Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
TUTTUGU heimilislausum verður
tryggt húsnæði, þjónusta og fé-
lagslegur stuðningur samkvæmt
samningi félags- og trygginga-
málaráðuneytisins og Reykjavík-
urborgar. Félags- og trygginga-
málaráðuneytið mun leggja til
28,5 milljónir kr. á hverju ári
næstu þrjú árin til verkefnisins.
Þeim sem glímt hafa við áfeng-
is- og vímuefnaneyslu eða eiga við
félagslega erfiðleika að stríða
verður tryggð aðstoð við að aðlag-
ast samfélaginu á ný. Þjónustan
felur í sér húsaskjól, félagslegan
stuðning og endurhæfingu þannig
að íbúar geti í framhaldinu búið
sjálfstætt og tekið virkan þátt í
samfélaginu án vímugjafa. SÁÁ
útvegar húsnæðið, annast rekstur
þess og veitir þjónustuna. Nú þeg-
ar eru 10 manns komnir í hús og
njóta þjónustunnar.
Ráðist gegn vanda
heimilislausra
Í TILEFNI af alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna bjóða Jafnrétt-
isstofa, Jafnréttisráð, ASÍ, BHM,
BSRB, KÍ og SSF til fundar á Grand
Hótel Reykjavík 9. mars kl. 11.45.
Erindi flytja Silja Bára Ómars-
dóttir stjórnmálafræðingur, Bryn-
dís Ísfold Hlöðversdóttir og Stein-
unn Gyðu- og Guðjónsdóttir,
framkvæmdastjóri UNIFEM.
Jafnréttisfundur
NÚ er að hefjast átak sem beint er
að fermingarbörnum þar sem bent
er á hættuna við ljósabekki. Vakin
er athygli á því að börn og ungling-
ar eru viðkvæmari en aðrir fyrir
áhrifum geislunar frá ljósabekkjum
sem getur valdið húðæxli.
Ár hvert greinast um 330 manns
með húðæxli, en tíðni húðæxla í
heild hefur tvöfaldast á tíu árum.
Hættan er ljós
RAGNA Árnadóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, skipaði í gær
Björn Þorvaldsson, aðstoðar-
saksóknara og staðgengil saksókn-
ara efnahagsbrota, í embætti sak-
sóknara við ríkissaksóknara-
embættið frá og með 1. apríl 2009
til fimm ára.
Björn skipaður
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
BYGGING snjóflóðavarnargarðs í
fjallinu Traðarhyrnu ofan Bolung-
arvíkur hófst síðastliðið sumar en
henni lýkur árið 2010. Að sögn Leifs
Arnar Svavarssonar er bygging
varnargarðsins ekki nógu langt á
veg komin til að hægt sé að taka til-
lit til hans þegar snjóflóðahætta er
metin.
Fimm hús voru rýmd á mánudag
þegar lýst var yfir hættustigi vegna
snjóflóða en Leifur segir að um hafi
verið að ræða rýmingu á 1. stigi. Þá
eru hús næst fjallshlíðinni rýmd
vegna miðlungssnjósöfnunar en alls
eru stigin þrjú. Hætta á stærri flóð-
um flokkist undir 2. stig en rýming á
3. stigi komi aðeins til sé um aftaka-
aðstæður að ræða, að sögn Leifs.
Leifur segir jafnframt að rýming
á 1. stigi sé nokkuð tíð í Bolung-
arvík. „Þarna hefur verið rýmt á
nánast hverjum vetri,“ segir hann
en síðasta snjóflóðið í Bolungarvík
féll í febrúar 1997. Þá féllu flóð úr
hlíðum Traðarhyrnu á tvö hús efst í
byggðinni við Dísarland en eftir að
undirbúningur varnargarðsins hófst
hafa sex hús við Dísarland verið rif-
in þar sem þau lentu inni í garð-
inum.
Jákvæð áhrif á öryggi íbúa
Rúm tíu ár eru síðan frum-
athugun á snjóflóðavörnum í Bol-
ungarvík var unnin. Niðurstaða
hennar var að byggja þvergarða og
keilur og rífa nokkur hús. Skipu-
lagsstofnun afgreiddi mat á um-
hverfisáhrifum snjóflóðavarnanna í
september 2007 og var niðurstaða
stofnunarinnar sú að „fyrirhugaðar
framkvæmdir við varnarvirki fyrir
ofan byggðina í Bolungarvík munu
hafa jákvæð áhrif á öryggi íbúa með
tilliti til snjóflóðahættu miðað við
núverandi aðstæður“. Helstu nei-
kvæðu áhrifin yrðu áhrif á landslag
og sjónræn áhrif auk uppkaupa og
niðurrifs sex húsa. Sveitarfélagið
ályktaði að í heildina væri ávinn-
ingur framkvæmdarinnar það mikill
að neikvæðu áhrifin yrðu í því sam-
hengi lítil eða hverfandi.
Niðurstaðan varð sú að byggja
u.þ.b. 710 metra bogadreginn þver-
garð ofan byggðarinnar og reisa fyr-
ir ofan hann átta keilur svokallaðar.
