Morgunblaðið - 07.03.2009, Page 43
Velvakandi 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER GAMAN
AÐ HORFA
Á FISKA
SÉRSTAKLEGA
ÞEGAR VERIÐ ER AÐ
STEIKJA ÞÁ Á PÖNNU
ÉG BÝST VIÐ ÞVÍ AÐ
HÚN HAFI FARIÐ MEÐ
HANN INN Í ELDHÚS
ALLAR VERUR Á
JÖRÐINNI BÚA YFIR
LÖNGUNINNI TIL AÐ
SPARKA BOLTA
SJÁÐU ÞETTA!
FINNST ÞÉR
ÞETTA EKKI
VERA ÆÐISLEG
TEIKNING?
FINNST ÞÉR
EKKI ÓTRÚLEGT
AÐ KENNARINN
MINN HAFI
SAGT AÐ
MYNDIN SÉ
EKKI NÓGU
ALVARLEG?!?
EF ÞETTA ER EKKI ALVÖRU-
GEFIÐ LISTAVERK, ÞÁ VEIT
ÉG EKKI HVAÐ! HVAÐ GERIR
KENNARANN MINN SVONA
KLÁRAN AÐ HANN GETUR
GAGNRÝNT LIST Á VIÐ ÞESSA?
ÞETTA ER FALLEGT OG
DJÚPT LISTAVERK!
ÞETTA ER RISAEÐLA Í
GEIMSKIPI, EKKI SATT?
SJÁÐU!
MEIRA AÐ
SEGJA ÞÚ
SÉRÐ ÞAÐ!
JÆJA, NJÓSNARI...
HVAÐ GETUR ÞÚ
SAGT OKKUR?
HVER VALDI ÞENNAN
MANN SEM NJÓSNARA?
HEILU
BORGIRNAR
HAFA VERIÐ
LAGÐAR Í
RÚST! STRÍÐIÐ
ER ALLS
STAÐAR!
ÓTTINN HEFUR
YFIRTEKIÐ
ALLT!
SESAR, ÉG ER MEÐ
ROSALEGA GÓÐA
HUGMYND... VIÐ
LÆKKUM SKATTANA
EN BÆTUM SÍÐAN
VIÐ HELLING AF
ÞJÓNUSTUGJÖLDUM
Í STAÐINN
HVAR ER
MAMMA
ÞÍN?
HÚN ER AÐ TAKA HÚSIÐ
OKKAR Í GEGN SVO VIÐ
SÓUM EKKI RAFMAGNI
ÉG VEIT
AÐ HÚN FER
Í TAUGARNAR
Á ÞÉR, EN ÉG
DÁIST AF
KRAFTINUM
Í HENNI
HÚN Á
EFTIR AÐ
SETJA ALLT Á
HVOLF OG LÁTA
SIG SÍÐAN
HVERFA
SEM
HLJÓMAR EKKI
SVO ILLA
ÉG NEYDDIST TIL
AÐ RÍFA ÚT GÖMLU
EINANGRUNINA...
FYRST JAMESON BÝÐUR
VERÐLAUN FYRIR AÐ KOMAST
AÐ ÞVÍ HVER ÉG ER...
ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ SKIPTA UM
FÖT ÁÐUR EN ÉG FER HEIM
HÆ, ELSKAN!
HVAÐ ER AÐ?
Ó, PETER...
FRAMLEIÐEND-
URNIR SKIPTU
UM SKOÐUN
ÞEIR ÆTLA
EKKI AÐ GERA
FRAMHALDSMYND
UM „MARVELLU“
SEINNA...
VEL hefur viðrað til gönguferða undanfarna daga þó að frost hafi verið
töluvert í höfuðborginni, en veður hefur verið stillt og þurrt. Á myndinni
má sjá fólk á röskri göngu úti við Sundin blá síðla dags í vikunni.
Morgunblaðið/Golli
Á göngu síðla dags
Kvörtun/ábending
til Strætó
ÉG vona að þessar ófar-
ir mínar kalli fram bros
á andliti þeirra sem
finnst það „ömurlegt að
þurfa að hanga í bílnum
í umferðinni á morgn-
ana“. A.m.k. þurfið þið
ekki að taka strætó! Ég
var á leiðinni í sexuna
eftir síðasta tíma dags-
ins á föstudegi kl. 15 og
ég þurfti að komast
fljótt heim. Ég var á
góðum tíma til að ná
honum en þegar ég kom
auga á strætóskýlið við
Hringbraut sá ég að strætóinn var
kominn og fólkið stóð í röð til að kom-
ast inn í hann.
Ég byrjaði að hlaupa og kallaði á
fólkið til að biðja strætóbílstjórann
um að bíða eftir mér. Mér fannst það
skammarlegt en hvað um það, ann-
aðhvort heyrði bílstjórinn ekki í mér
eða hann skeytti ekki um það (í ljósi
framvindu sögunnar finnst mér síðari
kosturinn líklegri). Dyrnar lokuðust
og strætó lagði hægt af stað og ég tók
þá ákvörðun að hlaupa á eftir honum
ef vera skyldi að ég næði honum á
rauðu ljósi, þá þyrfti ég a.m.k. ekki að
taka leigubíl.
