Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 GYLFI Magnússon viðskiptaráðherra mælti í gær fyrir þremur lagafrumvörpum á Alþingi, sem öllum var vísað til viðskiptanefndar og ann- arrar umræðu. Í fyrsta lagi voru það breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög, til þess að skýra eignarhald á félögum, stuðla að jöfnum kynjahlutföllum í stjórnum og meðal framkvæmdastjóra félaga, og að girða fyrir að stjórnarformenn sinni öðrum störfum en eðlileg- um stjórnarstörfum, þ.e. að banna starfandi stjórnarformenn. FME birti niðurstöður úr málum Í öðru lagi var frumvarp um breytingu á lög- um um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, sem Fjármálaeftirlitið (FME) starfar eftir. Þar er breytingin sú að stofnunin megi birta opin- berlega niðurstöður sínar úr málum. Þingmenn fögnuðu því frumvarpi og sögðu óþarfa dulúð hafa einkennt starf stofnunarinnar. Síðast en ekki síst flutti Gylfi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum er varða fjár- málamarkaðinn, þar sem stærsta breytingin er ákvæði um að falla megi frá sektarákvörðun, ef sektarþoli er fyrstur til að veita upplýsingar eða gögn í máli. Álfheiður Ingadóttir, Vinstri- grænum, fagnaði frumvarpinu en setti fyrirvara við að heimildirnar yrðu víðtækari en þær í lög- um um sérstakan saksóknara. Þar eru stíf skil- yrði fyrir niðurfellingu refsinga. onundur@mbl.is FME fær ákvæði um uppljóstrara Viðskiptaráðherra flytur frumvörp um að banna starfandi stjórnarformenn, meiri upplýsingagjöf frá Fjármálaeftirliti og heimildir fyrir stofnunina til að fella niður sektarákvörðun á uppljóstrara Í HNOTSKURN »Guðfinna S. Bjarnadóttir,Sjálfstæðisflokki, spurði hvernig vinnu sérfræðings, samkvæmt 10. lið sam- komulags við AGS, miðaði. »Hlutverk hans er m.a. aðfara yfir reglur um lausa- fjárstýringu, krosseigna- tengsl og hagsmunalegt sjálf- stæði stjórnenda. »Gylfi Magnússon sagðivinnu sérfræðingsins, sem er finnskur og hefur að- setur hjá FME, vera á áætlun og að hann njóti aðstoðar starfsfólks stofnunarinnar. Morgunblaðið/Kristinn Á bekknum Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra ásamt samráðherrum sínum á Alþingi. FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FORMENN ríkisstjórnarflokkanna fóru yfir verkefni vikunnar í Þjóð- menningarhúsinu í gær. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði mesta áherslu lagða á at- vinnumálin í þessari viku, sem kæmi fram á fundi ríkisstjórn- arinnar næsta föstudag. Einnig sé unnið að aðgerðum fyrir skuldug- ustu heimilin, til viðbótar við það sem þegar liggur fyrir þinginu. Þetta komi til þingsins öðru hvoru megin við helgina. Samráð um stjórnarskrármál Í þriðja lagi leggur ríkisstjórnin mikla áherslu á stjórnarskrárbreyt- ingar. Sagði Jóhanna að það mál hafi verið samþykkt í þingflokkum Samfylkingar, Vinstri-grænna og Framsóknar. Frjálslyndir séu mjög jákvæðir gagnvart hugmyndunum sem þar koma fram og að álits sjálfstæðismanna sé að vænta næsta miðvikudag. Í millitíðinni verði fundað með formönnum allra flokka. Þar virðist því vera komið samráðið sem þingmenn Sjálfstæðisflokks kölluðu svo mjög eftir við umræður um stjórnlaga- frumvarp Framsóknarflokksins. Formennirnir voru spurðir mikið um hvenær þingið hætti störfum, enda hafa framsóknarmenn og sjálfstæðismenn lýst vilja til að það gerist í næstu viku. Jóhanna sagði hins vegar, eins og áður, að þingið gæti starfað áfram eftir tilkynn- ingu um þingrof, fram í apríl ef vilji sé til þess. „Það er náttúrulega mjög sérkennilegt, miðað við þá stöðu sem er í samfélaginu og þau mörgu mál sem við þurfum að koma í gegn, að það sé allt í einu óskað eftir því að við lokum Alþingi í einn og hálfan mánuð.