Morgunblaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
Hart í bak (Stóra sviðið)
Þrettándakvöld (Stóra sviðið)
Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan)
Eterinn (Smíðaverkstæðið)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fim 5/3 kl. 20:00 U
Fös 6/3 kl. 20:00 U
Fös 13/3 kl. 20:00 frums. U
Fim 19/3 kl. 20:00 2.sýn. Ö
Fös 20/3 kl. 20:00 3.sýn.
Lau 7/3 kl. 13:00 U
Lau 7/3 kl. 14:30
Lau 14/3 kl. 13:00 Ö
Mán16/3 kl. 21:00 fors. Ö
Þri 17/3 kl. 20:00 fors. Ö
Lau 14/3 kl. 20:00 aukas. U
Mið 18/3 kl. 20:00 U
Fim 26/3 kl. 20:00 4.sýn.
Fös 27/3 kl. 20:00 5.sýn. Ö
Fös 3/4 kl. 20:00 6.sýn.
Lau 14/3 kl. 14.30
Lau 21/3 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 14:30
Fim 19/3 kl. 21:00 fors. Ö
Fös 20/4 kl. 21:00 frums. U
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Ö
Mið 1/4 kl. 20:00 aukas.
Fim 16/4 kl. 20:00 7.sýn.
Lau 28/3 kl. 13:00 U
Lau 28/3 kl. 14:30
Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningu
Aukasýningar í sölu, sýningum lýkur í apríl
Í samstarfi við Nemendaleikhús LHÍ
Fim 26/3 kl. 21:00
Fös 27/3 kl. 21:00
Lau 28/3 kl. 14:00 U
Lau 28/3 kl. 17:00 U
Sun 29/3 kl. 14:00 U
Sun 29/3 kl. 17:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Lau 18/4 kl. 14:00 U
Lau 18/4 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 14:00 U
Lau 7/3 kl. 14:00 U
Lau 7/3 kl. 17:00 U
Sun 8/3 kl. 14:00 U
Sun 8/3 kl. 17:00 U
Lau 14/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 17:00 U
Lau 21/3 kl. 14:00 U
Lau 21/3 kl. 17:00 U
Sun 22/3 kl. 14:00 U
Sun 22/3 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 17:00 U
Lau 25/4 kl. 14:00 U
Lau 25/4 kl. 17:00 U
Sun 26/4 kl. 14:00 U
Sun 26/4 kl. 17:00 U
Sun 3/5 kl. 14:00 U
Sun 3/5 kl. 17:00 U
Þri 5/5 kl. 18:00U U
Sun 10/5 kl. 14:00 U
Sun 10/5 kl. 17:00 U
Lau 16/5 kl. 14:00 U
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Lau 7/3 kl. 19:00 Lau 14/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 19.00
Lau 04/04 kl. 19.00
Fim 17/04 kl 19.00
Yfir 140 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Sun 8/3 kl. 20.00
Fim 12/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 20.00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Síðasta sýning 15. mars.
.
Fös 6/3 kl. 19.00
Fös 6/3 kl. 22.00
Fös 13/3 kl. 19.00
Fös 13/3 kl. 22.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 22.00
Lau 21/3 kl. 19.00
Lau 21/3 kl. 22.00
Fös 27/3 kl. 19.00 (Stóra sviðið)
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Lau 21/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 20.00
Sun 15/3 kl. 20.00 (síð.sýn.)
Lau 28/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 22.00
Mið 1/4 kl. 20.00
Fim 2/4 kl. 20.00
Mið 4/3 kl. 20.00 aukas
Fim5/3 kl. 20.00 3kort
Fös 6/3 kl. 20.00 4kort
Mið 11/3 kl. 20.00 5kort
Fim 12/3 kl. 20.00 6kort
Sun 15/3 kl. 20.00 7kort
Fim 19/3 kl. 20.00 8kort
Fös 20/3 kl. 20.00 9kort
Fim 26/3 kl. 20.00 10kort
Sun. 29/3 kl. 20.00
Fim. 2/4 kl. 20.00
Fös. 3/4 kl. 19.00
Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið)
Æðisgengið leikrit um græðgi, hatur og ást.
Fim 5/3 kl. 20.00
Fös 6/3 kl. 20.00
Lau 7/3 kl. 20.00
Óskar og bleikklædda konan (Litla sviðið)
Mið 04/3 kl. 20.00 fors
Fim 05/3 kl. 20.00 frums
Sun 08/3 kl. 20.00 2. kort
Mið 11/3 kl. 20.00 3. kort
Fim 12/3 kl. 20.00 4. kort
Sun 15/3 kl. 20.00 5. kort
Fös 20/3 kl. 19.00
Fim 26/3 kl. 20.00
Fös 27/3 kl. 19.00
Fös 13/3 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/3 kl. 22:00 aukas.
