Morgunblaðið - 07.03.2009, Page 24

Morgunblaðið - 07.03.2009, Page 24
24 Daglegt lífVIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is K jartan Ragnarsson leik- stjóri leikstýrir í Borg- arleikhúsinu hinu þekkta verki Millj- arðamærin snýr aftur. Í Borgarfirði rekur hann Landnáms- setrið ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, og þar er boðið upp á afþreyingu og skemmtun sem tengist landnámi Ís- lands og ekki síst Egils sögu. Þar var á dögunum frumsýning á Sturl- ungu í flutningi Einars Kárasonar. Þjáningin var sjálfskaparvíti Listir og menning hafa fylgt Kjartani frá því hann var barn en faðir hans var Ragnar Kjartansson myndhöggvari. „Fyrsti skóli manns í lífinu er umhverfið hjá foreldrum manns. Það er öruggt mál að sá listaheimur sem var í kringum pabba hafði mótandi áhrif á mig og ekki síst pabbi sjálfur,“ segir Kjart- an. „Verkstæðið hans pabba, Glit, var kannski aðaluppeldisstöðin en þar höfðu margir helstu myndlist- armenn landsins aðstöðu. Pabbi var afar sterkur persónu- leiki. Hann var mani depressívur og sjúkdómur hans ágerðist með ár- unum. Þegar ég var unglingur lá pabbi í heilt ár í rúminu og ég held að það langa þunglyndistímabil hafi ekki síst stafað af því að hann var ósáttur við að hafa ekki gefið sig all- an í listina en hann hafði stundað kennslu og var lengi skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík. Á þessu erfiða ári hrundi efnahagur fjölskyldunnar. Mamma fór þá út á vinnumarkaðinn og blómstraði sem aldrei fyrr. Í kjölfarið urðu merki- leg umskipti á heimilinu og breyt- ingar á persónuleika pabba og mömmu. Pabba hafði alltaf fundist að hann væri með fjölskylduna á herðunum en á þessum tíma var það mamma sem bjargaði fjölskyldunni. Eftir það má segja að pabbi hafi verið meira á framfæri mömmu en hún á hans framfæri. Pabbi reis úr rekkju og helgaði sig list sinni al- gjörlega seinasta hluta ævinnar. Það má segja að á þessu tímabili, þegar styrkur mömmu kom svo vel í ljós, hafi ég orðið femínisti.“ Hvað lærðirðu af þessari reynslu föður þíns? „Ég lærði aðallega að það er hægt að þjást í listinni. Þjáningin var sjálfskaparvítið sem kynslóð pabba bjó sér til. Þessari bóhem- kynslóð eftirstríðsáranna fannst að það tilheyrði lífsstíl listamanna að festa sig í þjáningu og fylliríum og tæta svo hver annan í sig. Þegar mér varð þetta ljóst hét ég því að ég skyldi aldrei í lífinu verða myndlist- armaður. Sonur minn og alnafni pabba er myndlistarmaður og þar gilda allt önnur lögmál en hjá eftir- stríðsáralistamönnunum. Sonur minn og vinir hans faðmast öllum stundum enda er þetta fólk kallað krúttkynslóðin. Það er ekki eins og þetta sé sama manntegundin og á tímum pabba. En þrátt fyrir allt hans stríð þótti mér alltaf vænt um karlinn hann pabba.“ Krafa frá Bríet Ákvaðstu snemma að verða leik- húsmaður? „Ég beit það snemma í mig að ég vildi verða leikhúskarl. Mér fannst leikhúsið vera undraheimur ofar öllu. Þegar ég var níu ára gamall kom ég til mömmu minnar eftir að hafa verið á tali við ömmu gömlu sem leit listamenn tortryggnum augum. Ég sagði við mömmu: Mamma mín, framtíð mín lítur ekki vel út. Ég verð örugglega alkóhól- isti.“ „Af hverju? spurði hún. „Amma segir að ég verði það af því það eina sem ég get hugsað mér að verða er tónlistarmaður eða leikari. Hún segir að þeir verði alltaf alkó- hólistar.