Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 2
Björn Dönsku þoturnar fylgdu rúss- nesku vélunum áleiðis heim. FLUGMENN danskra orrustuflug- véla sem annast eftirlit með loftrými Íslands um þessar mundir bægðu í gær frá landinu tveimur rúss- neskum sprengjuflugvélum sem komnar voru inn á íslenska flug- stjórnarsvæðið. Fylgst var með rússnesku flugvél- unum, „björnunum“ eins og þær eru kallaðar, þegar þær komu fram á ratsjám rétt eftir hádegið. Þótt danski flugherinn hafi oft tekið þátt í svipuðum aðgerðum var andrúms- loftið þrungið nokkurri spennu þeg- ar Rússarnir sáust á ratsjárskjánum, að því er fram kemur á heimasíðu danska flughersins. Vélarnar stefndu á Ísland og þegar þær voru komnar nógu nálægt landinu héldu dönsku F-16-þoturnar af stað til að mæta þeim. Rússnesku sprengju- flugvélarnar sneru við 45 sjómílur norðaustur af landinu, þegar þær urðu varar við dönsku þoturnar, og fylgdu Danirnir þeim áleiðis til bækistöðvanna á Kólaskaga. Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, segir að þetta sé í annað sinn á þessu ári sem rússneskum sprengjuflugvélum sé snúið frá landinu. Þær hafi flogið inn í íslenska flugstjórnarsvæðið að meðaltali einu sinni í mánuði frá því Varnarliðið yfirgaf landið. helgi@mbl.is Danir bægðu tveimur „björnum“ frá             !"    #  $         %    &'& &'( &'& ('(      2+2 frá Kambabrún að Selfossi  Fyrirkomulag breikkunar Suðurlandsvegar ákveðið  Kostnaður er áætlaður sextán milljarðar króna  Breikkun vegarins frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni gæti hafist í sumar eða haust Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is FYRSTI áfangi breikkunar Suður- landsvegar verður boðinn út í vor. Það er fimm kílómetra kafli frá Lög- bergsbrekku að Litlu kaffistofunni. Í kjölfarið verður tekinn fyrir 1,2 km kafli frá Vesturlandsvegi að Bæjar- hálsi. Kristján L. Möller samgönguráð- herra og Hreinn Haraldsson vega- málastjóri kynntu í gær sveitar- stjórnarmönnum af Suðurlandi áform um breikkun Suðurlandsveg- ar. Leiðin frá Reykjavík og austur fyrir Selfoss er um 50 km. Frá Reykjavík að Selfossi verður vegur með tvær akreinar í báðar áttir (2+2) nema liðlega 14 kílómetrar á milli Litlu kaffistofunnar og Kamba- brúnar, þar sem ein akrein verður í hvora átt og ein aukaakrein (2+1). Þá verður vegur og brú ofan Selfoss á einni akrein (1+1). Áformuð viðbót við 2+1-kaflann verður með vegriði og breiðari en núverandi vegur í Svínahrauni sem einnig verður breikkaður. Aðeins verða gerð tvenn ný mislæg gatna- mót; við Hafrahvammsveg og Sól- borgir austan við Hveragerði. Möguleiki á einkaframkvæmd Kostnaður við þessa framkvæmd er áætlaður um 16 milljarðar kr. Kristján L. Möller segir að rúmur milljarður sé ætlaður til að hefja lagningu vegarins í ár og vonast hann til að verkið geti hafist síðsum- ars. „Ef við fáum góð tilboð getum við ef til vill lengt þennan kafla,“ seg- ir Kristján. Ekki liggur fyrir hvernig haldið verður áfram á næstu árum eða hvenær breikkun Suðurlands- vegar getur lokið. Á sínum tíma var gert ráð fyrir einkaframkvæmd og segir Kristján að enn sé áhugi fyrir því. Getur hann þess að áhugasamir aðilar hafi sett sig í samband við ráðuneytið vegna Suðurlandsvegar, samgöngumiðstöðvar og Vaðlaheið- arganga. „Við erum ánægð með að þetta skuli hafa verið tilkynnt og sættum okkur við niðurstöðuna í ljósi ástandsins,“ segir Ragnheiður Her- geirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar. Ef ríkið leggur milljarð í Suður- landsveg á ári mun framkvæmdin taka sextán ár. Ragnheiður vonast til að hægt verði að hraða verkinu með annars konar fjármögnun. 