Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 11

Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 „Það voru mistök að hafa ekki Sjálfstæðisflokk- inn með í ráðum og ætla að valta yfir hann með þessi mál. Það mun ekki takast,“ sagði Geir H. Haarde, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokks- ins, á blaðamannafundi í gær. Hann sat sinn síð- asta dag á þingi í gær, eftir 22 ára þingsetu. Heiður þingsins að veði á lokasprettinum „Ég held að persónukjörsmálið sé núna fallið af sjálfu sér, þó að því sé nú borið við sem við bent- um á strax við fyrstu umræðu, að það væri álita- mál að tvo þriðju þingmanna þyrfti til að sam- þykkja þá breytingu.“ Margir stjórnarliðar hefðu lítinn áhuga á því að erfið prófkjörsbarátta, sem nú sé afstaðin, yrði endurtekin í kosningunum. Mikill órói sé í stjórnarflokkunum vegna málsins og margir þar kæri sig ekkert um það. Um stjórnarskrána sagði Geir best að fara málamiðlunarleið eftir kosningar, breyta aðferð- inni við að breyta stjórnarskrá og að gera stjórn- lagaþing ráðgefandi. „Heiður þingsins er að veði að mönnum takist að finna einhverja sáttaleið í því,“ sagði hann. Hægt sé að ljúka þingstörfum með sómasamlegum hætti, viðurkenni stjórnin að hafa hlaupið á sig í þessum tveimur málum. Eftir Önund Pál Ragnarsson og Björn Jóhann Björnsson EKKI sér fyrir endann á meðferð allsherjar- nefndar á frumvarpi um persónukjör í þingkosn- ingum. Ljóst er að það kemst ekki lengra í með- förum þingsins fyrir kosningar. Árni Páll Árnason nefndarformaður segir að gangur máls- ins verði ekki greiður fyrst Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið skýra afstöðu á móti og fyrir liggi úr- skurður um að tvo þriðju hluta þingmanna þurfi til að samþykkja það. Þar að auki þurfi að taka tillit til tilmæla ÖSE, þess efnis að ekki skuli breyta kosningalögum skömmu fyrir kosningar. „Það orkar auðvitað mjög tvímælis að láta at- kvæði ganga um leikreglur þegar leikur er haf- inn,“ segir Árni og vísar til þess að kosning er hafin utan kjörfundar. Gæta þurfi þess að mál sem þetta fái boðlega þinglega meðferð. „Hugsanlega einhverjar greinar“ Engin niðurstaða varð heldur á fundi stjórn- arskrárnefndar í gær og ekki útlit fyrir að boð- aðar breytingar á stjórnarskránni nái fram að ganga á þessu þingi, að sögn Valgerðar Sverr- isdóttur nefndarformanns. „Það er óhætt að kveða upp úr um að ekki verður samstaða um þetta mál í heild sinni, hugsanlega einhverjar greinar, en það á eftir að láta betur reyna á það,“ segir Valgerður, sem reiknar með að nefndin komi saman áður en þing verður kallað heim. Hún vill ekki nefna einstök ágreiningsmál en kveður flestar athugasemdir hafa borist við þá til- lögu að binda í stjórnarskrá að auðlindir séu eign þjóðarinnar. Einnig er ágreiningur uppi um stjórnlagaþing, eins og fram hefur komið, en von- ir voru bundnar við að þingið kæmi saman á árinu. Lýðræðismálin verða eftir  Frumvarp um persónukjör situr enn í allsherjarnefnd og fer líkast til ekki lengra  Ekki samstaða í stjórnarskrárnefnd um frumvarp til laga um stjórnlagaþing Árni Páll Árnason Valgerður Sverrisdóttir Geir H. Haarde SÉRTÆK undanþága fyrir áliðn- að, frá viðskiptakerfi ESB fyrir losunarheimildir gróðurhúsa- lofttegunda, jafngildir í raun upp- sögn EES-samningsins af