Morgunblaðið - 26.03.2009, Page 38

Morgunblaðið - 26.03.2009, Page 38
38 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 Í góðum félagsskap Listamaðurinn Páll á Húsafelli með tveimur verkanna á afmælissýning- unni, af þeim Daníel á Fróðastöðum og Andrési Kolbeinssyni, óbóleikara og ljósmyndara. og um þessa tíma sem eru ekki lengur til. Svo mála ég oft sama fólkið aftur og aftur. Það finnst mér skemmtilegt. Ég mála það aldr- ei alveg eins. Thor Vilhjálmsson vinur minn er dæmi um það, en ég hef málað hann nánast ár- lega frá 1985. Þessi mynd þarna er sú nýjasta af Thor – olían er varla orðin þurr. Hann var hjá mér í viku um daginn, við skriftir, og þá ákvað ég að gera þessa mynd sem endapunkt á sýninguna, og myndina þarna af mér með Kvíahelluna á Húsafelli.“ Hellan, sem Páll er með í fanginu á myndinni, vegur 190 kíló. Þarna er röð verka af kollegum Páls, mynd- listarmönnum; Valtýr Pétursson við trön- urnar, Veturliði Gunnarsson í Húsafelli að gera krítarmynd með Strút í baksýn og Jó- hannes Geir heldur í jakkaboðungana. „Þetta er minning, Jóhannes stóð svona á sýningum þegar hann skoðaði verkin,“ segir Páll. Margar eftirminnilegar myndir eru þarna af bændahöfðingjum í uppsveitum Borg- arfjarðar, svipmiklum körlum með skegg og stórar hendur, og einn er að moka flórinn. Svo eru myndir af Arvo Pärt, Maríu Ellingsen, séra Geir Waage, Trondi Patursyni og mörg- um fleirum. „Ég á mikið af þessum myndum sjálfur en hef fengið örlítið lánað. Ég hef legið á þeim, hef verið nískur að láta þær, enda erfitt að meta svona minningar til fjár,“ segir Páll. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „ÞETTA er allt fólk sem ég þekki, og fólk sem ég hafði áhuga á að gera myndir af. Myndirnar eru gerðar á löngum tíma, en inn á milli eru al- veg glæný verk,“ segir Páll Guðmundsson, myndlistarmaður á Húsafelli. Hann leiðir blaðamann um sýninguna „Vinir mínir“ sem verður opnuð í Reykjavík Art Gallery á morg- un, 27. mars, en þá verður Páll fimmtugur. Á sýningunni er fjöldi mynda af fólki; mál- verk í líkamsstærð, andlitsmyndir sem eru málaðar, teiknaðar og þrykktar, stækkaðar myndir úr skissubókum Páls og einnig nokkr- ar sem eru höggnar út í grjót. „Ég á svo mikið af myndum sem ég hef aldr- ei sýnt, eins og þessa af Jóhannesi Geir mál- ara, blómakonuna hér og þessa þarna af móður minni við þvottasnúruna,“ segir Páll og bendir á stór expressjónísk málverk sem bera sterk líkindi með fyrirsætunum. „Svo ákvað ég að bæta við nýjum myndum, eins og þessari af frænku minni, Ástríði Öldu píanóleikara, og Gunnari Kvaran, sem er mikill vinur minn. Þau eru hér á besta stað. Þarna er Þorgerður Ing- ólfsdóttir kórstjóri og við hliðina á henni Jón Helgason prófessor. Hann kom að Húsafelli, ég hitti hann og það var eftirminnilegt.“ Veðurbarðir bændur og listamenn Páll segir elstu myndirnar vera frá um 1980, þá fór hann að mála portrett. „Ég hef gert portrettmyndir lengi og hef ekki síst haft áhuga á bændum. Veðurbörðum bændum; ég dróst fyrst að því að gera myndir af þeim. Þeir eru svo mikill hluti af landinu. Þetta svipmikla fólk er að hverfa. Fólk er að verða einsleitara.“ Páll heldur leiðsögninni áfram. Á áhrifa- miklu málverki sitja tvær gamlar systur, sem bjuggu að Uppsölum í Hálsasveit. „Þarna sést þessi gamla gestrisni, þær bjóða upp á kaffi og margar kökur. En hundurinn var grimmur og varð að vera í bandi. Þetta finnst mér fínt augnablik, þetta er minning um þessar konur Páll Guðmundsson frá Húsafelli sýnir fjölda mannamynda í tilefni fimmtugsafmælisins á morgun „Þetta svipmikla fólk er að hverfa“ Í HNOTSKURN » Sýning Páls frá Húsafelli verðuropnuð í Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu 30, klukkan 17 á morgun, föstudag. » Ýmsir