Morgunblaðið - 07.03.2009, Síða 46
46 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HELGI HRAFN Jónsson þótti efni-
legur básúnuleikari, en örlögin
höfðu ætlað honum annað; vegna
meiðsla á öxl varð hann að leggja at-
vinnumennskuna á hilluna á þessu
sviði en tók þá upp gítarinn og tók til
við að semja lög og syngja. Hann er
þó enn að spila á „lúðurinn“ eins og
hann kallar svo, hefur til að mynda
farið um heiminn með Sigur Rós,
Teiti hinum færeyska og dönsku
söngkonunni Tinu Dico – lék á 130
tónleikum á síðasta ári víða um heim
og er enn að, því rétt náðist í skottið
á honum áður en hann hélt til
Bandaríkjanna aftur að spila meira
með Dico.
Helgi Hrafn segir að þessi miklu
ferðalög nýtist honum vel til að
kynna eigin músík, því það er yf-
irleitt liður í ráðningu hans að hann
sjái um upphitun á hverjum tón-
leikum og leikur hann þá eigið efni.
Við það bætist svo að undanfarið
hefur hann líka farið tónleikaferðir
upp á eigin spýtur.
Öll þessi ferðalög taka á og Helgi
Hrafn viðurkennir það fúslega, en
segir líka að það sé ótrúlega
skemmtilegt að fá tækifæri til að
spila eigin tónlist fyrir nýja áheyr-
endur á hverju kvöldi. „Það versta
er þó hvað öll þessi fjarvera hefur
leiðinleg áhrif á lífið,“ segir hann og
á þá við það líf sem tekur við að lok-
inni tónleikaferð.
Ekkert nema tónlist
Segja má að Helgi Hrafn hafi ekki
fengist við annað en tónlist um æv-
ina, eða í það minnsta frá því hann
hóf að spila með hljómsveit í Tónlist-
arskólanum á Seltjarnarnesi um
1990, en síðar fór hann í framhalds-
nám í tónlist til Austurríkis og bjó
þar um tíma, en fluttist aftur heim til
Íslands fyrir tveimur árum.
Ytra setti Helgi Hrafn saman sína
fyrstu plötu, Glóandi, sem kom út
fyrir fjórum árum og fór hann víða
með sveit sinni Beefólk til að kynna
plötuna.
Fyrir hálfu öðru ári fór hann svo
að setja saman lög og vinna hug-
myndir sem urðu að plötunni For
the Rest of My Childhood sem kom
út á dögunum.
Að sögn Helga Hrafns urðu fyrstu
drög að For the Rest of My Childho-
od til í Austurríki, þar sem hann
vann meðal annars með fyrrverandi
félögum sínum úr Beefólk, en hann
lauk svo við plötuna hér heima
smám saman, greip í verkið eftir því
sem færi gafst frá spilamennsku fyr-
ir aðra.
Það gefur augaleið að annir Helga
Hrafns við spilamennsku með öðrum
setja honum nokkrar skorður við
tónlistariðkan hér heima, en hann
ætlar að bæta úr því áður en langt
um líður. „Það er í raun fyndið að ég
skuli ekki enn hafa haldið almenni-
lega tónleika hér heima eftir að hafa
verið að spila út um allan heim, bæði
einn og með öðrum, en ég stefni á út-
gáfutónleika í byrjun apríl,“ segir
Helgi og fram kemur í spjalli okkar
að hann er þegar búinn að setja sam-
an hljómsveit fyrir slíka tónleika.
„Ég fékk til liðs við mig einn af
mínum bestu vinum og fyrrverandi
samstarfsmann í Bossanova band-
inu, Þorvald Þór Þorvaldsson
trommuleikara sem hefur verið í
námi í Bandaríkjunum undanfarin
ár. Síðan ætlar Davíð Friðrik Böðv-
arsson að spila með okkur, frábær
gítarleikari en ég fékk hann til að
spila á bassa,“ segir Helgi Hrafn og
kímir. „þÞð verður gaman að heyra
hvernig það kemur út.“
Helgi Hrafn hinn víðförli
Tónlist hefur verið helsta iðja Helga Hrafns Jónssonar allt frá barnsaldri
Lék á 130 tónleikum með ýmsu tónlistarfólki víða um heim á síðasta ári
Morgunblaðið/Heiðar Kristjánsson
Víðförull Helgi Hrafn Jónsson stefnir á útgáfutónleika í byrjun apríl.
