Morgunblaðið - 04.03.2009, Side 11

Morgunblaðið - 04.03.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 „VIÐ áttum ágætan fund þar sem við fórum yfir stöðu mála og þá sér- staklega mál er varða heimili og fyr- irtækin í landinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, eftir fund sinn og Jóhönnu Sigurðardótt- ir, forsætisráðherra, með formanni Framsóknarflokksins í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hafði gagnrýnt stjórnarflokkana fyr- ir seinagang. Ráðherrarnir væru of einráðir og drægju lappirnar í veiga- miklum málum, svo sem stjórnlaga- þingsmálinu. Hann sagði þó að Framsóknarmenn hygðust ekki fella stjórnina. Minnihlutastjórnin hefur enn sem komið er aðeins komið einu máli í gegnum þingið, seðlabanka- frumvarpinu. Steingrímur sagði engar alvarleg- ar deilur vera uppi um hvernig skyldi halda á málum. Mikill vilji væri til þess að flýta málum sem allra mest og að því væri unnið öt- ullega. „Það er ekki undarlegt að menn hafi litla þolinmæði en það er nú samt svo að það er mikil hreyfing á málum,“ sagði Steingrímur. Vilji til að flýta málum  Forsætisráðherra og fjármálaráðherra funduðu með formanni Framsóknar- flokksins  Sigmundur Davíð hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir seinagang Í HNOTSKURN »Steingrímur segir alltbenda til þess að mikilvæg mál er varði heimilin í landinu verði samþykkt á næstunni. »Tugir mála hafi verið af-greiddir úr ríkisstjórn sem nú þurfi að afgreiðast á þingi. Sigmundi Davíð boðin sáttahönd MBL.IS | SJÓNVARP BISKUPSSTOFA hefur opnað tvö vefsvæði á Face- book-sam- skiptavefnum, að sögn Elínar E. Jó- hannsdóttur, fræðslufulltrúa Biskupsstofu. Til- gangurinn er að koma upplýs- ingum til fólks sem á um sárt að binda, meðal ann- ars vegna efnahagsþrenginga en fólk sækir í auknum mæli í þjónustu kirkna. „Við finnum fyrir auknu álagi, eins og skiljanlegt er, og við viljum reyna eftir fremsta megni að koma til móts við þann mikla fjölda sem leitar til okkar vegna erfiðleika. Við viljum reyna að vera sýnileg í þessu árferði og þess vegna er Facebook-vefurinn góður staður fyrir upplýsingar,“ segir Elín í sam- tali við mbl.is. ingibjorg@mbl.is Biskups- stofa á Facebook Til móts við þá sem eru í erfiðleikum Karl Sigurbjörnsson Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÉG hef ekki efni á því að vera at- vinnulaus. Þjóðin hefur ekki efni á því að hafa mig atvinnulausan. Ef við fáum ekki vinnu hjá öðrum þá verðum við að gera eitthvað sjálf.“ Þannig hljómar lýsingin á hópsíð- unni Avinnuleysi Nei takk! sem Sveinbjörn Pétursson hefur stofnað á Facebook. „Ég missti vinnuna í lok sumars og fór þá að skoða Face- book og hvaða möguleika hún hefði að bjóða, því ég hafði nógan tíma. Ég hef svo sem misst vinnuna áður, en þá fékk maður vinnu aftur eftir nokkrar vikur í stað þess að horfa fram á langtímaatvinnuleysi. Það eru breyttir tímar þannig að hugmyndin var sú að reyna að hóa saman hópi af fólki sem væri at- vinnulaust og fara í hugmynda- vinnu um hvað við getum gert sjálf. Þetta er svona sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér hugsun.“ Sveinbjörn hefur líka unnið að því að safna saman á síðunni upp- lýsingum um úrræði fyrir atvinnu- lausa í boði verkalýðsfélaga, bæj- arfélaga o.fl. „Það er hellingur í boði, ég er sjálfur búinn að fara á 12 eða 13 námskeið en einhverra hluta vegna er lítil þátttaka. Ég held þetta þurfi meiri kynningu því Morgunblaðið/Kristinn Æðrulaus Sveinbjörn með Esju, dóttur sinni. Hann segir að ekki þýði að taka það til sín þótt starfsumsóknir skili litlu. „Atvinnuleysi, nei takk!“ þetta nýtist mikið og fyrir vikið verður fólk betri starfskraftar þeg- ar það fær síðan vinnu, eða skapar sér vinnu sjálft. Svo er líka ástæða til að hvetja atvinnulaust fólk til að taka þátt í sjálfboðastörfum frekar en að vera aðgerðalaust, því maður fær þetta inn á sína ferilskrá og fólk getur sýnt fram á að þótt það hafi misst vinnuna hafi það haldið virkni í samfélaginu áfram.