“ En af hverju fórstu í leikstjórn en varðst ekki leikari? „Þegar ég kom innan við tvítugt inn í leikhúsið urðum við Bríet Héð- insdóttir miklir mátar. Hún ákvað fljótlega að ég ætti að verða leik- stjóri og skrifa fyrir leikhús. „Þú hugsar alltaf svo heildstætt, þú hef- ur áhuga á allri sýningunni þannig að leikstjórn er þitt fag,“ sagði hún. Það liðu tíu ár þar til ég fékk mitt fyrsta tækifæri í leikstjórn og fyrir þann tíma lék ég aðalhlutverk í gamanleikritum og barnaleikritum. Það er ekki vafi að þessi endalausa hvatning og krafa frá Bríeti um að ég færi að sinna leikstjórn og skrift- um hafði mikil áhrif á mig. Karl Guðmundsson gaf mér fyrsta tækifærið. Hann var búinn að þýða Morðið í dómkirkjunni eftir T.S. Eliot, kom með handritið til Vigdísar Finnbogadóttur og sagði að hann vildi ég leikstýrði því. Það var mín leið inn í leikstjórnina. Síð- an ætlaði Vigdís að fela mér leik- stjórn á leikriti eftir Aristofanes en mál æxluðustu þannig að þýðingin var ekki tilbúin á réttum tíma og ég skrifaði þá Saumastofuna út úr neyð. Þá var ég kominn í vinnu við að skrifa texta fyrir svið og leik- stýra.“ Þú leikstýrir núna í Borgarleik- húsinu frægu og merkilegu leikriti eftir Dürrenmatt, Milljónamærin snýr aftur. Þar er verið að fjalla um siðferði einstaklinga og umbreyt- ingar sem verða á þeim við vissar aðstæður. Hver er niðurstaðan, finnst þér? „Boðskapurinn er ansi svartur. Dürrenmatt er að segja: Passið ykkur á græðginni, ef sérstakar að- stæður skapast breytumst við í villi- dýr og drepum til að lifa af.“ Ertu sammála því? „Ég er vægur við sjálfan mig, eins og við erum öll. Ég er lullandi húmanisti sem vonar að heimurinn sé að verða betri. Manneskjur eins og ég og þú höfum aldrei lent í að- stæðum sem kalla á eitthvað annað en að við séum þægilegheitamann- eskjur. Ég er nokkuð mótaður af mönnum eins og Shakespeare og Chekhov sem eru efahyggjumenn um mannlegt eðli og telja að mann- eskjan sé í eðli sínu þverstæða sem aldrei verður komið heim og saman. Við erum hópdýr og líka einfarar. Við erum skynsemisverur og reyn- um að móta okkar samferð á þann hátt að það sé sem þægilegast og farsælast fyrir okkur og sam- ferðamennina. En ég óttast að það versta geti komið fram í okkur öll- um við vissar aðstæður.“ Virðulegi gamli karlinn Þú og kona þín rekið Landnáms- setrið í Borgarfirði. Hvernig fædd- ist hugmyndin? „Hún kom ekki af himnum ofan. Í tuttugu ár var ég fararstjóri á hest- baki inni á háfjöllum sem er stór- kostleg aðferð við að upplifa Ísland með útlendum ferðamönnum. Smám saman tók ég eftir því hvað ég sem fararstjóri fékk mikið þakklæti fyrir að þekkja gamlar sögur sem tengj- ast hverjum stað. Ég hafði ekki haft neinn áhuga á Íslendingasögunum áður og hefði getað tekið undir orð Laxness um að þær sögur væru eins og títuprjónn, maður tæki upp einn títuprjón og síðan annan sem væri alveg eins og þannig koll af kolli. En þetta var náttúrlega bara rugl sem Laxness sagði 27 ára gamall og hann skipti snarlega um skoðun þegar hann varð eldri. Íslendingasögurnar eru stórkost- legar í staðháttafræði sinni. Þegar maður er búinn að ríða ofan úr Fljótsdal, gegnum Hrafnkelsdal og upp í Kárahnjúka þá verður Hrafn- kels saga Freysgoða allt í einu gríð- arlega flott bókmenntaverk af því að hún er þarna lifandi í landslag- inu. Sama má segja um Egils sögu og Borgarfjörð. Ég uppgötvaði að K j a r t a n R a g n a r s s o n l e i k s t j ó r i Morgunblaðið/Kristinn Leikstjórinn „Auðvitað er ég atvinnumaður en ég er orðinn virðulegi gamli karlinn sem kemur aftur.“ Lullandi húmanisti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.