Morgunblaðið - 04.03.2009, Síða 38
38 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2009
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG er einn í þessu og mér gengur
bara andskoti vel,“ segir Krist-
mundur Axel Kristmundsson, betur
þekktur sem MC Krizz, 15 ára gam-
all rappari úr Grafarvogi sem vakið
hefur athygli að undanförnu. Þótt
Kristmundur hafi ekki enn sent frá
sér sína fyrstu plötu nýtur My-
Space-síða hans mikilla vinsælda,
enda semur hann beinskeyttar rím-
ur á íslensku. „Ég hef verið að skrifa
texta í rúm tvö ár, og á það til að
semja ljóð líka. Vinur minn semur
svo lög sem ég nota, þótt ég semji
þau stundum sjálfur líka,“ útskýrir
rapparinn.
Engin ástarsorg
Kristmundur bar sigur úr býtum í
söngvakeppni Grafarvogs í lok jan-
úar og tók í kjölfarið þátt í Söng-
keppni Samfés sem fram fór í Laug-
ardalshöll, en þar keppti hann fyrir
hönd félagsmiðstöðvarinnar Engyn.
„Þar spilaði ég fyrir framan 5.000
manns og það gekk bara vel þótt ég
hafi ekki unnið. Dómararnir voru
nefnilega að leita að söngvurum en
ekki röppurum,“ segir Kristmundur
í léttum dúr.
Aðspurður segist hann semja
texta um allt milli himins og jarðar.
„Það fer eftir því í hvernig stuði ég
er, það getur bæði verið eitthvað
slæmt og gott. Ég er til dæmis nýbú-
inn að semja lag um ástand þjóð-
félagsins í dag,“ segir Kristmundur
sem semur einnig rímur um mjög
persónuleg málefni. „Ég er til dæm-
is að gera lag um pabba minn. En
þetta fer alveg eftir því í hvernig
stuði ég er. Ef ég er til dæmis í ást-
arsorg, sem hefur reyndar aldrei
gerst, þá sem ég ástarlag um hvern-
ig mér líður. Ég tjái mig með orð-
um.“
Er að vinna
Kristmundur hefur komið fram á
fjölmörgum tónleikum að und-
anförnu, og segist vera farinn að
njóta töluverðra vinsælda, þá sér-
staklega hjá stelpum. „Ég er orðinn
frekar þekktur á meðal unglinga. Ég
var til dæmis að gefa út nýtt lag sem
heitir „Grafarvogur“ og eftir viku
eru svona 6.000 manns búnir að
hlusta á það á MySpace. Þannig að
mér gengur bara mjög vel,“ segir
Kristmundur og bætir því við að
miklu máli skipti að vera í þessu á
réttum forsendum. „Ég geri þetta af
því að mér finnst þetta gaman, og er
einn af fáum sem eru í þessu út af
því. Margir gera þetta nefnilega út
af einhverri vinsældakeppni. En
þótt ég sé ekki að því held ég nú að
ég sé að vinna í þeirri keppni.“
Kristmundur er greinilega fullur
sjálfstrausts og segist stefna mjög
langt í tónlistinni. Hann er kominn
vel á veg með sína fyrstu plötu sem
hann vonast til að geta gefið út sem
fyrst. „Það eru margir að bíða eftir
henni og margir sem segja mér að
ég verði að drífa í henni. Ætli hún
komi ekki bara út í byrjun ágúst. Ég
er að leita að styrktaraðilum en ég
veit að það eru margir sem ætla að
styrkja mig. En ég er að vísu ekki
kominn með útgefanda ennþá,“ segir
hann og hlær.
Engin vinsældakeppni
Morgunblaðið/Kristinn
Ákveðinn „Ég geri þetta af því að mér finnst þetta gaman, og er einn af
fáum sem eru í þessu út af því,“ segir Grafarvogs-rapparinn MC Krizz.
MC Krizz semur texta um persónuleg málefni og ástandið í þjóðfélaginu
Tekur ekki þátt í neinni vinsældakeppni þótt hann myndi vinna slíka keppni
myspace.com/krizzmc
vinnu við sveit-
ina,“ segir Ragn-
heiður. „Það er
búið að bóka túr-
inn þeirra og það
var gert fyrir
áramót og þeir
bæta engu við.
Það er ástæðan
fyrir því að þeir
koma ekki. Mér
fannst ekki rétt
að taka þá inn eins og staðan er í
dag og þeir hafa okkur í huga í
næstu ferð sem verður eftir tvö ár.“
Róbert Heimir Halldórsson, for-
svarsmaður „þrýstihópsins“ á Fa-
cebook, segir það rétt hjá Ragn-
heiði að fullseint hafi verið í rassinn
gripið. En það sé ekki svo að það sé
verið að ginna fólk til fjárútláta á
vafasömum forsendum.
„Við erum brött og þetta er bara
orðið að lengra verkefni,“ segir
hann.
„Við höfum ekki tekið við pen-
ingum frá neinum þar sem málin
voru einfaldlega ekki komin á það
stig. Við erum sömuleiðis í
tengslum við fólk í innsta hring U2
og það veit af þessari vinnu okkar.
Hér er allt uppi á borðum og við
munum halda áfram að vinna í því
að fá sveitina til landsins í góðu
samstarfi við fagaðila. Við getum
vel beðið í tvö ár enn.“
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EINS og sagt hefur verið frá var
Facebook-síða stofnuð fyrir stuttu
með það að markmiði að koma U2
til Íslands. Þúsundir hafa skráð sig
með því vilyrði að kaupa miða í for-
sölu. Þá verða U2-heiðrunartón-
leikar haldnir á NASA nú á laug-
ardaginn, m.a. til að afla fjár fyrir
þessum innflutningi.