“ Sjálfur hefur Sveinbjörn sótt um ríflega 40 störf síðan hann missti vinnuna en fengið takmörkuð við- brögð við þeim. Hann segist samt líta svo á að það eina neikvæða við atvinnuleysið sé tekjumissirinn. Erfitt sé að lifa af atvinnuleysisbótum, en hann hafi hins vegar nóg fyrir stafni við að rækta sjálfan sig. „Auðvitað geta verið sveiflur hjá mér í þessu, en fyrir mig snýst þetta ekki um það að hafa ekki nóg að gera, því sumir dagar eru skipu- lagðir alveg frá morgni til kvölds, enda tel ég mig orðinn sérfræðing í því að finna allt sem er frítt,“ segir Sveinbjörn hlæjandi. Gærdagurinn var sem dæmi full- skipaður hjá Sveinbirni og varla að tími gæfist fyrir viðtalið við blaða- mann. Um morguninn sótti hann ársfund Nýsköpunarstofnunar, þá leiklistarnámskeið í Hlutverka- setrinu um hádegi og loks fór hann í Opna háskólann í HR til að sækja tímastjórnunarnámskeið. „Ég reyni bara að fylgjast með, taka þátt í því sem er í boði og skapa mér verkefni,“ segir Svein- björn. „Það reynir mikið á það núna að geta sýnt styrk og draga sig ekki inn í skelina þegar eitthvað bjátar á, heldur eflast og sækja út á við til að finna lausnir.“  Stofnaði Facebook-hóp fyrir atvinnulausa til að miðla hugmyndum  „Orðinn sérfræðingur í því sem er ókeypis“ ÓLAFUR Ragn- ar Grímsson, for- seti Íslands, ferð- aðist níu sinnum með flugvélum utan almenns áætlunarflugs á árunum 2005 til 2008. Forsetinn flaug með vélum á vegum Actavis, Glitnis, Novators, KB-banka, Eim- skips og FL-Group. Þetta kemur fram í greinargerð á vegum forsetaembættisins vegna fyrirspurnar frá Fréttablaðinu. Í sjö tilvikum var um að ræða hluta úr ferð eða skipulagða hóp- ferð. Tvær ferðir voru alfarið með vélum á vegum íslenskra fyrirtækja og voru fulltrúar viðkomandi fyr- irtækja með í för. Í desember 2005 fór forsetinn í tveggja daga ferð með leiguvél á vegum Actavis til Pétursborgar í Rússlandi. Hann var viðstaddur undirritun samkomulags um þátttöku Péturs- borgar í evrópsku samstarfsverk- efni gegn fíkniefnum sem Actavis styrkir auk þess sem hann ræddi við borgarstjóra Pétursborgar. Í september 2007 fór forsetinn í rúmlega sólarhringsferð til Leeds í Englandi með vél á vegum Eim- skips. Þar ræddi hann við ýmsa ráða- menn auk þess sem hann flutti ávarp við opnun skrifstofubygg- ingar í eigu Eimskips. ingibjorg@mbl.is Níu sinnum í einkavélum Ólafur Ragnar Grímsson LÖGREGLAN í Borgarfirði og Döl- um handtók um helgina sex manns, fimm karlmenn og eina konu á aldrinum 15 til 50 ára og lagði hald á rúmlega 30 kannabisplöntur í sumarbústað í Borgarfirði. Fólkið var flutt á lögreglustöðina í Borg- arnesi þar sem yfirheyrslur fóru fram. Að sögn lögreglu voru fíkni- efnin, sem voru í þurrkunarferli í bústaðnum, íslensk framleiðsla og kvaðst fólkið hafa tekið að sér að sjá um að þurrka plönturnar fyrir annan aðila en það hefði ekki staðið að ræktuninni sjálft. Að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi naut hún aðstoðar frá fíkni- efnadeild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu við rannsókn málsins og einnig kom lögreglan á Akranesi til aðstoðar við handtöku fólksins. Fólkinu var sleppt úr haldi að yfirheyrslum loknum. Kannabis í Borgarfirði ALÞINGI hefur samþykkt breyt- ingar á lögum um kosningar til Al- þingis sem gera fólki auðveldara að kjósa í komandi alþingiskosn- ingum. Kjörskráin var samkvæmt lög- unum miðuð við 1. desember 2008. Nú er fólki heimilt að senda beiðni til Þjóðskrár fyrir 25. mars n.k. og verður það þá tekið á kjörskrá. Er gripið til þessarar lagasetningar vegna þess að nú er kosið er á miðju kjörtímabili. Geta komist á kjörskrá Áhrif kreppunnar á fjölskyldur  5. mars: „Vinnustaðurinn eftir uppsagnir,“ hádegisfyrirlestur í boði VR.  12. mars: „Fjármál – úrlausn fjárhagslegra vandamála.“ Nám- skeið hjá Opna háskólanum í boði stéttarfélaga.  Í vændum: „Sjálfsstyrking og samskipti fyrir konur,“ námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Ís- lands.  Á þriðjudögum: Enska – þjálf- un í talmáli hjá Hlutverkasetri.  19. mars: „Reiður, reiðari, reiðastur,“ fyrirlestur VR um við- brögð við áföllum. Á döfinni fyrir atvinnulausa HEITAR umræður voru á bæj- arstjórnarfundi í Sandgerði í gær- kvöld þegar tekist var á um tillögu minnihlutans um að fenginn yrði sérfróður aðili til þess að gera út- tekt á samningum Sandgerð- isbæjar og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar frá árinu 2004 um sölu og endurleigu eigna. Bærinn á kost á því í ár að kaupa eignir sínar til baka af Fasteign. Meirihlutinn vildi að tillagan yrði dregin til baka en minnihlut- inn var því mótfallinn, að sögn Ólafs Þórs Ólafssonar, bæjarfull- trúa S-lista Samfylkingarinnar og óháðra. Tillaga minnihlutans var felld í atkvæðagreiðslu. Sátt náðist hins vegar um tillögu meirihlutans um að málinu yrði vísað til gerðar fjár- hagsáætlunar fyrir árið 2010, að sögn Ólafs Þórs. ingibjorg@mbl.is Tekist á í bæjarstjórn Sandgerðis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.