Rústað eftir Söru Kane – JVJ, DV
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Falið fylgi
Lau 7/3 kl. 19:00 Aukas
Sala í fullum gangi
Fúlar á móti
Fim 5/3 kl. 20:00 Aukas Fös 13/3 kl. 19:00 10.kort Lau 21/3 kl. 19:00 Sýning
Fös 6/3 kl. 19:00 7.kortas Fös 13/3 kl. 21:30 Aukas Lau 21/3 kl. 21:30 Aukas
Fös 6/3 kl. 21:30 Aukas Sun 15/3 kl. 20:00 11.kort Fös 27/3 kl. 20:00 Sýning
Lau 7/3 kl. 20:00 8.kortas Fim 19/3 kl. 20:00 Sýning
Fim 12/3 kl. 20:00 9.kortas Fös 20/3 kl. 19:00 Sýning
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
EYÐUN finnst mér einna mestur
kóloristi færeyskra listamanna í
dag. Hann hefur ótrúlega mikið
vald á litum.“
Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræð-
ingur er að tala
um færeyska list-
málarann Eyðun
av Reyni, en fyr-
ir skemmstu kom
út í Færeyjum
falleg bók sem
Aðalsteinn ritaði
um listamanninn
og Listasafn Færeyja gefur út.
„Eyðun er á sömu slóðum og
margir kollegar hans, er að vinna
með ákveðin Færeyjaminni. Það eru
land, sjór og himinn, þessi þrískipt-
ing myndflatarins sem hann vinnur
alla tíð með, en hann nær út úr þess-
um tiltölulega einföldu forsendum
ótrúlega stórbrotnum og lýrískum
myndskáldskap.“
Aðalsteinn segir að í Færeyjum
hafi þróast ótrúlega frjó málaralist,
sem byggist mikið á þessum
tengslum við landið og þorpið við
hafið.
„Í öðrum löndum, og jafnvel hér
heima, hefur maður heyrt að mönn-
um finnist þetta gamaldags mynd-
list, að hún byggist á gamaldags for-
sendum og að Færeyingar ættu að
drífa sig í að verða meira móderne,“
segir hann. „ En þetta er myndlist
sem er sönn og hentar þeim. Ef þú
kemur á venjulegt heimili í Fær-
eyjum, þá er allt betrekkt með verk-
um eftir þessa listamenn. Þeir eiga
sér mjög sterk bakland. Þessi mynd-
list nægir þeim og er mjög fín.“
Kynntist listamönnunum
Aðalsteinn ritaði fyrir nokkrum
árum textann í mikla bók um S.J.
Mikines, sem kallaður er faðir fær-
eyskrar málarahefðar. Hann segist
hafa komið reglulega til Færeyja á
síðustu þremur áratugum en það
var ekki fyrr en hann vann að bók-
inni um Mikines sem hann kynntist
færeyskum listamönnum fyrir al-
vöru.
„Þá var ég langdvölum í Fær-
eyjum, tók þar tveggja, þriggja
vikna tarnir á eins og hálfs árs tíma-
bili, við vinnuna að því verkefni. Þá
kynntist ég öllum þessum lista-
mönnum og upp úr því varð vin-
skapur við þá marga, meðal annars
Bárð Jákupsson, Helga Fossádal
forstöðumann Listasafns Færeyja,
og Eyðun av Reyni. Ég mat Eyðun
strax mikils, útaf hans mannkostum
og list.“ Þá þekkti Aðalsteinn einnig
Ingálv, föður Eyðuns sem var einn
kunnasti listamaður eyjanna. Hann
lést árið 2005.
„Eftir að Mikines kom út hafði
Helgi Fossádal samband og bað mig
að gera þessa bók um Eyðun,“ segir
Aðalsteinn, sem tók verkefninu
fagnandi. Í bókinni eru auk skrifa
Aðalsteins á níunda tug málverka
eftir Eyðun.
Einn mesti kóloristinn
Aðalsteinn Ingólfsson hefur ritað bók um færeyska lista-
manninn Eyðun av Reyni „Þetta er myndlist sem er sönn“
Aðalsteinn
Ingólfsson
Málari litanna Færeyski listamaðurinn Eyðun av Reyni á vinnustofunni.
SÝNINGIN „Nokkrir vinir“ í
Listasafni Íslands er sú fyrsta af
einungis fjórum sýningum sem
eru á dagskrá safnsins í ár. Fæð
sýninga á árinu tengist líklega
fjárskorti safnsins í kjölfar krepp-
unnar, en fyrir vikið mun hver
sýning hafa meira vægi en ella.
Þema sýningarinnar hverfist um
svissneska listamanninn Dieter
Roth og SÚM hópinn en það þema
virðist nokkuð ofnotað nú hin síð-
ari ár. Kannski verið aðgengilegt
að grípa til með litlum fyrirvara
þegar ekki voru lengur forsendur
til að setja upp fyrirhugaða sýn-
ingu með verkum mexíkósku lista-
konunnar Frídu Kahlo.