Íslands hálfu. Þetta segir í umsögn Náttúruverndarsamtaka Íslands um þingsályktunartillögu um hagsmuni Íslands í loftslags- málum. Tillagan er studd af þing- flokkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en hún gengur út á að svokölluðu „íslensku ákvæði“ verði við haldið. Þá gagn- rýna samtökin að þótt íslensk stjórnvöld taki undir erlend lang- tímamarkmið um minnkun útblást- urs hafi þau ekki sett sér nein slík til skamms tíma. Jafngildir uppsögn EES VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ kveðst ekki hafa beitt sér gegn því að sérstakur saksóknari fái rúmar valdheimildir. Morg- unblaðið sagði í gær frá ræðu Sivjar Friðleifsdóttur á Alþingi, þar sem hún sagði að spyrnt hefði verið við gegn valdheim- ildum saksóknara í tíð Björgvins G. Sigurðssonar í ráðuneytinu. „Í minnisblaði viðskipta- ráðuneytisins til dómsmálaráðu- neytisins, sem vísað var til í um- ræðum á Alþingi, var einfaldlega skýrt út hvaða verkaskipting er þegar í gildi á milli embætta Skattrannsóknarstjóra, Fjármála- eftirlitsins og Samkeppniseft- irlitsins, í samræmi við lög um starfsemi þessara stofnana,“ seg- ir í tilkynningu. Ekki hafi verið ágreiningur við dómsmálaráðu- neytið um að viðhalda þeirri verkaskiptingu. Einnig ítrekar ráðuneytið ánægju með að Fjármálaeftirlit og embætti sérstaks saksóknara hafi sett sér samskiptareglur. Vilja líka rúm- ar heimildir saksóknara GEIR H. Haarde lauk í gær störfum sem þingmaður og flutti kveðju- ræðu sína á þingi. Þeir Pétur H. Blöndal og Guðjón Arnar Krist- jánsson óskuðu honum velfarnaðar að ræðunni lokinni. Geir flytur ræðu á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í dag, en heldur svo út til Hollands til áframhaldandi lækn- ismeðferðar. Það er áframhald af þeirri meðferð sem hann hefur þeg- ar undirgengist. Á blaðamanna- fundi í gær kvað hann baráttuna við veikindin hafa gengið vel og lík- ur væru til að hann næði sér. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Geir hættur eftir 22 ár á þingi ÁGÚST Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, verður eini fulltrúi Íslands á þingi Al- þjóðaþingmannasambandsins í Addis Ababa í Eþíópíu. Ágúst fer út 4. apríl ásamt Örnu Bang al- þjóðaritara og koma þau aftur 10. apríl, að sögn Örnu. Skorið hefur verið niður um tug- milljónir á alþjóðasviði Alþingis á þessu ári og segir Arna að vel hafi tekist til með að halda ferðakostn- aði í skefjum. onundur@mbl.is Ágúst Ólafur til Eþíópíu Orðrétt á Alþingi ’… ástæða er til að hrósa hátt-virtum fyrsta flutningsmanniLúðvík Bergvinssyni fyrir þrautseigj-una í þessu efni. Mér telst svo til aðþetta sé níunda þingið sem hann hef- ur fyrir því að leggja þetta frumvarp hér fram. ÁRNI PÁLL ÁRNASON ’Við ræðum hér frumvarp sem áað afnema þann ósið sem við-gengist hefur í íslenska fjármálakerf-inu í áratugi að láta einhvern annan enlántaka bera ábyrgð á láninu, […] ekki síst hefur það valdið ótrúlegum harm- leikjum hjá fólki sem hefur skrifað upp á og borið ábyrgð. PÉTUR H. BLÖNDAL ’Það er gleðilegur atburður semer að eiga sér stað. […] Við er-um að gera hér réttláta hluti, við er-um að gera íslenskt fjármálakerfiréttlátara gagnvart viðskiptamönnum þess. BIRKIR JÓN JÓNSSON ’Þetta er ákaflega hjartnæmstund, hér hafa fulltrúar flestra efekki allra þingflokka komið