Morgunblaðið - 07.03.2009, Síða 26
26 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Jórunn, hjörtu sem AndreaRóberts hóf framleiðslu áfyrir skemmstu, hafa svosannarlega fallið í frjóan
jarðveg. Hjörtun, sem eru hand-
gerð, hvert með sínu lagi úr endur-
unnum efnum, hafa selst upp trekk í
trekk og jafnvel myndast biðlistar.
Nú er raunar svo komið að öll fjöl-
skyldan tekur þátt í hjartagerðinni.
Nágrannar hafa einnig komið að
framleiðslunni og gerði einn þeirra,
Örn Viðar Erlendsson, sér lítið fyrir
og hannaði vörumerki fyrir Andreu.
„Hjörtun eru virðingarvottur við
Jórunni Brynjólfsdóttur sem rak
Verslun Jórunnar Brynjólfsdóttur á
horni Skólavörðustígs og Klappar-
stígs,“ segir Andrea. Jórunn, sem
lést undir lok síðasta árs, þá 98 ára
gömul, starfaði í verslun sinni allt
fram á það ár. „Mig langaði að sýna
Jórunni þá virðingu sem hún á skil-
ið. Það er ekki of mikið gert af því
að minnast hversdagshetja á borð
við Jórunni.“ Í kjölfarið hafi hún
hins vegar heyrt margar sögur af
Jórunni, enda sé hún kona sem ekki
gleymist auðveldlega.
Hugmyndin að hjartagerðinni
kviknaði þegar sonur hennar fékk, í
nafnaveislu sinni síðasta haust, eitt
þeirra hjarta sem Jórunn lét gjarn-
an fylgja með í kaupbæti. „Ég átti
gardínuefni sem var farið að leiðast
í kassa og fékk þá þessa hugmynd
að fara að framleiða hjörtu úr efn-
inu. Að þessum hjartalaga trún-
aðarvini, Jórunni, getur þú hvíslað
leyndarmálum, markmiðum,
áhyggjum og vonum þínum. Jórunn
er ávallt til staðar og sér til þess að
allt fari vel.“
Í gleði jafnt sem sorg
Hugmyndina segir hún hafa fallið
í góðan jarðveg hjá dóttur Jórunnar
og barnabarni. Hjartað táknaði
kærleika í huga Jórunnar og hafa
Jórunnarhjörtun nú verið gefin og
notuð við fjölmörg tilefni, t.d. í
nafnaveislur og við staðfestingu
samvistar. „Hjörtun henta við
margskonar ólík tækifæri og eigi við
bæði í gleði og sorg. Á þeim tímum
sem gildin eru að breytast og fólk er
að reyna að vera fallegt að innan og
utan eiga þau vel við. Það hringdi til
dæmis kona í mig um daginn. Hún
hafði fundið mömmu sína í Banda-
ríkjunum, var að fara að hitta hana í
annað sinn og vildi gefa henni eitt
hjarta.“
Andrea er líka ánægð með hversu
jákvæðar viðtökur verslana á borð
við Epal, Kraum og Börn náttúr-
unnar hafa verið. „Jórunnarhjörtun
eru til sölu í þessum verslunum og á
meðan svo margir eru að gera skap-
andi hluti í þessu ástandi er ánægju-
legt að finna hve áhugasamir versl-
unareigendur í þessum verslunum
er. Viðbrögðin frá þeim og við-
skiptavinum hafa verið mér mikil
hvatning,“ segir Andrea sem er bú-
in að fá inni hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og hyggst setja enn meiri
kraft í hjartagerðina.
Í minningu hversdagshetju
Morgunblaðið/RAX
Fjölskylduverk Kærasti Andreu, Jón Þór Eyþórsson, skellir vörumerkinu á umbúðirnar. „Framleiðsla og hönnun
er í mínum höndum en mamma hefur verið að keyra út fyrir mig, konan hans pabba aðstoðað við vélasauminn,
pabbi að klippa út hjörtu á meðan tengdó passar Dreka,“ segir Andrea, hér ásamt Jóni Þór og og syninum Dreka.
Jórunnarhjörtun Ekkert þeirra er
eins, hvert með sínu sérkenni.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þ
etta verður fyrst og
fremst skemmtilegt. Að
koma saman með börnin
og gera eitthvað skap-
andi,“ segir Charlotte
Böving sem ætlar að fara af stað
með námskeið í Kramhúsinu fyrir
mæður í fæðingarorlofi. Námskeiðið
hefst næsta mánudag, 9. mars, og
þemað verður móðurhlutverkið.
