Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
ÞAÐ er rangt að
til séu töfralausn-
ir út úr vand-
anum sem Ís-
lendingar eiga
við að glíma.
Næstu ár verða
erfið. Tækifærin
eru handan við
hornið ef tryggð-
ur er mikill agi í
hagstjórn og Ís-
lendingar fá aðild að ESB og taka
upp evru. Þetta kom fram í erindi
Eddu Rósar Karlsdóttur hagfræð-
ings á aukaársfundi ASÍ.
Edda Rós varaði þó við að evran
væri engin töfralausn. Verðbólga
verði ekki sjálfkrafa sú sama og í t.d.
Þýskalandi og þó langtímavextir
myndu lækka mikið yrðu þeir ekki
sjálfkrafa þeir sömu hér.
Edda Rós sagði að þó að Íslend-
ingar væru að ganga í gegnum mikið
áfall, þá byðist einstakt tækifæri til
að ganga inn í stærra efnahagssvæði
og taka upp myntsamstarf sem færði
Íslendingum aukið traust og trú-
verðugleika, sem myndi hraða upp-
byggingu efnahagslífsins. Það væri
mjög sjaldgæft að þjóð í erfiðleikum
byðist slíkt tækifæri. „Við eigum að
grípa tækifærið til að fá stöðugleika
til framtíðar,“ sagði hún.
Edda Rós dró upp mynd af því
hversu gífurlega miklar sveiflur
hefðu orðið á gengi helstu mynta
gagnvart krónunni frá 2007. Þannig
hefur t.d. breska pundið hækkað um
28% gagnvart krónu en á sama tíma
hefur hefur japanska jenið hækkað
um 117%, evran um 76% og dollarinn
um 77% en það eru þær myntir sem
við fáum fyrir stærsta hluta útflutn-
ingsvara okkar. Stór hluti skuldanna
væri hins vegar í jenum. ,,Ef ég væri
útflytjandi á fiski á Bretlands-
markað en skuldaði í japönskum jen-
um, þá hafa tekjur mína aukist um
28% en ég þarf að borga 117% meira
af skuldunum.“ Hún sagði að sú
gjaldeyrisáhætta sem Íslendingar
hafa sett sig í væri algerlega fráleit.
Tækifæri
en engin
töfralausn
ESB-aðild og evra
auka trúverðugleika
Edda Rós
Karlsdóttir
FULLTRÚAR stéttarfélaga af öllu landinu komu sam-
an á Hilton Nordica hótelinu í gær til aukaársfundar
ASÍ. Þar var til umræðu sýn verkalýðshreyfingarinnar
á endurreisn efnahags- og atvinnulífs. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra ávarpaði fundinn. Hún sést
hér spjalla við Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, og
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ,
fyrir setningu fundarins. Fundinum lauk um kl. 18.
Morgunblaðið/RAX
Ræddu leiðir út úr kreppunni
„SETTAR verði siðareglur um
fjárfestingarstefnu lífeyrissjóð-
anna og fyrirmyndarreglur um al-
menna starfsemi sjóðanna, þ.m.t.
launa- og starfskjarastefnu,“ segir
í ályktun sem samþykkt var á
aukaársfundi ASÍ síðdegis í gær.
„Vegna ásakana í garð stjórna og
stjórnenda lífeyrissjóða er nauð-
synlegt að Fjármálaeftirlitið kanni
í skýrslu sinni hvort sjóðirnir hafi
á undanförnum árum starfað eftir
lögum, samþykktum og fjárfest-
ingastefnum sjóðanna.“
Forseti ASÍ segir nauðsynlegt að
setja skýrar reglur um aukið
gagnsæi, siðferði og trúverð-
ugleika í starfi lífeyrissjóða. „Slík-
ar reglur þurfa að ná jafnt til fjár-
festingastefnu og daglegrar
starfsemi sjóðanna, þ.m.t. til starfs-
kjara, gjafa, risnu og ferðalaga.“
Siðareglur líf-
eyrissjóðanna
JÓHANNA Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
gagnrýndi harð-
lega hugmyndir
um flata nið-
urfellingu skulda
í ávarpi á auka-
ársfundi ASÍ.
Vitnaði hún í nýja
útreikninga
Seðlabankans.
„Báðar tillögurnar, annars vegar
20% niðurfelling og hins vegar fjög-
urra milljóna niðurfelling húsnæð-
islána, myndi kosta um það bil 300
milljarða, eingöngu vegna húsnæð-
islána. Tillögurnar eru hins vegar
því marki brenndar að aðeins innan
við helmingur niðurgreiðslunnar
myndi renna til þess hóps sem býr
við lakasta eiginfjárstöðu,“ sagði Jó-
hanna.