Þegar varnargarðurinn verður
fullbúinn ættu íbúar húsanna næst
fjallshlíðinni ekki að þurfa að rýma
heimili sín framar.
Hús rýmd nánast árlega
Bygging varnargarðs ekki komin nógu
langt til að afstýra snjóflóðahættu
Ljósmynd/Baldur Smári Einarsson
Mikill snjór Fjórtán manns var gert að yfirgefa heimili sín í Bolungarvík á
mánudagskvöld vegna hættu á snjóflóði úr fjallinu Traðarhyrnu.
SAMFYLKINGIN hefur ekki sett á
laggirnar sérstaka endurreisn-
arnefnd líkt og Sjálfstæðisflokk-
urinn gerði. Að sögn Sigrúnar
Jónsdóttur, framkvæmdastjóra
Samfylkingarinnar, er hins vegar
fjöldi málefnanefnda að störfum
sem vinnur að undirbúningi lands-
fundar. Hann fer fram 27. til 29.
mars og á að móta og samþykkja
stefnu flokksins fyrir þingkosning-
arnar 25. apríl.
Fram er komin tillaga um breyt-
ingu á lögum Samfylkingarinnar
sem felur í sér að framkvæmda-
stjóri verði kosinn á landsfundi.
Fram kemur á vefsíðu flokksins að
embætti ritara og gjaldkera leggist
af og framkvæmdastjórn kjósi sér
formann úr sínum hópi. Mörður
Árnason er flutningsmaður.
Undirbúa
landsfund
ÞÆR eru greinilega öllu vanar konurnar sem
hér berjast móti veðrinu í höfuðborginni. Ekki
virðist þeim nauðsynlegt að sjá eða anda, því
önnur heldur veglegri regnhlíf alveg fyrir aug-
un og hin heldur fyrir nefið sem stendur rétt svo
út úr slæðunni, sem hún hefur vafið um höfuð
sitt. Það er kannski ekki við öðru að búast en
landsmenn séu kuldalegir þessa dagana, enda
veður válynd og mars rétt að hefjast.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Konur úti í kuldanum í borginni
STANGAVEIÐIFÉLAG Keflavíkur,
SVFK, hefur náð samningum við
Veiðifélag Geirlandsár um áframhald-
andi leigu á ánni. Geirlandsá er rómuð
sjóbirtingsá sem SVFK hefur leigt
um langt árabil. Veiðifélagið bauð ána
út á dögunum en hefur nú samið við
gamla leigutakann til þriggja ára.
Önnur kunn sjóbirtingsá, Eldvatn í
Meðallandi, hefur skipt um hendur.
Pétur Pétursson, leigutaki Vatns-
dalsár og Reykjadalsár í Reykjadal,
hefur tekið ána á leigu. Hyggst hann
innleiða fluguveiði og sleppiskyldu í
ánni. Veitt er á sex stangir í Eldvatni
og þá fylgir hluti Steinsmýrarvatna
svæðinu, með tveimur stöngum til við-
bótar.
„Við erum með veiðikort í smíðum
og verðum með tilraunaveiði í vor til
að hjálpa okkur að átta okkur á ánni.
Það eru svæði í henni sem hafa nánast
ekkert verið stangarveidd en hafa
gamla og mikla veiðireynslu síðan hér
áður fyrr er farið var með net í ána,“
segir Pétur í samtali við vefinn vot-
nogveidi.is.
Veiðifélagið Lax ehf. hefur tekið
Hölkná í Þistifirði á leigu, en fyrir
leigir félagið Þistilfjarðarárnar Sval-
barðsá og Hafralónsá. Auk þeirra
leigir Lax ehf. meðal annars Hafra-
lónsá, Grímsá og Laxá í Kjós.
Síðustu árin hefur Flugan á Ak-
ureyri verið með ána á leigu en veitt
er á tvær til þrjár stangir. Í fyrra
veiddust um 140 laxar í Hölkná.
efi@mbl.is
Áfram með Geirlandsá
Nýir leigutakar að Eldvatni í Meðallandi og Hölkná
Morgunblaðið/Einar Falur
Í Steinsmýrarvötnum Hluti
vatnanna fylgir Eldvatni.
311 þátttakendur
Í FRÉTT um prófkjör og forval
flokkanna í gær voru þátttakendur
hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylk-
ingu vantaldir. Þeir sem hafa skráð
sig til þátttöku í Sjálfstæðis-
flokknum eru 84 og í Samfylkingu
eru þeir 77. Samtals hafa því 311 til-
kynnt þátttöku í prófkjörum og for-
vali hjá Samfylkingu, Sjálfstæð-
isflokki, Framsóknarflokki og
Vinstri grænum. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Nafn misritaðist
Í grein um væntanlega plötu hljóm-
sveitarinnar Hjálma misritaðist nafn
eins hljómsveitarmeðlims. Var við-
komandi sagður Valdimar Kolbeins-
son en rétt nafn hans er Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson. Er hann
beðinn velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT