Morgunblaðið - 04.03.2009, Side 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
MEIRA en tugur grímuklæddra og vel vopnaðra
manna lét í gær skothríðina dynja á fólksflutn-
ingabíl sem var að flytja landslið Srí Lanka í
krikket til borgarinnar Lahore í Pakistan. Þykir
árásin minna um margt á hryðjuverkin í Mumbai á
Indlandi í nóvember.
Fimm lögreglumenn, sem fylgdu bílnum, féllu í
árásinni og einnig ökumaður fólksflutningabílsins.
Sjö leikmenn og aðstoðarþjálfari særðust.
Krikketliðinu frá Srí Lanka var boðið til Pakist-
ans eftir að Indverjar höfðu afþakkað sama boð af
öryggisástæðum. David Morgan, forseti Alþjóða-
krikketráðsins, sagði í gær að ljóst væri að ekkert
yrði um landsleiki eða önnur alþjóðleg krikketmót
í Pakistan í töluverðan tíma.
Árásarmennirnir, 10 eða 12 að tölu, réðust á bíl-
inn og lögreglumennina á hringtorgi, svokölluðu
Frelsistorgi, í miðborg Lahore. Virtust þeir vel
þjálfaðir og er haft eftir pakistönskum yfirvöldum
að árásin hafi borið mörg einkenni Lashkar-e-Ta-
ibar, hryðjuverkasamtakanna sem eru talin hafa
staðið að baki morðárásunum í Mumbai. Árásar-
mennirnir komust allir undan og er þeirra leitað.
Pakistan meginmiðstöð hryðjuverka
Pakistanstjórn og stjórnvöld á Srí Lanka for-
dæma árásina harðlega en í yfirlýsingu Indlands-
stjórnar sagði að pakistanska stjórnin yrði að upp-
ræta hryðjuverkasamtök í landinu. Þau væru ógn
við allan heim. Talsmaður Kongressflokksins á
Indlandi sagði að Pakistan væri nú „meginmiðstöð
hryðjuverkastarfsemi í heiminum“.
Pakistanskur ráðherra sagði að árásarmennirn-
ir hefðu komið frá Indlandi til að hefna morðanna í
Mumbai. Indverjar væru því í raun að lýsa yfir
stríði gegn Pakistönum. Hafa viðbrögð Pakistana
stundum verið í þessum dúr. svs@mbl.is
Skotárás á krikketlandslið
AP
Hermdarverk Sérfræðingur vinnur að því að
gera sprengju óvirka á árásarstað.
Þriggja er saknað eftir að skjalasafn borgarinnar Köln-
ar í Þýskalandi hrundi til grunna í gær. Byggingin tók
hluta af aðliggjandi íbúðarhúsi með sér í fallinu.
Hús skjalasafnsins var rýmt nokkru áður en það
hrundi og mun öllum hafa tekist að forða sér þaðan en
talið er að níu manns hafi enn verið í íbúðarhúsinu þegar
það hrundi. Ekki er vitað um tildrög þess að húsið
hrundi, en að sögn starfsmanna safnsins höfðu sprungur
byrjað að myndast í húsinu á liðnum vikum. Talið er að
hrunið geti hafa stafað af framkvæmdum við neðanjarð-
arbraut í grenndinni en engar framkvæmdir hafa þó far-
ið fram beint undir húsinu. jmv@mbl.is
AP
Þriggja enn saknað í Köln
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRN Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta vill fá Rússa til að taka
þátt í slagnum gegn klerkastjórninni
í Teheran sem grunuð er um að ætla
að koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Skömmu eftir að Obama tók við
völdum sendi hann Dímítrí Medve-
dev Rússlandsforseta bréf þar sem
hann gaf í skyn að Bandaríkin
myndu hætta við að koma upp gagn-
flaugakerfi í Póllandi og Tékklandi
ef Rússar beittu sér með vesturveld-
unum gegn Írönum.
Rússar hafa lengi fordæmt gagn-
flaugahugmyndir Bandaríkjamanna
og sagt þær beinast gegn sér. En
þeir halda nú spilunum þétt að sér
enda mikið í húfi. Medvedev hefur
sagt að hann álíti að stjórn Obama
vilji semja um gagnflaugakerfið og
vonandi muni Bandaríkjamenn setja
fram skýrar tillögur. En hann sagði í
gær af og frá að einhvers konar
hrossakaup kæmu til greina.
Markmið Obama mun vera að fá
Rússa til að taka þátt í hertum við-
skiptalegum refsiaðgerðum til að
þvinga Írana, fá þá til að stöðva til-
raunirnar. Lækkandi olíuverð á
heimsmarkaði hefur grafið undan
stöðu Írana og einnig er ljóst að þeir
gætu lent í miklum vanda ef sett yrði
bann við innflutningi á bensíni og
dísilolíu til landsins. Þrátt fyrir olíu-
auðinn er þegar skortur á þessum
vörum vegna þess að olíuhreinsi-
stöðvar Írana er fáar og úreltar.
Rússar eru í lykilstöðu. Þeir
reistu tilraunakjarnorkuver Írana í
Bushehr og hafa ásamt Kínverjum
lagt sig fram um að útvatna sam-
þykktir í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna sem hefur gagnrýnt Írana
fyrir meint brot á alþjóðasamn-
ingum gegn útbreiðslu kjarnavopna.
Nú bíða margir spenntir eftir
fundi utanríkisráðherranna Hillary
Clinton og Sergeis Lavrovs í Genf á
föstudag en Rússar segja að þar
megi vænta tíðinda. Obama hefur
sagt að hann vilji reyna að semja
beint við Írana en fyrstu viðbrögð
þeirra hafa verið neikvæð. Og Clin-
ton efast um að samningatilraunin
beri árangur. „Við gerum okkur
engar gyllivonir,“ sagði hún á fundi
með utanríkisráðherra Sameinuðu
furstadæmanna á mánudag.
Rætt um hrossakaup
Obama vill að Rússar hætti stuðningi við Írana gegn því að
tillögur um gagnflaugakerfi í A-Evrópu verði lagðar á hilluna
UM 120 nýir eða breyttir bílar verða sýndir á bílasýningunni í Genf, sem
hefst á morgun, og margir þeirra endurspegla efnahagsástandið í heim-
inum því við hönnun þeirra var lögð áhersla á sparneytni. Á meðal þeirra
er iChange, rafknúinn hugmyndabíll sem svissneski hönnuðurinn Frank
Rinderknecht hannaði. Bíllinn er eins sætis sportbíll sem hægt er að breyta
í þriggja sæta bíl á nokkrum sekúndum með því að ýta á hnapp.
Á meðal annarra bíla á sýningunni er evrópsk gerð ódýrasta fólksbíls
heims, Nano, sem indverska bílafyrirtækið Tata framleiðir. Hann mun
kosta 5.000 evrur, eða um 725.000 krónur. bogi@mbl.is
Svissneski bílaframleiðandinn Rinspeed sýnir hugmyndabílinn iChange
í fyrsta skipti á bílasýningunni í Genf sem hefst á morgun, fimmtudag.
Athyglisverðasti eiginleiki bílsins felst í því að hann getur breytt um
lögun eftir því hversu margir farþegarnir eru.