Ragnheiður Hanson tónleika-
haldari segir það miður að þessi
starfsemi sé kominn svona langt á
veg þar sem það sé útilokað að
sveitin komi hingað til lands í bráð.
„Ég er í mikilli og góðri sam-
U2 kemur ekki strax!
Reuters
Bono „Krakkar … slakiði á. Þetta er ekkert að fara að gerast. Voruð þið
ekki að hefja hvalveiðar á nýjan leik?“ Jæja, bíðum í tvö ár enn…
Ragnheiður Hanson segir Íslandstónleika á villigötum
Ragnheiður
Hanson
Fólk
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Stuttmyndahátíðin Northern
Film Festival sem stóð yfir í Samkomuhúsi
Grundarfjarðar um síðustu helgi lauk á sunndag
með því að tilkynnt var um úrslit í samkeppni um
bestu stuttmyndina sem og besta tónlistar-
myndbandið. Verðlaunamyndirnar voru síðan
sýndar fyrir fullum sal áhorfenda. Dómnefnd
stuttmyndahátíðarinnar var skipuð Bertrand
Mandico, Hilmari Erni Hilmarssyni og Kristínu
Jóhannesdóttur og komst að þeirri niðurstöðu að
besta stuttmyndin væri myndin „Smáfuglar“ eft-
ir Rúnar Rúnarsson en í öðru sæti hafnaði mynd-
in „The Wedding“ eftir Maciek Salomon frá Pól-
landi. Í flokki tónlistarmyndbanda varð
myndbandið Hair eftir Milos Tomic frá Tékk-
landi. Við lok stuttmyndahátíðarinnar greindi
skipuleggjandinn og hvatamaður hátíðarinnar
Dögg Mósesdóttir frá því að Menningarráð Vest-
urlands hefði úthlutað styrk til hátíðar að ári svo
stuttmyndahátíðin í Grundarfirðir væri greini-
lega komin til að vera. Alls bárust um 90 stutt-
myndir og tónlistarmyndbönd í keppnina að
þessu sinni en af þeim voru 50 valdar til sýninga
á hátíðinni. Gjörninga og listahópurinn The
Weird Girls vakti nokkra athygli á laugardag
þegar þær frömdu gjörning sinn Episode 7 í
snæviþöktu umhverfi á svæði hesteigendafélags
Grundafjarðar og festu jafnharðan á filmu
gjörninginn og komu þessara 20 stúlkna á kvik-
myndahátíðina.
Smáfuglar Rúnars sigruðu á Northern Wave
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Gjörningur Listahópurinn The Weird Girls sést
hér við gjörning sinn við Grundarfjörð.
„Ég veit þú kemur í kvöld til
mín,“ segir í frægum Vestmanna-
eyjaóð Ása í bæ og Oddgeirs
Kristjánssonar. Og kannski var
það alltaf vitað að leiðir Gylfa
Ægissonar og Papanna, tveggja
stórstjarna úr Vestmannaeyjum,
myndu á endanum liggja saman.
Á morgun verður nefnilega
laginu „Jibbý Jei“ eftir áð-
urnefnda hetju hafsins ýtt úr út-
varpsvör í flutningi hina ástsælu
Papa. Að sögn Páls Eyjólfssonar
(Palla Papa) ætlar sveitin að snúa
aftur með bravúr og verður heil
plata með lögum Gylfa í fartesk-
inu. Til liðs við sveitina eru nú
gengnir þeir Gunnlaugur Helga-
son bassaleikari og Matthías Stef-
ánsson, fiðluleikari með meiru.
Papar eru ekki óvanir því að véla
um lög og texta annarra, Jónas
Árnason og sjálfur Bubbi Morth-
ens hafa verið dregnir á land að
því leytinu til og nutu plötur þær
mikilla vinsælda. Síðasta plata
Papa var annars Papar á balli, en
hún kom út 2006.
Papar taka upp lög
Gylfa Ægissonar
DV sagði frá því í gær að kepp-
endum Idol-Stjörnuleitar hefði ver-
ið gert að loka Facebook-síðum sín-
um í samræmi við það fjölmiðla-
bann sem keppendur gengust
undir. Ástæðan fyrir fjölmiðlabann-
inu er víst sú að með því vilji fram-
leiðendur tryggja að allir kepp-
endur fái jafna umfjöllun í fjöl-
miðlum og þar með jafna mögu-
leika á sigri. Eða hvað? Ekki er
langt síðan stúlknasveitin Elektra
fór með himinskautum vikurnar
fyrir úrslitakvöld Söngvakeppn-
innar og voru fjölmiðlarnir margir
hverjir, búnir að spá þeim sigri fyr-
ir úrslitakvöldið. Allt kom fyrir
ekki og landsmenn beittu skynsem-
inni og/eða eigin smekk í stað þess
að gleypa við áróðrinum. Getur
verið að fjölmiðlabannið sé ónauð-
synlegt í ljósi þessa eða búa kannski
aðrar ástæður að baki?
Ónauðsynlegt
fjölmiðlabann?
Hvað er að frétta? Hvað er að
frétta-kallinn?
Ekkert að frétta? Svo ég næ í
Fréttablaðið
Spekka-fallið! Hvað er að ger-
ast? hérna?
Það er komin kreppa en ekki
kreppa þessa hnefa!
Því ef að peningar stjórna Ís-
landi þá vil ég ekki vera
hérna! tjékka!
Þið sjáið mig upp á sviði-heitan!
þið viljið meira
Emmsjééé Krizzz! þetta er
snilldin eina
Ég lifi áhyggjulaus, lífið mitt er
ævintýri
Svo hugsiði, og virkilega pælið í
því
hvernig væri mitt líf ef ég væri
alltaf í leiðindum
(Úr laginu „Hvað er að frétta?“)
Hvað er að frétta?