Morgunblaðið - 07.03.2009, Side 6

Morgunblaðið - 07.03.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ALDREI hafa jafnmargir leitað til Stígamóta vegna hópnauðgana, lyfja- nauðgana, vændis eða kláms og árið 2008. Þar að auki hafa aldrei jafn- margir gert tilraunir til sjálfsvígs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Stígamóta 2008 sem kynnt var í gær. „Við höfum engar útskýringar á þessari fjölgun hópnauðgana,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga- móta, en af þeim sem leituðu til Stígamóta í fyrra höfðu 15 orðið fyrir hópnauðgun en voru sjö árið áður. Al- gengast var að 2-3 gerendur væru saman en flestir voru þeir fjórir. „Vert er að geta þess að þegar fólk leitar til Stígamóta vegna kynferðis- ofbeldis getur verið um að ræða at- burði sem gerðust nokkrum árum áð- ur.“ Samkvæmt tölum frá Neyð- armóttöku nauðgana hefur dregið úr hópnauðgunum, en þar voru skráð 15 tilfelli í fyrra samanborið við 23 árið áður. Sterk tengsl við fíkn Heildarfjöldi nýrra mála hjá Stíga- mótum í fyrra var 273 en í tuttugu málanna voru það ekki þolendurnir sjálfir heldur ættingjar þeirra sem leituðu til Stígamóta. Hins vegar er heildarfjöldi ofbeldismanna skráður 420. „Okkur finnst alltaf merkilegt að ofbeldismennirnir teljast fleiri en brotaþolar,“ segir Guðrún og bætir við að í fyrra hafi starfsfólk Stíga- móta eytt yfir 2.000 klst. í að taka við- töl við fólk sem leitaði sér hjálpar. Al- gengustu ástæður þess að leitað var til Stígamóta voru sifjaspell, nauðg- anir, andlegt og líkamlegt ofbeldi, kynferðisleg áreitni og nauðg- unartilraunir en að sögn Guðrúnar er yfirleitt um mörg ofbeldisform að ræða í hverju tilfelli fyrir sig. „And- legt og líkamlegt ofbeldi er notað í bland við annað ofbeldi og í raun er engin leið að aðskilja öll formin.“ Sú nýbreytni var tekin upp í fyrra að athuga tengsl milli kynferðisof- beldis og fíknar en Guðrún segir marga brotaþola viðurkenna að þeir séu haldnir einhverri fíkn. Skýrslan leiðir í ljós að rúmur helmingur þeirra sem leituðu til Stígamóta sagð- ist haldinn fíkn í áfengi, vímuefni, mat, kynlíf eða klám. Í sumum til- fellum glíma þolendur við fleiri en eina fíkn. Aukning í sjálfsvígstilraunum Í skýrslunni er einnig greint frá því að mál tengd klámi hafa nánast tvöfaldast milli ára, farið úr ellefu málum í 21. Þá hafa 22 konur og einn karlmaður nýtt sér viðtalsþjónustu Stígamóta vegna vændis. Sjálfsvígs- tilraunum hefur einnig fjölgað milli ára. Tæpur fjórðungur brotaþola við- urkenndi að hafa gert tilraun til sjálfsvígs og að sögn Guðrúnar er það mun hærra hlutfall en hefur verið undanfarin ár. „Talan almennt í sam- félaginu er 4,1% svo þarna erum við með sexfalda tölu miðað við íslenskt samfélag og það er æpandi.“ Hvað varðar fjölda ofbeldismanna fyrir hvern brotaþola sýnir skýrslan að í þriðjungi tilfella er um að ræða tvo eða fleiri ofbeldismenn. „Það eru til dæmi um manneskjur sem voru beittar ofbeldi af átta ofbeldis- mönnum, þó ekki endilega á sama tíma,“ segir Guðrún. Þá var kannað hvort ofbeldismenn hefðu verið undir áhrifum vímuefna og reyndist svo vera í tæpum 43% tilfella þegar um nauðgun var að ræða en í innan við 10% tilvika þegar sifjaspell var ann- ars vegar. Góðu fréttirnar eru að fleiri mál voru kærð árið 2008 en árið á undan eða tæp 14%. „Ég hef ekki séð svo- leiðis tölur síðan ég byrjaði hér á Stígamótum fyrir tíu árum,“ segir Guðrún. Stígamót Fjöldi nýrra mála árið 2008 var svipaður og árið áður. Í fyrra var í fyrsta sinn ráðist í að senda ráðgjafa vítt og breitt um landið og „fara síðan burtu með leyndarmálin“, eins og Guðrún Jónsdóttir orðaði það í gær. Hópnauðganir og sjálfsvígstilraunir 273 ný mál komu á borð Stígamóta á síðasta ári                          FÉLAGS- og tryggingamálaráðu- neytið varði alls rúmlega 56 millj- ónum króna í aðkeypta þjóustu og verktakagreiðslur á tímabilinu frá 1. júní 2007 til og með 31. janúar 2009. Þetta kemur fram í svari frá ráðuneytinu við fyrirspurnum fjöl- miðla. Stærsti kostnaðarliðurinn er „Önnur sérfræðiþjónusta“ á aðal- skrifstofu ráðuneytisins, eða tæpar 13 milljónir kr. Kostnaðinn má m.a. skýra með tilfærslu málefna aldraðra og almannatrygginga frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Unn- ið var að þessum breytingum árin 2007 og 2008 og var samanlagður kostnaður til kaupa á sérfræði- þjónustu í því skyni um 6,5 millj- ónir. Þá voru Háskóla Íslands, Há- skólanum í Reykjavík og Hagstofu Íslands greiddar samtals 5 