Heimild: Rinspeed * Þrír liþíum-jóna rafgeymar notaðir
BÍLL SEM BREYTIR UM LÖGUN
ÞYNGD 1.050 kg
AFKÖST
HÁMARKSHRAÐI 220 km/klst*
HRÖÐUN
0-100 KM/KLST 4,2 s*
VÉL
Siemens-rafmótor,
6-hraða Subaru-gírkassi
VÉLARAFL
150 kW, um 200 bhö
SNÚNINGSVÆGI 370 nm
DRÆGI 90 km*
HLEÐSLUTÍMI 3 klst
ÚTBLÁSTUR Enginn
Undirvagn:
ál, stál
Bílskrokkur:
Trefjablanda
klædd með
sólarpanel
Rafknúið þak,
búið sólarrafhlöðum,
færist fram til að farþegar
geti stigið inn
í bílinn
Bíllinn er
opnaður með
iPhone
100
mm
Pirelli-hjólbarðar
Hugmyndabíllnn iChange
1,8 metrar 4,28 metrar
Eins sætis bíll
Lítið
loftviðnám
Lögunin, sem minnir á
tárdropa, dregur úr loft-
viðnáminu og eykur því
sparneytnina
Allt að tveir farþegar
Loftviðnámið eykst
Þegar ýtt er á hnapp lyftist afturend
þaksins á nokkrum sekúndum
til að tveir farþegar komist fyrirSéð inn í bílinn að ofan
iPhone ræsir bílinn,
stjórnar hljóðkerfi
bílsins
Klæddur
að innan
með hreinni
ull og leðri
LCD-skjár,
leiðsögukerfi
Áhersla lögð á sparneytniVilja Rússar semja um málið?Líklegt er að þeir séu samningafús-
ari nú en áður. Þeir eiga við sama
vanda að stríða og Íranar, lægri út-
flutningstekjur vegna fallandi olíu-
verðs. Þegar er farið að bera á óró-
leika innanlands. Medvedev og
Vladímír Pútín forsætisráðherra
gætu sagt sem svo að nú væri rétti
tíminn til að bæta samskiptin við
vesturveldin með því að fórna Íran.
Eru gagnflaugarnar mikilvægar?
Obama hefur sagt að hann geti að-
eins stutt hugmyndina ef flaug-
arnar virki. Margir efast um að það
verði reyndin. Tæknin sem þurfi til
að skjóta niður eldflaug með ann-
arri flaug sé einfaldlega ekki orðin
nógu fullkomin. Fórnin er því ekki
endilega mikil af hálfu stjórnvalda í
Washington ef samið verður við
Rússa.
S&S
STJÓRNVÖLD í Kína hafa á prjón-
unum að gera 59 uppistöðulón, sem
taka skuli við leysingavatni frá jökl-
um. Þeir rýrna með ári hverju vegna
loftslagsbreytinga og að sama skapi
vex óttinn við yfirvofandi vatnsskort
í þessu fjölmennasta ríki heims.
Lónin verða flest í Xinjiang-héraði
en þar eru flest hæstu fjöll í Kína og
mestu jöklarnir. 80% þeirra hafa
minnkað og sumir um 20%. Í borg-
unum í héraðinu hafa vatnsbirgðir
heldur aukist á síðustu árum en vís-
indamenn segja, að það sé vegna
aukinnar bráðnunar og því í raun að-
eins stundarfyrirbrigði.
Mestar áhyggj-
ur hafa menn þó
af jöklabúskapn-
um í Tíbet, í Him-
alajafjöllum, en
haldi þeir áfram
að rýrna er mikil
vá fyrir dyrum,
ekki aðeins í
Kína, heldur á
stórum svæðum í
Suðaustur-Asíu,
Indlandi og Bangladesh. Vatns-
skortur í þessum heimshluta getur
haft alvarleg áhrif á afkomu mörg
hundruð millj. manna. svs@mbl.is
Kínverjar búa sig
undir vatnsskort
Jöklar eru upp-
spretta fljótanna.
Í GÆR var alþjóðlegi kvaðratrót-
ardagurinn en í þeim dögum, sem
fá það heiti, eru tölurnar fyrir dag
og mánuð kvaðratrót af síðasta eða
síðustu tölustöfum í ártalinu.
Í gær var 3.3.09 og þrír eru
kvaðratrót af níu. Síðasti kvaðr-
atrótardagur var 2.2. 04 en sá næsti
verður ekki fyrr en 4.4. 2016.
Það var áhugamaður um tölur og
stærðfræði í Kaliforníu, ökukenn-
arinn Ron Gordon, sem tók fyrst
eftir þessu og síðan hefur hann
safnað um sig hópi annarra áhuga-
samra um leyndardóma talnanna.
Eiga þeir sinn vettvang á Facebook
eða Vinamótinu. svs@mbl.is
Kvaðratrót-
ardagurinn