Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 9

Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 Ný sending Allar gerðir Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Þér líður vel í www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-54 Flottur sparifatnaður frá NAME IT SMÁRALIND S: 544 4220 / KRINGLAN S: 568 4344 1090 STR. 74-152 BOLIR Laugavegi 63 • Sími 551 4422 VORYFIRHAFNIRNAR KOMNAR Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli Skoðið sýnishornin á laxdal.is Dúnsængur frá LÍN DESIGN www.lindesign.is 100% andadúnn Ekkert fiður né önnur fyllingarefni Dúnmjúk gæðasæng Fermingartilboð 24.990 kr. nýjar vörur komnar í hús Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Bæjarlind 6 sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 Nýjar blússur kr. 5900  GUÐMUNDUR Valur Oddsson lauk í september 2008 dokt- orsgráðu í verkfræði frá Tæknihá- skólanum í Danmörku (DTU). Rit- gerðin fjallaði um gerð módela fyrir notkun gervigreindar í viðskiptalífinu. Titill verkefn- isins var: „Know- legde engineer- ing for embedded con- figuration“ og var unnið við deildina DTU Ma- nagement. Verkefnið var unnið í samvinnu við Grundfos og var ætl- unin að auðvelda innleiðingu gervi- greindar í pumpukerfi fyrirtæk- isins. Guðmundur Valur lauk stúdents- prófi frá eðlisfræðideild MK vorið 1991. Hann var ár sem skiptinemi í Bólivíu (1988-1989) og dvaldi ár í menntaskólanum Nørre G. í Brøns- høj í Danmörku (1989-1990). Hann lauk CS-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands, með framleiðslu- stjórnun sem aðalfókus, sumarið 1996. Hann vann hjá Ríkisskatt- stjóra (1996-1998) við skönn- unarverkefni skattframtala og hjá Landsbanka Íslands (1998 – 2002) við ýmis tölvutengd verkefni. Vorið 2003 hóf hann nám að nýju við DTU á vöruþróunarlínu. Mast- ersverkefni hans var unnið í sam- vinnu við Danfoss og ber titillinn „Product Configuration at Gemina Termix“. Samhliða mastersnáminu vann hann hjá þróunardeild Micro- soft í Kaupmannahöfn í verk- efnastjórnunardeild. Í júní 2005 hóf Guðmundur Valur doktorsnám hjá prófessor Lars Hvam sem í áratug hefur unnið með innleiðingu gervi- greindar í viðskiptalífið. Hann af- henti ritgerð sína í byrjun ágúst 2008 og varði hana hinn 24. sept- ember 2008. Nú starfar Guð- mundur Valur hjá Factotech, fyr- irtæki sem sérhæfir sig í innleiðingu gervigreindar bæði í hönnun og framleiðslu. Factotech starfar mest fyrir byggingariðn- aðinn og ýmis framleiðslufyrirtæki. Guðmundur Valur er búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni Önnu Björgu Jónsdóttur, lækni í sérfræðinámi í öldrunarlækningum, og dætrum þeirra tveimur, Helgu Valborgu 4 ára og Völu Katrínu 2 ára. Doktor í verkfræði Námskeið fyrir ungar verðandi mæður FÉLAG einstæðra foreldra mun á næstunni bjóða upp á níu mánaða hópastarf fyrir verðandi mæður. Verkefnið ber heitið „Meðganga – móðir – barn“ og er ætlað að ná til ungra mæðra sem hafa þörf fyrir fé- lags- og tilfinningalegan stuðning á meðgöngu og eftir fæðingu. Hópurinn mun hittast vikulega á meðgöngu og tvisvar í mánuði eftir fæðingu. Fyrra tímabilið einkennist af heildrænum stuðningi á með- göngu, s.s. félagslegri ráðgjöf og fræðslu, fæðingarundirbúningi og umræðum um fæðinguna. Á seinna tímabilinu verður m.a. fræðsla um þroskaskeið ungbarna og mikilvægi tengslamyndunar og fleiru sem mæðurnar óska eftir að ræða um. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Félag einstæðra for- eldra eða senda tölvupóst á oktav- ia@fef.is eða elinborg@midstod.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.