Titillinn „Nokkrir vinir“ er svo-
lítið írónískur og útskýrir á ber-
söglan hátt á hvaða forsendum
listakreðsur verða til og leggur
áherslu á mikilvægi hinna per-
sónulegra tengsla innan listheims-
ins þá ekki síður en nú. Eins og
áður í mótun listasafnanna á ís-
lenskrar listasögu er passað upp á
að „óviðkomandi“ eða „óverðugir“
komist ekki inn í kreðsuna sem í
þessu sérstaka tilfelli á að end-
urspegla framsækna samtímalist á
Íslandi. Á vef Listasafns Íslands
má lesa fróðlegan texta þar sem
listamenn sýningarinnar og verk
þeirra eru tengd við mikilvægar
listastefnur og sett í alþjóðlegt
samhengi en það eru tengingar
sem hingað til hefur þótt hið
mesta hrós sem hægt er að segja
um íslenska list. Það er hins vegar
engin sýningarskrá á sýningunni
sjálfri, ekki svo mikið sem einblöð-
ungur sem er nánast óverjandi
þrátt fyrir efnahagsástandið. Upp-
lýsingar um einstaka listamenn
eða verk á plöstuðum spjöldum
sem hægt er að nálgast við inn-
ganga salann bæta þar lítið um.
Sýningin stendur fyrir um leið
og hún geldur fyrir kreppulegt
andrúmsloftið í Listasafninu. Lok-
uð kaffistofan og upplýsingaskort-
ur um sýninguna stuðla að því,
ásamt ákveðnu skeytingarleysi um
sjálfa myndlistina með því að stilla
jafnvel upp stólum í sýningarrým-
inu á opnunartíma vegna útleigu
sala safnsins fyrir tónleika að
kveldi.
Þrátt fyrir þetta nöldur er und-
irrituð alls ekki að halda því fram
að sýningin sjálf sé ómerkileg að
neinu leyti. Hún er í heildina
áhugaverður þverskurður af list
viðkomandi listamanna og er fal-
lega hengd upp í sýningarsölum
safnsins. Sum verkanna eru sjald-
séðari en önnur og fengur í því að
fá tækifæri til að skoða þau. Þar
mætti t.d. nefna poplistaverk Arn-
ars Herbertssonar og Sigurjóns
Jóhannssonar sem gerðu háðs-
legar klippmyndir af neyslu-
samfélaginu þar sem konur voru
hluti af neysluvörunum. Síðasta
vinnustofuruslaverk Dieters Roth
sem hann vann á Seyðisfirði með
fjölskyldu sinni tekur sig vel út í
anddyrinu og kvikmynd Hilmars
Oddsonar um listamanninn er
varpað á vegg í hliðarsal.
Þegar upp er staðið er sýningin
áhugaverður og ánægjulegur við-
burður sem óhætt er að mæla
með. Þjóðbúningur Rúríar, hnífa-
skrímsli Jóns Gunnars, gjörn-
ingar Magnúsar Pálssonar, lím-
bandsverk Harðar Ágústssonar
ásamt verkum allra hinna eru til
þess fallin að lyfta upp geðinu í
takt við hækkandi sól. Ekki hefði
þó spillt fyrir að sjá pólitísk vef-
verk eftir Hildi Hákonardóttur í
þessu samhengi, listaverk sem
margir hafa lesið um og jafnvel
séð myndir af en fæstir barið
augum á sýningum. Nú er kom-
inn tími og rými til skoðunar og
endurskoðunar á íslenskri mynd-
listararfleifð. Slík skoðun er nú
þegar orðin auðveldari en áður
með aðgengi gesta Listasafns Ís-
lands að öllum verkum safnsins í
tölvutæku formi í kjallara safns-
ins.
Listasafn Íslands
samsýning
bbbnn
Arnar Herbertsson, Björn Roth, Dieter
Roth, Erró, Hreinn Friðfinnsson, Hörður
Ágústsson, Jóhann Eyfells, Jón Gunnar
Árnason, Kristján Guðmundsson, Magn-
ús Pálsson, Magnús Tómasson, Róska,
Rúrí, Sigurð Guðmundsson, Sigurjón
Jóhannsson, Þórður Ben Sveinsson.
Auk þess verður kvikmynd Hilmars
Oddsonar um Dieter Roth sýnd í
tengslum við sýninguna. Sýningar-
stjórar: Björn Roth, Halldór Björn Run-
ólfsson og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.
Hönnun sýningar: Ívar ValgarðssonSýn-
ingin stendur til 3. maí 2009. Opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 11-17.
ÞÓRA
ÞÓRISDÓTTIR
MYNDLIST
Vinirnir í listasafninu
Poplist Ein klippimynda Sigurjóns Jóhannssonar á sýningunni.