“ Stein- grímur bætti því við að málin sem stjórnin vildi koma í gegnum þingið á þessum tíma séu aðallega íviln- andi stuðningsaðgerðir við heimili og atvinnulíf. „Til þess þarf þingið auðvitað einhvern starfstíma. Það er mótsögn í því að gagnrýna eina ríkisstjórn fyrir að vinna ekki vinn- una sína annars vegar og vilja meira, en á hinn bóginn heimta að þingið fari strax heim,“ sagði hann. Tvö stór mál enn óunnin Ríkistjórnin hefur nú afgreitt þrjátíu mál, þar af nítján sem sér- stök áhersla er lögð á, en ellefu sem gætu þurft að bíða. Stein- grímur sagði að tvö stór mál séu enn ekki komin fram, annað frá dómsmálaráðherra og hitt frá fjár- málaráðherra. Þau tengist bæði stöðu heimilanna og séu síðustu málin sem nauðsynlegt sé að klára, en séu ekki tilbúin í ríkisstjórn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leiðtogar ríkisstjórnarinnar Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon segja mörg mál koma frá ríkisstjórn til meðferðar Alþingis á næstunni. 30 mál komin en tvö eftir Steingrímur J. segist taka stjórnarandstöðu á orðinu þegar hún segist styðja öll góð mál, þess vegna eigi þingið að starfa eins lengi og hægt er fram að kosningum ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa lagt fram þingsályktun- artillögu um að bygging hátækni- sjúkrahúss verði endurmetin, vegna breytinga á stöðu þjóðarbús- ins. Jón Gunnarsson, Jón Magnússon og Kjartan Ólafsson segja í grein- argerð með tillögunni að fresta verði byggingu hátæknisjúkrahúss- ins um óákveðinn tíma af þessum ástæðum, en á fjárlögum þessa árs séu háar upphæðir ætlaðar til und- irbúnings byggingarinnar. Eðlilegt sé að byggja upp og styrkja þær sjúkrastofnanir sem fyrir eru. „Bygging nýs hátæknisjúkrahúss getur hins vegar ekki verið á dag- skrá fyrr en staða þjóðarbúsins verður önnur og mun betri en nú er.“ onundur@mbl.is Vilja fresta byggingu sjúkrahúss VIÐSKIPTANEFND Alþingis hef- ur lagt fram frumvarp þess efnis að eftirlitsgjald sem fasteignasalar hafa þurft að greiða á hverju ári, upp á 100.000 krónur, verði fellt niður. Gert er ráð fyrir því að nið- urfellingin gildi bara fyrir þetta ár og að í millitíðinni greiðist kostn- aður við starf eftirlitsnefndar Fé- lags fasteignasala úr sjóðum nefnd- arinnar. Sá sjóður er sagður nokkuð digur. Tugir fasteignasala hafa skilað inn starfsleyfum undanfarna mán- uði, til þess að sleppa við að greiða eftirlitsgjald. onundur@mbl.is Vill fella niður eftirlitsgjaldið GUÐRÚN Erlendsdóttir, fyrrver- andi hæstaréttardómari, mun leiða nefnd sem semja á nýjar reglur um skipan dómara. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kynnti nefndina í ríkisstjórn í gær, en auk Guðrúnar eiga þar sæti Hákon Árnason hæstarétt- arlögmaður og Ómar H. Krist- mundsson stjórnmálafræðingur og dósent við HÍ. Meðfram þessu mun starfa sam- ráðshópur félagasamtaka og full- trúa atvinnulífsins. Nefndin á að skila tillögum sínum eigi síðar en 1. september á þessu ári, en hún er skipuð samkvæmt verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar. onundur@mbl.is Vandað til við dómaravalið Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra skipaði í gær Anne Sibert og Gylfa Zoëga í peninga- stefnunefnd Seðlabanka Íslands. Í nefndinni sitja einnig Svein Harald Øygard seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla- bankastjóri og Þórarinn G. Pét- ursson, starfandi aðalhagfræð- ingur bankans. Þórarinn er skipaður af seðlabankastjóra. Anne Sibert er prófessor og deildarstjóri við School of Econo- mics, Mathematics and Statistics í Birkbeck College í Lundúnum. Hún hefur starfað fyrir stofnunina Centre for Economic and Policy Research og fyrir bandaríska seðlabankann. Hún lauk dokt- orsprófi í hagfræði frá Carnegie- Mellon háskólanum í Bandaríkj- unum árið 1982 og er sérfróð um þjóðhagfræði og peningahagfræði. Gylfi lauk doktorsprófi frá Col- umbia háskóla í Bandaríkjunum 1993, varð prófessor við HÍ árið 2002 og er nú skorarformaður við hagfræðiskor. Hann hefur einkum kennt þjóðhagfræði og vinnumark- aðshagfræði, auk þess að vera gestaprófessor við Birkbeck Col- lege. Jóhanna skipaði Gylfa Zoëga og Anne Sibert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.