á íslenska
flokkakerfinu ef þetta gengi eftir.
Það er ekki útilokað að svo verði.“
Ólafur velti því fyrir sér hvort
komandi þingkosningar boðuðu
tímamót í íslenskri stjórnmálasögu.
„Mun „fjórflokkurinn“ hrynja í þess-
um kosningum? Ég á síður von á því.
Það munu væntanlega koma einhver
ný framboð, en það er ekkert sem
bendir til þess enn sem komið er, að
ný framboð muni fá verulegt fylgi.
Það er auðvitað hugsanlegt en lík-
urnar á því eru minni en meiri í dag.
Sennilega munum við ekki sjá
grundvallarbreytingar á sterkri
stöðu „fjórflokksins“ í næstu kosn-
ingum, þó það sé ekki hægt að úti-
loka það.“
Standa undir væntingum?
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur flutti einnig erindi. Hann
velti fyrir sér hvort kjósendur kæmu
til með að standa undir eigin vænt-
ingum um þá endurnýjun, sem talað
er um í samfélaginu? „Það er mjög
skammur tími til undirbúnings próf-
kjöra og kosninganna, þannig að ég
er ekkert sérstaklega bjartsýnn á að
þeir standi undir þessum vænting-
um.“
Gæti orðið mesta vinstri
sveifla sem sést hefur hér
Morgunblaðið/ÞÖK
Allt getur gerst 54% hugleiddu að velja annan flokk en þeir kusu 2007.
Ósennilegt að fjórflokkurinn hrynji
Tímaþröng er í vegi endurnýjunar
Óvíst er hvort flokkarnir myndu
nýta sér þá heimild að bjóða fram
óraðaða lista í kosningunum í vor,
verði frumvarpið um persónukjör
að lögum á þessu þingi. Það heim-
ilar framboðum að bjóða ýmist
fram raðaða lista eins og tíðkast
hefur eða óraðaða lista þar sem
röð kjósenda listans ræður því al-
farið hverjir setjast í sæti listans.
Einar Mar Þórðarson stjórn-
málafræðingur bendir á að nánast
allir flokkar viðhafa prófkjör við
skipan á framboðslista. Því virðist
þeir ekki ætla að nýta sér þetta.
Hann segir að mjög áhugavert
verði að fylgjast með í vor hvort
kjósendur muni í miklum mæli
nýta rétt til útstrikana á nöfnum á
kjörseðlinum, þar sem í ljós kom í
seinustu kosningum að útstrikanir
höfðu áhrif.
Ólafur Þ. Harðarson vakti at-
hygli á þeim möguleika, ef per-
sónukjör verður lögfest, að skv.
núgildandi kosningalögum mega
flokkar bjóða fram fleiri en einn
lista í hverju kjördæmi með sam-
þykki flokksins. Hugsanlega muni
einhverjir sýna því áhuga.
Óvíst að flokkarnir bjóði fram óraðaða lista
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
www.hjahrafnhildi.is
Skoðaðu heimasíðuna!
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Miðvikudaginn 4. mars frá 14 til 17 að Hótel Loftleiðum
2009-2012
VÍSINDA- &
TÆKNISTEFNA
Í lok janúar efndu vísindanefnd og tækninefnd til opinna funda til að undirbúa
nýja stefnu Vísinda- og tækniráðs. Nú boða nefndirnar til fundar þar sem fyrstu
drög að nýrri stefnu verða kynnt. Markmiðið er að ræða drögin, fá gagnrýni og
ábendingar til að nota við lokaundirbúning stefnunnar.
Dagskrá:
14:00 Kynning á drögum að stefnu Vísinda- og tækniráðs 2009 til 2012
- Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar
- Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar
14:30 Umræður í hópum um einstaka þætti stefnunnar
15:30 Kaffi
15:45 Kynning hópa og lokaumræður
17:00 Dagskrárlok
Allir hagsmunaaðilar í vísindum, tækniþróun og nýsköpun eru hvattir til að
mæta og hafa áhrif á mótun nýrrar stefnu.