upp og lok-ið lofsorði á þetta mál og þá kviknarbara ein spurning. Hvernig í ósköp- unum stendur á því að það skuli hafa þurft níu tilraunir til að koma þessu þarfa rétttlætismáli í gegn sem allir lofa nú hér mjög? STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjáv- arútvegsráðherra segir Íslendinga í fullum rétti til að stunda veiðar á mak- ríl sem sé innan lögsögu landsins stór- an hluta ársins. Hann telur farsælast að Íslendingar fái aðgang að samn- ingaborði Norðmanna, Færeyinga og Skota um hlutdeild í veiðinni. Steingrímur hringdi í gær í norska kollega sinn, Helgu Pedersen, sjáv- arútvegsráðherra Noregs, í gær vegna yfirlýsinga hennar í norskum fjölmiðlum um markílveiðar Íslend- inga. „Ég útskýrði að við gerðum kröfur um að koma að borðinu þar sem yrði samið um skiptingu þessa stofns. Við teldum okkur vera í full- um rétti þegar stofn af þessu tagi væri farinn að vera innan okkar efnahagslögsögu þónokkurn hluta ársins.“ Eitt af því sem hefur verið gagn- rýnt við íslensku makrílveiðarnar er að stærstur hluti aflans fari í bræðslu í stað manneldis, sem skilar umtalsvert meiri verð- mætum. „Hluti af þessum fiski – líka síldinni – fer í bræðslu því það næst ekki að nýta allt til manneldis,“ segir Steingrímur. „Við gerum okkur vissulega vonir um að hægt verði að nýta stærri hluta til manneldis en það byggist m.a. á því að útgerðirnar búi sín skip þannig. Svo er makríllinn oft blandaður síld á köflum svo þetta er háð aðstæðum, fitumagni og fleiru.“ Hann bætir því við að hluti makríl- afla Norðmanna, Færeyinga og Skota fari í bræðslu. „Það þarf eng- inn að segja mér annað svo það þýðir ekkert að vera með einhvern óg- urlegan heilagleika í þessu.“ Skiptast á bréfum Fund norsku og bresku sjávar- útvegsráðherranna bar einnig á góma í símtali Steingríms og Ped- ersen. „Ég sagði að okkur þætti mjög óréttlátt ef gefið væri í skyn að við yrðum beitt einhverjum þvingandi aðgerðum. Við teldum þetta löglegar veiðar og um þær giltu alþjóðasamn- ingar, bæði EFTA- og WTO- samningar. Við ætluðumst til þess að það yrði farið eftir þeim.“ Hvað varðar fréttir af tilmælum Pedersen til norskra laxeldisstöðva um að kaupa ekki íslenskt makrílmjöl segir Steingrímur: „Ég vil nú kannski ekki meina að það séu komin tilmæli þar um heldur er þetta eitt- hvað sem er sagt í blöðum.“ Hins vegar taki hann slíkar fréttir alvar- lega og vegna þeirra hafi hann ákveð- ið að hringja í Pedersen. Þeim kom saman um að skiptast á formlegum bréfum þar sem rök hvors um sig yrðu reifuð. Viljum aðgang að samningaborðinu  Makrílveiðar Íslendinga í samræmi við alþjóðlega samninga  Vonast til að stærri hluti aflans fari til manneldis en nú  Von á formlegu bréfi Norðmanna Steingrímur J. Sigfússon Í HNOTSKURN »Steingrímur bendir á aðreynslu vanti í makrílveið- um í íslenskri lögsögu. Ekki hafi veiðst mikið af honum ár- ið 2007 en umtalsvert í fyrra. »Fari heildarafli íslenskraskipa í makríl á árinu 2009 yfir 112.000 lestir, þar af 20.000 lestir á alþjóðlegu haf- svæði, áskilja íslensk stjórn- völd sér rétt til að ákveða að veiðar á makríl skuli bannaðar eða takmarkaðar með ein- hverjum hætti, skv. nýrri reglugerð. » Veiðireynsla skipa núgæti haft áhrif á úthlutun kvóta til Íslendinga síðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.