millj- ónir kr. fyrir rannsóknir, gagna- öflun og sérfræðiráðgjöf árið 2008. Lögfræðikostnaður nam 3 millj- ónum kr. og skýrist af þremur megintilefnum, þ.e. aðkeyptri ráð- gjöf vegna fyrirspurna frá ESA, vegna starfshópa um launajafn- rétti og ráðgjöf vegna breytinga á lögum um almannatryggingar. una@mbl.is Ríflega 56 millj- ónir til ráðgjafa Í HNOTSKURN »Áður hefur komið framað kostnaður heilbrigð- isráðuneytisins vegna að- keyptrar ráðgjafar nam 24 milljónum á tímabilinu. »Fjármálaráðuneytiðgreiddi 146 milljónir, ut- anríkisráðuneyti tæpar 30 milljónir, viðskiptaráðu- neytið 12,3 milljónir og menntamálaráðuneyti 9,2 milljónir. Í SKÝRSLUNNI er listað hvar fólk hefur annars vegar leitað aðstoðar og hinsvegar rætt um kynferðisof- beldið annars staðar en á Stígamót- um, t.d. á lögreglustöð, í Barnahúsi, Neyðarmóttöku vegna nauðgana, Kvennaathvarfinu eða við aðila á borð við prest, sálfræðing, geð- lækni eða félagsráðgjafa. Á fyrr- nefndu stöðunum er algengara að rætt sé um ofbeldið um leið og að- stoðar er leitað. „Þegar við komum að hinum hefðbundnu fagstéttum, t.d. prestum, skólum, félagsþjón- ustu og geðlæknum, þá leitar fólkið okkar til þessara aðila en ofbeldið er ekki á dagskrá nema í minna mæli en við myndum óska. Til að fólkið okkar tali um málin sín þarf að bæta hlustunarskilyrðin sem eru fyrir hendi,“ segir Guðrún. Ræða ekki um ofbeldi við alla Í ÁRSSKÝRSLUNNI var í fyrsta sinn skoðað sérstaklega þjóðerni þolendanna og ofbeldismannanna. „Við vorum oft spurðar beint hvort það væru ekki frekar út- lendingar sem nauðguðu en Ís- lendingar,“ segir Guðrún en í ljós kom að svo var ekki. „Við höfum enga innistæðu fyrir því að út- lendingar nauðgi frekar og beiti kynferðisofbeldi á Íslandi frekar en Íslendingar. Meginþorri vinnuveit- enda Stígamóta eru íslenskir karl- ar.“ Hvað erlenda brotaþola varðar voru þeir 3,8% þolendanna en Guð- rún segir að skv. Hagstofu Íslands séu útlendingar rúm 8% af íslensku samfélagi. „Við náum verr til er- lendra kvenna og karla en til Íslend- inga. Við höfum lengi vitað þetta og það eru margar skýringar, t.d. að út- lendingar vita síður af okkur. Þar að auki get ég ímyndað mér að útlend- ingar á Íslandi eigi fullt í fangi með að aðlagast samfélaginu og lifa af hér og hafa því ekki orku og tíma til að taka á ofbeldinu.“ Stígamót hafa brugðist við þessu með því að gefa út ítarlegan kynningarbækling á ensku og annan minni á pólsku, spænsku, rússnesku, taílensku og ensku. Brotin greind eftir þjóðerni Guðrún Jónsdóttir SPÆNSKI herinn hefur tilkynnt að hann muni ekki sinna loftrým- iseftirliti hér við land í sum- arbyrjun líkt og samið hafði verið um. Ástæðan er sú að Spánverjar treystu sér ekki, í ljósi efnahags- þrenginganna, til að axla þann kostnað sem af eftirlitinu hlýst, samkvæmt upplýsingum frá utan- ríkisráðuneytinu. Urður Gunnarsdóttir, upplýs- ingafulltrúi ráðuneytisins, segir að málið sé nú í höndum hermála- stjórnar Atlantshafsbandalagsins og verið sé að vinna að því að fá aðra aðildarþjóð til að hlaupa í skarðið fyrir Spánverja. Vænt- anlega verði tilkynnt um miðjan mánuðinn hvaða þjóð það verður. Í ár munu þrjár þjóðir skiptast á að koma hingað í þeim tilgangi að fylgjast með loftrýminu. Dönsk flugsveit er nú stödd hér á landi í þessum tilgangi og von er á Bandaríkjamönnum síðar á árinu. runarp@mbl.is Hættu við gæslu vegna kreppunnar Aðeins tæp 40% þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrra sögðust ekki vera haldin neinni fíkn. Rúmur fjórðungur sagðist stríða við fíkn í áfengi, tæpur fimmtungur sagðist fíkinn í mat og rúm 16% sögðust vera hald- in vímuefnafíkn. Að sögn Ludvigs Guðmunds- sonar, yfirlæknis næringar- og offitusviðs á Reykjalundi, er al- gengt að fólk sem kemur á Reykjalund og glímir við mat- arfíkn hafi lent í áföllum í lífinu, t.a.m. kynferðisofbeldi. Þór- arinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að gerð hafi verið ná- kvæm könnun meðal kvenna sem leituðu meðferðar á Vogi og í ljós kom að 60% þeirra höfðu lent í kynferðisofbeldi, ýmist meðan þær voru í neyslu eða áður en hún hófst. Fjöldi haldinn fíkn F í t o n / S Í A Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Sæluvika í Svartaskógi Innifalið: Flug til Basel með sköttum og öðrum greiðslum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4* Hotel Bären með fullu fæði allan tímann og íslensk fararstjórn. 139.900kr. Verð á mann í tvíbýli 22.–29. ágúst Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.