Morgunblaðið - 07.03.2009, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 07.03.2009, Qupperneq 42
42 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 Sudoku Frumstig 4 2 1 3 8 7 3 9 6 5 3 8 2 8 5 6 9 1 6 4 8 7 3 9 1 5 2 8 6 2 3 9 8 6 5 7 7 8 8 6 1 3 2 1 3 5 7 1 4 2 8 7 1 5 6 3 2 8 4 8 5 9 3 5 6 9 8 5 2 4 4 5 2 8 9 1 3 7 6 6 7 8 4 3 5 1 9 2 9 3 1 6 2 7 5 8 4 8 4 5 9 1 6 7 2 3 2 9 3 7 5 4 6 1 8 1 6 7 3 8 2 9 4 5 5 1 4 2 7 3 8 6 9 3 8 6 1 4 9 2 5 7 7 2 9 5 6 8 4 3 1 7 8 5 3 2 9 4 1 6 6 3 9 1 8 4 7 2 5 2 1 4 6 5 7 8 3 9 8 2 1 5 9 6 3 4 7 4 5 7 2 1 3 6 9 8 3 9 6 7 4 8 2 5 1 9 4 2 8 6 5 1 7 3 1 6 3 9 7 2 5 8 4 5 7 8 4 3 1 9 6 2 5 2 7 6 8 1 4 9 3 4 8 9 7 5 3 1 6 2 1 6 3 4 2 9 5 7 8 7 1 6 2 3 8 9 4 5 9 3 4 1 7 5 8 2 6 8 5 2 9 6 4 7 3 1 2 9 5 3 1 7 6 8 4 6 4 8 5 9 2 3 1 7 3 7 1 8 4 6 2 5 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þann- ig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 7. mars, 66. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I. Kor. 8, 2.) Víkverja finnst stundum að ekk-ert sé nýtt undir sólinni. Hon- um finnst ekki ólíklegt að það þannig sé það raunar. Ekkert sé nýtt undir sólinni. Mögulega sé það þess vegna sem til er málsháttur sem heldur því sama fram. x x x Víkverji veit það af afspurn aðhressilegur efnahags- samdráttur var í landinu á fyrri hluta tíunda áratugarins. Á þeim tíma hafði hann reyndar mestan áhuga á geimflaugum og drátt- arvélum og fylgdist því ekki með þróun hagvísa. En í byrjun þeirrar kreppu, árið 1993, skrifaði Þorvald- ur Gylfason hagfræðiprófessor bók- ina Hagkvæmni og réttlæti. Í kafla um ábyrgðarleysi kom fyrir kunn- uglegt stef, erlend skuldsetning. x x x Mig langar að biðja lesandann aðvelta þessu fyrir sér í stutta stund: „Þessi ellefu ár, 1980-91, tók- um við næstum 400.000 krónur að láni á hvert mannsbarn í landinu, en tekjur okkar jukust samt aðeins um rösklega 100.000 krónur á mann all- an þennan tíma. Þessar tölur fela það í sér, að án þessarar ofboðslegu skuldasöfnunar í útlöndum þennan tíma og án róttækrar stefnubreyt- ingar í efnahagsmálum hefðu ráð- stöfunartekjur þjóðarinnar minnkað verulega að öðru jöfnu síðastliðin ell- efu ár þrátt fyrir hagstæð ytri skil- yrði yfirleitt. Lífskjör almennings hefðu hríðversnað. Hvað þýðir þetta? Við höfum tekið batnandi lífskjör að láni í útlöndum öll þessi ár. Hagvöxturinn hefur ver- ið minni en enginn í raun og veru. Stjórnvöld hafa slegið nauðsyn- legum umbótum á frest von úr viti í skjóli skuldasöfnunar. Börnin okkar eiga eftir að borga reikninginn – verði þau ekki farin úr landi, þegar þar að kemur.“ x x x Hagfræðingar búa við þann mun-að að hitti orð þeirra ekki í mark undir eins er það í góðu lagi, því þau gera það þá bara einhvern tímann seinna. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fer illum orð- um um, 8 þyrla, 9 festa lauslega, 10 glöð, 11 skífa, 13 sárum, 15 vind, 18 margnugga, 21 grein- ir, 22 barið, 23 rándýr, 24 tarfur. Lóðrétt | 2 stela, 3 fatta, 4 valska, 5 reiðum, 6 hugur, 7 athygli, 12 guð, 14 dveljast, 15 vers, 16 snákur, 17 miðjan, 18 undin, 19 sviku, 20 svaðs. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kleif, 4 karms, 7 penni, 8 röðul, 9 tap, 11 nusa, 13 maka, 14 kalda, 15 þaka, 17 nafn, 20 err, 22 kímin, 23 ærður, 24 ataði, 25 tarfi. Lóðrétt: 1 kæpan, 2 efnis, 3 feit, 4 karp, 5 ryðja, 6 selja, 10 aflar, 12 aka, 13 man, 15 þokka, 16 kempa, 18 arður, 19 narri, 20 enni, 21 ræst. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. b3 e5 2. Bb2 Rc6 3. c4 Rf6 4. e3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. a3 Bd6 7. d3 O-O 8. Rf3 f5 9. Rbd2 Rf6 10. Dc2 De8 11. Rc4 b5 12. d4 bxc4 13. Bxc4+ Kh8 14. Bb5 Rxd4 15. Rxd4 Dg6 16. Bc6 Hb8 17. Rf3 e4 18. Re5 Bxe5 19. Bxe5 Ba6 20. O-O-O Bd3 21. Dc3 Rg4 22. Bg3 Hb6 23. Bd5 Staðan kom upp á opnu móti í Gí- braltar sem lauk fyrir skömmu. Sænski stórmeistarinn Emanuel Berg (2606) hafði svart gegn Þjóðverjanum Peter Dittmar (2382). 23… f4! 24. exf4 svartur hefði einnig unnið eftir 24. Bxf4 Rxf2. 24…Dd6! 25. Hxd3 exd3 26. Dxd3 Dxa3+ 27. Kd2 Hd8 28. Hd1 Hxb3 29. Dxb3 Dxb3 og hvítur gafst upp. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Yfirkötturinn. Norður ♠4 ♥KG742 ♦G43 ♣KG109 Vestur Austur ♠Á965 ♠-- ♥10 ♥ÁD98653 ♦10962 ♦Á87 ♣7532 ♣Á64 Suður ♠KDG108732 ♥-- ♦KD5 ♣D8 Suður spilar 4♠ doblaða. „Hefurðu aldrei heyrt talað um öpp- erkött?“ Það er nauðsynlegt að rifja upp 4♠ doblaða frá því á fimmtudaginn. Aust- ur vakti í þriðju hendi á 4♥ og suður sagði 4♠, sem vestur doblaði. Því var slegið fram í fimmtudagsþættinum að 4♠ stæðu sem stafur á bók, en það er ekki alls kostar rétt. Reyndar er leikur einn að ná í fjórða varnarslaginn á spaðaníu með því sem enskir kalla „uppercut“ (yfirstungu). Út kemur hjarta, suður trompar og sækir ♠Á. Vestur kemur austri inn á annan láglitaásinn, fær hjarta til baka og ♠9 uppfærist í slag. Þessi vörn brást við borðið. Vestur skipti yfir í lauf og austur dúkkaði til að einangra laufið í borði. Skiljanleg vörn, enda austur lokaður fyrir því að makker ætti svo vesælt tromp. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Góð bók er gulli betri og nú skaltu láta undan þeirri þrá þinni að læra meira. Gættu þess þó að ofmetnast ekki eða gleyma þætti þinna nánustu í velgengni þinni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert einstaklega afkastamikil manneskja. Brettu upp ermarnar, gakktu glaður til verks og þú munt sjá laun erfiðis þíns fyrr en varir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér er gefið að taka eftir hlut- um sem fara framhjá öðrum. Ruglingur frá í gær er liðinn hjá, í dag muntu af- kasta miklu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Krabbinn elskar hugmyndir. Líklega er best að fá háttvísa vog í lið með sér áður en lengra er haldið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú bjóðast ýmsir möguleikar til að ferðast og bæta við sig menntun. Leiddu þessar hugsanir hjá þér því þær eru aðeins tímabundnar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú getur lært eitthvað um sjálfa (n) þig af þínum nánustu samböndum. Reyndu að hugsa áður en þú talar og vera viss um að það sem þú berst fyrir sé þess virði. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Notaðu daginn í að tryggja framtíð þína á hagnýtan og fjárhagslegan máta. Taktu á honum stóra þínum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að kynna þér nýju starfsáætlunina sem þú átt að vinna eftir. Þú leggur þig fram við að gera vinum þínum til hæfis. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Notaðu hvert tækifæri sem þú færð til þess að halda fram þínum málstað. Láttu aðra ekki draga úr þér kjarkinn; athugasemdir þeirra eru mest öfund. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Heimilið og fjölskyldan verða í brennidepli hjá þér á næstu fjórum til sex vikum. Deildu leyndarmálinu með öðrum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Lífsgleði þín er mikils virði og stór hluti af ástæðunni fyrir vel- gengni þinni. Farðu vel með þig og slakaðu á. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þið ættuð ekki að láta setja starfi ykkar skorður sem þið eigið erfitt með að vinna við. Hóaðu eftir liðsauka og gefðu skýr fyrirmæli. Stjörnuspá 7. mars 1902 Sögufélagið var stofnað til þess að „gefa út heimildarrit að sögu Íslands í öllum grein- um frá því á miðöldum og síð- an“. Fyrsti forseti þess var Jón Þorkelsson. 7. mars 1922 Ríkisstjórn Sigurðar Eggerz tók við völdum. Hún sat í rúm tvö ár. 7. mars 1944 Þrír breskir togarar, sem voru í samfloti, strönduðu milli Veiðióss og Nýjaóss í Vestur- Skaftafellssýslu. Fjórir menn fórust en 39 komust til byggða. Aðeins eitt skipanna náðist út. 7. mars 1975 Flutningaskipið Hvassafell strandaði við Flatey á Skjálf- anda í hvassviðri og snjókomu. Mannbjörg varð. Skipið náðist af strandstað síðar og gert var við það. 7. mars 1981 Lagið „Af litlum neista“ hlaut flest atkvæði í fyrstu söngva- keppninni sem Sjónvarpið efndi til. 7. mars 1996 Séð og heyrt hóf göngu sína. Í fyrsta tölublaði þessa vikurits var meðal annars rætt við biskupshjónin, fylgst með for- setaframbjóðendum og fjallað um hund forsætisráðherra, sem sagður var mikið gæða- blóð. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „ÉG er búin að bjóða vinum og fjölskyldu til há- degishressingar í safnaðarheimili Vídalínskirkju,“ segir Anna Nilsdóttir, aðalbókari Garðabæjar, um hvernig hún ætlar að fagna sextugsafmæli sínu í dag. „Svo ætla ég að eyða deginum með fjölskyld- unni en við erum með eitt nýfætt barnabarn,“ seg- ir Anna en hún og eiginmaður hennar, sr. Friðrik Hjartar, eiga þrjú börn og þrjú barnabörn. Hún segist eiga erfitt með að gera upp við sig hvaða afmælisdagur sé eftirminnilegastur. „Það má segja að mörg af mínum afmælum séu eftir- minnileg, bæði þegar ég var yngri og hélt alltaf upp á afmælið með vinkonum mínum og einnig í seinni tíð. Mér er sér- staklega minnisstætt fertugsafmælið mitt þegar ég bjó í Ólafsvík. Það gerði stórbrjálað veður og gestir lentu í ófærð og vonskuveðri,“ segir hún og minnist þess að veður hafi einnig oft verið slæmt á Siglufirði þar sem hún fæddist og ólst upp sem og í Búðardal þar sem hún hefur einnig átt heimili. „Eitt af eftirminnilegustu afmælunum mínum var þar. Það var konukvöld í Staðarskála og ég bauð konunum heim til mín áður. Það var vonskuveður en það var svo gaman að fólk er enn að minnast á það.“ ylfa@mbl.is Anna Nilsdóttir bókari á sextugsafmæli í dag Oft átt afmæli í vonskuveðri Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.