Ég hljóp og hljóp og strætóinn
stoppaði á rauðu ljósi svo ég hélt í
vonina. Eftir að hafa hlaupið tæpan
hálfan kílómetra með töskurnar og þá
skömm að vera að hlaupa á umferð-
areyju eins og hálfviti varð ljósið
grænt. Ég gaf upp vonina, en fékk
hana aftur þegar ég sá að strætóinn
náði ekki að komast yfir gatnamótin
út af umferðinni svo hann lenti aftur á
sama rauða ljósinu. Ég gaf í og náði
að komast að farþegahurðinni á góð-
um tíma. Ég bankaði á hurðina,
strætóinn var fullur og bílstjórinn
sem ég síðar komst að að heitir Svan-
ur hristi bara höfuðið. Ég stóð og
bankaði á dyrnar í yfir hálfa mínútu á
meðan ljósið var rautt, ég gerði ekk-
ert annað en að banka. Strætóinn var
fullur og allir farþegarnir störðu á
mig, þetta var mjög neyðarlegt en ég
gafst ekki upp því
vegna ákveðinna að-
stæðna þurfti ég að
komast heim.
Ég var að hugsa um
að færa mig fyrir fram-
an strætóinn og banka
þar þegar kurteis mað-
ur í umferðinni opnaði
dyrnar hjá sér og bauð
mér far. Hann sagði
mér að þetta hefði verið
mjög neyðarlegt og í
raun pínlegt að þurfa að
horfa upp á þetta ger-
ast. Hann gat samt ekki
keyrt mig alla leið heim
svo ég neyddist til þess
að fara út hjá strætó-
skýli þar sem ég tæki sexuna aftur
þar sem við fórum fram úr henni. Þar
sagði ég Svani okkar mjög heiðarlega
og eins kurteislega og ég gat í þessari
aðstöðu að ég héldi að það væri ekki
allt í lagi með hann. Þá tilkynnti
Svanur mér að þetta væru vinnu-
reglur Strætó og ekki mætti hleypa
fólki inn í umferðinni. Ég sagði Svani
að þetta væri ekki það síðasta sem
hann myndi heyra frá mér og þess
vegna sit ég hér og ætla að skrifa nið-
ur þrjá punkta sem ég vona innilega
að Svanur íhugi.
1. Hversu bókstaflega þarf að taka
vinnureglur Strætó ef þú kýst frekar
að skilja manneskju eftir í umferðinni
heldur en að hleypa henni upp í
strætóinn þar sem þú ert sjálfur
stopp á rauðu ljósi?
2. Af hverju heldurðu að ég hafi
verið að hlaupa á eftir strætóinum?
Heldurðu að mér finnist það gaman?
Ég þarf að komast heim til að sinna
mínu námi. Ég vinn með námi og hef
takmarkaðan tíma til að bíða eftir
strætó.
3. Af hverju ætti ég að vilja taka
strætó þegar viðmótið sem ég fæ er
svona? Það er ekki skrýtið að fólk
kjósi fólksbílinn fram yfir strætó ef
Svanur og hans líkar eru við stýrið.
Virðingarfyllst,
Hafsteinn Einarsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Farið verður í
ferðalag fimmtud. 26. mars. Farið frá
Bólstaðarhlíð kl. 13 og ekinn Skálholts-
hringurinn og farið í kaffi á Gömlu
Borg í Grímsnesi. Áætlað heimkoma
um kl. 16.30. Skráning og greiðsla á
skrifstofunni fyrir þriðjud. 24. mars.
Upplýsingar í síma 535-2760.
Félag kennara á eftirlaunum | Árshá-
tíðin verður á Grand hóteli föstudaginn
13. mars. Húsið opnað kl. 18.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Fræðslu-
kvöld Glóðar verður 10. mars kl. 20.
Þar mun Sigmundur Guðbjarnason,
prófessor emeritus og fyrrv. háskóla-
rektor, flytja erindi er hann nefnir
„Hvers vegna er grænmeti hollt?“
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Sam-
verustund á Góu þriðjudaginn 10.
mars kl. 14. Jóna Rán Pétursdóttir og
Guðmundur Guðmundsson sýna suð-
urameríska dansa og Eldri Fóstbræður
syngja nokkur lög undir stjórn Árna
Harðarsonar, við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar.
Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka
daga kl. 9-16.30 er dagskrá fyrir fólk á
öllum aldri. Mánud. kl. 10.50 og mið-
vikud. kl. 9.50 er sund og vatnsleikfimi
í Breiðholtslug. Miðvikud. kl. 10.30 er
fjölbreytt leikfimi, umsj. Sigurður R.
Guðmundsson íþróttakennari. Allar
uppl. á staðnum og í síma 575-7720.
Hraunsel | Sparidagar á Hótel Örk 8.-
13. mars. Dansleikur verður 20. mars
kl. 20.30-24, Þorvaldur Halldórsson
leikur, aðgangur 1.000 kr. Sjá febh.is
Hæðargarður 31 | Gengið „Út í blá-
inn“ alla laugardaga kl. 10. Nýtt
spænskunámskeið byrjar hjá frú Mín-
ervu á mánudag kl. 13. Dagskrá í til-
efni „Baunadagsins“ verður föstudag-
inn 13. mars kl. 15, Soffíuhópur
Hæðargarðs og Tungubrjótar Dal-
brautar flytja. Upplýsingar í síma 411-
2790.