„Ég ætla að draga fram allt það
sem býr innra með mömmum ungra
barna. Þessar konur sem eru heima
í fæðingarorlofi með ungana sína,
þær lifa og hrærast í ákveðnum
heimi sem því tilheyrir. Og þær
eiga að koma með börnin með sér á
námskeiðið, því ég vil að þau séu
þátttakendur. Þetta námskeið er
hugsað til að gera eitthvað mikil-
vægt fyrir okkur mæður sem mann-
eskjur. Mömmur eiga ekki að fest-
ast inni í heimi barnanna og það er
líka mikilvægt að börn sjái mömmu-
na gera eitthvað sem er mikilvægt
fyrir hana.“
Tíu ára gömul hugmynd
Á námskeiðinu hjá Charlotte
verður meðal annars unnið út frá
spuna og kannski koma einhverjar
sögur út úr því.
„Allar þessar mömmupælingar
mínar, að vera sjálf mamma og
eiga mömmu, vera dóttir og eiga
ömmu og allt það, fóru af stað fyrir
tíu árum þegar ég eignaðist fyrsta
barnið mitt. Þetta fékk fyrst útrás
í leikritinu mammamamma sem ég
leikstýrði í Hafnarfjarðarleikhús-
inu,“ segir Charlotte sem sjálf á
þrjár dætur, eina níu ára og tvær
sjö mánaða tvíburastelpur. Hún
þekkir því á eigin skinni hvernig er
að vera heima þar sem allur tími
og orka fer í þá vinnu sem fylgir
því að vera með lítil börn.
Gjöf til þeirra sem
hafa þörfina
„Það er mikil vinna að vera
heima með barn eða börn, en
mömmur þurfa líka að gera eitt-
hvað skapandi, þær þurfa að
hreyfa sig, dansa, fá orkuflæðið af
stað og vekja andann. Þess vegna
ætla ég líka að vera með markvissa
hreyfingu á þessu námskeiði. Ég
ætla ekki aðeins að fá mömmurnar
til að segja frá eigin reynslu, held-
ur líka reynslu sem þær þekkja
annars staðar frá og kannski
skálda svolítið í leiðinni.“ Charlotte
langar meðal annars til að fá þær
konur sem koma á námskeiðið til
að gera sína eigin vögguvísu.
„Þetta verður spuni sem vonandi
talar líka til annarra, vísar út fyrir
einkaheiminn. Það er svo ótrúlega
mikið efni í þessum mæðraheimi.
Það er svo margt sem breytist
þegar lítið barn kemur inn í líf
fólks. Þessi hugmynd mín er gjöf
sem ég ætla að gefa þeim sem hafa
þessa þörf til að leika og spinna
með orðum.“
Vatn og stuttmyndahátíð
María Pálsdóttir leikkona ætlar
að aðstoða Charlotte á námskeið-
inu. „Við ætlum að hafa námskeiðið
þétt, svo konurnar tapi ekki niður
flæðinu. Þær koma tvisvar í viku
og eiga líka að gramsa heima fyrir,
spyrja kannski mömmu sína:
Hvernig var fæðingin mín? Þannig
geta þær speglað sig í mæðrum
sínum. Þetta er risastórt svæði og
það kemur svo mikið ef það er opn-
að inn á þennan heim.“
Charlotte situr ekki auðum
höndum þó næg sé vinnan við að
sinna tvíburasystrunum ungu,
þeim Brynju og Freyju, og það
þarf líka að sinna stóru systur.
„Ég er núna að vinna að verkefni
um vatn fyrir skólakrakka og full-
orðna og svo fer ég í vikunni til
Katalóníu á stuttmyndahátíð, en
þar verður sýnd myndin „Takk
fyrir hjálpið“ sem Benedikt Erl-
ingsson, maðurinn minn, gerði, en
ég leik í henni útlending, eins og
titillinn gefur til kynna. Hver veit
nema ég komi heim með einhver
verðlaun.“
Leikið og spunnið með orðum
Hún ætlar að virkja mæð-
ur í fæðingarorlofi.
Hvetja þær til sköpunar,
vinna út frá spuna og
liðka skrokkinn í leiðinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mæðgur Charlotte með dætur sínar Brynju og Freyju, sem voru svolítið þreyttar þegar ljósmyndara bar að garði.
„Mömmur eiga ekki að
festast inni í heimi barn-
anna og það er líka mik-
ilvægt að börn sjái mömm-
una gera eitthvað sem er
mikilvægt fyrir hana.“
Skráning í s. 551-5103
eða á slóðinni:
www.kramhusid.is