Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009      !" "   ## # " "    $ #!# " "#   !%# ! # !"# "% !" #$  %# " #" Þetta helst ... ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 0,4% í gær og er lokagildi hennar 820 stig. Mest lækkun varð á hlutabréfum Icelandair Group, eða 3,9%. Þá lækkuðu bréf Össurar um 2,0%. Bréf Marels hækkuðu mest af fé- lögum í úrvalsvísitölunni, eða um 2,3%. Bréf Eimskipafélagsins hækkuðu hins vegar um heil 50,0% í gær úr 0,50 í 0,75 krónur á hlut, en félagið er ekki í úrvalsvísitölunni. gretar@mbl.is Lækkun í Kauphöllinni ● Landsbankinn og Straumur- Burðarás fjárfest- ingarbanki hafa samið um uppgjör krafna á milli bankanna, þar með taldar kröfur vegna pen- ingamarkaðslína, lána, afleiðustaða, skuldabréfa og ábyrgða, samkvæmt tilkynningu frá Straumi. Uppgjörið felur sér í skuldajöfnun og yfirfærslur eigna frá Straumi til Landsbankans. Samningurinn hefur ekki efnisleg áhrif á rekstrarreikning Straums samkvæmt tilkynningunni og engin áhrif á lausafjárstöðu bankans. Hins vegar minnka heildareignir Straums um u.þ.b. 200 milljónir evra. gretar@mbl.is Semja um kröfur ● BINDANDI tilboðum í Senu, dótt- urfélag Íslenskrar afþreyingar (ÍA), var skilað inn í gær. Stjórn ÍA fjallaði um til- boðin á fundi í gær og mun gera það aftur í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun niðurstaða lík- lega liggja fyrir fyrir hádegi í dag, en ekki fengust upplýsingar um hve mörg tilboð bárust í fyrirtækið. Íslensk afþreying hét áður 365 hf., en Sena er umboðs- og dreifingaraðili fyrir erlenda tónlist og tölvuleiki, útgef- andi að íslenskri tónlist auk þess sem félagið á fjögur kvikmyndahús. bjarni@mbl.is Framtíð Senu ræðst væntanlega í dag Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is MP banki er eini kröfuhafi Hansa ehf., eiganda enska knattspyrnu- félagsins West Ham, sem er mót- fallinn því að félagið fái framleng- ingu á greiðslustöðvun sinni. Þetta kom fram á fundi með kröfuhöfum á mánudagsmorgun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Greiðslustöðvun Hansa rennur út á föstudag og þegar liggur fyrir að forsvarsmenn félagsins muni sækj- ast eftir framlengingu á henni. Flestir kröfuhafa Hansa, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, eru önnur félög í eigu hans sjálfs. Eina eign Hansa er enska knattspyrnu- félagið West Ham United. Ásgeir Friðgeirsson, varaformað- ur stjórnar West Ham, segir að þrátt fyrir erfiðleika á alþjóðamörk- uðum þá sé vaxandi áhugi á West Ham. „Það er áhugi hjá mörgum fjárfestum og það væri öllum kröfu- höfum til hagsbóta ef það væri hægt að fylgja því ferli eftir með sölu á West Ham United. Það er erfitt að segja til um verðmæti félagsins, enda er þetta markaðsvara. En fyr- ir síðustu viðskipti með enskt úr- valdsdeildarfélag, sem var Man- chester City í ágústmánuði, fengust 230 milljónir punda. En veröldin hefur breyst mikið síðan þá og við erum ekki með væntingar í þá veru.“ MP Banki enn mótfallinn greiðslustöðvun Hansa Í HNOTSKURN »Björgólfur Guðmundssonkeypti West Ham ásamt Eggerti Magnússyni á 85 millj- ónir punda í nóvember 2006. Auk þess tóku þeir yfir um 22 milljónir punda af skuldum. »Síðast var enska félagiðManchester City keypt í ágúst 2008, áður en alþjóðlega fjármálakreppan skall á. »Kaupverðið á ManchesterCity var 230 milljónir punda og kaupandinn var fjár- festingafélag í eigu konungs- fjölskyldunnar í Abu Dhabi. Að sögn breskra fjölmiðla er talið að hún eigi um 500 millj- arða punda, um 81 þúsund milljarða íslenskra króna. Reuters Til sölu Björgólfur keypti Eggert Magnússon út úr West Ham á sínum tíma. Í kjölfar bankahrunsins var hlutur Björgólfs settur í sölumeðferð. KYNNING Baugs Group fyrir smærri kröfuhafa á föstudaginn í síð- ustu viku um stöðu félagsins var lítið upplýsandi. Það er mat fulltrúa þriggja kröfuhafa sem sátu fundinn, sem Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, og Stefán Hilmarsson stýrðu. Á fundinum var miðað við stöðu Baugs um síðustu áramót. Síðan þá hafa stjórnendur félagsins misst úr aski sínum BG Holding í Bretlandi, M. Holding í Danmörku og nú síðast Mosaic Fashion. Sú kynning sem sýnd var kröfuhöfum var því villandi að mati viðmælenda sem eru ósáttir. Gögnin voru lítið sundurliðuð og erf- itt að átta sig á raunverulegri stöðu félagsins. Smærri fjármálafyrirtæki hafa sent skilanefnd Landsbankans bréf þar sem óskað er formlega eftir að hún falli frá greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi. Því hefur verið hafnað af Landsbankanum. Beiðni Baugs um áframhaldandi greiðslustöðvun í þrjá mánuði verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Líklegra er að beiðnin verði samþykkt. bjorgvin@mbl.is Baugskynn- ing villandi Smærri kröfuhafar fá gamlar upplýsingar HLUTABRÉFAVÍSITÖLUR í helstu kauphöllum Asíu lækkuðu í gær og einnig í Evrópu. Reyndar hækkuðu vísitölurnar víða í Evrópu við opnun markaða en það seig á ógæfuhliðina er leið á daginn og lækkuðu vísitölurnar almennt mik- ið annan daginn í röð. Í Bandaríkjunum hækkuðu hluta- bréfavísitölur almennt við opnun markaða í gær eftir gríðarlega miklar lækkanir í fyrradag. Þá fór Dow Jones-vísitalan til að mynda í fyrsta skipti undir sjö þúsund stig í tólf ár. gretar@mbl.is Miklar lækk- anir á mörk- uðum í Evrópu ÞINGLÝSTIR kaupsamningar á höf- uðborgarsvæðinu í febrúarmánuði síðastliðnum voru 25% fleiri en í jan- úarmánuði. Veltan jókst um liðlega 23% á milli þessara mánaða. Þetta kemur fram í samantekt Fast- eignaskrár Íslands. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2009 var 145 og heildarveltan nam 4,3 milljörðum króna samanborið við 116 kaupsamninga í janúar og veltu upp á 3,5 milljarða. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var um 30 milljónir króna í janúar og febrúar. Breytingin á fjölda kaupsamninga milli ára er mikil því í febrúar 2008 var þinglýst samtals 426 kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu. Veltan nam þá 15,1 milljarði króna. Kaupsamningum fækkaði því um 66% og velt- an dróst saman um 72%. Meðalfjárhæð á kaupsamning í febrúar í fyrra var rúmlega 35 milljónir króna. gretar@mbl.is Kaupsamningum fjölgar lítillega milli mánaða Samdráttur Viðskipti eru lítil. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ERLENDAR eignir Milestone voru seldar á um 25 milljarða íslenskra króna en voru metnar á um 80 millj- arða í lok september síðastliðins, samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Söluverðið á þessum erlendu eign- um, sem eru sænsk fjármála- og tryggingafélög, var mun lægra en skilanefnd Glitnis, sem er langstærsti kröfuhafi Milestone, hafði gert sér vonir um að fá fyrir þær. Skilanefnd- in hafði boðist til að setja allt að 20 milljarða króna inn í Moderna, hið sænska dótturfélag Milestone sem hýsti allar eignir félagins, til að halda yfirráðum yfir eignum þess. Sænska fjármálaeftirlitið (FI) fór hins vegar fram á að enn meira fjármagn yrði flutt inn í félagið ef endurskipulagn- ingaráformin ættu að verða að veru- leika. Þær kröfur þóttu óraunhæfar og því voru sænsku eignirnar settar í söluferli. Fleiri hugmyndum um end- urskipulagningu var einnig varpað fram. Til dæmis var athugað hvort boðlegt þætti að Moderna yrði í beinni eigu stórra kröfuhafa skila- nefndar Glitnis á borð við Deutsche Bank. Guðmundur Ólason, fram- kvæmdastjóri Milestone, segir að sal- an feli í sér talsvert fjárhagslegt áfall. „Þessi ákvörðun er hins vegar tekin í sameiningu af lánardrottnum, stjórn- endum og eigendum félagsins. Þetta er upplýst ákvörðum og örlög Mile- stone eru eftir sem áður í höndum lánardrottna.“ Íslenskar eignir Milestone – Sjóvá, Askar Capital og Avant, munu verða færðar til Íslands en ekki liggur fyrir hvernig eignarhaldi þeirra verður háttað. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segir alveg ljóst að Glitnir verði mjög ráðandi í því hvað verði um þessar íslenskar eignir Milestone. „Það er ekki stefna okkar að eiga þær til lengri tíma. En fyrri eigendur munu ekki eiga þær áfram. Það er alveg klárt.“ Sænsk yfirvöld vildu að of mikið af fjármagni yrði flutt út Eignir Milestone seldar á útsölu Morgunblaðið/Frikki Farið Karl Wernersson var ásamt bróður sínum eigandi Milestone. ● Endurskoðendafyrirtækið Deloitte mun stýra Mosaic Fashions á greiðslu- stöðvunartíma. Fimm fyrirtæki í eigu Mosaic Fashions; Warehouse, Karen Millen, Oasis, Coast, Anoushka G og eignarhlutir í Karen Millen utan Bret- lands hafa verið seld til nýs fyrirtækis, Aurora Fashions, sem skilanefnd Kaupþings stýrir. Haft er eftir Phil Bow- ers hjá Deloitte í Financial Times að salan tryggi framtíð þessara vöru- merkja. „Endurskipulagningin þýðir að 8.700 störfum í þessum fyrirtækjum hefur verið bjargað af Aurora Fas- hions,“ segir Bowers. thorbjorn@mbl.is Deloitte stýrir Mosaic TOYOTA, sem er stærsti bílafram- leiðandi heims, er að íhuga að stytta vinnuviku starfsmanna sinna í Evr- ópu niður í þrjá daga. Ástæðan er sú að útlit er fyrir mesta samdrátt í bílasölu í 35 ár. Árlega bílasýningin í Genf í Sviss hófst í gær og helstu stjórnendur Toyota, sem þar eru staddir, spá því að sala muni dragast saman um 30% á þessu ári og aðeins 15 milljónir bif- reiða muni seljast hjá fyrirtækinu. Þeir spá því jafnframt að það muni taka markaðinn þrjú til fjögur ár að jafna sig, að því er fram kemur á vef breska blaðsins Guardian. Um 22 þúsund starfsmenn vinna hjá Toyota-bílaframleiðandanum í Evrópu. thorbjorn@mbl.is Þriggja daga vinnuvika til skoðunar hjá Toyota Reuters Í Sviss Toyota á sýningunni í Genf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.