Mesta eignatilfærslan
Jóhanna sagði að stærstur hluti rík-
isstyrksins myndi renna til þeirra
sem hafa fimm milljónir eða meira í
eigið fé. „Tillagan um að fella niður
20% af öllum skuldum, bæði heimila
og fyrirtækja, yrði reyndar einhver
mesta eignatilfærsla frá ein-
staklingum til fyrirtækja sem hér
hefði farið fram. Skuldir fyrirtækj-
anna eru margfaldar á við skuldir
einstaklinga og því færu útgjöld rík-
isins vegna þessa fyrst og fremst til
fyrirtækja. Skatturinn yrði hins veg-
ar greiddur af launþegum þessa
lands. Mér reiknast til að heild-
arkostnaður vegna þess yrði milli
800 og 900 milljarðar króna, ríflega
10 milljónir á hverja fjögurra manna
fjölskyldu í landinu.“ Skuldir rík-
isins, ekki síst vegna hrunsins, verði
í lok þessa árs um 1.100 milljarðar.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gætu
þýtt 10%, 20% eða 50% niðurfellingu,
allt eftir aðstæðum hvers og eins.
Kosta 800 til
900 milljarða
Jóhanna
Sigurðardóttir
AFDRÁTTARLAUS afstaða ASÍ um að Íslendingar eigi
að stefna að aðild að Evrópusambandinu og taka upp
evru var ofarlega á baugi í málefnavinnu og umræðum á
aukaársfundi ASÍ í gær. „Því miður eru miklar líkur á því
að Evrópuumræðan fari enn einu sinni út á hliðarspor í
aðdraganda kosninga og greinilegt að stjórnmálaflokk-
unum er um megn að taka afstöðu til málsins,“ sagði Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, í setningarræðu sinni.
„Þetta er áhyggjuefni, því fátt er mikilvægara við þess-
ar aðstæður og það er óviðunandi með öllu að þessi patt-
staða innan og milli stjórnmálaflokkanna komi í veg fyrir
að þjóðin fái að taka afstöðu í málinu,“ sagði hann. Gylfi
lagði einnig áherslu á að verja yrði innihald kjarasamn-
inganna í komandi endurskoðun þeirra. „Komi ekki til
framlengingar er hætt við að samningar dragist mjög á
langinn og að mikilvæg verðmæti glatist úr samningnum
og eins og fram kom í fréttum í gær er það alls ekkert
sjálfgefið að okkur takist að verja kjarasamninginn. Ekki
má gleyma því, að ef okkur tekst að verja kjarasamning-
inn, þó að á seinni dagsetningum sé, munu launataxtar á
almennum vinnumarkaði hækka um samtals 20.000 kr.
hjá verkafólki og 28.000 kr. hjá iðnaðarmönnum.“
Tímar ofurlauna eru liðnir
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ávarpaði
aukaársfundinn í gær og sagði m.a. að tímar ofurlauna í
íslensku atvinnulífi væru liðnir. „Þeir sem haga sér með
slíkum hætti í því umhverfi sem við búum við í dag eru í
raun að segja sig úr siðferðilegu sambandi við þjóðina.
Ég hvet aðila vinnumarkaðarins til að taka til umfjöll-
unar á sínum vettvangi þróun samsetningar launa, auka-
greiðslna, kaupaukasamninga, bónusa og starfsloka-
samninga.“ Jóhanna sagði einnig að nú ætti að skoða
breytingar á stjórnkerfinu og sameiningu ráðuneyta, svo
sem efnahagsráðuneyta og atvinnumálaráðuneyta.
omfr@mbl.is
ESB-málið í pattstöðu flokka
Forseti ASÍ segir mikil verðmæti í húfi verði samningar ekki framlengdir
Forsætisráðherra sagði tímabært að sameina efnahags- og atvinnuráðuneyti
Í HNOTSKURN
»Forseti ASÍ segir háværarraddir innan SA um að
segja sig frá samningnum áð-
ur en kemur til kauphækkana.
Atvinnurekendur hafi skýran
rétt til þess skv. forsendu-
ákvæði kjarasamninga.
»Forsætisráðherra segirlaunafólk og atvinnulíf
eiga að búa við hliðstæð kjör
og í helstu viðskiptaþjóðum.
Íslendingar eigi því að sækja
um aðild að ESB.