Morgunblaðið - 07.03.2009, Síða 27
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Komdu á rétta sporið í ræktinni!
l Tveggja vikna námskeið í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi
l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 5 í hóp
l Leiðbeiningar um mataræði
l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs
Tímar alla virka daga nema föstudaga
7:15, 12:00, 17:00 og18:00
Laugardagar: 10:30 og 11:30
Innritun stendur yfir í síma 581 3730
Staðurinn - Ræktin
Velkomin í okkar hóp!
Stutt og strangt
S&S
stutt ogstrangt
Daglegt líf 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Verzlunarskólanemar sýnanú á Brodway frumsaminnsöngleik, Stardust, sembyggist á plötu Davids
Bowies, The rise and fall of Ziggy
Stardust. Þar segir frá tveimur jarð-
arbúum sem vakna á plánetunni
Sarasín og lenda í ýmsu óvæntu.
„Þetta hefur verið rosalega mikil
vinna, en svakalega skemmtilegt. Við
byrjuðum strax í vor að undirbúa og
höfum æft stíft frá því í október. Sjö
manna hljómsveit skipuð nemendum
úr Verzló er á sviðinu allan tímann
sem og tólf manna kór. Fjölmargir
dansarar taka þátt í sýningunni og
nemendur skólans hafa séð um að
gera alla búninga. Svo þarf að búa til
sviðsmyndina og farða og greiða
leikurunum, þannig að fjöldi nem-
enda kemur að sýningunni,“ segir Ír-
is Tanja Ívarsdóttir sem er í nefnd-
inni sem sér um að setja upp
sýninguna. „Ólafur S.K. Þorvaldz er
leikstjóri en hann samdi líka hand-
ritið og íslensku textana við lögin.
Okkur leist mjög vel á hugmynd
hans um að gera söngleik sem
byggðist meðal annars á því sem
Major Tom lendir í eftir að laginu
Space Oddity lýkur. Space Oddity er
semsagt upphafsatriði sýningarinnar
og svo verða gestir að koma á sýn-
inguna til að sjá hvað gerist eftir
það.“
Eyjastelpan Barbara Þorvalds-
dóttir leikur hina illu Stardust sem
ríkir á Sarasín. „Það er mikið kikk að
leika Stardust, ég hélt ég gæti það
ekki, af því ég er mjög ljúf inni í mér,“
segir hún og skellihlær. „Amma mín
sagði eftir að hafa séð sýninguna, að
hún vissi ekki að ég gæti verið svona
ákveðin og ströng. En Stardust er
grimmur harðstjóri sem heilaþvær
þegna sína,“ segir Barbara sem er
ekki að stíga í fyrsta sinn á leiksvið,
því hún var í götuleikhúsi þegar hún
var yngri og einnig í leikfélagi Vest-
mannaeyja.
Kjartan Ottósson leikur Comm-
ander Kurt Russel og segir að það sé
frábært hvað sýningin höfði til breiðs
aldurshóps. „Þetta er ævintýri og
mikið sjónarspil með litagleði sem
krakkar hafa gaman af og svo kemur
eldri kynslóðin sem þekkir vel tónlist-
ina, en hún er ekki aðeins frá David
Bowie, heldur líka Queen, Prince og
fleirum. Védís Hervör tónlistarstjóri
samdi líka eitt lagið.“
Kjartan lýsir Russel sem frekar
æstum persónuleika. „Hann er eig-
inlega gúmmítöffari inn við beinið,
þó stundum komi eitthvað annað upp
á yfirborðið. Íbúar plánetunnar hafa
beðið eftir okkur Major Tom í tvö
þúsund ár, og líta á okkur sem bjarg-
vætti en við tveir erum frekar lost
þarna.“ Fótboltinn á allan hug Arn-
þórs Inga Kristinssonar sem leikur
Major Tom. „Major Tom eflist eftir
því sem líður á sýninguna, hann er
skemmtilegur og ber ábyrgð á kæru-
lausa vini sínum, Russel.“ Hann seg-
ir bæði ögrandi og skemmtilegt að
taka þátt í sýningunni. „Þetta er líka
svo góður hópur og það myndast allt-
af mjög skemmtileg stemning niðri í
búningsherbergjum fyrir sýningar.“
Atriði úr sýningunni verða sýnd í dag
í Smáralind á Smáralindardeginum.
