Morgunblaðið - 04.03.2009, Page 34

Morgunblaðið - 04.03.2009, Page 34
34 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009 Sudoku Frumstig 5 1 3 7 6 7 5 4 3 7 1 1 8 2 4 2 6 3 5 6 7 8 9 5 1 2 4 8 6 4 2 5 8 8 9 1 2 5 1 6 3 4 8 5 5 1 7 2 7 8 2 1 8 9 8 3 5 9 4 5 2 7 7 3 5 5 4 1 8 8 7 6 4 6 1 9 3 7 8 1 9 3 7 2 3 7 5 2 6 1 8 9 4 6 1 8 5 4 9 2 3 7 9 2 4 7 3 8 1 5 6 1 5 3 6 7 2 4 8 9 4 6 7 9 8 3 5 2 1 8 9 2 1 5 4 7 6 3 5 8 6 4 9 7 3 1 2 7 3 1 8 2 6 9 4 5 2 4 9 3 1 5 6 7 8 9 1 4 2 3 6 5 8 7 7 6 3 9 5 8 2 1 4 8 5 2 7 4 1 3 6 9 2 3 8 6 1 4 9 7 5 6 4 9 8 7 5 1 2 3 5 7 1 3 2 9 8 4 6 1 8 5 4 6 3 7 9 2 4 9 7 5 8 2 6 3 1 3 2 6 1 9 7 4 5 8 3 7 6 9 8 1 4 5 2 9 4 8 2 7 5 1 3 6 2 1 5 6 3 4 8 9 7 7 5 9 1 6 8 3 2 4 4 3 1 5 2 9 6 7 8 6 8 2 3 4 7 9 1 5 8 9 3 7 5 6 2 4 1 5 2 4 8 1 3 7 6 9 1 6 7 4 9 2 5 8 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist töl- urnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 4. mars, 63. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik. (1Pt. 3, 10.) Víkverji rak upp stór augu við aðsjá að biskupinn væri farinn að ryðja sér til rúms á Facebook, fés- bókinni á netinu. Þegar svo er komið hefur öllum hindrunum verið rutt brott. Fésbókin og skyld fyrirbæri eru að breyta samskiptum fólks, en hversu miklir vinir eru vinirnir á netinu? Í grein í tímaritinu Der Spiegel í þessari viku eru þeir kall- aðir ókunnugir vinir og í mörgum til- vikum er það lóðið. x x x Ánetinu opinbera milljónirmanna einkalíf sitt með hætti, sem þeim dytti ekki í hug að gera á öðrum vettvangi. Þar setur fólk til dæmis myndir af sjálfu sér, sem það myndi aldrei hengja upp heima hjá sér. Það er eins og fólk sé gjör- samlega laust við tortryggni og virð- ingu fyrir eigin einkalífi á netinu og tilbúið að birta hvað sem er. x x x ÍBandaríkjunum notar um helm-ingur þeirra, sem aðgang hefur að netinu einhvern hinna félagslegu vefja og meirihluti þeirra daglega. Sömu tilhneigingar mun gæta í Evr- ópu. Rúmlega 175 milljónir manna hafa skráð sig á Facebook frá því að fyrirbærið var stofnað fyrir fimm ár- um. Tekjumöguleikarnir á þessum vefjum felast ekki í auglýsingum, heldur upplýsingum. Upplýsing- arnar, sem þar er að finna, eru gull- náma fyrir markaðssetningarmenn og einstaklingarnir hafa sjálfir kast- að persónuverndinni frá sér. Sem dæmi má nefna að á Facebook eru notendur beðnir að geta hjóna- bandsstöðu (á Bretlandi breytti kona ein hjónabandsstöðu sinni úr „gift“ í „einhleyp“ og þegar maðurinn henn- ar komst að því trylltist hann og stakk hana á hol) og setja inn upp- lýsingar um menntun. Í kaupbæti fylgja oft upplýsingar um áhugamál og neysluvenjur. Vefurinn er ekki bara áhugaverður fyrir markaðs- menn. Fræðimenn geta einnig kom- ist að ýmsu með því að slóðadraga félagslegu vefina, til dæmis til þess að rannsaka hvernig straumar og stefnur breiðast út. Á netinu er ekk- ert einkalíf. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hrærð, 4 getið um, 7 dans, 8 sló, 9 ar- inn, 11 renningur, 13 skrifa, 14 þáttur, 15 hanga, 17 tréílát, 20 kyrrsævi, 22 kveif, 23 viðurkennir, 24 rétta við, 25 þvo. Lóðrétt | 1 málmur, 2 fiskum, 3 ístra, 4 sögn í spilum, 5 fól, 6 sjúga, 10 seinka, 12 keyra, 13 bók, 15 slátrar, 16 snjói, 18 nagdýrs, 19 súta, 20 bein, 21 tóbak. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 teprulegt, 8 málum, 9 gemsa, 10 jag, 11 narra, 13 seigt, 15 hvarf, 18 hrasa, 21 lár, 22 feita, 23 akrar, 24 tungutaki. Lóðrétt: 2 eflir, 3 rymja, 4 leggs, 5 gumsi, 6 smán, 7 fatt, 12 rýr, 14 eir, 15 hafi, 16 atinu, 17 flagg, 18 hratt, 19 afrek, 20 aurs. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O 5. Rge2 d5 6. a3 Be7 7. cxd5 exd5 8. b4 c6 9. Rg3 He8 10. Bd3 Rbd7 11. O-O Rb6 12. f3 a5 13. Hb1 axb4 14. axb4 Be6 15. Rge2 g6 16. Kh1 Rh5 17. Dc2 Bd6 18. e4 dxe4 19. fxe4 Dh4 20. e5 Be7 21. Be4 Bc4 22. Kg1 Rg7 23. Bd2 Dg4 24. Hf3 Rd5 25. h3 Dd7 26. Bxd5 Bxd5 27. Rxd5 Dxd5 28. Hbf1 f6 29. Bc3 fxe5 30. dxe5 Ha2 31. Bb2 Bxb4 32. Kh1 Re6 33. Hf6 Dd2 34. Dc4 Hxb2 35. Hxe6 Hxe6 36. Dxe6+ Kg7 37. Df6+ Kh6 38. Rf4 Bc5 39. Dh4+ Kg7 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Gíbraltar. Svissneski stórmeistarinn Vadim Mi- lov (2669) hafði hvítt gegn spænska kollega sínum Salvador del Rio (2532). 40. Rh5+! og svartur gafst upp enda óverjandi mát eftir 40… gxh5 41. Df6+ Kg8 42. Df7+ Kh8 43. De8+. Hvítur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarsonc | ritstjorn@mbl.is Máttur fjöldans. Norður ♠D1082 ♥KG7 ♦74 ♣ÁG85 Vestur Austur ♠7 ♠9543 ♥9865 ♥Á4 ♦D1092 ♦K853 ♣9764 ♣KD3 Suður ♠ÁKG6 ♥D1032 ♦ÁG6 ♣102 Suður spilar 4♠. Það kemur á óvart, en 4♠ fóru alls staðar niður í þessu spili Reykjavík- urmótsins. Ástæðan er fjórlitur aust- urs í trompi, sem þvælist illa fyrir sagnhafa. Vill lesandinn spreyta sig með ♦10 út? Freistingin er sú að taka ♦K með ás og spila trompi tvisvar. En þá er samn- ingurinn farinn fjandans til. Hjartaás- inn þarf að brjóta út og austur getur sótt sér stungu á litinn með því að spila hjarta um hæl á meðan samgangur er í tíglinum. Betri byrjun er að dúkka ♦K í fyrsta slag. En björninn er ekki unn- inn við það eitt. Austur spilar aftur tígli og nú er fátt eðlilegra en að taka tvisv- ar tromp. Það má hins vegar ekki. Samgangurinn er of þungur til að gera allt sem gera þarf. Eina vinningsleiðin er að dúkka tígul, taka í mesta lagi eitt tromp og sækja svo ♥Á. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert öruggur með sjálfan þig og það hefur þau áhrif á aðra að þeir fela þér glaðir þá forustu sem þú vilt. (20. apríl - 20. maí)  Naut Sýndu maka þínum eða góðum vini sérstaka tillitssemi í dag. Svona eins og ef hún/hann væri gestur í eigin brúð- kaupi. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú er kominn tími til að eyða minna en þú hefur gert undanfarið. Arf- leifðin hjálpar þér við vinnuna, en þú þarft samt að leggja þitt af mörkum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þetta ætti að verða skemmtilegur dagur. Ræddu við einhvern þér eldri og vitrari því það getur komið sér vel. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það gengur ekki að ræða ekki málin við þá sem þú þarft að eiga samstarf við. Best er að láta neikvæðar hugsanir hverfa úr huga sér. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Einhver reynir að gera þér lífið leitt svo nú reynir verulega á þolinmæð- ina. Sjáðu broslegu hliðarnar og haltu þínu striki. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þótt rétt sé að gefa sér tíma til að kanna málavöxtu kemur alltaf að því að það verður að taka ákvörðun. Sýndu var- kárni í rómantíkinni, sama hversu spenntir báðir aðilar eru. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Stundum brenna á þér spurningar sem þú færð engin svör við. Láttu réttlætiskennd þína leiða þig og þú munt koma öllum málum farsællega í höfn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vertu ekki að streða við hlut- ina einn í þínu horni því nú er það hóp- starfið sem gildir. Hlustaðu á innsæi þitt og gefðu þér tíma til að finna bestu lausnina. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er eitthvað að brjótast um í þér sem þú getur ekki alveg fest fingur á. Skoðaðu stöðuna vandlega áður en þú ákveður að breyta til. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það getur verið notalegt að láta hugann reika. Ef þér finnst þú ekki hafa neitt merkilegt að ræða um hringir þú ekki í fólk. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það gengur ekki að drottna einn yfir öllu þegar um samstarf við aðra er að ræða. Sýndu dirfsku í samskiptum þínum við aðra. Stjörnuspá 4. mars 1213 Hrafn Sveinbjarnarson, goð- orðsmaður á Eyri við Arn- arfjörð, var veginn, um 47 ára. Hann var annálaðasti læknir á þjóðveldisöld. 4. mars 1957 Kvikmyndin „Rock around the clock“ var frumsýnd í Stjörnu- bíói. „Unga fólkið virtist skemmta sér prýðilega, vagg- aði og klappaði lófunum í takt við hljómfallið í hinum æsandi rokklögum Bill Haleys, rokk- kóngsins fræga.“ Löng biðröð hafði myndast þegar miðasala hófst og keyptu sumir meira en tuttugu miða. Myndin var sýnd þrisvar á dag í rúmar þrjár vikur. 4. mars 1964 Fimm íslenskar hljómsveitir léku í Háskólabíói. Mesta hrifningu vöktu Hljómar. Þetta hafa verið taldir fyrstu bítlatónleikarnir hér á landi. 4. mars 1971 Upp- stoppaður geirfugl var sleg- inn Ís- lend- ingum á uppboði í London, en safnað var fyrir honum um land allt áður en uppboðið fór fram. Fuglinn er nú á Náttúrufræðistofnun. 4. mars 1998 Rithöfundasamband Íslands efndi til minningarstundar við bautastein Sigurðar Breið- fjörð í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík en þennan dag voru 200 ár frá fæðingu hans. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … JÓN Ingi Jónsson, flugumferðarstjóri á Keflavík- urflugvelli, er 26 ára og sér fram á notalegan af- mælisdag. „Það vill nú þannig til að ég á frí af því ég er í vaktavinnu, svo við höfðum hugsað okkur að sofa eitthvað fram eftir morgni og kíkja svo út úr bænum, kannski í sund. En það hefur nú snjóað svo mikið núna svo mér datt í hug að eyða kannski deginum í Bláfjöllum í staðinn,“ segir Jón Ingi sem er sprækur á skíðum en hefur ekki reynt sig við snjóbrettið ennþá. „Mig langar að prófa samt, ég þarf bara að fá einhvern með mér sem er jafnmik- ill byrjandi og ég, en flestir vinir mínir eru á bretti.“ Hann gerir því ráð fyrir að halda sig við skíðin á afmælisdag- inn til að vera nú örugglega í heilu lagi þegar hann fer út að borða um kvöldið með kærustunni, Hönnu Rut Hafsteinsdóttur. „Það verður engin veisla eða vesen því það var heljarinnar partí hjá okkur um helgina,“ segir Jón Ingi, en á laugardaginn varð Hanna Rut einmitt 25 ára og þá héldu þau tvöfalda afmælisveislu. „Það var búningapartý, mjög vel heppnað. Allir mættu í búning og margir lögðu mjög mikið á sig,“ segir Jón Ingi sem er ekki frá því að þetta sé með skemmtilegri afmælum, eða allavega það ferskasta í minningunni. una@mbl.is Jón Ingi Jónsson flugumferðarstjóri 26 ára Tapas með kærustunni Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Reykjavík Hólmfríður Eyja fæddist 24. október kl. 19.05. Hún vó 3.520 g og var 53 cm löng. For- eldrar hennar eru Hilma Hólmfr. Sigurðardóttir og Jón Björn Ólafsson. Reykjavík Lúkas Logi fæddist 26. janúar kl. 17.14. Hann vó 16.5 merk- ur og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Þóra Björk Sveinbjörnsdóttir og Jón Snær Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.