BRESKIR fjölmiðlar hafa fylgst
grannt með kvikmyndinni The
Young Victoria sem væntanleg er
í kvikmyndahús þar ytra í þess-
um mánuði. Kvikmyndin segir
sögu Viktoríu Englandsdrottn-
ingu á yngri árum hennar en það
hefur ekki vakið minni athygli að
ein af aukaleikkonum mynd-
arinnar er Beatrice, prinsessa af
Jórvík, elsta dóttir Andrésar
Bretaprins. Aðalleikkona mynd-
arinnar, þ.e.a.s. sú sem túlkar
hina ungu Viktoríu er leikkonan
Emily Blunt sem einhverjir muna
eftir úr kvikmyndinni The Devil
Wears Prada.
Nútímalegur í háttum
Í viðtali við BBC á dögunum
ræddi Blunt um kvikmyndaferlið
sem mun hafa reynt töluvert á
líkamann vegna allra þeirra kjóla,
korsiletta og annarra fylgihluta
sem hún þurfti að klæðast á
hverjum degi en þá mun það ekki
síður hafa valdið henni óþæg-
indum að þurfa að leika drottn-
ingu með alvöru prinsessu sér við
hlið. Fyrrnefnd Beatrice leikur
eina af þernum drottningarinnar í
myndinni. Eitt af því sem leik-
stjórinn, hinn kanadíski Jean-
Marc Vallée, gerði til að bæta
andrúmsloftið í kvikmyndaver-
unum var að spila tónlist.
„Meðan á tökum stóð spilaði
hann tónlist eftir íslenska hljóm-
sveit sem hann heldur mikið upp
á en hún kallast Sigur Rós,“
sagði Blunt í viðtali við BBC.
„Hann er mjög nútímalegur í
háttum og auk þess að vera frá
Kanada en ekki Englandi tókst
honum að vekja hjá okkur leik-
urunum hugarfar sem ég held að
hafi verið hollt.“ hoskuldur@mbl.is
Spilaði Sigur Rós á settinu
Drottningin Emily Blunt hlustaði á Sigur Rós við tökur á myndinni.
Hljómsveitin hafði góð áhrif á leikara The Young Victoria
Helgi Hrafn Jónsson var bás-
únuleikari í Bossanova-bandinu
sem varð til í Tónlistarskólanum
á Seltjarnarnesi um 1990.
Hann fór í framhaldsnám í
tónlist til Austurríkis og lauk
þar meistaragráðu í tónlist frá
Universität für Musik und Dar-
stellende Kunst í Graz.
Hann er með útgáfusamning
við Playground-útgáfuna og
einnig með samning við tón-
leikahaldarann Live Nation, en
tónleikaferð hans fyrir stuttu
var á vegum Live Nation.
Byrjaði í Bossanova
Smekkleysubúðin nýja að Lauga-
vegi 28 hefur víst gengið vonum
framar og segir kjaftasagan að
búðin sé ein af örfáum plötubúðum
í Reykjavík sem stendur almenni-
lega undir sér. Nú er í bígerð að
flytja lager plötufyrirtækisins frá
Laugavegi 49 (Kjörgarði) þar sem
búðin var til húsa áður, en í leiðinni
var sú ákvörðun tekin að hreinsa til
í birgðageymslunni. Mun þar hafa
safnast saman í gegnum árin fjöld-
inn allur af óseldum eintökum
platna á borð við Lúxus-plötu
Björns Jörundar og Stóra hvell Dr.
Gunna. Perlur fyrir svín hefði ein-
hver sagt!
Ódauðleg listaverk
á haugana
Tónleikar
Þjóðmenningarhúsinu
8. mars kl. 17:00
Hlín Pétursd. sópran, Bryndís Pálsd. Greta Guðnad. og Hildigunnur
Halldórsd. fiðlur, Herdís Anna Jónsd. víóla, Bryndís Björgvinsd. selló,
Anna Guðný Guðmundsd. og Ingunn Hildur Hauksd. píanó, Helga Björg
Arnard. klarinetta, Þuríður Jónsd. flauta og Eydís Franzd. enskt horn
Aðgangseyrir 1500 kr. en 750 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn
Konur og
kammermúsík
Þrátt fyrir ungan aldur virðist
söngkonan Jóhanna Guðrún vera
eldri en tvævetur þegar kemur að
markaðsmálum. Eins og alþjóð trú-
lega veit verður Jóhanna fulltrúi Ís-
lands í Evróvisjón í Moskvu í maí,
en síðan hún var valin hefur hún
notið mikilla vinsælda hér á landi.
Þannig vermir hún til dæmis efsta
sæti lagalistans hér í Morg-
unblaðinu með vinsælasta lagi
landsins, „Is It True“. Jóhanna hef-
ur greinilega ákveðið að hamra
járnið meðan það er heitt því nú
auglýsir hún grimmt plötu sína,
Butterflies and Elvis, sem kom út
um mitt síðasta ár. Í auglýsingunni
er platan hins vegar sögð ný, sem
er greinilega teygjanlegt hugtak.
Jóhanna hamrar járnið
meðan það er heitt
Fólk