vinir Páls munu heiðra hannmeð tónlistarviðburðum á opn- uninni en á sýningunni eru m.a. myndir af tónlistarfólki sem tengist honum og hann hefur unnið með. AFMÆLISTÓNLEIKAR Nýja tónlistarskólans verða haldnir í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20. Efnis- skráin er fjölbreytt og koma þar fram fyrrverandi og núverandi nemendur ásamt kennurum skólans. Á þessu skólaári fagnar skól- inn 30 ára afmæli sínu. Stofnandi og jafnframt fyrsti skólastjóri hans var Ragnar Björnsson, organisti og stjórnandi. Skólastarfið er fjölbreytt og er kennt á pí- anó, fiðlu, selló, flautu, gítar og harmonikku og þá er söngkennsla einnig hluti skólastarfsins. Tónlist Afmælistónleikar í Langholtskirkju Ragnar Björnsson SALVÖR Nordal, for- stöðumaður Siðfræðistofn- unar, heldur fyrirlestur í Þjóðarbókhlöðu kl. 15.15 á morgun. Fyrirlesturinn nefnist: Er friðhelgi einka- lífsins forsenda umburð- arlyndis? Þar verður fjallað um greinarmun á opinberu lífi og einkalífi og sér- staklega fjallað um tvenns konar skilning á opinberu sviði. Þá verður fjallað um hvað felst í umburð- arlyndi og tengsl þess við fyrrgreindan grein- armun og hvort friðhelgi einkalífs sé forsenda umburðarlynds samfélags. Hugvísindi Umburðarlyndi og friðhelgi einkalífs Salvör Nordal BROADWAY-sveifla, mambó, djass og erillinn á stræt- um Parísarborgar verða í forgrunni á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói í kvöld. Yfirskrift tónleikanna er New York – París – New York, og tón- skáldin sem leikin verða eru George Gershwin, Darius Milhaud og Leonard Bernstein, öll þekkt að gleði og gáska í verkum sínum. Einleikari kvöldsins er ung kona frá Argentínu, Karin Lechner, sem hefur lært hjá sumum mestu meisturum píanósins, þar á meðal Mörthu Argerich og Daniel Bar- enboim. Hún leikur einleik í píanókonsert Georges Gers- hwins. Annað verk Gershwins á tónleikunum er Amerík- umaður í París sem Gershwin samdi eftir leit að inn- blæstri í Evrópureisu 1928. Í París hitti hann marga helstu meistara þess tíma, meðal annarra Milhaud, höf- und fyrsta verksins á efnisskránni, Sköpunar heimsins, en Milhaud fór einmitt sjálfur til New York að sækja sér innblástur vegna þess hve heillaður hann var af djassi. Púertóríkanar á götum New York-borgar eiga hins vegar lokaorðið á tónleikum kvöldsins, í Svítu úr West Side Story eftir Leonard Bernstein. Stjórnandi á tónleikunum er Benjamin Shwartz. New York – París – New York á Sinfóníutónleikum í kvöld Sinfónísk stórborgastræti Hljómsveitarstjórinn Benjamin Shwartz þykir einn efnilegasti hljómsveitarstjóri í Bandaríkjunum í dag. HÖNNUNARMARSINN heldur innreið sína í Hafn- arhúsið í dag með tískusýn- ingu Munda, afhendingu verðlauna í Errósamkeppn- inni, fjölbreyttri dagskrá tengdri útgáfu bókarinnar Byggingarlist í augnhæð og fleiru. Viðburðirnir eru ókeypis og öllum opnir. Tískusýning Munda hefst kl. 20, en í frétt frá Hafn- arhúsi segir að margir bíði með óþreyju eftir nýjustu tískulínu Munda sem kemur í versl- anir í haust. „Mundi er hálfgert undrabarn í ís- lenskri hönnun,“ segir þar ennfremur. Hönnun Ný lína frá Munda í Hafnarhúsinu Fatahönnuðurinn Mundi SÝNA og sjá-dagskrá Ný- listasafnsins, verður fram haldið í kvöld kl. 20. Kvöldið verður helgað hljómsveit- inni Kolrössu krókríðandi og fer sveitin yfir átta ára feril sinn í tali og tónum, stökkið úr bítlabænum Keflavík til London og reynslu sína af óháðum tón- listarheimi í Bretlandi. Meginviðfangsefni kvölds- ins verða þó fyrstu ár sveitarinnar. Forsendur Sýna og sjá-dagskrár Nýlistasafnsins eru tengsl óháðra hljómsveita við safnið í 30 ára sögu þess. Tónlist Kolrassa í Nýlistasafninu Elíza Geirsdóttir í Kolrössu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.