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is 877 fóstureyðingar hjá konum með lögheimili á Íslandi voru skráðar á árinu 2007 og er það nokkuð minna en árið á undan en svipað og árin 2004 og 2005. Fóstureyðingum hef- ur heldur farið fækkandi undanfar- inn áratug, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Að jafnaði gangast flestar konur í ald- urshópnum 20-24 ára undir fóstur- eyðingu. Rúm 27% allra fóstureyð- inga árið 2007 voru framkvæmd á konum í þeim aldurshópi. Fóstur- eyðingum meðal 19 ára og yngri fjölgaði hlutfallslega árið 2007. Fóstureyð- ingum fækkar HUNDURINN X hefur nú fengið aðstöðu á þingi. Hann fær þar stað fyrir tilstuðlan Helga Hjörvar alþingismanns, en X er blindrahundur, norskur að uppruna. Það er spurning hvort nafn hundsins sé valið með vísan í komandi kosn- ingar. Hér stendur a.m.k. X við Helga Hjörvar. X rétt fyrir kosningar Morgunblaðið/Kristinn Ferfættur liðsauki á þing Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÞRJÁTÍU og fimm erlendir kröfu- hafar SPRON segja að sameinaðar aðgerðir Fjármálaeftirlitsins (FME), Seðlabanka Íslands og Fjármála- ráðuneytisins vegna yfirtökunnar á SPRON í síðustu viku hafi valdið tjóni og kunni að hafa afleiðingar í för með sér sem íslensk stjórnvöld hafi hugs- anlega ekki hugleitt til fulls, áður en þau tóku sparisjóðinn yfir. Í bréfi frá kröfuhöfunum, sem eru frá fjórtán löndum í Evrópu, Mið- Austurlöndum og Asíu, segir að ís- lensk stjórnvöld hafi hafnað áætlun- um um endurskipulagningu SPRON án skýringa og jafnframt hafnað beiðni um að hitta kröfuhafana. Höfnuðu beiðni um fund Kröfuhafarnir segja að íslensk stjórnvöld hafi ekki á nokkrum tíma- punkti gefið gagntilboð, eða tillögu að lausn, þrátt fyrir að þeim væri full- ljóst að það væri vilji kröfuhafanna að vinna með SPRON og íslenskum stjórnvöldum að lausn á málefnum sparisjóðsins innan hæfilegra tíma- marka, en kröfuhafarnir hafa unnið hörðum höndum með SPRON að endurskipulagningu undanfarna mánuði. Í ákvörðun FME um að taka yfir vald hluthafafundar SPRON og víkja stjórn frá áskilur FME sér rétt til endurskoðunar. Allar innstæður hafa hins vegar verið færðar til Nýja Kaupþings og útgefið hefur verið skuldabréf vegna yfirfærslunnar sem er tryggt með veði í öllum eignum SPRON. Staða kröfuhafanna er því í lausu lofti því enginn markaður er fyrir eignir í augnablikinu sem þýðir að verðmat á undirliggjandi eignum SPRON, sem hafa verið veðsettar Nýja Kaupþingi, er afar lágt. Því er ekki vitað hvað fæst upp í kröfur þeirra þegar búið er að mæta skuld- bindingum vegna yfirfærðra innlána. Íslenskir lögmenn kröfuhafanna munu funda með þeim á næstu dög- um til þess að ræða næstu skref. Segja stjórnvöld ekki hafa hugsað yfirtöku til enda Erlendir kröfuhaf- ar SPRON harð- orðir í gagnrýni Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.