Á plánetunni Sarasín
Morgunblaðið/Heiddi
Aðalleikarar Arnþór og Kjartan fíflast í Barböru rétt fyrir sýningu.
www.stardustshow.is
AUKIN hreyfing eftir fimmtugt
eykur lífslíkur karlmanna jafn-
mikið og það að hætta að reykja,
samkvæmt rannsókn sem birt var á
vefsíðu læknatímaritsins British
Medical Journal í gær.
Rannsóknin bendir til þess að
karlmenn sem byrja að hreyfa sig
reglulega eftir fimmtugt séu með
sömu lífslíkur tíu árum síðar og
karlmenn sem hafa alltaf hreyft sig
mikið eða stundað æfingar reglu-
lega.
Karlarnir þurfa að stunda æfing-
ar reglulega í 5-10 ár til að þessi já-
kvæðu áhrif komi fram.
Rannsóknin var gerð við Upp-
sala-háskóla í Svíþjóð og náði til
2.205 karlmanna sem voru fimm-
tugir þegar rannsóknin hófst árið
1970. bogi@mbl.is
Aldrei of
seint að
taka sig á
Aukið umferðaröryggi Nú er lokið við að setja
upp 34 götuljósastaura við Byggðaveg sem er
nýr vegur sem liggur fyrir ofan byggðina í
Sandgerði. Vegurinn tengist inn á fjögur íbúða-
hverfi. Þessi ágæti vegur er lagður samkvæmt
nútíma hönnun. Hann er allur í hlykkjum og
beygjum sem gerir það að verkum að vegfar-
endur verða að stilla ökuhraða í hóf en vegurinn
hefur létt mikið á umferð framhjá Grunnskóla
Sandgerðis og eftir Ásabraut. Gert er ráð fyrir
að hægt verði að hengja jólaskreytingar á ljósa-
stauranna.
Sekt í pósti Á síðasta sumri setti Vegagerðin
upp tvær hraðamyndavélar á veginn milli Sand-
gerðis og Keflavíkur. Þessar vélar hafa heldur
betur malað gull fyrir ríkið frá því þær voru
teknar í notkun. Yfir 1600 ökumenn hafa fengið
í pósti sekt fyrir of hraðan akstur á beinum og
breiðum vegi. Það hafa vaknað spurningar hvort
þessar vélar ættu ekki meira erindi nær byggð-
inni þar sem skóli og íþróttasvæði eru sitt hvor-
um megin við veginn. Allir Sandgerðingar eru
meðvitaðir um þessar blessuðu vélar og aka
samkvæmt umferðarlögum allavega fyrir framan
vélarnar.
Lögregluvarðstofa hefur nú verið opnuð í hús-
næði við hlið Slökkvistöðvarinar að Strandgötu
18 í Sandgerði. Mun varðstofan eiga að sinna
löggæslustörfum í Sandgerði og Garði. Inn-
réttuð hefur verið glæsileg aðstaða í húsnæðinu
sem áður hýsti Björgunarsveitina Sigurvon.
Þetta mun vera önnur Lögregluvarðstofan sem
opnuð er í Sandgerði, en á árunum 1965 var sett
upp varðstofa í gamla sjúkraskýlinu með tilheyr-
andi rammgerðum fangaklefum. Var hún í notk-
un þar til löggæsla á Suðurnesjum var sam-
einuð.
Söfn og sjávarföng er nafn á safnahelgi sem
haldin verður á Suðurnesjum um næstu helgi,
14.-15. mars. Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá í öllum bæjarfélögunum. Þema daganna
er sjórinn og það sem tengist sjónum. Veitinga-
staðir bjóða upp á sjávarrétti. Fyrirlestrar verða
um forna útvegsþætti. Boðið verður upp á fjöl-
breytta tónlistardagskrá, málverkasýningar
tengdar hafinu ásamt ljósmyndasýningum, auk
fjölda annarra viðburða. Það ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi á dagskránni. Suð-
urnesjamenn bjóða íbúa höfuðborgarsvæðisins
velkomna á safnahelgina til að njóta og skoða.
Svo má benda á að tröllskessan í Svartahelli,
með öll sín búkhljóð, verður í sólskinsskapi og
tekur á móti öllum, jafnt börnum sem full-
orðnum, sem leggja leið sína í hellinn hennar við
Duus-hverfið í Reykjanesbæ. Þess má geta að
frítt er inn á öll söfn.
Ókeypis Frítt er inn á öll söfn um helgina.
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
ÚR BÆJARLÍFINU