Morgunblaðið - 26.03.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.03.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 E N N E M M /S ÍA /N M 36 59 9 Símalán – útborgun: 900kr. Aðeins 2.000 kr. á mánuði í 12 mánuði. Verð: 24.900 Sony EricSSon G502 Þú getur talað fyrir 12.000 kr. 1.000 kr. inneign á mánuði í eitt ár fylgir. Sex vinir óháð kerfi er liður í aðgerðaáætlun Símans fyrir fólkið og fyrirtækin! Tilboðið gildir meðan birgðir endast Eftir Andra Karl andri@mbl.is EINYRKJAR og stærri framleið- endur, með og án sakarferils, sem rækta í bílskúrum, iðnaðar- og íbúð- arhúsum. Þeir eiga fátt sameiginlegt mennirnir sem teknir hafa verið fyr- ir kannabisræktun á undanförnum mánuðum. Tugir manna hafa verið yfirheyrðir og öllum sleppt. Mál þeirra fara sína leið í réttarkerfinu. Yfirmaður rannsóknardeildar lög- reglu höfuðborgarsvæðisins segir ballið rétt að byrja. Lögreglan á landinu öllu hefur lagt hald á yfir fimm þúsund kanna- bisplöntur það sem af er ári. Í þess- ari viku einni hefur verið lagt hald á um 1.150 plöntur en það er svipað magn og tekið hefur verið árlega hingað til. Telja má víst að fíkniefna- deildin hafi með átaki sínu gert það að verkum að á milli 300 og 500 kíló af maríjúana komist ekki til neyt- enda. Ekki má gleyma að í mörgum tilvikum hefur fundist maríjúana auk plantnanna. Fá vænlegar vísbendingar Á þriðjudagskvöld gerði fíkni- efnadeild lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu húsleit í Hafnarfirði. Í húsnæðinu fundust sex hundruð plöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karlmaður á þrítugsaldri var færð- ur til yfirheyrslu vegna málsins og sleppt að henni lokinni. Þá var gerð leit í húsnæði í miðborginni um liðna helgi og lagt hald á um fimmtíu plöntur. Lögreglan hefur m.a. þakkað árangurinn vænlegum vísbending- um í gegnum fíkniefnasímann, en að auki er ljóst að einhver málanna tengjast. Friðrik Smári Björgvins- son, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, seg- ir að ekkert verði dregið úr þeim þunga sem lagður er á að uppræta kannabisræktun á næstunni. Kannabisplönturnar komnar yfir 5 þúsund                               !  #$%%         Sex hundruðplöntur fundust í Hafnarfirði Í HNOTSKURN »Kannabis-plantan hefur að geyma vímu- efnið THC (delta-9-tetra- hydrocannabinol). Helstu af- urðirnar eru hass og maríjúana. »Vímuefni eru í báðumkynjum jurtarinnar þótt kvenjurtin sé venjulega vímu- efnaríkari. REGLUR forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hags- munum alþingismanna og trún- aðarstörfum utan þings fela í sér „sterk tilmæli“ forsætisnefndarinnar til allra þingmanna, að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Al- þingis. Í reglunum segir m.a.: „Með setningu reglnanna ætlast forsæt- isnefnd til þess að alþingismenn skrái fjárhagslega hagsmuni sína og birti þá opinberlega.“ Skrifstofa þingsins mun halda hagsmunaskrána, og birta opinberlega. Helgi sagði að ekki væri lagagrundvöllur fyrir þessum til- mælum og því refsilaust að neita að verða við þeim. Reglurnar voru settar 16. mars. sl. og taka gildi 1. maí næst- komandi. Gert er ráð fyrir að þær verði endurskoðaðar fyrir 1. desem- ber næstkomandi með það í huga að þá verði sett lög um þessa skráningu. Fjárhagsleg tengsl og tekjur al- þingismanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eru birt á heima- síðu flokksins. Drífa Snædal, fram- kvæmdastýra VG, sagði að flokk- urinn hefði ákveðið að hafa þessar upplýsingar uppi á borðinu. Þar má sjá upplýsingar um tekjur allra í þingflokknum, fasteignir þeirra, hlutabréfaeign, félagaaðild og nöfn og störf maka. Drífa sagði aðspurð að ekki hefði komið til tals innan VG að birta slíkar upplýsingar um þá sem skipa efstu sæti framboðslista flokks- ins í vor. Framsóknarflokkurinn mun fara að reglum forsætisnefndar Alþingis varðandi þingmenn flokksins, að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar, fram- kvæmdastjóra flokksins. Hann sagði að upplýsingar um fjárhagsleg tengsl þingmanna Framsóknarflokks hefðu verið aðgengilegar í nokkuð mörg ár á heimasíðu flokksins. Sigfús benti á að að reglur forsætisnefndarinnar ættu einungis við um þá sem ættu sæti á Alþingi. Spurður hvort til greina kæmi að þeir sem skipa efstu sæti á framboðslistum Framsókn- arflokksins birtu einnig upplýsingar um fjárhagsleg tengsl sín sagði Sig- fús svo vera. Það hefur þó ekki verið rætt formlega innan flokksins á landsvísu. Ekki náðist í framkvæmdastjóra Frjálslynda flokksins, Samfylking- arinnar né Sjálfstæðisflokksins í gær. gudni@mbl.is Alþingismenn ekki skyldaðir að gefa upp hagsmunatengsl nema með lögum Morgunblaðið/Golli Tilmæli Mælst er til þess að þing- menn gefi upp hagsmunatengsl sín. „Sterk tilmæli“ um upplýsingagjöf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.